Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993 Landbúnaðarráðuneytið um hækkanir á verði ýmissa búvara I samræmi við breytingar á verðlagi og endurgreiðslum Landbúnaðarráðuneytið sendi i gær frá sér greinargerð um þær hækkanir sem urðu á afurðum alifugla, nautgripa og hrossa 1. janúar. Kemur þar fram að þær séu i fullu samræmi við breytingar sem urðu á endurgreiðslum á virð- isaukaskatti um áramótin og þær almennu verðlagsbreytingar sem að mati sexmannanefndar hafa orðið frá 1. mars sl. Fjármálaráðu- neytið hefur einnig farið yfir út- reikningana og segir Bolli Þór Bollason, skrifstofustjóri, að stað- fest sé að þær hækkanir sem fram- leiðendur hafa sett fram stafi ekki allar af lækkun endurgreiðslna vegna þessara afurða. Framlög til endurgreiðslu á virðis- aukaskatti voru lækkuð um 250 Maharishi Mahesh Yogi, upphafsmaður Innhverfrar íhugunar. ninga rfundur á Grensásvegi 11 (húsi Málarans), 2. hæð, kl. 20.30 í kvöld, fxmmtudag. Innhverf íhugun er auðlærð, nátt- úruleg hugleiósluaðferð til að þroska persónuleikann. Aðferðin hjálpar til að: ★ Hafa minna fyrir lífinu en auka sköpunarhæfni og árangur. ★ Fá hugmyndir sem stuðla að lausnum viðfangsefna. ★ Þróa innri kyrrð og fullan mátt hugans. ★ Losa líkamann við djúpstæða uppsafnaða streitu. Nánari upplýsingar á kynningarfúndinum eða í síma 678178. íslenska íhugunarfélagiö. Bókhaldsnámskeið Sérhönnuð námskeið með þarfir atvinnulífsins í huga. Bókhald I. stig byrjendur 20 tímar ★ Farið í grunnatriði bókhalds, gerð einfalds rekstrar- og efnahagsreiknings. Byrjar 11. janúar, tími: mán., mið. Bókhald II. stig framhaldsflokkur 20 tímar ★ Bókhaldsæfíngar og reikningsskil einkafyrirtækja. Byrjar 12. janúar, tími: þri., fim. Bókhald III. stig 20 tímar Raunhæft verkefni: ★ Skil og innheimta virðisaukaskatts. ★ Launabókhald. ★ Viðskiptamannabókhald. ★ Frágangur, afstemmningar, milliuppgjör. ★ Samning rekstrar- og efnahagsreiknings. Byrjar 1 1. janúar, tími mán., mið. Bókhald IV. stig Tölvubókhald Opus allt 20 tímar ★ Fjárhags- og viðskiptamannabókhald, raunhæft verkefni. Byrjar 15. febrúar, morgun- og kvöldtímar Bókhalds- og rekstrarnám I-IV stig 68 timar Aðalnámsgreinar: ★ Hlutverk bókhalds, bókhaldslög. ★ Bókhaldsæfingar og gerð milliuppgjöra. ★ Launabókhald. ★ Skil og innheimta virðisaukaskatts. ★ Raunhæft verkefni. - frágangur, afstemmingar, milliuppgjör. - samning rekstrar- og efnahagsreiknings. ★ Tölvubókhald - Opus allt. Byrjar 18. janúar, morgun- og kvöldtímar. Skattframtöl fyrir einstaklinga, 16 tímar, byrjar 3. feb. Innritun er þegar hafin. Viðskiptaskólinn Skólavörðustíg 28, sími 624162. milljónir, eða úr 460 milljónum í 210 milljónir milli fjárlaga 1992 og 1993, en þessi breyting veldur breytingum á afurðaverði alifugla, svína, hrossa og nautgripalqöts. Fram kemur í greinargerð landbúnaðarráðuneytis- ins að verðlagsnefndum landbúnað- arins hafí verið tilkynnt um þessa breytingu í lok sl. árs. Fór þá fram verðlagning og nýskráning verðs fyr- ir afurðir alifugla, nautgripa og hrossa. Ekki er opinber skráning á verði svínakjöts, og hækkanir því á valdi framleiðenda. Landbúnaðarráðuneytið bendir á að sé tekið tillit til ógreiddra reikn- inga frá desember og