Morgunblaðið - 07.01.1993, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993
41
eftir Olaf Hauk Símonarson
Leikritið sem sýnt hefur
verið fyrir fullu húsi
í allan vetur.
Sýnmgar hafnar a ný!
Næstu syningar:
Laugardaginn 9. janúar kl. 20:00
Miðvikudaginn 13. janúar kl. 20:00
Miðasala:
sími 11200
Alþingi með mamiréttíndabrotum?
Frá Jóhann M. Hauksson:
Staksteinar greindu frá því fyrir
nokkru að fyrir Alþingi lægi þings-
ályktunartillaga um stuðning við
„réttindabaráttu" Eystrasaltsríkj-
anna á alþjóðavettvangi. Stuðning-
ur íslands væri sá að reyna að koma
í veg fyrir að siðaðar þjóðir Evrópu
þrýsti á Eystrasaltsríki að hætta
mannréttindabrotum. Þetta er
skammariegt og ég vona að þing-
menn sjái að sér og felli þennan
óskapnað. En um hvað fjallar málið?
í þingsályktunartillögunni er sér-
staklega fjallað um Eistland og ég
mun gera það sama.
Þegar Sovétríkin voru og hétu
streymdu Rússar til þessara svæða,
annaðhvort sjálfviljugir eða fluttir
nauðugir, en þetta var allt, eins og
segir í tillögunni, til að „grafa und-
an menningu og þjóðemi Eistlend-
inga og Letta“.
Nú er svo komið að stór hluti
þeirra sem búa í löndunum hefur
ekki sömu þegnréttindi og aðrir
vegna þess að þeir geta ekki rakið
ættir sínar til fólks sem bjó á svæð-
inu fyrir síðari heimsstyijöld (ríkin
voru innlimuð í Sovétríkin árið
1940). í nýlegum þingkosningum
fengu 600 þúsund manns, þriðjung-
ur íbúa ríkisins, ekki að kjósa því
þeir höfðu ekki ríkisborgararétt.
Núverandi lög um ríkisborgara-
rétt veita einungis þeim þennan
rétt sem getur sýnt fram á að fjöl-
skylda hans hafi búið þar síðan
fyrir síðari heimsstyijöld. Þessi lög-
gjöf um ríkisborgararétt er byggð
á þeirri þjóðernishyggju sem lítur
á þjóð sem hlutlægt fyrirbæri. Fólk
er þá hluti af þjóðinni vegna hlut-
lægra þátta — sem erfast. Þannig
nægir fólki ekki að hafa búið í land-
inu alla ævi, og vilja búa þar áfram,
til að verða ríkisborgarar, heldur
Frá Ályktun frá stjórn og trúnaðar-
mönnum Sambands dýraverndarfé-
laga íslands:
Trúnaðarmenn Sambands dýra-
vemdarfélaga íslands víðs vegar
að um landið vilja velqa athygli
landsmanna á hrossum sem nú um
hávetur eru iátin dúsa í girðingum
víðsvegar um landið án húsaskjóls
og oft án nokkurs skjóls fyrir veðri
og vindum. Víða eru hrossin lítið
eða illa fóðruð, jafnvel alls ekki
fóðrað. Einnig er skylt að vekja
athygli á þeim hrossum sem höfð
era í dölum, á heiðum og í eyði-
byggðum, og sannarlega sett á guð
og gaddinn.
Stjórn og trúnaðarmenn SDÍ
skora á landsmenn að taka höndum
verður fólki að vera „eistneska“ í
blóð borin (eins fáránlegt og það
annars er).
Þetta er sama hugmyndafræði
og fær ræfla í Þýskalandi og víðar
til að ráðast eins og híenur í hópum
á útlendinga, vegna þess að þeir
eru útlendingar — hafa ekki þetta
„hreina" eistneska, þýska eða hvað-
þaðnúer blóð í æðum.
Þeir sem ekki eiga því láni að
fagna að vera af ákveðnum ættum
geta þó sótt um ríkisborgararétt.
Þeir verða að hafa búið í landinu í
tvö ár (frá ’90), þeir verða að gang-
ast undir tungumálapróf og hafa
1.500 eistnesk orð á valdi sínu,
þeir mega ekki vera glæpamenn eða
eiturlyfjaneytendur, mega ekki
hafa tvöfaldan ríkisborgararétt og
að endingu verða þeir að lýsa yfir
hollustu við Eistland.
Flutningsmenn tillögunnar telja
skilyrði þess að fá ríkisborgararétt
ekki óeðlileg, flöllum um þau. Mað-
ur sem hefur búið alla ævi f Eist-
landi þarf að gangast undir auð-
mýkjandi tungumálapróf. Það er
rétt að það er slæmt að búa í landi
ef maður þekkir ekki tungu þess
lands, en ef maður hefur hvorki
nennu né getu til að læra málið,
er það þá ekki manns eigið vanda-
mál? Af hveiju má viðkomandi ekki
kjósa stóm lands síns? Hvað varðar
glæpamenn og dópista kemur mér
á óvart, og mér þykir miður, að
þessi kaþólsku ríki láti ekki siðferði
iðrunar og fyrirgefningar lýsa sér
veginn. Þó maður hafi brotið lögin
eða neytt eiturlyfja geta flestir
bætt sig og orðið góðborgarar. Loks
þarf að undirrita hollustueið við
Eistland. Þetta er nokkuð sem fell-
ur beint af borði ljótrar þjóðemis-
hyggju, og er, eins og svo margt
sem þaðan kemur, ákaflega óljóst.
saman og hætta að sjá í gegnum
fingur varðandi illa meðferð á
hrossum. Hestar þurfa á húsaskjóli
og fóðri að halda, ekki síður en
annar búsmali, og eiga þann rétt
skilyrðislaust samkvæmt lögum um
dýravernd.
