Morgunblaðið - 07.01.1993, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
FIMMTUDAGUR 7. JANUAR 1993
Morgunblaðið/Sverrir
Bak vii búðarboröið. - Ragnhildur Óskarsdóttir, Eiríkur Óskarsson
og Bjarghildur Gunnarsdóttir.
Viðskiptahættir
hafa breyst undanfarin ár
í MEIRA en tvo áratugi hefur Eirikur Ólafsson staðið á bak við
búðarborðið í Versluninni Vogum í austurhluta Kópavogs. Hann
hefur þó verið viðloðandi verslunina mun lengur eða frá því hann
var strákpolli og sinnti ýmsum viðvikum fyrir föður sinn, Ólaf heit-
inn Eiriksson.
„Egerlærður
>2 múrari og
■ hafði engan
2E áhuga á
verslunar-
rekstri. Þegar
gg ég fór að
vinna við
múrverk fékk
ég í bakið og
Z ætlaði að
J vinna hjá föð-
ur mínum
0“ meðan ég
væri að ná
01 mér. Hér er Verslunin Vogar.
ég enn þótt
S bakið sé löngu heilt. Faðir
n minn rak verslunina í rúm 30
ár. Hann lést fyrir 15 árum
2? og lá beint við að við Ragnhild-
S ur systir mín tækjum við
rekstrinum."
- Á kaupmaðurinn á horn-
inu undir högg að sækja um
þessar mundir?
„Viðskiptahættir hafa breyst
mikið með tilkomu stórmarkaða.
Allsheijar verðstríð ríkir og sá af-
sláttur sem smásölukaupmenn fá
hjá heildsölum virðist ekki hlíta
neinum lögmálum."
- Er nýlenduvöruverslun þá orð-
inn einhvers konar prúttmarkaður?
„Ég vil ekki taka svo djúpt í ár-
inni. Bæði kaupmenn og neytendur
velta þó fyrir sér hver hin raunveru-
lega álagning heildsala sé. Það þýð-
ir ekki að keppa við stórmarkaði
enda er ég löngu hættur að fylgj-
ast með verðlagi þar. Reyni bara
að fá allan þann afslátt sem ég get
og hafa vöruna á sem lægsta verði.
Nú til dags makar kaupmaðurinn á
horninu ekki krókinn, enda verða
allir að stilla álagningu í hóf til að
missa ekki viðskiptavini. Þetta er
eins hver önnur launuð vinna og
aflar fjölskyldunni til hnífs og skeið-
ar en varla meira.
f Vogum eru auk Eiríks og Ragn-
hildar tveir starfsmenn. „Mjög góð-
ar stúlkur, sem hafa unnið hér í
mörg ár,“ segir Eiríkur. Ragnhildur
vinnur fyrir hádegi og allan daginn
á föstudögum og sér um bókhald.
Kona Eiríks og börn þeirra grípa
stundum inn í ef mikið liggur við
svo og eiginmaður Ragnhildar.
Sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Eru
þá ekki allir bara ósköp ánægðir?
„Ég vil ekki vera með neinn
barlóm en viðurkenni að ég er
stundum hálfleiður á streðinu. Ég
hvet ekki bömin mín til að fara út
í þetta. Ör eigendaskipti smásölu-
verslana sýna að menn gera sér
ekki grein fyrir því hvað þeir eru
að fara út í. Þetta er engin dans á
rósum en hefur þó sína kosti.“
- Sem eru?
„Ánægjan felst einkum í góðum
persónulegum tengslum við við-
skiptavini, sem sumir hverjir hafa
verslað hér frá því ég var strákling-
ur að reyna að gera gagn. Flestir
orðnir góðir kunningjar mínir.
Stundum stend ég mig að því að
hugsa hvort eitthvað hafi komið
fyrir þegar einhver hefur e.t.v. ekki
sést í nokkra daga.“
- Hvers vegna heldur fólk enn
tryggð við kaupmanninn á horninu
í stað þess að kaupa í stórmörkuð-
um þar sem vöruverð er almennt
lægra?
„Sumir gera stærstu innkaupin
í stórmörkuðum en kaupa svo eitt
og annað hjá mér á hvetjum degi.
