Morgunblaðið - 08.01.1993, Síða 4

Morgunblaðið - 08.01.1993, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1993 Reiðhöllin í Víðidal. Reiðhöllin í Víðidal til sölu á hálfvirði „VIÐ ÞURFUM að fá um 100 miiyónir fyrir Reiðhöllina, þvi það er sú upphæð, sem hvílir á húsinu. Byggingarkostnaður hússins er hins vegar um 200 milljónir, svo hún fæst í raun á hálfvirði,“ sagði Leifur Kr. Jó- hannesson, framkvæmdastjóri Stofnlánadeildar landbúnaðar- ins, en deildin hefur auglýst Reiðhöllina í Víðidal til sölu. Stofnlánadeildin, Framleiðni- sjóður og Búnaðarbankinn eign- uðust Reiðhöllina á nauðungarupp- boði í nóvember 1990. „Við höfum leigt húsið út til reiðskóla, en við þurfum að selja það, enda eigum við ekki að safna upp eignum held- ur koma þeim í verð,“ sagði Leifur. „Það hafa þó nokkrir haft samband við okkur síðan við eignuðumst húsið, en mér finnst æskilegast að húsið verði til upphaflegra nota, þ.e. fyrir hestamenn. Hesta- mennska er það vinsæl íþrótta- og tómstundagrein í borginni að manni finnst eðlilegt að svona hús verði starfrækt hér.“ Guðjón B. Ólafsson hættir sem forstjóri Sambandsins Nýr forstjóri ekki ráðinn Skuldir Sambandsins 3% af því sem var fyrir þremur árum GUÐJÓN B. Ólafsson lét af starfi forstjóra Sambands íslenskra sam- vinnufélaga um áramót af heilsufarsástæðum. Hann hefur starfað þjá fyrirtækinu í tæpa fjóra áratugi og verið forstjóri í rúm sex ár. Ekki er fyfirhugað að ráða að nýju í stöðu forstjóra en Sigurður Markússon stjórnarformaður verður áfram í fullu starfi þar til ann- að verður ákveðið. Er þetta í fyrsta skipti í sjötiu og fimm ár sem ekki er starfandi forstjóri hjá Sambandinu. Guðjón B. Ólafsson hóf störf hjá fyrirtækja í eigu Sambandsins, Sambandinu vorið 1954 og var við ýmis störf fyrstu tíu árin. Hann var framkvæmdastjóri skrifstofu Sam- bandsins í London 1964 til 1968 og framkvæmdastjóri sjávarafurða- deildar til 1975. Þá gerðist hann forstjóri Iceland Seafood Corporat- ion, sölufyrirtækis Sambandsins í Bandaríkjunum. í fréttatilkynningu Sambandsins um starfslok Guðjóns segir að þegar Guðjón hóf störf vestan hafs hafi fyrirtækið átt við mikla rekstrar- og efnahagsörðug- leiká að stríða, en hafist til vegs og virðingar undir stjóm hans. Guðjón var forstjóri Iceland Seafood þar til hann tók við starfi forstjóra Sambandsins haustið 1986. Þá hef- ur hann setið í stjórnum fjölmargra VEÐUR V f DAG kl. Helmíld: Veðurstofa íslands (Byggt á veöurspá kl. 16.15 í gœr) VEÐURHORFUR I DAG, 8. JANUAR YFIRLIT: Um 300 km suðsuöaustan af Hornafirði er vaxandi 952 mb lægð sem hreyfist norðaustur. Milli Islands og Grænlands er nærri kyrr- staeð 967 mb lægð. Yfir Norður-Grænlandi er 1.010 mb hæð. SPÁ: Norðlæg átt, stinningskaldi eða allhvasst og sumstaðar jafnvel hvasst norðanlands. Sunnan til verður vestan stinningskaldi eða ell- hvasst en hægari vestanátt við Faxaflóann. Él verða um mestallt land, einkum norðanlands og vestan. Frost verður 2-8 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðlæg átt um norðan- vert landið en vestan- og suövestan étt sunnantil. Þurrt ó suðaustur- landi en snjókoma eða éljagangur í öðrum landshlutum. Frost 2-6 stig. HORFUR Á MÁNUDAG: Norðaustanstrekkingur um allt land og vax- andi frost. Snjókoma eða él é Norður- og Austurlandi og norðantil ó Vestfjörðum en víða bjart veður sunnan- og vestanlands. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.46, 16.30, 10.30, 22.30. Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 880600. o Heiðskírt / / / f f f f f Rigning a Léttskýjað * / * * f f * / Slydda Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma & Skýjað Alskýjað V ^ i Skúrír Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og flaðrimar vindstyik, heil flöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Þoka ] FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígœr) Fært er um vegi í nógrenni Reykjavfkur, um Suðumes og Mosfells- heiöt. Einnig er fært austur um Hellisheiði og Þrengsli og með Suður- ströndinni ttl ----------—*—* — um Oddskarð, fellsnesi. Einnig er fært í Dali og til Reykhóla. er milli Patreksfjaröar og Tólknafjarðar en Kieifaheiði og Hálfdón eru þungfær. Fært er um Holtavörðuheiði til Hóimavíkur og áfram þaðan til Isafjarðar og Bolungarvíkur. Frá ísafirði er síöan fært til Súgandafjarð- ar og Þingeyrar. Fært er um Norðurland til Siglufjarðar, Ólafsfjaröar og Akureyrar. Frá Akureyri er fært austur um Vfkurskarð til Húsavíkur og ófram þaðan með ströndinni til Vopnafjarðar. Frá Húsavík er einnig fært til Mývatns. Mjög víöa á landinu er hálka ó vegum. