Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993 TENNIS / ÍSLANDSMÓTIÐ INNANHÚSS || SKÍÐl / HEIMSBIKARINN Hrafnhildur og Stefán sigursæl - á fyrsta Islandsmótinu innanhúss FYRSTA íslandsmótið ítenn- is innanhúss var haldið í íþróttamiðstöðinni í Grafar- vogi milli hátíðanna. Hrafn- hildur Hannesdóttir úr Fjölni og Stefán Pálsson úr Víkingi -runnu hvort um sig þrenn gullverðlaun. Hrafhildur og Stefán léku sam- an í tvenndarleik og sigruðu en auk þess sigraði Hrafhildur í einliðaleik telpna og kvenna og Stefán í einliðaleik karla og tvíliða- leik ásamt Fjölni bróður sínum. Stefán sigraði Ólaf Sveinsson í einliðaleik 6:3 og 6:2 og Hrafhild- ur sigraði Evu Hlín Dereksdóttur 6:1 og 6:1. Þær áttust einnig við í úrslitum í einliðaleik telpna og þá vann Hrafhildur 6:1 og 7:6. Stefán og Fjölnir sigruðu Olaf og Jónas Bjömsson 7:5, 2:6 og 6:1 í úrslitum í tvíliðaleik og í tvenndar- leiknum unnu Hrafnhildur og Stef- án þau Stafaníu Stefánsdóttur og Stefán Eggertsson úr Fjölni 6:3 og 6:0. Stefanía sigraði í einliða- leik meyja. í öðlingafl0kki sigraði Einar Ólafsson í einliðaleik en Hjálmar Aðalsteinsson og Sigurður Ás- geirsson í tvíliðaleik. Pálína Stein- arsdóttir og Stefán Björnsson sigr- uðu í tvenndarleik öðlinga. Gunnar Einarsson sigraði í ein- liðaleik drengja og einnig sveina. Arnar Sigurðsson sigraði í einliða- leik hnokka og Jón Axel Jónsson í flokki snáða. Katrín Atladóttir sigraði í flokki hnáta. Keppendur vour 82 frá fimm félögum auk þess sem fjórir þátt- takendur eru búsettir erlendis. Leikið var á þremur völlum sam- tímis í íþróttamiðstöðinni. Morgunblaðið/Valur Jónatansson Pernilla Wiberg ólympíumeistari frá Svíþjóð, sem heimsótti ísland á síðasta ári, verður illa fjarri góðu gamni í heimsbikamum það sem eftir lifir vetrar. Viltu auka þekkingu þína? öldungadeild Verzlunarskóla íslands býður hagnýtt nám í fjölmörgum greinum, fyrir alla þá sem náð hafa 20 ára aldri. Innritun á vorönn fer fram dagana 4.-7. jan. kl. 8.30-18.00. í boði verða eftirfarandi áfangar: Bókfærsla Saga Danska Skattabókhald Enska Stærðffæði Franska Tollskjöl Fyrirtækið, stofhun og rekstur Tölvubókhald íslenska Tölvufiræði Landafiræði og saga íslands Tölvunotkun Líffiræði Vélritun Markaðsfræði Þjóðhagffæði Ritun Þýðingar Ritvinnsla Þýska Áföngum ofangreindra námsgreina er hægt að safna saman og láta mynda eftirtalin prófstig: • Próf af bókhaldsbraut • Próf af ferðamálabraut • Próf af skrifstofubraut • Verslunarpróf • Stúdentspróf Umsóknareyðublöð, námslýsingar og allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans, Ofanleiti 1. VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS „Pillan“ úr leik - sleit hásin og þarf í uppskurð Pernilla Wiberg, ólympíumeist- ari frá Svíþjóð sem heimsótti ísland á síðasta ári, meiddist á ökla í svigkeppni heimsbikarsins í Maribor í Slóveníu í gær. Hún þarf líklegast að gangast undir aðgerð og verður þá frá keppni það sem eftir er vetrar. „Pillan“ eins Pernilla Wiberg er oft nefnd fór strax á sjúkrahús í Maribor og töldu læknar að hún hefði slitið hásin í hægri fæti. Hún hélt rakleiðis heim til Svíþjóðar þar sem hún mun fara í frekari rannsókn og í uppskurð. Þetta er mikið áfall fyrir þessa frábæru skíðakonu sem er nú í öðru sæti í stigakeppni heimsbikarsins og átti góða möguleika á að vinna bikarinn. Hún á titil að veija á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Japan í næsta mánuði og er nokkuð Ijóst að hún nær ekki veija hann. Schneider í ham Vreni Schneider frá Sviss sýndi það í gær að hún hefur engu gleymt er hún sigraði með miklum yfirburðum í svigi heimsbikarsins sem fram fór í Maribor í Slóveníu í gær. Hún var tæplega einni og hálfri sekúndu á undan Annelise Coberger frá Nýja-Sjálandi, sem varð önnur en ítalska stúlkan De- borah Compagnoni, ólympíumeist- ari í risasvigi, nældi í þriðja sætið. Schneider, sem er 28 ára, vann þar með fyrsta sigur sinn á tíma- bilinu. Hún virðist kunna vel við sig í Maribor því frá árinu 1984, er hún byijaði að