Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993 15 Þorgeir Þorvarð■ arson — Minning Ég kveð látinn vin með þeim sömu orðum sem standa á jólakort- inu sem ég fékk frá honum daginn áður en hann dó. „Þakka þér fyrir allt.“ Ég samgleðst honum að vera laus úr viðjum líkamans sem var orðinn svo þreklítill. Á erfiðum stundum sótti hann oft styrk í mátt bænarinnar og ég er viss um að nú hefur hann reynt að orð meistarans frá Nasaret eru sönn, er hann segir „biðjið og yður mun gefast" og líka hitt „að sælir eru þeir sem hungra ög þyrstir eftir réttlætinu, því þeir munu guðsböm kallaðir verða“. Ég geymi minningu um 55 ára langa vináttu og skyldu- rækinn og umhyggjusaman föður. Blessuð sé minning Þorgeirs Þor- varðarsonar. Sigríður Gísladóttir. Mánudaginn 21. desember sl. lést á heimili sínu Þorgeir Þorvarðarson frá Bakka á Kjalarnesi. Hann var fæddur 27. desember 1914 á Bakka þar sem harm ólst upp í stórum systkinahópi, en hann var fjórði af ellefu systkinum, sem öll komust upp. Mér er ekki vel kunnugur upp- runi eða æviferill Þorgeirs, en veit þó að hann var búfræðingur frá Hvanneyri og vann lengst af störf tengd landbúnaði og jarðyrkju, þótt ekki yrði hann bóndi. Hann var m.a. mjólkurbílstjóri í Kjós og á Kjalarnesi á stríðsárunum, starfaði síðar hjá Mjólkurfélaginu við vöru- afgreiðslu og loks hjá Sölufélagi garðyrkjumanna. Þorgeir var ókvæntur, en eina dóttur eignaðist hann, Þórdísi, f. 1941, sem er gift kona hér í bæ og á þrjú börn og tvö barnabörn. Þorgeir lét eitt sinn svo um mælt við mig að það teldi hann eina sína mestu gæfu í lífinu að þafa eignast Þórdísi. Ég kynntist Þorgeiri fljótlega eftir að ég slóst í hóp árrisulla gesta Sundlaugar Vesturbæjar fyrir lið- lega áratug. Þorgeir var þar einn fastagesta, ávallt mættur á staðinn vel fyrir sjö, ef ekkert hindraði. Ekki var hann þó einn þeirra sem „hékk á húninum" eins og við orð- uðum það í okkar hóp, heldur byij- aði hann á því að taka til á hlaðinu og tíndi upp hvers kyns rusl og drasl, sem aðrir miður þrifnir sam- borgarar höfðu fleygt frá sér, og kom því á sinn stað í rusladallinn, sem óþrifnir sýnast ekki geta kom- ið auga á. Snyrtimennska einkenndi Þorgeir, sem sjá má á innganginum í kjallarnum á Hagamel 23 og ekki síður þegar inn er komið. Annað var það sem í mínum huga einkenndi Þorgeir öðru frem- ur, en það var sá háttur hans að heilsa okkur sundsystkinum sínum yfirleitt með kjamyrtri og nýstár- legri túlkun á einhveiju sem hann hafði lesið í Morgunblaði dagsins eða honum hafði borist á öldum ljós- vakans síðasta sólarhringinn. Síðan var þetta gjarnan tekið fyrir á „Varðarfundi" við kaðalinn í laug- inni að loknu morgunsundi. Þar var Þorgeir hinn ókrýndi foringi, fund- arstjóri og framsögumaður, allt í senn. Iðulega svall honum móður yfír ýmsu því sem efst var á baugi, einkum á sviði stjórnmálanna. Mátti þar margur una því að heyra harða gagnrýni á leiðtoga sína, en því er ekki að leyna, að framsóknarmenn allra flokka virtust Þorgeiri jafnan skapfelldir umfram aðra og ýmsir ónefndir foringjar fengu betri út- reið hjá honum en aðrir, svo um sumum þótt nóg um á stundum. Það mátti á Þorgeiri skilja, að hann hefði verið nokkur gleðimaður um dagana og ekki neitað sér um ýmislegt það sem gjaman flokakst undir