Morgunblaðið - 07.01.1993, Síða 31

Morgunblaðið - 07.01.1993, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993 31 Pétur Olafur Gísla- son — Minning Fæddur 8. nóvember 1900 Dáinn 22. desember 1992 Foreldrar Péturs Ólafs Gíslason- ar voru hjónin Aðalbjörg Jakobs- dóttir og Gísli Ólafur Pétursson héraðslæknir á Húsavík og frá 1914 í Eyrarbakkalæknishéraði. Aðalbjörg var fædd 30. október 1879 á Grímsstöðum í Mývatns- sveit. Hún var dóttir Jakobs stofn- anda Kaupfélags Þingeyinga á Húsavík, Hálfdanarsonar í Brenni- ási í Bárðardal, Jóakimssonar og konu hans Petrínar Pétursdóttur bónda í Reykjahlíð, Jónssonar prests í Reykjahlíð, Þorsteinssonar. Gísli var fæddur 1. maí 1867 í Reykjavík. Hann var sonur Péturs Ólafs Gíslasonar útvegsbónda og bæjarfulltrúa í Ánanaustum í Reykjavík sem meðal annars beitti sér fyrir almennri skólaskyldu og stofnun fyrsta bamaskólans í Reykjavík og seinni konu hans Valgerðar Ólafsdóttur frá Ægissíðu á Rangárvöllum. Pétur var elstur af tíu systkinum og tveimur uppeldissystkinum. Systkini hans voru Jakob Gíslason rafmagnsverkfræðingur og orku- málastjóri, f. 10. mars 1902, d. 9. mars 1987, Guðmundur Gíslason læknir, f. 25. febrúar 1907, d. 22. febrúar 1969, Petrína Kristín Gísla- dóttir, f. 7. júlí 1908, d. 9. júlí 1908, Þorvaldur Gíslason, f. 1. september 1909, d. 16. nóvember 1909, Ketill Gíslason lögfræðingur, f. 19. októ- ber 1911, Ólafur Gíslason raf- magnstæknifræðingur, f. 14. júní 1913, Sigurður Gíslason, f. 13. apríl 1916, Valgerður Aðalbjörg Gísla- dóttir, f. 1. mars 1918, d. 24. jan- úar 1926, Guðrún Hólmfríður Gísla- dóttir bóka- og skjalavörður, f. 5. september 1920. Auk þeirra voru uppeldissystumar tvær, þær Vigdís Ólafsdóttir, f. 12. september 1904, d. 11. janúar 1926 og Ingibjörg Sigvaldadóttir húsmóðir og kaup- kona, f. 6. apríl 1929, d. 11. júlí 1990. Pétur ólst upp á Húsavík, gekk þar í barnaskóla, tvö ár í unglinga- skóla og fermdist fjórtán ára í Húsavíkurkirkju þann 23. maí 1915. Tveimur vikum síðar — fyrst í júní árið 1915 — fluttist fjölskyldan frá Húsavík til Eyrarbakka, þar sem Gísli var orðinn héraðslæknir. Þau fóru með skipi sem flytja skyldi þau vestur um til Reykjavíkur, en þegar komið var á Akureyri varð ljóst að vesturleiðin var ófær sökum ísa. Þá varð að snúa við og fara austur fyrir og suður um. Þeir Pétur og Jakob voru þá 14 ára og 13 ára og um haustið hófu þeir nám við Menntaskólann í Reykjavík. Þeir bjuggu hjá Vigdísi Pétursdóttur, föðursystur sinni, og manni hennar, Einari Finnssyni járnsmið, á Klapparstíg 20. Þetta var sex ára nám og á sumrin vom þeir í símavinnu saman. Þeir unnu við að leggja símalínur undir stjórn Magnúsar Oddssonar á Eyrar- bakka. í þessum störfum fóru þeir víða um sveitir og um óbyggðir og þótti báðum það góður tími. Þeir luku stúdentsprófi vorið 1921. Jak- ob hélt til Kaupmannahafnar en Pétur hóf nám í læknisfræði við Háskóla íslands. Hann lauk cand.p- hil.-prófi vorið 1922 en varð svo að hverfa frá frekara námi af heilsufarsástæðum. Þegar heilsan varð betri dvaldi hann heima á Eyrarbakka hjá for- eldrum sínum og þótti ekki alltaf hnýta bagga sína sömu hnútum og samferðamenn. Hann bar mikið og herðasítt hár — eins og nú er al- vanalegt — og var í hópi þeirra fáu manna sem léku það að baða sig og synda í köldum sjónum. Um þetta leyti bættist annað fósturbarn í þessa fjölmennu fjöl- skyldu, þegar Ingibjörg Sigvalda- dóttir kom inn á heimilið. Fyrstu skrefin voru veikburða og óörugg en Pétur var henni sérstaklega in- dæll og hjálplegur og móður hennar þótti Pétur um það öðruvísi en aðr- ir menn að hann væri þeim svo miklu