Mörgum, einkum þeim sem ekki
eiga ekki heimangengt, finnst
þægilegt að nýta sér heimsending-
arþjónustu okkar. Öðrum finnst
notalegt að rölta út á næsta horn,
hitta nágranna og rabba svolítið í
leiðinni," segir Eiríkur um leið og
hann heilsar einum viðskiptavini
kumpánlega og spyr helstu tíðinda.
vþj m
ÚTSALAN
HEFST í FYRRAMÁLIÐ KL. 10:00
DANSKÓLIHERMANNS RAGNARS
Faxafeni 14, Nútíð, 108 Reykjavík, símar 687480 og 687580
Alltaf eitthvað nýtt
og spennandi
Við höfum fengið til okkar franskan gestakennara, Houry Kouiders,
en hann hefur unnið sem danshöfundur og dansari við söngleiki,
sjónvarpsþætti, óperur og starfað við leikhús í París eins og Folies
Bergeres, Moulin Rough, Casino de Paris, svo eitthvað sé nefnt.
Við munum vera með flokka fyrir börn, unglinga og fullorðna í jazz,
modern, rock og „show“dansi, þar sem Houry Kouiders, dansari og
danshöfundur, mun leggja línurnar og kenna ásamt Henny. Flokkar
fyrir keppnisdansara, sem vilja þjálfa meira til að verða góðir dansar-
ar, einu sinni til tvisvar í viku. Tilvalið tækifæri fyrir leikara, söngvara
og dansara og annað sviðsfólk til að öðlast öryggi og þjálfun.
Hafið samband sem fyrst og við munum finna rétta hópinn fyrir ykkur.
Innritun í þessa hópa er daglega frá kl. 16-19 í síma 68 75 80 og
68 74 80 og spyrjið um Henny eða Hermann Ragnar.
Kennsla er í Gerðubergi, Breiðholti og Fjörgyni, Grafarvogi.
Við kennum öllum aldurshópum alla dansa.
Stepp, barnadansa, heimskerfið fyrir fulloðrna og æfum börn og
unglinga fyrir merkjapróf og keppnisdans.
JAZZLEIKSKÓLINN fyrir yngstu börnin er fyrsta þrepið til þjálfunar
í dansi og góð undirstaða fyrir áframhaldandi dansnám eða tónlist-
arnám. Við höfum 10 ára reynslu á þessu sviði enda sérlærð frá
balletakademíunni í Gautaborg. Þess vegna segjum við: „Forðumst
eftirlíkingar".
JAZZLEIKSKÓLINN er því okkar sérgrein.
Nýir flokkar byrja á laugardaginn og fleiri flokkar um miðja næstu viku.
Hringið eða komið á skrifstofuna, Faxafeni 14.
Oðið daglega frá kl. 13-19.
Kynnið ykkur nýja afsláttarkerfið. 0^0
Houry Kouiders
frá París
HELGARTILBODIN
BONUS
Reykt ýsa 499 kr/kg
15 frosin rúnnstykki 199 kr
Río kaffi 384 kr/kg
2 kg kartöflur 105 kr
FJARÐARKAUP
Appelsínur 65 kr/kg
Klementínur 72 kr/kg
Agúrkur 149 kr/kg
2 kg kartöflur 86 kr
MIKLIGARÐUR
3 pizzur í pakka 335 kr
575 g dós niðursoðinn ananas 49 kr
Ferskar kókoshnetur 79 kr/kg
1/1 dós Polco jarðarber 69 kr
NÓATÚN
Shop Rite bleyjur 599 kr
793 g Shop Rite tómatssósa 119 kr
Lambasvið 299 kr/kg
Unghænur 198 kr/kg ■
0 R 1 G I N A L
Levrs
STOR
GALLABUXUR FRÁ KR. 2.990.- BOLIR FRÁ KR. 1.000.-
JAKKAR FRÁ KR. 4.500.- SKYRTUR FRÁ KR. 2.000.-
PEYSUR FRÁ KR. 2.500.-
LEVI'S BÚÐIN LAUGAVEGI 37 S. 618777 • STRANDGÖTU 6 AKUREYRI S. 96-11858