Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ PA6LEGT B.IF FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993
Morgunblaðið/Kristinn
Nær 70% afsláttur
veittur af nýlegum vörum
££ STRAX í byrjun þessarar viku byijuðu útsölur við Laugaveg
og í Kringlunni. Það er hinsvegar í dag, á morgun og laugar-
wá dag sem verslanir opna hver af annarri með útsölur og áfram
lO eftir helgina. Sumir verslunareigendur kjósa að bíða með
iA útsölur fram í byrjun febrúar þ.á.m. verslunin Bangsi, Fiðrild-
ið, tískuverslunin Guðrún og hjá skóverslun Steinars Waage
var okkur tjáð að líklega yrði útsalan hjá þeim í febrúar.
Mfkligarður og Hagkaup að
byrja með útsölu
í morgun hóf Hagkaup sína út-
sölu og þar á bæ er afslátturinn
allt að 70% þó megnið af þeirri
vöru sem er á útsölu sé á 50%
afslætti. Hjá Miklagarði verður
opnað snemma í fyrramálið, klukk-
an átta og árrisulir viðskiptavinir
geta búist við að fá óvænt tilboð
en annars hefst útsalan átta í
fyrramálið og að sögn forsvars-
^fnanna verður þar á bæ veittur
góður afsláttur. Útsalan verður
bæði í Miklagarði við Sund og hjá
Kaupstað í Mjódd annarri hæð.
Langurlaugardagur í
miðbænum
Við Laugavéginn bætast versl-
anir í útsöluhópinn á hveijum degi.
Á laugardaginn er langur dagur
við Laugaveg og verður opið frá
klukkan 10-17. Ýmsar verslanir
hefja útsölu sína einmitt á laugar-
Athugasemd
VEGNA verðkönnunar, í
Morgunblaðinu sl. fimmtu-
dag, vill Félag fótaaðgerða-
fræðinga benda á að ekki
var gerður skýr munur á
fótaaðgerð og fótsnyrtingu.
Aðeins hluti af stofunum er
með löggilda fótaaðgerðar-
fræðinga á sínum snærum.
Fótsnyrting er löggild iðn-
grein og er meðhöndlun á heil-
brigðum fótum til fegrunar.
Fótaaðgerð er löggild grein
innan heilbrigðisstétta og er
meðhöndlun á margskonar
1 fótameinum s.s húð og nagla-
meinum er skapast hafa vegna
hinna ýmsu sjúkdóma eða ann-
arra áunnina þátta. Fótaað-
gerðafræðingar starfa mikið í
samvinnu við lækna og veita
daglega ráðgjöf og fræðslu á
þessu sviði.
Þá er verð á andlitsbaði hjá
Snyrtistofunni Eygló, Lang-
holtsvegi 17, 2.790 kr. en ekki
3.090 kr., eins og fram kom í
könnuninni, en þar var miðað
við lægstu verð ef ekki er um
eitt verð að ræða. Verð á and-
litsböðum miðast við efnis-
kostnað. Eins hefur komið
fram að uppgefín verð á hand-
snyrtingu eru mismunandi því
sumar stofumar gefa upp verð
með naglalökkun en aðrar
ekki. ■
daginn og má þar nefna Englabörn
sem veita frá 30-70% afslátt af
sínum varningi. Þar verða einungis
nýjar vörur á útsölu og meiningin
er að rýma verslunina alveg fyrir
nýjum vörum. Margar verslanir við
Laugaveg munu einnig hafa sér-
stök aukatilboð fyrir þá sem gera
sér ferð í bæinn á laugardaginn.
Fjórtánda þessa mánaðar byija
útsölur hjá Gallerí en aðeins síðar
hjá Evu.
í Kringlunni og Borgarkringl-
unni eru útsölur einnig farnar af
stað en margar búðareigendur
ætla að bíða eftir nýju kreditkorta-
tímabili og jafnvel fram í febrúar.
Það var tilfinning mín að marg-
ir kaupmenn hefðu á tilfinningunni
að ekki væri mikið í buddunni hjá
fólki eftir jólin og sumir sögðust
kjósa að bíða eftir nýju kredit-
kortatímabili eða 1. febrúar því þá
fengi fólk barnabætur og hefði
meira umleikis en venjulega.