stöðu fjárlaga- liðarins um áramót, hafí ráðuneytið ákveðið að lækka endurgreiðslu á hveija einingu þessara afurða að meðaltali um 64,7%. Fjármálaráðu- neytið hefur fengið aðrar niðurstöðu. Bolli benti á að fjármálaráðuneytið gengi út frá 55% lækkun niður- greiðslna en landbúnaðarráðuneytið tæki einnig tillit til uppsafnaðs halla á síðasta ári. Hvað einstakar afurðir varðar þá kemur fram í skýringum landbúnað- arráðuneytisins að vegna breytinga á endurgreiðslum úr ríkissjóði hækk- ar verð eggja um 7,28%. Almennar verðlagsbreytingar að mati sex- mannanefndar frá 1. mars sl. nema 4,12%. Samtals'nam því verðhækk- unarþörfín 11,40%. Að tillögu bænda í verðlagsnefndinni var rúmlega helmingi hækkunarinnar frestað til 1. mars nk., og því varð hækkunin á verði eggja 5% 1. janúar. Verð á kjúklingakjöti hækkar um 11,14% vegna breytinga á endurgreiðslu vsk. Almennar verðlagsbreytingar frá 1. mars eru taldar 4,08%, og verðhækk- unarþörfín því samtals 15,22%. Breytingar á endurgreiðslum á vsk. vegna nautgripakjöts hækkar verð þess um 13,48%. Engar almennar verðlagsbreytingar voru gerðar til bænda af sexmannanefnd og slátur og heildsölukostnaður hélst óbreytt- ur. Því nam verðhækkunin samtals 13,48%. Verð svínakjöts hækkar um 8,65% vegna breytingar á endur- greiðslu vsk. og að mati framleiðenda nema almennar verðlagsbreytingar frá 1. október 3,11% nettó eftir lækk- anir vegna afnáms aðstöðugjalds. Samtals nemur áætluð verðhækkun- arþörf svínakjöts því 11,76%. Uppsagnir verða von- andi endurskoðaðar - segir Páll Bergþórsson veðurstofustjóri í BYRJUN febrúar verður væntanlega Ijóst hver tekur við starfi veður- stofustjóra um næstu áramót þegar Páll Bergþórsson hættir fyrir ald- urs sakir. Páll segir að þá verði skipaður starfsmaður til að sinna stefnumótun stofnunarinnar og sá hinn sami verði næsti yfirmaður hennar. Hann vonist til að þessi hreyfing á málum fái þá sjö veðurfræð- inga sem sagt hafa upp störfum til að endurskoða ákvarðanir sínar. Auglýst var í gær eftir veðurstofu- stjóra og óskað eftir að viðkomandi komi til starfa hið fyrsta til að taka þátt í vinnu við stefnumótun í tengsl- um við athugun sem nú stendur yfír á þróun og stefnumiðum Veðurstof- unnar. Páll Bergþórsson segist hafa fengið samþykki umhverfísráðuneyt- is til að tilvonandi veðurstofustjóri verði hið fyrsta ráðinn til þessa sér- verkefnis. „Mér þótti eðlilegt að sá sem tekur við stjórn stofnunarinnar að ári hafí áhrif á þróun starfsemi hennar,“ segir Páll. Morgunblaðið/Silli Fuglarnir taldir. 26 þúsund fugiar í jólatalningu Húsavik. LOKIÐ er hinni árlegu jðla- talningu fugla á svæðinu frá Skjálfandafljóti að vestan, austur með Tjörnesi og allt að ósum Litluáar í Keldu- hverfi og í landi Laugabóls í Reykjadal. Alls töldust 37 tegundir og samtals 25.587 fuglar og er það fjölgun frá fyrra ári. Samkvæmt upplýsingum Gauks Hjartarsonar eru helstu niðurstöður talningarinnar að fjöldi einstaklinga er nokkru meiri en þá síðast var talið og munar þar mestu um óvenju mikinn fjölda af fýl. í hlýindum undanfarið virðist fuglinn koma að landi og jafnvel setjast í björg þó um hávetur sé. Hávell- um hefur fjölgað mjög. Æðar- fuglar eru nokkru færri en síð- asta áratug og