betri. Pétur var mikill áhugamaður um starfsemi Ungmennafélagsins og lagði því margvíslegt lið og til eru skemmtilegar ljósmyndir sem hann tók á ferðalögum þess. Um 1930 var Aðalsteinn Sig- mundsson að hætta sem skólastjóri á Eyrarbakka og bað hann Pétur að annast um bækur Ungmennafé- lagsins og útlán þeirra. Þetta varð vísir að merkum þætti í hans ævi- verki. Árið 1933 var hann ráðinn bókavörður á Eyrarbakka og hefur hann alla tíð síðan og fram á síð- ustu ár hugað að bókasafninu eins og hann ætti það sjálfur og raunar var það oft svo að hann keypti til þess bækur fyrir eigin reikning. Allt fram til nýliðins árs (1992) hefur Bókasafnið verið til heimilis í húsi hans; Gamla læknishúsinu. Herdís Jakobsdóttir móðursystir Péturs var á þessum árym formað- ur Sambands sunnlenskra kvenna. Meðal þess sem þær beittu sér fyr- ir var kennsla í garðyrkju og inn- flutningur fræja nytjajurta frá Dan- mörku. Þá var það hlutverk Péturs að gera tilraunir með ræktun hins innflutta fræs. Árið 1931 gerðist Pétur garð- yrkjubóndi. Hann færði út þá jarð- rækt sem móðir hans hafði haft og ræktaði nú kartöflur, gulrætur og rófur í verulegum mæli. Meðal ann- ars ræktaði hann rófur til frætöku. Kartöflur, gulrætur og rófur sendi hann til sölu til Reykjavíkur. Þessa jarðrækt stundaði hann í fulla tvo áratugi, eða þangað til upp kom hnúðormur í kartöflum á Eyrar- bakka og þar þurfti að hætta rækt- un um skeið. Þá var honum falið að hafa eftirlit með því að allir gættu þess að hvíla garða sína á Eyrarbakka þann tilskilda tíma. Gísli, faðir Péturs, lést árið 1939. Þá tók Pétur að fullu við veðurat- hugun á Eyrarbakka sem faðir hans hafði haft með höndum. Veðurat- hugunina annaðist hann fram til þess að sjónin bilaði og var þá á níræðisaldri. Árið 1944 flutti Aðalbjörg til Reykjavíkur. Pétur varð þá eftir á Eyrarbakka. Stuttu síðar fékk hann Sigurð bróður sinn til sín úr sjúkra- vist í Reykjavík og annaðist hann æ síðan. Segja má raunar að þeir hafi annast hvom annan því eftir því sem heilsa Péturs varð lakari og sjónin brást honum reiddi hann sig æ meira á Sigurð og þannig komust þeir gegnum margan vand- ann. Þegar Aðalbjörg fór tók Pétur við sem umboðsmaður Brunabóta- félags íslands á Eyrarbaka og síðar bættust að honum fleiri umboðs- störf. Hann varð umboðsmaður fyr- ir happdrættin og fyrir 1950 hóf hann að bera dagblöðin út á Eyrar- bakka. Þeim starfa sinntu þeir bræður í fulla þijá áratugi. Pétur Gíslason var nákvæmur maður, víðlesinn og gagnfróður. Hann nálgaðist hvert viðfangsefni á vísindalegan hátt og spurði um rökstuðning þegar fullyrðingum var fleygt. Allt fram á síðasta dag mátti ganga að minni hans vísu: Hvaða dagur er í dag? spurði hann systur sína fimm dögum- áður en hann lést. Það er 17. desember svar- ar hún. Nú! Þá á Gísli Jakobsson afmæli í dag! segir hann. Já, alveg rétt segir hún þegar þetta rifjast upp fyrir henni og spyr: Hvenær er hann nú aftur fæddur? og Pétur svarar strax — rétt eins og það hafi verið í gær: 1934! Nákvæmni Péturs og vandvirkni var alþekkt hjá þeim sem hann vann fýrir. Veðurstofan, trygginga- félagið, happdrættin og dagblöðin vissu sín mál í sérlega traustum höndum. Pétur átti rætur sínar að rekja norður til Húsavíkur og gerði þang- að og í Mývatnssveitina tvær ferðir ásamt Sigurði. Aðra ferðina fóru þeir um 1960 og var honum mjög kært að koma norður. Mér finnst sem ég sé kominn heim í heiðardal- inn sagði hann þá í símtali til móð- ur sinnar og vitnaði þar til alþekkts texta úr dægurlagi. Seinni ferðina fór hann fyrir 1980. í bæði skiptin hitti hann ættfólk og gamla félaga og ferðimar voru honum ógleyman- legar. Nýall, rit dr. Helga Pjeturssonar jarðfræðings, hefst með þessum orðum: „Hið mikla samband Það sem þúsundir miljóna hafa haldið vera líf í andaheimi eða goð- heimi, er lífið á öðrum hnöttum. Þessi hugsun, sem segja má með svo fáum orðum, verður upphaf meiri breytinga til batnaðar á hög- um mannkynsins, en orðið hafa um allar aldir áður.