Landsmenn, látið viðkomandi yf-
irvöld vita ef þið vitið af hrossum
þar sem ekki er nægilega vel að
þeim búið. Fjölmiðlafólk, leggið
málinu lið. Látið myndimar tala
þannig að það verði lýðum ljóst hve
illa er vfða farið með íslenska hest-
inn.
F.h. Sambands dýravemdarfé-
laga íslands,
JÓRUNN SÖRENSEN
Kleppsvegi 54, Reykjavík
Er þetta hollustueiður við stjóm
landsins, hver sem hún er, við land-
ið sjálft, þ.e. jörðina, við menningu
eða við eitthvert eistneskt blóð?
Víst er að yfir Sovétríkjunum
réði hópur spilltra egóista og glæpa-
manna — kommúnistaflokkurinn —
og að mörg mannréttindi vora brot-
in á fólki í Eystrasaltsríkjunum og
víðar. Það ber okkur að fordæma.
Hins vegar réttlætir það ekki mann-
réttindabrot núna. Og síst af öllu
eigum við íslendingar að styðja
svona nokkuð, og hvað þá með til-
lögu sem á að vera einhvers konar
stefnumótun.
Það er rétt að mörg mannrétt-
indabrot eru verri en þetta, t.d. er
fólki nauðgað og það pyntað og
drepið á Balkanskaga — raunar
vegna sömu þjóðemishyggju — en
það er samt fráleitt að ætla að
styðja þessa Ijótu gjörð.
JÓHANN M. HAUKSSON
nemi í stjómmálafræði og
heimspeki, Eggertsgötu 2,
Reykjavík
LEIÐRÉTTIN G AR
Undirskrift
vantaði á minn-
ingargrein
„Harðskeyttur, skarpur, áræðinn
og einlægur var Óskar Matthíasson,
útvegsbóndi og skipstjóri í Vest-1
mannaeyjum ..." Með þessum orðum>
hófst minningargrein á bls. 16 í'
Morgunblaðinu í gær. Þessi grein er1
eftir Áma Johnsen, alþingismann, en'
undirskrift greinarinnar vantaði,'
þannig að grein Áma og stutt grein
eftir Þórarin Sigurðsson urðu að einni
grein.
Lokaorðin í grein Áma voru þessi:
„Hann spúlaði þeim burtu með sínum
eigin lffsstfl, harðskeyttur athafna-
maður sem var fyrst og síðast maður
án nokkurra fyrirvara."
Rangnr
myndartexti
Texti undir mynd af Ólöfu Eldjám
var ekki réttur í blaðinu í gær. Fyrir
mistök stóð þar Sigrún Eldjám. Eru
hlutaðeigandi beðnir velvirðingar.
Puccini
í frétt af frumraun Kristjáns Jó-
hannessonar í Vínaróperunni í Morg-
unblaðinu í gær var óperan Tosca
sögð eftir Verdi. Þetta er rangt. Höf-
undur hennar er Puccini.
ffl meðferð á hrossum
Okeypis lögfræöiaðstoö
á hverju fimmtudagskvöldi milli
kl. 19.30 og 22.00 í síma 11012.
ORAIOR, félag laganema.
1 HARGREIÐSLUSTOFA,
ÁRMÚLA 17A - SÍMI 32790
20% afsláttur
af permanenti og strípum tii 21. ianúar.
Hárgreiðslumeistari:
Gerður Þórisdóttir.
Verið velkomin!
__ VILTU BREYTA?
ÞARFTU AÐ BÆTA?
KOMDU Í KRIPALUIÓGA!
TEYGJUR - ÖNDUN - SLÖKUN
Byrjendanámskeið hefjast 11., 18. oo 19. janúar.
Tímar fyrir eldri borgara byrja 11. janúar.
Upplýsingar og skráning í síma 679181 á milli
kl. 17 og 19 alla virka daga.
KYNNING Á KRIPALUJÓGA
laugardaginn 9. janúar kl. 14.00 í Skeifunni 19,
2. hæð. ALLIR VELKOMNIR!
Jógastöðin Heimsljós
Pastamenn og konur
íslands sameinist:
ÍLRISTORANTE
LÓNIÐ
verður ítalskt frá
8. til 21. janúar.
Hin Róm-aða veitingakona og
hlaðborðasniilingur
Michelina Grasso
hefur gert italska byltingu á
Hótel Loftleiðum.
Hún mun sjáif ráöa ríkjum til 14.
þessa mánaðar en eftir það munu
ís-talskir matreiðslumeistarar
hótelsins halda merki ítalskrar
matarmenningar á lofti.
Lauflétt, æsandi og alítalskt
hádegis- og kvöldhlaðborð með
heitum og köldum forréttum, fyrstu
réttum, öörum réttum og
eftirréttum mun hita okkur upp og
kæla á víxl í takt við ítalskar
geðsveiflur.
Borðapantanir í síma 22321
FLUGLEIDIR
IÍTIL Limilllt