snjótittlingar óvenju fáir. Tegundum hefur fækkað frá fyrri talningum. Þar veldur trú- lega harðari vetrarbyijun en undanfarin ár, svo óvenju litlar komur erlendra flækingsfugla hafa verið til landsins í haust. — Fréttaritari. Feðgar sem hafa ferð- ast saman víða um heim Útivera að vetri Gunnlaugur Rögnvaldsson Filippus Pétursson og sonur hans Gabriel eiga ættir að rekja til Frakk- lands, en Filippus kom hingað tví- tugur að aldri og heillaðist svo af náttúru landsins og sögu að hann hefur verið hér síðan og m.a. skipu- lagt ferðir útlendinga til landsins í á annan tug ára. Þeir feðgar hafa ferðast víða saman, m.a. um ísland, Nepal og Sahara-eyðimörkina og finna til samkenndar í skauti náttúr- unnar. Báðir eru heillaðir af lands- laginu hérlendis. „Ég kom hingað tvítugur að aldri frá Frakklandi og ákvað einhveiju sinni að labba frá Mývatni og suður- úr yfír hálendið. Ég hafði alltof lítinn mat meðferðis, varð uppiskroppa með næringu og lifði á eggjum úr náttúrunni eftir að ég fór um Nýja- dal. Þegar ég kom svo í borgina las ég um Fjalla-Eyvind og sá lestur og mín upplifun á hálendinu varð til þess að ég heillaðist af landinu og hef ekki farið síðan," sagði Filippus í samtali við Morgunblaðið, en hann vinnur nú hjá Safari-ferðum, sem reknar eru af Útsýn og Guðmundi Jónassyni hf. og sérhæfír sig m.a. í ferðum um hálendið með útlend- inga. Frost í Sahara Filippus hefur eytt miklum tíma Feðgarnir Filippus og Gabriel. á hálendinu. Á hveiju ári er hann marga mánuði á fjöllum, mest yfír sumartímann, en einnig í ferðum á veturna, ýmist á vélsleðum eða gönguskíðum. Dvöl sína hérlendis hóf hann með því að ljósmynda dýra- lífið og selja erlendum tímaritum, en fór síðar í ferðamennskuna af fullum krafti og byggði upp eigið fyrirtæki í kringum það. En Filippus hefur ekki einskorðað sig við ísland, hann hefur farið með hópa um Sa- hara-eyðimörkin og segir það óvenjulega upplifun. „Þótt furðulegt sé þá getur verið 20 stiga frost á nóttinni í Sahara, en samt er það er ekkert tiltökumál að sofa undir berum himni, loftið er alveg raka- laust og ekki bítandi kuldi eins og hérlendis," sagði Filippus. Sonur hans Gabriel hefur ferðast með honum um eyðimörkina og einn- ig um hálendi íslands, en hann er fímmtán ára gamall og dugnaðar- forkur. „Ég treysti honum jafnvel í ferðum og fullvöxnum manni, hann gefst aldrei upp. Við erum nýkomn- ir.frá Nepal, þar sem við ferðuð- umst saman. Ég tók hann fyrst með tveggja ára gamlan og hann hefur flakkað með mér síðan," sagði Filippus, „hann vildi sem polli helst alltaf vera blautur, með tvo lítra af vatni í stígvélunum og annað í þeim dúr, var strax greinilega tilbúinn í svaðilfarir. Ég gæti sent hann með þyrlu upp á Mýrdalsjökul og hann myndi bjarga sér til baka, jafnvel í þoku, hann þekkir landsvæðið nvíög vel.“ Sonurinn vill hrakninga „Það er í raun skemmtilegt hvem- ig samskipti okkar hafa þróast. Ég ólst upp við sannkallað lúxuslíf, en hann hefur mest gaman af fjallaferð- um og hrakningum. Strákurinn hjálpar mér í mörgum ferðum og hefur sjálfur farið með sjónvarpstök- ulið um landið. Hann er fæddur með hæfileika á þessu sviði og getur stað-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.