Morgunblaðið - 07.01.1993, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993
Verðlagsstjóri um verðhækkanir í upphafi árs
Umræðan vekji ekki upp
gömlu verðbólguhugsunina
VERÐLAGSSTJÓRI telur að vegna stöðugs verðlags undanfarin miss-
eri hafi verðskyn neytenda vaxið og hugsunarháttur fólks breyst veru-
lega. Því þurfí umræða um verðhækkanir í upphafí árs ekki að koma
svo mjög á óvart en varar við því að umræðan leiði til þess að gamli
verðbólguhugsunarhátturinn verði endurvakinn. Hann bendir á að
þrátt fyrir hækkanir á nokkrum kjöttegundum og eggjum sé verð
þeirra svipað eða lægra en það var fyrir um tveimur árum.
Hækkanir á verði nautakjöts,
kjúklinga og eggja hafa mikið verið
í umræðunni um verðhækkanir í
upphafi ársins. Georg Ólafsson verð-
lagsstjóri bendir á að þó heildsölu-
verð á nautakjöti hækki um 13-14%
vegna lækkunar á niðurgreiðslum
verði verð þess lægra en það var
fyrir rúmu ári. Hækkun grundvallar-
verðs kjúklinga um 9% leiði til þess
að verðið verði nánast það sama og
var fyrir þremur árum. Þá bendir
hann á að grundvallarverð á eggjum
hafi verið óbreytt í tæplega tvö ár
fram að fyrirhugaðri 5% hækkun nú.
Georg vekur athygli á því að þrátt
fyrir áform bænda um að hækka
verð þessara afurða sé ekki víst að
þær komi að fullu fram í smásölu-
verði. Markaðsaðstæður ráði meiru
um endanlega verðlagningu afurð-
anna en áður var vegna aukinnar
samkeppni. Georg segir að niðurstað-
an komi ekki í ljós fyrr en eftir ein-
hvem tíma. Hann segir hins vegar
að viðbrögð bænda nú með stuðningi
samtaka neytenda geti sett strik í
reikninginn og orðið til þess að end-
urvekja gamla verðbólgudrauginn.
Verðbólgan hefur lækkað verulega
á undanfömum árum. Ef litið er á
framfærsluvísitöluna frá desember
1991 til desember síðastliðins sést
að hún hefur aðeins hækkað um 1,5%
á þessum tíma. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins er útlit fyrir
hátt í 1% hækkun hennar nú í jan-
úar og skýrist hækkunin aðallega
af hækkun bensíngjalds til ríkisins
og álagningu virðisaukaskatts á hús-
hitun.
Georg sagði að stöðugt verðlag
síðustu misseri hefði aukið verðskyn
neytenda. Margar vörutegundir
hefðu lengi verið á svipuðu verði og
jafnvel lækkað. Auk búvaranna sem
eru að hækka nú nefndi hann að
mjólk og mjólkurafurðir hefðu verið
á sama verði í hálft annað ár og
kindakjöt litlu skemur. Þá nefndi
hann að steypuverð hefði verið
óbreytt í 20 mánuði. „Þessi stöðug-
leiki hefur óhjákvæmilega haft vem-
leg áhrif á gamla verðbólguhugsun-
arháttinn sem verður að teljast nán-
ast úr sögunni. Þá hefur samkeppnin
aukist í kjöjfar þessarar hugarfars-
breytingar. í þessu ljósi þarf umræða
um verðhækkanir í upphafi árs ekki
að koma á óvart. Það er hins vegar
varhugavert þegar einstakir hags-
munaaðilar nota þessar afmörkuðu
verðhækkanir til þess að spilla fyrir
þeim árangri sem náðst hefur í bar-
áttunni við verðbólguna og nota þær
til að endurvekja verðbólguhugsun-
arháttinn," sagði Georg.
VEÐUR
*
V v
V
í DÁG kl. 12.00
Heirmld: Veðurslofa íslands
(Byggt é vedurepó kl. 16.15 f g»r)
VEÐURHORFUR í DAG, 7. JANÚAR
YFIRLIT: Á V-verðu Graenlandshafi er hægt vaxandi 968 mb lægð sem
þokast austur. Onnur lægð, 993 mb, er 900 km suður af Hvarfi, vax-
andi, hreyfist ANA og síðar N. Lægðirnar sameinast A af landinu á
morgun.