Þeir sem eru forsjálir ættu því
að geta fatað fjölskylduna upp,
jafnvel fyrir næsta vetur. Það verð-
ur að minnsta kosti auðvelt að
gera reyfarakaup sé fólk í þeim
hugleiðingum og geti séð af pen-
ingum. ■
gfg
VERÐKÖNNUN 1
VIKUNNAR
Félagsgjöld knattspymu- og
handknattleiksdeilda mjög mismunandi
Einnig
HJÁ MÖRGUM fjölskyldum er kostnaður vegna
íþróttaiðkana ærinn þegar allt er tekið með í reikn-
inginn, s.s. æfingagjöld, útbúnaður og keppnis-
ferðir. Foreldrum finnst samt afar jákvætt ef börn
þeirra vilja leggja stund á íþróttir í tómstundum.
Og því horfa foreldrar varla í peninga sem fara
í íþróttaiðkana barnanna.
Æfingagjöld eru mismikil hjá íþróttafélögunum, en
til að fá örlitla nasasjón af þeim kostnaði sem gera
má ráð fyrir, gerði Neytendaopnan skyndiverðkönnun
á þeim þætti er lýtur að æfingagjöldum á ársgrund-
velli. Könnunin tekur til 6. flokks í handknattleik og
knattspyrnu, en það eru krakkar um átta og níu ára.
í handboltanum má gera ráð fyrir tveimur til þremur
keppnisferðum á ári í þeim aldursflokki. Aftur á móti
geta keppnisferðir orðið 5-10 þegar börnin eru orðin
12 ára. Hvað fótboltanum viðvíkur eru haldin nokkur
innanhússmót á vetrum, en á sumrin viðamikið Polla-
mót í Vestmannaeyjum og Akumesingar standa fyrir
öðru móti.
Slíkum ferðum fylgir alltaf kostnaður fyrir leik-
menn, en fjáröflun af ýmsum toga er fastur liður í
félagsstarfsemi auk þess sem styrktaraðilar styðja við
starfíð.
Rétt er að taka fram að að baki þeim tölum sem
hér birtast liggur mismikill æf- ingatími þó al-
gengast sé 2-3 tímar á viku.
skal tekið fram að sum fé-
lögin hafa tvo þjálfara
fyrir þennan aldurshóp á ,
meðan önnur eru með
einn þjálfara.
Til gamans má geta
að um 9.000 íslend-
ingar æfa handbolta
að staðaldri, sam-
kvæmt upplýsingum
frá HSÍ, og hvorki færri j
né fleiri en 25.000 æfa
knattspymu. „Víst finnst
fólki þetta dýrt, en þetta
er hreinlega spurning
um það hvar maður
vilt að börnin sín ali
manninn," segir
Guðrún Bjarnadótt-
ir, húsmóðir í Hafnar-
fírði, en hún og eiginmaður hennar, Viðar Halldórs-
son, eiga þijá syni, 14, 8 og 4 ára, sem allir eru komn-
ir á kaf í „sportið". „Við sjáum sannarlega ekki eftir
þeim peningum sem fara í íþróttir, en fyrir vikið er ég
í fullri vinnu við að keyra og sækja á æfingarnar. Sá
elsti er þrisvar í viku í fótboltanum, tvisvar í handbolt-
anum og einu sinni í körfu. Sá næstelsti fer líka þrisv-
ar í viku í fótboltann og tvisvar í handboltann og sá
yngsti er á fullu í fótboltanum, tvisvar í viku. Þess á
milli er ég í þvottahúsinu að þvo af þeim gallana,"
segir Guðrún.
Flest félögin veita systkinaafslátt sem nemur 50%
Apgjöld íþróttafélaga
á yfirstanadandandi tímabili, 6. flokkur
Handbolti Fótbolti
Breiðablik 10.000 12.000
FH 10.000 13.000
Fjölnir 15.000 miðakerfi
Fram 15.000 9.100
Fylkir 10.000 16.000
Haukar 11.000 12.000
ÍR 15.000 14.000
KR 16.000 7.000
l Leiknir - 18.000
| Stjarnan 10.000 12.000*
^ Valur 17.000 22.000
É/íkingur 12.000 17.000
pS^rgjald siðan í fyrra. Einhver hækkun fyrirsjáanleg 1993
með öðru og þriðja bami og félagsmenn fá
frímiða á heimaleiki. Hjá sumum félögum er
hægt að fá íþróttagalla á afsláttarkjörum. Þá
skal þess getið að í sumum tilfellum er
annað og meira innifalið í þeim fé-
, lagsgjöldum sem hér birtast. Til dæm-
is fá handboltaiðkendur hjá Val
íþróttagalla að andvirði 4.000 kr. og
fótboltaiðkendur þar fá íþróttagalla að
andvirði 5.000 kr. og skópoka, sem metinn
er á 500 kr. Hjá Víkingi og Fylki er það íþróttataska
í ár, handboltamenn í IR fá keppnistreyjur og hand-
boltaiðkendur í Haukum fá tösku og stuttbuxur. Inn-
ifalinn í æfingagjaldi FH er bolti, metinn á 2.000 kr.
