Morgunblaðið - 07.01.1993, Side 1
64 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
4.tbl. 81.árg.
FIMMTUDAGUR 7. JANUAR 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ótti við allsheij-
arstríð í Angóla
Luanda. Reuter.
HARÐIR bardagar blossuðu upp í nokkrum borgum Afríku-
ríkisins Angóla í gær þegar stjórn landsins herti sókn sína
gegn uppreisnarmönnum í UNITA-hreyfingunni. Stjórnarer-
indrekar í höfuðborginni, Luanda, sögðu þetta valda almenn-
um ótta við að allsherjar borgarastyijöld blossaði upp í land-
inu að nýju.
Stjórnarerindrekarnir sögðu að
valdhafarnir í Luanda væru að
reyna að brjóta uppreisnarmenn-
ina á bak aftur í helstu borgum
landsins. „Það er ljóst að stjórnin
hefur hafið mikla sókn til að kveða
uppreisnina niður,“ sagði vest-
rænn stjórnarerindreki í höfuð-
borginni.
Barist var með stórskotavopn-
um í Cuito, höfuðstað Bie-héraðs
í miðhluta landsins, og N’diva í
Cunene-héraði, nálægt landa-
mærunum að Namibíu. Götubar-
dagar blossuðu upp í borgunum
Benguela og Lobito við ströndina
á mánudag og þeir héldu áfram
í gær. Þá skýrði útvarpið í Luanda
frá því að uppreisnarmenn UNITA
í borginni Namibe hefðu beðið
ósigur fyrir stjórnarhernum.
Upplýsingafulltrúi UNITA,
Jorge Valentín, sakaði stjórnar-
herinn um árásir á óbreytta borg-
ara og sagði að liðsmenn hreyfing-
arinnar héldu uppi vörnum í Lo-
bito, einu af höfuðvígjum hreyf-
ingarinnar, og stjórnin hefði sent
þangað liðsauka.
Bardagar brjótast
aftur út í Sarajevo
Sarjýcvo. Reuter.
GÍFURLEGA harðir bardagar brutust út í mörgum hverf-
um Sarajevo, höfuðborg Bosníu, í gærkvöldi að sögn
bosníska útvarpsins, en allt hafði verið með kyrrum kjör-
um í borginni í nokkra daga.
Sprengjum rigndi yfír mörg
hverfi Sarajevó og barist var í
návígi á götum hverfanna Do-
brinja og Vojnicko Polje. Útvarpið
gaf enga skýringu á því hvers
vegna átökin brutust út.
Þau hófust svo til um leið og
Dobrica Cosic, forseti þess sem
eftir er af Júgóslavíu, hafði flutt
útvarpsávarp þar sem hann beindi
orðum sínum til Bosníuserba og
sagði að þeir ættu yfir höfði sér
hernað af hálfu Bandaríkjanna og
Atlantshafsbandalagsins (NATO)
ef þeir sættust ekki á málamiðlun
í friðarviðræðum í Genf.
Vongóðir sáttasenyarar
Fyrr um daginn höfðu Cyrus
Vance og Owen lávarður, sátta-
semjarar Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) og Evrópubandalagsins (EB)
í málefnum Bosníu, sagst vongóð-
ir um að lausn fyndist í Genfarvið-
ræðunum næstkomandi sunnudag.
Sögðu þeir þetta að loknum fund-
um með leiðtogum Serba í
Belgrad.
Þá sagði Roland Dumas utan-
ríkisráðherra Frakklands í París í
gær að samkomulag hefði tekist
um að sveitir stríðandi fylkinga í
Bosníu afléttu umsátri um
Sarajevo og flyttu menn sína og
vopn a.m.k. 30 km frá borginni.
Forsetar Serbíu, Bosníu og Króat-
íu hefðu um það samið. Stjórnarer-
indrekar sem fylgdust náið með
friðarviðræðunum í Genf sögðust
hins vegar hafa miklar efasemdir
um að samkomulag af því tagi
gengi fram; Serbar myndu seint
fallast á að sleppa þvj taki sem
þeir hefðu á borginni.
Reuter
Olíunni
að bráð
Fyrstu merki um af-
leiðingar strands
tankskipsins Braer
við Hjaltland komu í
ljós í gær er dauðum
sjófugli og fiski skol-
aði á land í stórum
stíl í Quendale- flóa.
