Morgunblaðið - 07.01.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993
19
Sj ómannasambandið
vísar ágreiningi við
VSÍ til Félagsdóms
SJÓMANNASAMBAND íslands hefur vísað ágreining’i sínum
við Vinnuveitendasamband íslands um greiðslu orlofs- og des-
emberuppbótar til Félagsdóms. Málflutningur hefst að líkindum
í lok mánaðarins.
Sjómannasambandið var þátttak-
andi í miðlunartillögu ríkissátta-
semjara sem lögð var fram í apríl
í fyrra. Hólmgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannasambands
íslands, sagði að þegar flest félög
höfðu samþykkt kjarasamninginn
hefði Vinnuveitendasambandið
mótmælt því að sjómenn ættu að
fá greidda orlofs- og desemberupp-
bót eins og aðrir launþegar sem
miðlunartillagan náði til.
„Við erum ekki sáttir við það,
því hvergi er tekið fram í miðlunar-
tillögunni að sjómenn séu undan-
skildir þessum greiðslum. Við
ákváðum að vísa málinu til Félags-
dóms og þar er það nú,“ sagði
Hólmgeir.
Sjómenn hafa ekki áður fengið
orlofs- eða desemberuppbót. í
kjarasamningum 1989 var reiknuð
inn hækkun á kauptryggingu og
kaupliðum umfram aðra, sem nam
tæpu einu prósenti, sem átti að
vega upp á móti orlofs- og desem-
beruppbótinni.
„Það kom í ljós að menn voru
ekki sáttir við þessa aðferð því
hækkunin kom aðeins á kauptrygg-
ingu og kaupliði og þeir sem voru
á aflahlut töldu sig missa þessar
greiðslur. Frá þeim tíma höfum við
gert kröfur um að fá orlofs- og
desemberuppbót með sama hætti
og aðrir launþegar. Því hefur verið
hafnað þar til við vorum í samfloti
með ASÍ við gerð síðustu kjara-
samninga. Ég veit ekki annað en
að ríkissáttasemjari hafi reiknað
með því að sjómenn fengju þessar
uppbætur líkt og aðrir,“ sagði
Hólmgeir.
Að sögn Hólmgeirs gaf LÍÚ út
kaupskrá í kjölfar kjarasamning-
anna þar sem kaup og kaupliðir
voru hækkaðir um 2,3% og jafn-
framt var þess getið að sjómenn
ættu ekki að fá orlofs- og desember-
uppbót, heldur hefði 0,6% verið
reiknað ofan á hina almennu 1,7%
hækkun.
Kiisiján Vattnes látínn
Kristján Vattnes Jónsson fyrr-
verandi lögregluþjónn lést í Borg-
arspítalanum 31. desember síðast-
liðinn, 76 ára að aldri.
Kristján fæddist á Vattamesi í
Búðahreppi 2. september 1916, son-
ur hjónanna Jóns Eiríkssonar báta-
smiðs og Magneu Torfadóttur. Hann
hóf störf í lögreglunni í Reykjavík
1939 og starfaði þar til ársins 1963
er hann varð að hætta vegna heilsu-
brests. Kristján hóf ungur að stunda
íþróttir, og var hann meðal annars
Islandsmeistari í spjótkasti í mörg
ár. Hann keppti í spjótkasti á Ólymp-
íuleikunum í Berlín 1936, og var
hann fánaberi íslenska liðsins.
Eftirlifandi eiginkona Kristjáns er
Lovísa Helgadóttir. Þau eignuðust
sjö böm og em fímm þeirra á lífí.
Ljósmyndir/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Filippus á ferð um hálendið í nágrenni Landmannalauga.
ið á eigin fótum á hálendinu án þess
að kvarta."
„Ég gæti ekki lifað án hálendis-
ins. Um tíma fór ég í nokkrar ferðir
á kajak niður miklar ár, en lenti svo
oft í lífshættu að ég steinhætti því.
Mér finnst mjög gaman að ganga
um í nágrenni Torfajökuls, um
Lakagíga og Strútslaug, svo er Snæ-
fellsnes skemmtilegt. Það er enn
hægt að ganga um staði þar sem
enginn eða fáir íslendingar hafa
komið á, það er sérstök tilfinning
og gaman að leita að nýjum stöðum.
Útlendingar sem hingað koma fínna
fyrir þessu, þeir hafa margir tapað
sambandinu við náttúruna. Heima
hafa þeir þörf fyrir að kveikja upp
í arninum, nákvæmlega eins og
menn gerðu til foma. Manneskjan
er uppfull af minningum fyrri tíma
og fijálsræðið á hálendinu gefur
þessu lausan tauminn. Sumir útlend-
ingar verða beinlínis hræddir, fínnst
auðnin og ferðamennska um
óbyggðar slóðir ógnvekjandi, en
flestir njóta þess og ferðaminningin
endist ævilangt.
Sjálfur hef ég staðið sjálfan mig
að því að ætla ekki aftur í langar
gönguskíðaferðir, sem taki hátt í
tuttugu daga. Á hveijum vetri hef
ég farið í slíka ferð, nema í fyrra.
Puðið var svo mikið að ég sór þess
heit að fara frekar í Miðjarðarhafíð,
en þetta togar alltaf í mann aftur.
Koma útlendinga í ævintýraferðir
hefur dregið örlítið saman, ástandið
í Evrópu veldur þessu líklega, fólk
bíður betri tíma og ferðamennskan
gengur alltaf í bylgjum. Sleðaferð-
imar eru þó alltaf vinsælar og það
eru nokkrir hópar útlendinga á leið-
inni á næstunni, en íslendingar slást
oft í hópinn. Núna gefst fólki kostur
á styttri vélsleðaferðum frá nýja
skíðaskálanum í Hveradölum. Þar
fær fólk forsmekkinn af því hvaða
ævintýri er hægt að upplifa á hálend-
inu. Stundum er hálendið eins og
himnaríki á jörð, ekki síst á vet-
urna, þá skartar landið sínu fegursta
og norðurljósin blika," sagði Filipp-
us.
ÞEIRSEMÆTLA
AÐ ÁVAXTA
UM 30 MILLJARÐA
TAKA AMÐVITAD
ENGAAHÆTTU
KIÖRBÓK
LANDSBANKANS
GAF
3,0-5,0%
RAMNÁVÖXTUN
ARIÐ1992
Innstæöa á tæplega 100 þúsund Kjörbókum í Landsbankanum
er nú samtals um 30 milljarðar. Kjörbókin er því sem fyrr
langstærsta sparnaðarform í íslenska bankakerfinu.
Ástæðan er einföld: Kjörbókin er traust, óbundin og áhættulaus
og tryggir eigendum sínum háa og örugga ávöxtun.
Ársávöxtun á árinu 1992 var 4,6-6,6%.
Raunávöxtun á grunnþrepi var því 3,0%,
á 16 mánaða innstæðu var hún 4,4%
og á 24 mánaða innstæðu var raunávöxtunin 5,0%.
Kjörbókin er einn margra kosta sem bjóðast í RS,
Reglubundnum sparnaði Landsbankans
Landsbankinn óskar landsmönnum vaxandi gæfu
og góðs gengis á árinu 1993.
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna