Morgunblaðið - 07.01.1993, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTT1R FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1993
43
HANDKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNIN
Stórskytta til Breiðabliks
Joe Wright, sem gerði 44,7 stig að meðaltali ífinnsku deildinni, kom til landsins í gær
Körfuknattleikslið Breiðabliks
hefur fengið bandaríska
ieikmanninn Joe Wright til Iiðs
við sig og kom hann til landsins
f gær. „Þetta á að vera góður leik-
maður og við bindum miklar von-
ir við hann,“ sagði Sigurður Hjör-
leifsson, þjálfari Breiðabliks, við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Wright, sem er bakvörður, lék
með 1. deildarliði frá Turku í Finn-
landi áður en hann kom hingað.
Þar sem finnska liðið komst ekki
í fínnsku úrslitakeppnina var hann
á lausu. Sigurður segir að þessi
leikmaður hafí gert 44,7 stig að
meðaltali í finnsku deildinni. Hann
gerði 13 sinnum meira en 50 stig
í leik og mest náði hann að skora
79 stig í einum leik.
Wright spilar fyrsta ieik sinn
með UBK gegn ÍBK í Digranesi
á sunnudaginn. Sögusangir hafa
verið uppi um að David Grissom
væri á förum frá félaginu, eftir
að fékk íslenskan ríkisborgara-
rétt, en Sigurður Hjörieifsson
þvertók fyrir það. Eins og komið
hefur fram hætti Pétur Guð-
mundsson að leika með liðinu fyr-
ir áramót og því var gripið tii
þess ráðs að fá Wright.
FOLX
■ LIVERPOOL hefur boðið 3
millj. punda í skoska landsliðsmann-
inn Gordon Duríe hjá Tottenham.
Graeme Souness segir að Totten-
ham geti einnig val-
FráBob ið úr fjórum leik-
Hennessy mönnum sem komi
/' Englandi til með að ganga
upp í kaupverðið.
Þessir leikmenn eru: Ronny Ros-
enthal, Mark Wright, Michael
Thomas og Paul Stewart, sem lék
með Tottenham í fyrra.
■ GORDON Duríe er 26 ára og
gekk til liðs við Tottenham fyrir
18 mánuðum frá Chelsea. Hann
hefur gert 12 mörk í 46 leikjum
fyrir Tottenham en aðeins sett
fjögur mörk á þessu tímabili. Durie
er ætlað það hlutverk hjá Liverpo-
ol að spila við hliðina á Ian Rush.
■ HENRIK Larsen, danski
landsliðsmaðurinn sem er á samn-
ing hjá ítalska liðinu Pisa en ekki
fengið tækifæri með liðinu, er nú
hjá Aston Villa tii reynslu. Hann
lék með varaliði félagsins i gær og
á að leika aftur með varaliðinu á
mánudaginn. Eftir það veður tekin
ákvörðun um hvort hann verði
keyptur til félagsins fyrir 1 millj.
punda.
■ KAARE Ingebrígsten, miðju-
maður hjá Noregsmeisturum Ros-
enborg og norska landsliðinu í
knattspyrnu, var í viku hjá Man-
chester City til reynsiu og er félag-
ið tilbúið að semja við hann og
greiða um 55 millj. ÍSK fyrir kapp-
ann.
■ INGEBRIGSTEN átti að vera
hjá félaginu í mánuð, en Rosen-
borg sætti sig ekki við það. Hann
verður fjórði norski landsliðsmað-
urinn í ensku úrvaldseildinni.
■ MO Johnston kjálkabrotnaði
heima hjá sér fyrir helgi og leikur
ekki með Everton næstu þijár eða
fjórar vikumar. Talið er líklegt að
hann verði seldur frá félaginu á
allra næstu dögum.
■ BLACKBURN tapaði um 720
millj. ÍSK á síðasta ári samkvæmt
rekstarreikningi. Staðan er samt
ekki slæm, því Jack Walker, sem
á 99% í félaginu, lagði því til um
einn milljarð. „Framlag hans bætir
ekki aðeins upp tapið heldur styrk-
ir stöðuna til muna,“ sagði Rob
Coar, stjórnarformaður.
■ STEVE Coppell var á laugar-
dag útnefndur stjóri síðasta mánað-
ar, en varð síðan að sætta sig við
að horfa á leikmenn sína í Crystal
Palace falla úr bikarkeppninni.
Þetta var í fímmta sinn á sex árum,
sem Palace kemst ekki lengra í
bikarnum.
■ MARLOW er eina félagið, sem
hefur tekið þátt í ensku bikarkeppn-
inni á hveiju ári frá byijun, 1872.
■ FÉLAGIÐ fékk um 6 millj. ÍSK
fyrir leikinn gegn Spurs, sem
tryggir reksturinn næstu tvö árin,
en hver leikmaður er með um 5.000
kr. í vikulaun.
Gangur leiksins: 0:1, 1:1 - jafnt á öllum
tölum til 11:11, 11:18. 12:13 (1. mín.H^-
12:16, 18:16 (9.30 mín.), 13:19, 14:19 (15.
min.), 14:21, 15:21 (20. mín.), 15:23, 16:23
(24. mín.), 16:24, 17:24 (26. mín.), 17:28.
Mörk Víkings: Gunnar Gunnarsson 5/2,
Árni Friðleifsson 3, Kristján Ágústsson 3,
Friðleifur Friðleifsson 2, Bjarki Sigurðsson
2, Hinrik Bjamason 1, Helgi Eysteinsson 1.
Hvemig skorað: 9 langskot, 2 hraðaupp-
hlaup, 2 af linu, 2 vítí, 1 úr homi, 1 gegnum-
brot.
Varin skol: Reynir Þ. Reynisson 12 (Þar
af fjögur til mótheija). 7(8) langskot, 3(1)
úr homi, 1 af iínu, 1 gegnumbrot. Alexand-
er Rivine 1(1) langskot.
Utan vallar. 4 min.
Mörk Vals: Geir Sveinsson 5, Jón Kristjáns-
son 4, Valdimar grímsson 4/1, Júlíus Gunn-^.
arsson 4, Dagur Sigurðsson 8, ólafur Stef-
ánsson 3, Ingi R. Jónsson 1, Valgarð
Thorodsen 1.
Hvemig skorað: 11 langskot, 6 af línu, 4
úr hraðaupphlaupi, 4 úr homi, 1 gegnum-
brot, 1 vitakast.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson
16(4). 8(2) langskot, 5(1) úr homi, 3(1) af
línu.
Utan vallan 6 mín.
Áhorfendur: 1000. v
Dómarar: Gunnlaugur Hjálmarsson og Ein-
ar Svéinsson, sem,vora góðir.
Þrettándagleði
Valsmanna í Víkinni
IMýtingin
Valsmenn náðu 56% nýtingu - skor-
uðu 28 mörk úr 50 sóknarlotum.
Þeir náðu 50% nýtingu (13 mörk/26
sóknir) í fyrri hálfleik, en 62,5%
nýtingu (15/24) í seinni hálfleik.
Víkingar vora með 34,69% nýtingu
í leiknum - skoraðu 17 mörk úr 49
sóknarlotum. Nýtingin var 44%
(11/25) í fyrri hálfleik, en 20,8%
(5/24) i seinni hálfleik.
Fyrstu 15 mín. leiksins voru Vals-
menn með 42,8% (6/14) nýtingu, en
Víkingar 46,1 (6/13) nýtingu. Næstu
15 min. var Valur með 58,3% (7/12)
nýtingu, en Víkingur 41,6% (5/12).
Fyrstu 15 mín. i seinni hálfleik var
Valur með 60% (6/10) nýtingu, en
Víkingur 18,1% (2/11). Siðustu 16
mín. var nýting Vals 64,2% (9/14),
en Víkingur 23% (8/13).
VALSMENN léku Víkinga grátt
þegar þeir tryggðu sér rétt til
að leika til úrslita gegn Selfyss-
ingum í Bikarkeppni HSÍ - það
má segja að þeir hafi verið með
Þrettándagleði sína íVíkinni,
þar sem þeir unnu Víkinga með
ellefu marka mun, 17:28.
„Valsmenn voru sterkari á öll-
um sviðum, en við náðum að
halda ívið þá íþrjátíu mínútur
og keyra á skemmtilegan leik.
Geysileg barátta Valsmanna í
seinni hálfleik leysti upp leik
okkar og þegar þeir náðu
þriggja marka forskoti fóru við
að reyna of mikið sjálfir. Við
það riðlaðist leikur okkar og
vörnin hrundi í kjölfarið," sagði
Bjarki Sigurðsson, fyrirliði Vík-
ings.
Það var strax í upphafi seinni
hálfleiksins sem Valsmenn
gerðu út um leikinn, er þeir komust
í 12:16 með geysi-
lega öflugum varn-
arleik. Víkingar
skoruðu ekki mark
í 8,30 mín. og síðan
ekki í aðrar 5,30 mín., en þá voru
Valsmenn búnir að ná sex marka
forskoti, 13:19. Eftirleikurinn var
síðan auðveldur fyrir þá. Undir lok
leiksins gátu þeir leyft sér hina
ýmsu hluti og besta dæmið um yfír-
burðina var þegar Dagur Sigurðs-
son skoraði með sannkölluðu lang-
skoti - sendi knöttinn frá vítateigs-
línu Valsmanna yfír völlinn og í
mannlaust mark Víkinga, sem
höfðu játað sig sigraða. Valsmenn
skoruðu fjögur síðustu mörk leiks-
ins og fögnuðu ótrúlegum stórsigri.
„Við áttum í erfíðleikum með
Valsmenn í fyrri háifleik, en þegar
vörn okkar small saman í seinni
hálfleik var eins og Víkingar gæf-
ust upp. Þegar lið ná að leika sterk-
an vamarleik ná þau oft ódýrum
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
Er ekkl komið nóg getur Gunnar Gunnarsson verið að segja þegar hann
stöðvar Valsmanninn Dag Sigurðsson rétt fyrir leikslok.
KORFUKNATTLEIKUR
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Dalglish skrefi frá Wembley
Kenny Dalglish og lærisveinar
hans í Blackbum Rovers
tryggðu sér í gærkvöldi sæti í und-
anúrslitum enska deildarbikarsins
ásamt Crystal Palace. Þetta er í
fyrsta sinn í meira en 30 ár sem
Blackbum kemst í undanúrslit
keppninnar.
Kenny Dalglish hefur gert góða
hluti með Blackbum í deildarkeppn-
inni og er nú aðeins einu skrefí frá
því að komast í úrslitaleik deildarbik-
arkeppninnar á Wembley. Hann ætti
að rata þangað því fjórum sinnum
hampaði hann deildarbikartitlinum
sem leikmaður Liverpool. Lið hans
sigraði Cambridge 3:2 í gær en það
blés ekki byrlega fyrir Blackbum til
að byija með því markaskorarinn
Alan Sharer varð að yfirgefa völlinn
meiddur á hné eftir aðeins hálftíma
leik. Skömmu síðar náði Gary Clay-
ton forystunni fyrir Cambridge og
útlitið dökkt. En Meke Newell (60.
og 88.) og Roy Wegerle (77.) tryggðu
sigur Blackbum. Cambridge náði að
klóra í bakkann með marki Mick
Heathcote á síðustu mínútu leiksins.
Crystal Palace bætti fyrir tapið
gegn 2. deildarliðinu Hartlepool í
ensku bikarkeppninni um helgina
með því að vinna Chelsea 3:1. Þetta
er í fyrsta sinn sem Palace kemst í
undanúrslit keppninnar og getur liðið
þakkað George Ndah og Grant Watts
fyrir það, en þeir léku í stað lykil-
manna sem voru meiddir og stóðu
sig vel. Chris Coleman gerði fyrsta
mark leiksins fyrir Palace, en fyrir-
liði Chelsea, Andy Townsend, jafn-
aði. En Ndah og Watts gerðu sitt
hvort markið undir lokin sem tryggði
liðinu öruggan sigur.
Negel Winterburn bjargaði andíiti
Arsenal í 4. umferð keppninnar með
því að gera eina mark leiksins gegn
3. deildarliðinu Scarborough. Arsenal
leikur við Nottingham Forest í 8-liða
úrslitum, en það lið sem vinnur þá
viðureign leikur geng Crystal Palace
í undanúrslitum. í hinum undanúr-
slitunum leikur Blackbum Robers við
annað hvort Ipswich eða Sheffíeld
Wednesday.
mörkum úr hraðaupphlaupum,“
sagði Jón Kristjánsson, leikstjóm-
andi Valsliðsins, en hann var tekinn
úr umferð í seinni hálfleik og Vík-
ingar tóku einnig Ólaf Stefánson
úr umferð til að byija með, en sfðan
breyttu þeir um og tóku Dag Sig-
urðsson úr umferð. Átti Jón von á
því að Víkingar tækju tvo úr um-
ferð? ,Já, við áttum von á öllu frá
þeim. Víkingar hafa leikið Qöl-
breyttan vamarleik," sagði Jón.
Allir leikmenn Vals léku vel gegn
Víkingum og er stórsigur þeirra
gott veganesti fyrir þá fyrir Evrópu-
leik þeirra gegn Essen í Þýskalandi
á sunnudaginn.
Valsmenn og Selfyssingar leika
bikarúrslitaleikinn í Laugardals-
höllinni 7. febrúar. „Það er ljóst að
sá leikur verður geysilega skemmti-
legur. Valsmenn og Selfyssingar
em með öflug lið, sem em til alls
líkleg," sagði Bjarki Sigurðsson,
fyrirliði Víkinga.
Víkingur - Valur 17:28
Mæta Selfyssingum í úrslitaleik bikarkeppninnar