Óttast var í gær-
kvöldi að helmingur
84.500 tonna farms
skipsins hefði runnið
í sjóinn en fregnir um
að það væri tekið að
liðast í sundur voru
bornar til baka. Veð-
ur kom í veg fyrir að
hægt yrði að beita
tiltækum mengunar-
vörnum. Bresk
stjórnvöld hafa fyrir-
skipað opinbera rann-
sókn á orsökum
slyssins og verður
m.a. kannað hvers
vegna skipið varð vél-
arvana og hvort
áhöfnin hafí staðið
rétt að verki er hún
yfírgaf skipið. Braer
var með aðeins
tveggja mánaða
gamalt haffærisskír-
teini o g var í fjórðu
ferð sinni með olíu frá
Noregi til Kanada. Á
myndinni heldur liðs-
maður björgunar-
sveita á útötuðum
sjófulgi sem reynt var
að bjarga.
Sjá „Strangari regl-
ur...“ á bls. 20.
Hóta hemaðaradgerð-
um í suðurhluta Iraks
Washington. Reuter.
SENDIHERRAR Banda-
ríkjanna, Frakklands og
Bretlands hjá Sameinuðu
þjóðunum (SÞ) afhentu ír-
öskum starfsbróður sínum
hjá stofnuninni í gærkvöldi
hótunarbréf þar sem írök-
um var gefinn tveggja sól-
arhringa frestur til að fjar-
lægja flugskeyti frá Suður-
Irak. Ef flugskeytin yrðu
ekki fjarlægð myndu her-
þotur þessara ríkja eyði-
leggja þau. Saddam Hus-
Brotlending 1 París
París. Reuter.
ÞYSK flugvél af gerðinni De Havilland DASH-8 brot-
lenti skammt frá flugbrautarenda á Charles de Gaulle
flugvellinum í París í gærkvöldi. Fjórir farþegar flugvél-
arinnar biðu bana. Orsakir óhappsins voru óljósar.
Nítján farþegar og fjögurra
manna áhöfn voru með flugvélinni
sem var í áætlunarflugi fyrir flug-
félagið Lufthansa frá Bremen í
Þýskalandi til Parísar. Auk hinna
látnu slösuðust allir hinir farþeg-
arnir 15, þar af sex lífshættulega.
Þoka var er flugvélin brotlenti
á vegi skammt frá flugvellinum.
Hún staðnæmdist við brautar-
endann. Þokan raskaði þó ekki
umferð um flugvöllinn.
sein íraksforseti flutti í
gær ræðu þar sem hann
sagði her landsins reiðubú-
inn að verja heiður þess.
Heimildarmaður Reuters-
fréttastofunnar í stjómsýslunni í
Washington sagði í gærkvöld að
að aðgerðir þessar hefðu verið
ræddar við stjórnvöld í Saudi-
Arabíu en þau tækju ekki beinan
þátt í þeim. Þá var sendiherra
Rússa hjá SÞ viðstaddur er hótun-
arbréfíð var afhent íraska sendi-
herranum.
Bandaríkjamenn og bandamenn
þeirra halda hlífískildi yfír Kúrd-
um í norðurhluta íraks og enn-
fremur er íröskum flugvélum
bannað að fljúga yfir suðurhluta
landsins.
írakar byijuðu að flytja SAM-2
og -3 flugskeyti til suðurhlutans
eftir að Bandaríkjamenn skutu
niður íraska þotu 27. desember
síðastliðinn. Bandaríkjamenn og
bandamenn þeirra telja að sögn
að ætlun íraka sé að skjóta niður
þotur þeirra.
íraksher tilbúinn að frelsa
norður- og suðurhluta landsins
Saddam Hussein minntist ekki
berum orðum á þessa deilu í ræðu
sinni í gær. Frændi hans og varn-
armálaráðherra, Ali Hassan al-
Majeed, sagði hins vegar í gær
að herinn væri reiðubúinn að frelsa
norður- og suðurhluta landsins.
George Stephanopoulos, tals-
maður Bills Clintons, verðandi for-
seta Bandaríkjanna, sagði að
Clinton styddi heilshugar tilraunir
George Bush forseta til að fram-
fylgja flugbanninu yfir Suður-írak
og myndi halda þeim áfram þegar
hann tæki við embættinu síðar í
mánuðinum.