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri +5 tkýjað Reykjevlk +2 úrkoma Bergen e rigning Helslnki 3 aúld Kaupmannahðfn 4 léttskýjað Narssarssuaq +21 hetðakírt Nuuk vantar Osló +2 •kýjeð Stokkhólmur 2 heiðskírt Þórehöfn 9 rigning Algarve 14 léttskýjað Amsterdam 4 þokuruðnlngur Barcelona 11 Uttakýjað Berlfn 4 tkýjað Chicago +6 aiakýjað Feneyjar 3 þokumóða Frankfurt 8 tkýjað Qlasgow 9 •kýjað Hamborg 4 þokumóða London S «ÚU LosAngeles 16 rigning Lúxemborg 7 þoka Madrtd 7 mistur Malaga 14 léttakýjað Mallorca 14 léttskýjað Montreal +5 léttskýjað NewYork 3 alskýjað Orlando 19 þoka Par(s 9 þokumóða Madeira 18 skýjeð Róm 12 þokumóða Vín 7 rignlng Waahington 4 alskýjað Winnipeg +27 heiðskírt stjómarformaður í flestum þeirra. Fimm menn gegndu stöðu for- stjóra Sambandsins sem stofnað var árið 1902. Opnuð var skrifstofa í Reykjavík 1917 og varð Hallgrímur Kristinsson fyrsti forstjóri hennar en hann hafði áður verið verslunar- erindreki Sambandsins um tíma. Að honum látnum, árið 1923, tók Sigurður Kristinsson við forstjóra- stöðunni og var í henni til ársins 1945. Vilhjálmur Þór var forstjóri frá 1946 til 1954 og Erlendur Ein- arsson frá árinu 1955 til 1986. Starfsemi Sambandsins hefur dregist mjög saman síðustu árin, fyrst þegar helstu deildum þess var breytt í sjálfstæð hlutafélög og síð- ar við sölu eigna þess. Hefur það nú sáralítinn rekstur með höndum. Eignir þess voru áætlaðar 849 millj- ónir um áramót og skuldir 423 milljónir kr., þannig að eigið fé var 426 milljónir kr. Starfsemi Sam- bandsins nú felst einkum í því að halda utan um eignarhlut þess í hlutafélögum, að sögn Sigurðar Markússonar stjórnarformanns. Tekjur þess eru aðallega arður af þessum hlutabréfum en raunar hafa fæst dótturfélögin getað greitt arð og eru tekjur því litlar, að sögn Sigurðar. Helstu gjöld eru vextir af lánum, vinnulaun og húsnæðis- kostnaður. Starfsmenn eru nú tíu talsins en fækkar um hver mánaðamót vegna Guðjón B. Ólafsson, fyrrv. for- sljóri SÍS. 1 uppsagna. Sigurður segir að fyrir mitt ár verði eftir íjórir starfsmenn: stjómarformaður, ritari, bókhaldari og einn starfsmaður til viðbótar. Sigurður segir að áfram verði unn- ið að sölu eigna til að lækka skuld- ir og vaxtakostnað. Fyrir þremur árum, áður en Sam- bandinu var skipt upp, voru skuldir þess 10,7 milljarðar kr. Framreikn- að miðað við byggingarvísitölu er sú fjárhæð í dag 14,3 milljarðar. Raunskuldir Sambandsins nú eru því innan við 3% af skuldunum fyr- ir þremur ámm. Sigurður tekur þó fram að stór hluti skuldanna hafi færst á önnur fyrirtæki en hluti þeirra þó verið greiddur. Formaður Samtaka fiskvinnslustöðva 1% vaxtahækkun étur upp hálfan ávinning afnáms aðstöðugjalds ARNAR Sigurmundsson formaður Samtaka fiskvinnslustöðva segir að hækkun raunvaxta um eitt prósentustig éti upp hálfan ávinning sjávarútvegsins í heild vegna afnáms aðstöðugjalds, en sú hækkun leiðir til 350 miiyóna heildarhækkunar á fjármagnskostnaði ís- lenskra sjávarútvegsfyrirtækja. Samtökin hafa skorað á banka að endurskoða nú þegar vaxtahækkanimar sem urðu um áramótin. „Það má ekki gleyma því að stjómvöld kynntu þessa gífurlegu tilfærslu í breytingum á aðstöðu- gjaldi að það væri ekki síst verið að hjálpa sjávarútvegi í þeim efnum, en við vorum með 700 milljónir beint í þessu dæmi. Miðað við heild- arskuldir í sjávarútvegi, og að hækkun raunvaxta vegi 1% við þessar aðgerðir núna, þá er helm- ingur af ávinningnum vegna af- náms aðstöðugjaldsins farinn. Þetta er alveg nöturleg staðreynd," sagði Arnar. Fékk togvír í höfuðið SKIPVERJI á dráttarbátnum Hvanneyrinni fékk togvír í höfðuðið á miðvikudag, er draga átti danska skipið Erik Boye úr ísafjarðar- höfn. Maðurinn rotaðist og fékk lítilsháttar heilahristing en var ekki talinn í hættu. Að sögn lögreglunnar á ísafirði varð slysið með þeim hætti, að tog- vír sem festa átti í Erik Boye fór útaf spilinu og slóst í höfuð mann- ins svo hann rotaðist og fékk skurð á höfuð. Hann var fluttur á sjúkra- húsið á Ísafírði þar sem gert var að sárum hans. 130 stéttarfélög hafa sagt upp samningum UM 130 stéttarfélög hafa tilkynnt embætti ríkissáttasenyara um uppsagnir á kjarasamningum, og að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissáttasenyara berast embættinu daglega tilkynningar um upp- sagnir. „Það kom talsvert mikið hingað lega eftir að gera það fram eftir rétt fyrir áramótin, en það er enn- þessum mánuði," sagði Guðlaug- þá að berast hingað og á ábyggi- ur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.