lífsins lystsiemdir. Ekki veit ég um það svo gerla, en handgeng- inn mun hann hafa verið Bakkusi um ævina, en vinfengi þeirra var þó mjög í rénum þann tíma sem ég þekkti Þorgeir og gat varla heit- ið að þeir ættu samskipti utan ör- sjaldan. Þorgeir sótti AÁ-fundi yfír- leitt vikulega meðan okkar kynni stóðu. Annar ljóður þótti mér verri á ráði vinar míns, en það var hversu ákafur tóbaksneytandi hann var. Hann reykti sér vissulega til óbóta og vildi ég kenna hnignandi heilsu hans síðustu árin þeiri nautn hans. Þorgeiri var fátt fimm daga í 78 ár, þegar hann lést, en fyrir mér var hann alltaf mun yngri, bæði í sjón og raun. Má vera að ég of- meti þátt tóbaksins og vanmeti Elli kerlingu í að leggja hann að velli. Hinu verður ekki móti mælt, að lungnasjúkdómur var farinn að leggjast þungt á Þorgeir hin síðari ár og olli á köflum löngum fjarvist- um hans úr lauginni. Hans var ávallt saknað þegar svo stóð á. Hann hafði nú um nokkurt skeið ekki treyst sér í laugina sakir bijóst- þyngsla, en við vonuðum að með hækkandi sól myndum við heimta hann aftur glaðan og reifan og án nokkurs bilbugs sem oft áður. Svo fór að hann kvaddi fyrir fullt og allt í þann mund sem sól var lægst á lofti. Nú þegar hann er allur er skarð fyrir skildi sem seint mun fyllt. Ég veit að þetta mæli ég fyr- ir munn allra sem þekktu hann úr lauginni. Skápur 42 saknar vinar í stað. Ættingjum hans öllum votta ég samúð. Vlgfús Magnússon. Tengdafaðir minn, Þorgeir Þor- varðsson, verður borinn til grafar frá Neskirkju í dag. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu, Haga- mel 23, 21. desember, u.þ.b. viku fyrir 78. afmælisdag sinn. Þorgeir kenndi sig gjarnan við föðurleifð sína, Bakka á Kjalamesi, þar sem hann fæddist og ólst upp hjá foreldrum sínum, Málhildi Tóm- asdóttur og Þorvarði Guðbrands- syni, í stórum systkinahópi. Systkinin á Bakka voru 11, sem öll komust á legg og lifðu fram á efri ár. Fyrst féll frá Guðbjörg, eig- inkona Gunnars Hólm. Þau eignuð- ust 6 börn, og er kominn frá þeim mikill ættbogi. Yngsta systirin féll frá fyrir þremur árum, Hallfríður, sem búið hafði í barnlausu hjóna- bandi. Fyrir um ári lést svo Guð- mundur múrarameistari, einhleyp- ur. Sjö eru nú eftirlifandi úr systk- inahópnum. Eyjólfur, var lengst af togarasjómaður. Á Bakka búa rausnarbúi Gunnar og Bjarni, ásamt systur sinni Gróu. Sigurður, hefur löngum unnið að búskapnum með systkinum sínum, en er annars starfsmaður Vegágerðar ríkisins. Hann bjó lengst af á Bakka, en er nú kominn til Reykjavíkur. Tómas, endurskoðandi, og Guðrún halda heimili saman í Reykjavík. Öll hafa þessi systkini komist vel áfram í lífinu en eru ógift og barnlaus. Samheldni hefur ætíð verið í systkinahópnum og þau verið hreykin af því, hve myndarlega er búið á ættaróðali þeirra, Bakka, sem er síðasti bærinn í sveitinni með hefðbundinn landbúnað. í æsku systkinanna var sveitin þeirra mikið landbúnaðarhérað og fjöl- menni á mörgum bæjum. Bakki hefur verið eins konar fjölskyldu- miðstöð fyrir systkinin og afkom- endurna, enda þar vel tekið á móti gestum og gangandi. Eftir að Þorgeir lauk námi frá Búnaðarskólanum á Hvanneyri stundaði hann jarðbótastörf, aðal- lega í Borgarfirði, með ýmiss konar vinnuvélum, sem þá var nýlunda í sveitum. Átti hann í