“ Ungur að árum heyrði Pétur hugmyndir dr. Helga og hneigðist að þeim. Hann lagði félagi Nýals- sinna lið frá stofnun þess og sótti fundi þess reglulega. Dr. Helgi sá hugmyndir sínar sem vísindalega heild og leitaði þejm vísindalegra raka og á sama hátt lagði Pétur mikla íhugun í að breikka hina vís- indalegu fótfestu kenningarinnar. Viðhorf hans og andleg viðfangs- efni breyttust ekki þótt þar kæmi að hann hætti að sækja fundi fé- lagsins. Pétur bjó við mjög góða líkam- lega heilsu fram á síðustu ár. Erfið- ast var honum þegar sjónin fór að gefa sig fyrir áratug. Frá 1989 hefur hann dvalið á Kumbaravogi og hann lést á sjúkrahúsinu á Sel- fossi 22. desember síðastliðinn. Pétur Gíslason gat einskis manns nema að góðu og hann gat gjarnan þess fólks sem annaðist hann. Þar hefur þó enginn náð öðrum eins heiðurssessi í huga hans og hún Guðbjörg Eiríksdóttir, sem studdi þá bræður hvenær sem þurfti og svo hennar ágæti eiginmaður Sigur- jón Bjarnason. Þau hjón stóðu svo sannarlega hjarta hans nær. Eftir að Pétur kom á Kumbara- vog kynntist hann því góða fólki sem þar starfar og var því þakklát- ur fyrir umhyggjuna fyrir þeim bræðrum báðum og einnig reyndist honum vel starfsfólk sjúkrahússins á Selfossi þegar hann þurfti þangað að leita. Pétur frændi á Eyrarbakka var í einum hvirfilpunkti æsku minnar og okkar systkinabarnanna hans. Fyrstur okkar fæddist Gísli Ólafur, sonur Jakobs, 17. desember 1934 og þegar Aðalbjörg, móðir Péturs og amma okkar, flutti til Reykjavík- ur árið 1944 vorum við orðin nærri tíu talsins. Við sem sjálf gátum gengið og klætt okkur fylgdumst með garðyrkjubóndanum og hestin- um hans, honum Brún. í mörg ár fórum við úr Reykjavík austur á Bakka til að setja niður kartöflur á vorin og taka upp á haustin. Gamla læknishúsið, sem verið hafði heimili okkar fyrrum, var ávallt opinn og bíðandi vinarfaðmur — rétt eins og Pétur sjálfur. í kringum Pétur gekk allt eins og klukka. Jafnvel þegar krakkam- ir voru margir voru máltíðir og hreinlæti í föstum skorðum. Þegar Pétur nefndi hvað gera skyldi varð manni strax ljóst að það var hluti af stærri heild sem hann hafði lagt nákvæmlega niður fyrir sér — og það var einfaldlega ekki hægt ann- að en fara eftir því. í samræmi við kenningar dr. Helga Pjeturs um líf á öðram stjöm- um vora hugmyndir Péturs um aðra tilvera með nytsömum og mann- bætandi verkefnum. Það er systkin- um hans og mágkonum og okkur systkinabömunum gleðileg tilhug- usun að hann kasti hrumleik síð- ustu ára og gangi til starfa sem fyrr, glaður og reifur og taki enn á ný undir boðskap Jóns Helgason- ar þegar hann kveður: Við hliðið mitt ég heimanbúinn stend, á himni ljómar dagsins gullna rönd. Sú gjöf mér væri gleðilegust send að góður vinnudagur færi í hönd. Við, systkinabörnin, sem eram dreifð og búum á íslandi, í Færeyj- um, Danmörku og Skotlandi, sam- einumst í hlýjum þakklætis- og kveðjuhug til hans Péturs, frænda okkar á Eyrarbakka. Gísli Ólafur Pétursson. Sigurður Kristjáns- son - Kveðjuorð Þann 6. janúar sl. var borinn til moldar föðurafi okkar Sigurður Kristjánsson. Hann var ættaður frá Akranesi en bjó lengst af í Hafnar- firði og starfaði þar sem sjómaður og síðar fískmatsmaður. Hann lést á Þorláksmessu eftir stutta sjúkra- legu. Amma