SPÁ: í fyrramólið verður S-gola eða kaldi, slydduél sunnan til en léttskýj-
að N-lands. Um morguninn gengur vindur austanlands í vaxandi norðan-
ótt og síðdegis verður ailhvöss eða hvöss norðaustanátt, slydda eða
snjókoma um landið austanvert. V-lands verður breytileg étt, kaldi eða
6tinningskaidi og él. Veður fer hægt kólnandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðvestan- og vestanótt, sums staðar all-
hvöss um noröaustanvert landið, en hægari annars staðar. Norðan- og
vestanlands verða él, en úrkomulaust annars staðar. Frost 4 til 7 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Sunnanátt, víðast heldur hæg. Snjókoma um
sunnan- og vestanvert landið, en bjartviðri norðaustan- og austanlands.
Frost 6 til 8 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 10.30,
22.30. Svarsimi Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 980600.
Heiðskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
Ká,
Léttskýjað
* r *
♦ r
r * r
Stydda
&
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
&
Skýjað
V $
Alskýjað
*
V
Skúrír Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
VÍndörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
y súid
= Þoka
itig-.
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Fært er um vegi ( nógrenni Reykjavíkur, um Suðurnes og austur um
Heliisheiði og Þrengsli og með suöurströndinni til Austfjarða og þar eru
flestir vegir færir. Fært er fyrir Hvalfjörð og um vegi í Borgarfirði og á
Snæfellsnesi. Einnig er fært í Dali og til Reykhóla. Brattabrekka er orö-
in fær. Frá Brjánslæk er fært til Patreksfjarðar og þaðan til Bíldudals.
Fært er um Holtavörðuheiði og til Hólmavfkur og áfram þaðan til (safjarð-
ar og Bolungarvíkur. Breiðadals- og Botnsheiðar eru færar og fært er
milli Þingeyrar og Flateyrar. Fært er um Noröurland til Siglufjarðar,
Akureyrar og Olafsfjaröar. Frá Akureyri er fært um Þingeyjarsýslu í
Mývatnssveit og einnig með ströndinni tii Vopnafjarðar. Víða ó landinu
er hálka á vegum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjó Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ógrænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hltl veftur
Akureyri +4 alakýjað
Reykjavfk 2 slydda
Bergen 6 skýjað
Helslnkl 3 rigning
Kaupmannahöfn 3 þokumóöa
Narssarsauaq vantar
Nuuk +16 snjókoma
Ósló 6 léttskýjað
Stokkhólmur E léttskýjað
Þorshöfn 6 skúr
Algarve 14 heiðsUrt
Amsterdam 8 þoke
Barcelona 11 helðskírt
Berlín 4 rigning
Chicago +7 alskýjað
Feneyjar 7 heiðskirt
Frankfurt 6 alskýjað
Glasgow 6 hátfskýjaö
Hamborg 5 túld
London vantar
LosAngeles 8 rigning
Lúxemborg 4 súld
Madrtd 8 mistur
Malaga 14 iéttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Monfreal +7 snjókoma
NewYork 2 alskýjað
Oriando 19 þoka
Parfs 8 rignlng
Madeira 18 hátfskýjað
Róm 10 heiðskírt
V(n +3 skýjeð
Waahington 4 slskýjað
Winnipeg +26 Skýjað
Morgunblaöið/Árni Helgason
100 ára aldursmunur
Hansína Jónsdóttir fy Stykkishólmi varð 101 árs 18. nóvember sl.
Þegar Hansína átti 100 ára afmæli fékk hún lítinn mann í afmælisg-
jöf sem skírður var Guðni, sonur Petrínu Ágústsdóttur og Sumarliða
Bogasonar. Á 101 árs afmæli Hansínu kom litli maðurinn í heim-
sókn og auðvitað var sjálfsagt að taka mynd af þeim, hann eins árs
en hún 101 árs.