fórum sínum ýmsar skemmtilegar sögur frá því skeiði ævi sinnar. Svo ók hann mjólkurbílum um Kjós og Kjalarnes um nokkurn tíma. Loks tók hann við fastri stöðu sem verkstjóri hjá Mjólkurfélagi Reykjavíkur og síðar hjá Sölufélagi garðyrkjumanna. Alls starfaði hann við þessi störf í fjóra áratugi. Átti hann þar góða daga, og eignaðist stóran hóp tryggra vina. Störf þessi áttu hug hans allan, enda ávann hann sér mikið traust hjá yfirmönn- um jafnt sem undirmönnum sínum. Á vertíð í Eyjum kynntist hann góðri konu, Sigríði Gísladóttur frá Ketilsstöðum í Mýrdal, og eignaðist með henni dóttur, Þórdísi, eigin- konu mína. Þótt þau tækju ekki upp sambúð, var gott samband milli þeirra lengst af, ekki síst eftir að dóttir þeirra óx úr grasi. Hún var einkabarn hans. Nú þegar Þorgeir fellur frá á hann sér sex afkomend- ur, þ.e. Þórdísi, börnin okkar þijú og tvö barnaböm okkar. Hann naut þess að gegna afa- og langafahlut- verkinu og var bömunum okkar mjög traustur og góður. Höfðu þau jafnan gaman af heimsóknum hans og að heimsóknum til hans, enda jafnan stutt á-milli. Hann var trygg- ur í því hlutverki sem öðram. Hann hafði gaman af lestri góðra bóka, og að skeggræða slík mál. Einnig ferðaðist hann töluvert, bæði innanlands og utan. Alltaf kynntist hann góðu fólki í ferðum sínum og hélt kunningsskap við það lengi á eftir. Sérstaklega minntist hann oft á kynnisferð sem hann tókst á hendur um Noreg til garð- yrkjustöðva og dreifíngaraðila garðávaxta. Þá kom oft fram hve næmur hann var á ýmislegt í um- hverfinu, hafði mjög glöggt gests auga. En Geiri, eins og hann var oftast kallaður í þrengri hópi vina, varð mikillar gæfu aðnjótandi á lífsleið- inni, þótt hann hafí átt við sína erfiðleika að etja stundum. Hann átti stóran systkinahóp, eignaðist mannvænlega afkomendur og mjög stóran hóp vina og kunningja, sem allir virtu hanp. Hann var jafnan glaður á góðri stundu með fjöl- skyldu og vinum, sagði sögur og ræddi einarðlega um menn og mál- efni líðandi stundar, var góður fé- lagi og vinur, bæði í blíðu og stríðu. Hann lét ekki deigan síga í þeim efnum fram til hins síðasta. Einn eiginleiki var áberandi í fari Geira, sem allir sem hann þekktu dáðust að. Það var snyrti- mennska hans og hreinlæti. Heim- ili hans var jafnan fínt og fágað, þó enginn annaðist það, nema hann sjálfur. Öllu var vel fyrir komið í geymslum og skúffum, allt jafnan á sínum stað. Klæðaburður hans og þrifnaður var ætíð lýtalaus. Dag hvern, sem Guð gaf honum heilsu til, gekk hann til laugar með stóram hópi vina árla dags í Sundlaug Vesturbæjar, og átti þar jafnan mjög góðar stundir. Snyrtimennsku hans á vinnustað var viðbrugðið. Margt ungt fólk, sem undir hans stjórn starfaði, telur sig eiga honum að þakka, að hafa tamið sér að skilja aldrei við nokk- urt verk hálfunnið, ganga frá öllum verkfærum á skipulegan hátt að verkslokum og fara ekki heim að kvöldi nema vinnusvæðið væri að- laðandi næsta dag. Ég vil fyrir hönd fjölskyldu minnar þakka Þorgeiri fyrir sam- fylgdina á lífsleiðinni, og fyrir ástúð hans og umhyggju fyrir bömunum. Það verður óneitanlega skarð fyrir skildi í fjölskyldunni við fráfall hans. Þorsteinn Magnússon. ALLT AÐ 70% AFSLATTUR HAGKAUP gœöi úrval þjónusta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.