okkar Magnea Símon- ardóttir lifír mann sinn og býr á Hrafnistu í Hafnarfirði. Vegna fráfalls föður okkar bræðra þegar við vorum kornungir urðu samskipti okkar við afa og ömmu í Hafnarfírði, eins og við köll- uðum þau alltaf, minni en efni stóðu til. Þó voru ferðirnar ófáar sem farn- ar voru í Fjörðinn til að heimsækja þau á Skerseyrarveginn svo og Ás- laugu langömmu á Brunnastíginn en á milli þeirra var göngufæri jafn- vel fyrir stutta fætur. Það var alltaf gott að koma til þeirra og áhugi þeirra var mikill á velferð barna- barna sinna. Þau sýndu það ávallt í verki með því að koma í flest okk- ar afmæli inn í Reykjavík. Þá héldu þau hjónin mjög góðu sambandi við móður okkar og seinna við fósturföð- ur okkar og syni þeirra. í raun voru þau í hugum okkar allra afi og amma í Hafnarfirði. Sigurður afí var hjartahlýr og góður maður sem var trúr fjölskyldu sinni. Hann var skyldurækinn og lét sig ekki vanta þegar á reyndi. Hann skilur eftir sig fallegar og góðar minningar sem aldrei munu gleym- ast. Aldrei minntumst við svo afa að hugsunin um ömmu fylgdi ekki í kjölfarið. Myndin af þeim hjónum er samtvinnuð í hugum okkar og það verður erfítt að venjast þeirri hugsun að héðan í frá verði þau ekki bæði til staðar. Elsku amma, við biðjum Guð að styrkja þig í sorginni sem nú leitar á og létta þessi þungbæru skrefí Guðmundur og Asmundur Ás- mundssynir og fjölskyldur. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Hvítasunnukirkjan Völvufelli Samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. I kvöld kl. 20.30 er almenn sam- koma í Þríbúðum. Fjölbreyttur söngur. Samhjélparvinir gefa vitnisburði mánaðarins. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. Orð lífsins, Grensásvegi8 Samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnirl Góðtemplarahúsið, Hafnarfirði Félagsvist í kvöld, fimmtudaginn 7. janúar. Byrjum að spila kl. 20.30 stundvislega. Allir velkomnir. FERÐAFELAG ® ÍSLANDS VIÖRKINNI 6 • SÍMI 682533 Fimmtudagur 7. janúar kl. 20.30: Myndakvöld Surtsey - hellamyndir - „Litli háiendishringurinn" o.fl. í kvöld, fimmtudaginn 7. janúar kl. 20.30, verður fyrsta mynda- kvöld Ferðafélagsins á nýbyrj- uðu ári. Kynning á landinu, sér- stæðri náttúru þess, landslagi og ferðum um það, er viðfangs- efnið á þessu myndakvöldi. For- vitnilegar myndir frá Surtsey ættu að vekja eftirtekt en þang- að er ekki öllum heimilt að fara og því fróðlegt að litast um þar með Birni Hróarssyni. Björn fer viðar um landið og bregður upp myndum af forvitnilegum stöð- um og skýrir um leið. Jóhannes I. Jónsson sýnir myndir og segir frá ferð um „Litla hálendishring- inn", en þar fær fólk að skyggn- ast inn á fáfarin svæði norðan og sunnan Hofsjökuls. Góðar kaffiveitingar í hléi. Aðgangs- eyrir: 500 kr. (kaffi og meðlæti innifalið). Kynnist ferðamögu- leikum innanlands. Aliir velkomnir, félagar sem aðrir! Sunnudagsferðir 10. janúar kl. 11: A. Saurbær - Músarnes, strandganga. B. Skiðaganga. Byrjið nýja árið með því að gerast félagar í Ferðafélaginu. Gleðilegt ferðaár! Ferðafélag (slands. UTIVIST Hallvoigórstig 1 • simi G14330 Föstudaglnn 8. janúar kl. 20.00: Tunglskinsganga í Vífilstaðahlið. Sunnudaginn 10. janúar kl. 10.30: Nýárs- og kirkjuferð i Skálholt. Vegna ófærðar sl. sunnudag varð að fella ferð þessa niður og er hún því aftur á dagskrá á sunnudaginn. Kl. 10.30: Stóri-Bolli í Grinda- skörðum. Hressandi 3-4 klst. ganga. Myndakvöld fimmtudaginn 14. janúar: Hinn þekkti Ijósmyndari, Páll Stefánsson, sýnir hinar gullfal- legu myndir sínar víðsvegar að af landinu. Útivist.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.