Morgunblaðið - 07.01.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993
21
Ríkisarfi á
biðilsbuxum
NARUHITO, 32 ára sonur
Akihitos Japanskeisara, hefur
að sögn þarlendra fjölmiðla
fundið sér efni í eiginkonu við
hæfi en fréttin hefur ekki ver-
ið staðfest af embættismönn-
um hirðarinnar. Leitin hefur
staðið í fímm ár og voru sum-
ir farnir að örvænta um árang-
ur. Konan
heitir Masako
Owada, er 29
ára gömul og
starfar í utan-
ríkisráðu-
neytinu þar
sem faðir
hennar gegnir
embætti að-
stoðarráðherra. Keisaraynjan
væntanlega hlaut menntun í
Harvard í Bandaríkjunum og
talar fjögur erlend tungumál
reiprennandi.
Oveður haml-
ar olíuvinnslu
NORÐMENN, sem eru mestu
olíuframleiðendur Vestur-Evr-
ópu, hafa orðið að minnka
vinnslu á borpöllum á Norð-
ursjó niður í fjórðung af venju-
legum afköstum vegna óveð-
urs sem þar geisar. Ölduhæð
hefur farið upp í 27,5 metra
og tankskip hafa því ekki get-
að lestað birgðir frá Statfjord-
borpallinum, að sögn ríkisolíu-
félagsins Statoil.
Lending í
ruslatunnu
TVEIR innbrotsþjófar í Malas-
íu björguðust lítt skaddaðir
fyrir skemmstu þegar þeir
stukku af svölum íbúðar á
sextándu hæð í höfuðborginni
Kuala Lumpur - og lentu í
stórri ruslatunnu sem til allrar
hamingju var full. Eigandi
íbúðarinnar læsti þjófana inni
er hann kom óvænt að þeim í
miðjum klíðum. Er þeim varð
ljóst að ekki voru fleiri út-
gönguleiðir gripu mennimir til
áðurnefnds örþrifaráðs.
Sprengjutil-
ræði í London
FJÓRAR eldsprengjur
sprungu í verslunum í London
í gær og er talið fullvíst að
írski lýðveldisherinn, IRA, hafi
verið að verki. Atburðirnir
urðu í Oxford Street, einni
helstu verslunargötu borgar-
innar, og við Charing Cross-
járnbrautarstöðina en útsölur
eru nú í fullum gangi og um-
ferð mikil. Að sögn lögreglu
slasaðist enginn og tjón varð
lítið.
Brazauskas í
forsetaframboð
ALGIRDAS Brazauskas, fyrr-
verandi kommúnistaleiðtogi í
Litháen og sigurvegari í þing-
kosningunum nýverið, hefur
vísað á bug tillögu Vytautas
Landsbergis forseta sem viil
að reynt verði að sameinast
um einn frambjóðanda, Stasys
Lozoraitis, sendiherra í Was-
hington, til að treysta sam-
stöðu þjóðarinnar. Landsberg-
is hyggst hætta afskiptum af
stjórnmálum en forsetakosn-
ingar verða haldnar í næsta
mánuði. Brazauskas sagði að
í stjórnmálum sem efnahags-
málum bæri samkeppni bestan
árangur.
Ofsóttur, kínverskur andófshöfundur
Veitt landvist í
Bandaríkj unum
Eftirlýstur í Kína vegna þátttöku sinn-
ar í mannréttindabaráttu stúdenta
Hong Kong. Reuter.
KÍNVERSKI rithöfundurinn Zheng Yi hefur ásamt eiginkonu sinni,
Zhao Xiaoming, er einnig er rithöfundur, fengið landvist í Banda-
ríkjunum. Hann hefur verið eftirlýstur í Kína vegna þátttöku sinnar
í mannréttindabaráttu stúdenta og verið í felum síðan hermenn
voru látnir myrða mörg hundruð manns á Torgi hins himneska
friðar í Pekmg 4. juni 1989.
Zheng og Zhao, sem skrifar
undir nafninu Beiming, hafa fengið
að búa í bresku nýlendunni Hong
Kong undanfarna níu mánuði en
bresk yfirvöld hafa sætt sig við
dvöl þeirra með því skilyrði að
ekki yrði skýrt frá henni opinber-
lega. Bretar eiga í hörðum deilum
við kommúnistastjórn Kína um
‘framtíð Hong Kong og vilja forð-
ast að styggja stjórnina í Peking
frekar sé þess nokkur kostur. Hjón-
in sóttu um landvist í Kanada en
var synjað. Zheng lýsti í gær þakk-
læti sínu í garð bandarísku þjóðar-
innar, þingsins og ríkisstjómarinn-
ar fyrir að taka við sér og konu
sinni.
Zheng, sem er 45 ára, varð
þekktur í Kína fyrir skáldsögu sína,
Gamall brunnur, sem lýsir kjörum
smábænda. Er stúdentar og fleiri
lýðræðissinnar höfðu uppi mót-
mæli sín var hann í fararbroddi
og tók m.a. þátt í að semja „Yfirlýs-
inguna frá 16. maí“ þar sem Deng
Xiaoping, helsta valdamanni lands-
ins, var lýst sem elliærum valda-
hrotta. Honum tókst að flýja frá
Peking eftir morðin á torginu og
með aðstoð embættismanna, er
studdu hugmyndir hans, og smá-
bænda komst hann til Hong Kong.
Zheng segist ekki snúa aftur heim
fyrr en stjórnvöld hætti að fang-
elsa fólk vegna skoðana þess.
Jazzistinn Dizzie
Gillespie látinn
New York. Reuter.
Trompetleikarinn heims-
kunni Dizzie Gillespie lést í gær
75 ára að aldri. Hann var einn
af upphafsmönnum þeirrar jazz-
stefnu fimmta áratugarins sem
kölluð var „be-bop“.
Dizzie, eða John Birks Gillespie,
fæddist 21. október 1917 í Suður-
Karólínu, yngstur níu systkina.
Faðir hans lék á píanó um helgar
og það gerði syninum kleift að
safna hljóðfærum í bernsku. Hann
hafði mestan áhuga á básúnu en
var ekki nógu handleggjalangur
og valdi því trompetið. Atján ára
var hann farinn að vinna fyrir sér
með trompetleik. Hann spilaði með
Charlie Parker í hljómsveit Cab
Calloways og síðar Billys Eckstines
Dizzie Gillespie
og saman teljast þeir frumkvöðlar
„be-bopsins“. Á ferlinum spilaði
Gillespie inn á meira en hundrað
hljómplötur. Hann var óþreytandi
að því er virtist allt fram á átt-
ræðisaldurinn. í fyrra spilaði hann
í mánuð með helstu jazzleikurum
heims á Blue Note í Greenwich
Village í New York.
REGLA
Margir litir margar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi
fást í öllum helstu
bókaverslunum landsins.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
EGLA
-RÖÐOG
HVER ER SINNAR GÆFU SMIÐUR? M
Tnjggðu þéi' möguleika ...fyrir lífið sjálft