Knattspymudeild Fjölnis hefur ekki fast árgjald, held-
ur gildir sérstakt miðakerfi yfír vetrartímann þar sem
krakkamir greiða aðeins fyrir þær æfingar sem þeir
mæta á. Þar kostar tíu miða kort 2.000 kr., sem endist
í 10 vikur, en aðeins er rukkaður einn miði á viku
þó boðið sé upp á tvær. Aftur á móti er fast gjald á
sumrin 7.500 kr. fyrir 6. flokk.
Fiskur er fitusnauður og því
tilvalinn eftir kjöt, kökur og rjómasósur um jólin
ÞAÐ ER varla erfitt fyrir
Margréti E. Jónsdóttur að
gefa lesendum uppskrift að
góðum fiskréttum því að
meðaltali er borðaður fiskur
á hennar heimili 5 sinnum í
viku. Fyrir nokkrum árum
sendi hún frá sér bókina Fitu-
snautt fæði með fjölda girni-
legra en auðveldra upp-
skrifta.
Fiskur í neytendaumbúð-
um
150-200 g af roðfleltum fiskflökum
á mann
blaðlaukur
tómatar
steinselja
graslaukur
salt
pipar
matarolía
álpappír (eða smjörpappír ef
rétturinn er eldaður í örbylgjuofni)
Þetta er einfaldur réttur og lítill
uppþvottur á eftir. Snyrtið flökin,
skerið í hæfíleg stykki og leggið ofan
á álpappír. Sneiðið blaðlauk ogtóm-
at, Raðið jurtum á grænmetið. Saltið
og piprið eftir smekk og setjið að
lokum 2-3 dropa af olíu ofan á. Pakk-
ið álpappímum vel utan um fiskinn
og grænmetið og leggið í ofnskúffu
eða eldfast mót. Bakið fiskinn í
200°C heitum ofni í 20-25 mínútur
eftir þykkt fiskstykkjanna.
Ábending:
Tilvalið að baka kartöflur í ofnin-
um um leið, en þær þurfa að sjálf-
sögðu að fara fyrr inn. í staðinn
fyrir flök má nota þversneiðar af
fiski, t.d. steinbít, smálúðu, lax eða
sjóbirting. Setjið fáeina sítrónudropa
í hvern pakka ef fískurinn er feitur.
Útbúa má fískpakkana fyrirfram ef
vill. Þeir geymast í ísskáp i nokkrar
klukkustundir.
Fiskisúpo hússins
500 g fiskur (ýsa, þorskur, lúða)
beinlaus og roðflettur eða 400 g
fiskur og 100 g skelfiskur (rækja,
humar, hörpudiskur)
1 lítri fisksoð
'Atsk. garðoblóðberg (tímían)
'Atsk. bergmynto (oregano)
'Atsk. basilkrydd
1 tsk. salt
'Atsk. pipgr
3-4 msk. matarolía
1 blaðlaukur
2 hvítlauksrif
4 kartöflur
2 blaðseljustönglar
4 litlar gulrætur
1 dós niðursoðnir tómatar
1 msk. tómatkraftur, mó sleppa
Hreinsið grænmetið og afhýðið kart-
öflur. Skerið blaðlauk í þunnar sneið-
ar. Meijið hvítlaukinn. Skerið kart-
öflur, gulrætur og blaðseljustöngla í
frekar þykkar sneiðar. Hitið olíuna
í potti. Setjið blað-og hvítlaukinn út
í olíuna og látið krauma stutta stund.
Hellið fískskoðinu út í pottinn, bætið
kartöflum og grænmeti út í, niður-
soðnum tómötum og safa úr dós-
inni. Kryddið eftir smekk og bætið
tómatkrafti út í ef þið viljið meira
tómatbragð. Látið malla við vægan
hita þar til grænmetið fer að linast.
Skerið fískinn í smástykki og bætið
út í. Þegar fiskurinn er að verða
hvítur í gegn er skelfiskinum bætt
út í og hann látinn hitna í gegn.
Berið fram með grófu brauði. ■