Overuleg hækkun
á vöxtum ríkisvíxla
MEÐALÁVÖXTUN þriggja mánaða ríkisvíxla í útboði sem lauk í
gær hækkaði um 0,13% frá því sem var síðasta útboði. Pétur Krist-
insson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa, segir
að það hafi komið á óvart hvað hækkun vaxtanna reyndist lítil í Ijósi
vaxtahækkunar bankanna um áramót. Segir hann að þessir vextir
nái yfír verðbólguhámarkið sem spáð er nú í upphafi árs og telur
að hámarki vaxtanna kunni að hafa verið náð nú.
Með útboðinu sem lauk í gær
hafði ríkissjóður skuldbundið sig til
að taka tilboðum á bilinu 400 til
2.000 milljónir kr. Alls bárust 43
tilboð að fjárhæð 2.730 milljónir
kr. Ríkið tók tilboðum að fjárhæð
2.118 milljónir kr. eða sem nemur
hámarki þess sem áformað var að
taka.
Meðalávöxtun samþykktra til-
boða er 11,99%. í síðast útboði, sem
lauk 28. desember síðastliðinn, var
meðalávöxtun 11,86%. Tiltölulega
lítill munur var á meðalávöxtun
hæsta og lægsta tilboðs. Samþykkt
tilboð voru á bilinu 11,85 til 12,2%.
Síld- og loðnuveiði
Blandaður afli fæst
nú á síldarmiðunum
TÓLF síldarbátar voru á veiðum í fyrrinótt og fengust á bilinu 50-80
tonn af síld í hverju kasti. Aflinn var fremur blandaður. Samkvæmt
upplýsingum Tilkynningaskyldunnar voru 18 loðnubátar á veiðum.
Fengu þeir um 30-70 tonn í kasti.
Þórshamar GK var að landa 130
tonnum af fremur blandaðri síld í
Neskaupstað þegar rætt var við
Örn Pálsson háseta uppúr hádegi í
gær. Að sögn Amar fékkst aflinn
í einu kasti en nauðsynlegt reyndist
að fara í land með rifna nót og
bilaða hliðarskrúfu. Hann sagði að
hinir síldarbátarnir hefðu verið að
fá 50 og upp í 80 tonn af síld að
jafnaði í hveiju kasti. Stefnt var
að því að komast aftur á síldarmið-
in austur af landinu í nótt.
Loðnubátarnir köstuðu þrisvar til
ijórum sinnum í fyrrinótt og fengu
á bilinu 30-70 tonn í hveiju kasti.
Leiðindaveður var á miðunum en
þokkalegt útlit svo fremi að myndi
lygna.
Þrettándagleði víða um land
Nokkrar sprengingar
en annars áfallalítið
á kvöldi þrettándans
EKIÐ var a dreng á Skúlagötu í gærkvöldi. Meiðsli hans
voru ekki talin alvarleg. Þrettándakvöld virðist annars hafa
liðið nær áfallalaust fyrir utan þijár minniháttar sprengingar.
Ekið var á drenginn á móts við
Skúlagötu 80 um kvöldmatarleytið
í gær. Hann meiddist Htilsháttar
að sögn lögreglu og var til vonar
og vara fluttur á slysadeild.
Þrettándakvöld virðist hafa liðið
stórslysalaust á landinu, lögregla
þurfti ekki að afskipti af óhöppum
eða ólátum sem stundum hafa
orðið við lok hátíðanna. Brennur
fóru vel fram eftir því sem næst
varð komist og helst að lögregla
væri sérstaklega á varðbergi í
Hafnarfirði þar sem stundum hef-
ur dregið til tíðinda á þrettándan-
um.
Raunar sprakk kínveiji sem
settur hafði verið í bréfalúgu í
Árbæjarskóla og olli lítilsháttar
skemmdum. Við Hraunbæ 102
skemmdust útidyrahurðir tvisvar
í gær af völdum kínveijaspreng-
inga, fyrir hádegi og um kvöldið.
Skemmdarvargarnir höfðu ekki
fundist í gærkvöldi.