keppa í heimsbik- arnum, hefur hún fímm sinnum unnið mót í Maribor og tvisvar hafnaði í öðru sæti. „Andrúmsloftið hér er frábært og ég get sagt ykkur að Slóvenar vita ýmislegt um skíði. Ég kunni mjög vel brautirnar og reyndi því að gera mitt besta í fyrri umferð- inni en síðari umferðin var full- komin,“ sagði Schneider, sem nú er í 5. sæti í heildarstigakeppninni með 270 stig. SKIÐAGANGA ÚRSLIT Daníel ekki langtfrá þeim bestu Daníel Jakobsson skíða- göngumaður frá ísafirði stóð sig vel á sterku æfinga- móti í 10 km göngu sem fram fór í Falum í gær. Þetta mót var einskonar generalprufa fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer á sama stað í næsta mánuði. Flestir bestu göngu- manna Svía og Norðmanna tóku þátt í mótinu og þar á meðal ólympíumeistaramir, Vegard Ulvang og Bjöm Dæ- hlie. Daníel hafnaði í 13. sæti af 46 keppendum og gekk vega- lengdina á 25.56 mín. og var 1.50 mín. á eftir sigurvegaran- um Sigurd Bjöm frá Noregi, sem gekk á 24.05 mínútum. Vegard Ulvang varð annar á 24.11 mín. og Björn Dæhlie fimmti á 24.42 mín. Norðmenn áttu sjö fyrstu menn í göngunni. Matthias Fredrik- son var fyrstur Svía, hanfaði í 8. sæti á 24.47 mín. Haukur Eiríksson frá Akur- eyri og Sigurgeir Svavarsson frá Ólafsfírði tóku einnig þátt í mótinu. Haukur hafnaði í 21. sæti á 27.24 min. og Sigurgeir í 22. sæti á 27.27 mínútum.. SKOTFIMI Skytturá mót erlendis eir skotmenn, þeir Hannes Tómasson og Ólafur P. Jak- obsson, taka þátt í opnu móti í Luxemborg um helgina. Þar keppa þeir í loftskammbyssu og eftir mótið fara þeir til Stavanger í Noregi á annað mót og þá bætist Tryggvi Sigmannsson í hópinn. Skíðl Maribor, Slóveníu: Svig kvenna mín Vreni Schneider (Sviss)..........1:39.11 (49.89/49.22) Annelise Coberger (N-Sjálandi)...1:40.42 (50.51/49.91) Deborah Compagnoni (Ítalíu)......1:41.01 (50.54/50.47) Kristina Andersson (Svíþjóð).....1:41.25 (50.68/50.57) Julie Parisien (Bandar.).........1:41.25 (50.76/50.49) Ingrid Salvenmoser (Austurríki)..1:41.35 (51.40/49.95) Patricia Chauvet (Frakkl.).......1:41.38 (51.17/50.21) Morena Gallizio (Ítalíu).........1:41.87 (51.37/50.50) Elfí Eder (Austurriki) 1:42.46 (51.66/50.80) Katrin Neuenschwander (Sviss) 1:42.57 (51.81/50.76) Staðn í Htigakeppninni eftir 10 mót: 1. Wachter.........................415 2. Wiberg..........................319 3. Maier...........................280 4. Carole Merle (Frakklandi).......273 5. Schneider.......................270 6. Katja Seizinger (Þýskalandi)....263 7. Coberger........................220 8. Vogt............................218 9. Sylvia Eder (Austurríki)........189 10. Parisien...................... 184 Bischofshofen, Austurríki: Skíðastökk (stig, stökklengdir í metrum): Andreas Goldberger (Austurríki) ....................237.10 (123.5/120.5) Noriaki Kasai (Japan) ................... 235.10 (127.5/116.5) Didier Mollard (Frakkl.) ....................227.30 (119.0/118.0) Vesa Hakala (Finland) ................... 221.80 (119.5/115.0) Jaroslav Sakala (Tékkósl.) ....................221.10 (123.5/110.6) Jens Weissfiog (Þýskal.) ....................217.50 (116.5/116.0) Staðan í heimsbikarkeppninni í skíða- stökki eftir níu mót: Wemer Rathmayr (Austurríki).............139 Andreas Goldberger (Austurríki).........117 Noriaki Kasai (Japan)....................86 Christof Duffner (Þýskai.)...............66 Jaroslav Sakala (Tékkósl.)...............66 Körfuknattleikur NBA-deildin Chicago - LA Lakers............ 88:91 NewYork-Cleveland.............. 95:91 Houston - Phoenix..............104:106 Utah - San Antonio.............113:87 Dallas - Portland.............. 95:109 Boston - Charlotte.............107:103 Orlando - New Jersey........... 99:102 Atlanta - Washington...........100:107 Indiana - LA Clippers..........114:106 Miami - Detroit................ 89:83 Milwaukee - Minnesota..........114:100 Seattle - Golden State.........116:106 Sacramento - Denver............126:106

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.