Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993
35
ÁTÖK
Hjónaband Whitney Houston og
Bobby Brown á leið í vaskinn?
Miklar hremmingar dynja nú
yfir söngkonuna Whitney
Houston og fór aldrei svo að hún
fengi notið þess í friði að leika í
sinni fyrstu kvikmynd og fylgjast
með viðtökunum. Myndin, „The
Bodyguard", eða Lífvörðurinn, þar
sem mótleikarinn er ofurstjarnan
Kevin Costner hefur fengið bæri-
lega dóma og Costner reyndar betri
dóma en Houston þó hún þyki eiga
góða spretti. En einkalífið hefur
verið brösótt og fregnir herma að
hún vilji nú skilja við eiginmann
sinn, popparann Bobby Brown. Þau
hafa aðeins verið gift í fimm mán-
uði og hún á von á sér eftir tæp-
lega þijá mánuði. Fyrir skömmu
munaði minnstu að hún missti
fóstrið og kom til kasta lækna á
Morristown Memorial-sjúkrahús-
inu, sem tókst að bjarga barninu.
Mitt í geðshræringunni úttalaði
Whitney sig um að eiginmaðurinn
Bobby Brown sinnti sér lítt, heldur
héldi áfram uppteknum hætti og
hagaði sér eins og hann væri enn
eftirsóttur piparsveinn.
Whitney þykir ein besta dægur-
lagasöngkona veraldar og með feg-
urri konum að auki og ímynd henn-
ar hefur ævinlega verið hreysti og
fegurð. Aldrei var hún við lausung
kennd eða marga karlmenn eins
og margar stöllur hennar. Var það
svo áberandi að illar tungur báru
á hana samkynhneigð. Ævinlega
bar hún þó á móti slíku og sagði
sig þrá að eiga mann og barn.
Samband hennar og Bobby Brown
var mjög umtalað og brúðkaupið
hið íburðarmesta. Nú er hins vegar
Whitney og Bobby Brown
skömmu eftir brúðkaupið.
sagt að brotalamir séu þegar farn-
ar að myndast.
Eins og búast mátti við fór Gróa
á Leiti af stað á dögunum og sagði
heitt ástarsamband blómstra á
milli Whitney og Kevins Costner
og það hafi valdið því að nú er
stirt á milli Whitney og Bobby, en
bæði Whitney og Costner bera á
móti slíku. Whitney segir á hinn
bóginn að bóndi hennar virði engin
loforð sem gefin voru um hvernig
lífi þeirra saman yrði háttað. Hann
hafi verið gleði- og söngmaður
mikill og hefði hún viljað að hann
hefði betri hemil á sér í samkvæm-
islífinu. Þessu hafi hann lofað en
efndir hafi engar orðið og til að
kóróna allt saman sýndi hann til-
vonandi barni lítinn áhuga. Mikið
yrði að breytast ef hjónabandinu
ætti ekki að ljúka.
Hermt er einnig að Whitney
Whitney Houston er ekki sögð
mjög glöð í bragði þessa dag-
anna.
hafi verið mjög taugatrekkt um
all nokkurt skeið og kunni kvik-
myndagerðin, þungunin, brúð-
kaupið og söngstarfið að hafa
reynst henni ofviða, svona allt sam-
an hvað ofan í öðru. Þessi titringur
hennar þykir hafa komið fram á
dögunum er hún fékk þær upplýs-
ingar að íbúðarhús sem hún festi
kaup á í Beverly Hills fyrir nokkr-
um misserum hafi áðucverið aðset-
ur klíku djöfladýrkenda. Er henni
varð ljóst að nótar Lúsifers hefðu
hreiðrað þarna um sig taldi hún
það útskýra hversu illa sér hefði
alltaf liðið í húsinu. Ágerðust þau
óþægindi hröðum skrefum eftir að
þessi tíðindi lágu fyrir og endaði
málið með þeim hætti að Whitney
réði til sín færustu árafælur Kali-
forníu og skiluðu þeir Whitney-
húsinu „hreinu".
Samningurinn undirritað-
ur, frá vinstri til hægri:
Jóhanna Oskarsdóttir,
Hjörvar Jensson, og
Hannes Ragnarsson.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
ÍÞRÓTTIR
Landsbankinn styður
körfuboltamenn í Keflavík
Keflavík.
andsbanki íslands hefur gert
stuðnings- og auglýsingasamn-
ing við Körfuknattleiksráð Keflavík-
ur og er samningurinn til þriggja
ára. Samningurinn var nýlega undir-
ritaður við hátíðlega athöfn í veit-
ingastaðnum Þotunni í Keflavík þar
sem báðir aðilar lýstu ánægju sinni
með samninginn. Samninginn undir-
rituðu Jóhanna Óskarsdóttir útibús-
stjóri Landsbankans á Keflavíkur-
flugvelli, Hjörvar Jensson umdæmis-
stjóri Landsbankans á Suðurnesjum
og Hannes Ragnarsson formaður
Körfuknattleiksráðs Keflavíkur.
- BB
Ég get ekkert að því gert þótt snúran í ryksögunni
sé ekki nógu löng.
5 vikna módelnámskeið fyrir karla og konur frá
16 ára aldri. Námskeiðið er bœði œtlað byrjendum og
þeim sem hafa einhverja reynslu af módelstörfum.
Það er tilvalið fyrir þá sem œtla sér að fá störf hjá
módelumboðsskrifstofu og vantar þjálfun:
- í að vera gott módel
- fyrir Ijósmyndatökur og myndbandstökur.
Eftir námskeiðið fœr hver þátttakandi eigin Ijósmyndir
og myndbandsspólu til að setja í möppu.
Námskeiðinu lýkur í kvikmyndaveri með stórglœsilegri
tískusýningu þátttakenda sem tekin verður upp á
myndband og allir fá eintak af.
Leiðbeinendur verða:
• Sóley Jóhannsdóttir, eigandi Dansstúdíós
Sóleyjar. sem þjálfað hefur flest módel fyrir Elite og
Ungfrú íslands keppnir. Henni til aðstoðar verður
Helena Jónsdóttir.
• Grímur Bjamason. einn af fremstu tísku- og
auglýsingaljósmyndurum landsins.
• Rafn Rafnsson. reyndur kvikmyndatökumaður.
meðal annars á sviði tísku og auglýsinga.
Haldin verða 3 námskeið:
I. 11. janúar -12. febrúar
II. 15. febrúar -19. mars
III. 22. mars -16. apríl
Kennslustaður: Engjateigur 1. Innritun og
upplýsingar í símum 687701 og 680960 milli kt. 12
og 18.