Morgunblaðið - 07.01.1993, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993
UTSALA
Á UNDIRFA TNAÐI
30-70% afsíáttur
S*ufritCwin*uten&Ccuil«t
Hafnarfirði
Blaðid sem þú vakrnr við!
ffclk í
fréttum
Náttúra Þingvallavatns kynnt
DANMORK
Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands og Pétur M. Jónasson prófess-
or í vatnalíffræði við Kaupmannahafnarháskóla þegar verk Pét-
urs var kynnt í Kaupmannahöfn.
Frá Sigrúnu Davíösdóttur, Kaupmannahöfn.
Nýlega var útgáfa bókarinnar
Náttúra Þingvallavatns
kynnt í Danmörku í móttöku á
vegum Vísindafélagsins danska og
íslenska sendiráðsins. Pétur M.
Jónasson prófessor í vatnalíffræði
við Kaupmannahafnarháskóla hef-
ur ritstýrt bókinni, sem er á ensku.
Viðstaddir móttökuna voru meðal
annars Vigdís Finnbogadóttir for-
seti íslands, sem hefur skrifað
formála að bókinni, Ove Nathan
rektor Hafnarháskóla og ýmsir
danskir og íslenskir vísindamenn.
Áður hefur verið sagt frá út-
komu þessa glæsilega verks á ís-
landi. Bókin er afrakstur átján ára
rannsókna vísindamanna frá sex
löndum. í móttökunni rakti Vigdís
Finnbogadóttir í nokkrum orðum
hvert gildi Þingvellir hefðu fyrir
íslendinga og lýsti landslaginu í
fáum dráttum. Ove Nathan rektor
fluttir kveðjur og ámaðaróskir frá
háskólanum í tilefni útgáfu bókar-
innar og þakkaði vel unnið verk,
sem væri mikil metið af hálfu skól-
ans.
Pétur þakkaði samstarfsmönn-
um sínum mikið og vel unnið verk,
sýndi nokkrar litskyggnur frá
Þingvöllum og sagði í fáum orðum
frá sérstöðu staðarins í landfræði-
legu og líffræðilegu tilliti. Hnitm-
iðuð frásögn hans og vel valdar
myndir gáfu heillandi mynd af því
mikla verki, sem liggur fyrir í
bókinni.
ÚTSALAN HEFST í DAG! Spennandi og öðruvísi vörur líka á útsölu.
Amy Carter Chelsea Clint-
um það leyti on veitir ekki
sem faðir af Ieiðsögn um
hennar varð hvemig kom-
forseti Banda- ast megi af í
Hvíta húsinu.
1 Ungar konur á öllum aldrí Snyrting Hárgreiðsla Framkoma Gestaboð Borðsiðir - Fataval Hreinlæti Mannleg samskipti 2 Ungarstúlkur 13-16 ára Snyrting Framkoma Borðsiðir Fataval Hreinlæti Ganga Mannleg samskipti 3 Bjóðum tyrirtækjum námskeiö tyrir starisfólk sitt Framkoma Kurteisi Símaþjónusta Hreinlæti Klæðnaður Snyrting Mannleg samskipti 4 Sértiópar Starfshópar Saumaklúbbar A) Snyrting Framkoma Gestaboð Borðsiðir Mannleg samskipti B) Litgreining
5 6 7 8
Litgreining Stutt Herrar á öllum aldri Skemmtilegt
A) Andlitsförðun snyrtinámskeið Framkoma framhaldsnámskeið
Litakort Handsnyrting Fataval og still Upprifjun
B) Undir4 augu Húðhreinsun Hreinláeti Myndataka
Persónulegar Andlitssnyrting Hárgreiðsla
ráðleggingar Persónuleg ráðgjöf Borðsiðir Einkatímar
um fatastíl um snyrtivörur Ganga eftir
Mannleg samskipti samkomulagi
Upplýsingar í síma 37878 og
Unnur í síma 643340 frá kl. 16-19
Fjölbreytt og spennandi námskeiö fyrir alla
ungar stúlkur, dömur og herra á öllum aldri
og verðandi sýningarfólk.
Módelnámskeið;
Dömur - herrar
• Ganga - snúningar
• Sviösframkoma -
snyrting
• Hárgreiðsla -
Ijósmyndun
• Allt sem viðkemur
sýningarstörfum
• Prófverkefni og sýning
í lokin
• Viðurkenningarskjal
Munið gjafakortin
FORSETADÆTUR
Carter gefur
Clinton ráð
Chelsea, dóttir Bills Clinton, hef-
ur að undanförnu notið góðra
ráðlegginga um hvernig takast eigi
á við þær breytingar sem verða á
högum hennar síðar í mánuðinum.
Það er Amy, dóttir Jimmy Carter
fyrrum Bandaríkjaforseta, sem
gefið hefur ráðleggingar í gegnum
síma. Amy er nú 24 ára en var
aðeins 8 ára þegar faðir hennar
settist á forsetastól. Haft var eftir
Jimmy Carter að dóttir hans gæfi
Chelsea góð ráð um hvernig lifa
mætti af dvöl í Hvíta húsinu en
það gæti reynst sveitastúlkum eins
og Amy og Chelsea erfitt.
Amy er virk í stúdentapólitíkinni
þar sem hún stundar nám en talið
er að áhuga hennar á stjómmálum
megi rekja til áranna í Hvíta hús-
inu. Chelsea hefur hins vegar ekki
sýnt neinar tilhneigingar í þá átt,
hefur einna mestan áhuga á því
að gerast vísindamaður. „Pabbi og
mamma tala ekki um neitt annað
en stjómmál og ég er orðin hund-
leið á því,“ sagði hin 13 ára gamla
forsetadóttir nýlega við vini sína.
Hvort afstaða hennar breytist eitt-
hvað í embættistíð föður hennar
skal hins vegar ósagt látið.