Morgunblaðið - 08.01.1993, Síða 10
10
MORÖUN'BIADH) FÖSTUDAGUR 8. JÁ>JCÁR 1993
Veður tefur fyrir
loðnurannsóknum
fyrir austan land
Loðnan „gnfaði upp“ við Kolbeinsey
TVÖ rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar eru í loðnuleiðangri
fyrir austan land. Hjálmar Vilhjálmsson, leiðangurstjóri á Bjarna
Sæmundssyni, sagði í samtali við Morgunbiaðið í gær að norðaustan
veður hefði hamlað rannsóknum og engin mynd væri komin á hegð-
un loðnunnar. Hann hafði eftir loðnusjómönnum að loðna við Kol-
beinsey hefði „gufað upp“ og sagði að loðna út af Reyðarfjarðar-
dýpi stæði of djúpt til að hægt væri að veiða hana.
„Við vorum búnir að skoða svolít-
ið út af Reyðarfjarðardjúpi og svo-
kölluðum Fæti, rétt sunnan við það.
Á þeim slóðum er dálítil loðna en
hún stóð djúpt í nótt og hefði ekki
verið veiðanleg jafnvel þó þarna
hefðu verið skip,“ sagði Hjálmar
og hafði eftir sjómönnum að loðna
við Kolbeinsey hefði gufað upp.
Hann sagðist halda að flestir loðnu-
bátanna hefðu haldið suður á leið
aftur.
Hjálmar sagði að leiðangurs-
menn væru aðeins búnir að vera
um sólarhring á miðunum og engin
mynd væri komin á hvar Ioðnan
héldi sig eða hvort um fleiri en eina
loðnugöngu væri að ræða. Hins
vegar sagði hann að venjan væri
sú að hrygningargangan fylgdi
nokkurn veginn landgrunnsbrúnn-
inni útaf norðaustur- og austurlandi
„Þá gerist eitt af tvennu. Annað
hvort heldur hún áfram að fylgja
mótum hlýs og kalds sjávar og kem-
ur inn á Lónsvíkin. Eða hún fer
dýpra, eða hluti af henni, og kemur
þá kannski inn eitthvað vestar, útaf
Homafirði, jafnvel ekki fyrr en
vestur undir Ingólfshöfða," sagði
Hjálmar. Hann sagði að ætlunin
væri að bíða þess í Berufirði að
veðrið gengi niður og hefja mæling-
ar á hrygningargöngunni strax og
veður leyfði.
53 nemendur braut-
skráðír á haustönn
Akranesi.
53 NEMENDUR hafa verið brautskráðir á haustönn frá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þar af voru 34 stúdentar
af ýmsum brautum, 8 iðnnemar, 4 sjúkraliðar, 5 luku almennu
stúdentsprófi, 2 nemendur luku prófi af tveggja ára uppeldis-
braut. 17 úr hópi stúdenta luku stúdentsprófinu á sjö önnum.
Ýmsar viðurkenningar fyrir
námsárangur voru veittar fyrir
ágætan námsárangur. Bestum
árangri stúdenta náði Elísabet
Böðvarsdóttir á hagfræðibraut.
Bergþór Helgason nemi í húsa-
smíði og Þröstur Þór Ólafsson
nemi í vélsmíði hlutu viðurkenn-
ingu Landssambands iðnaðar-
manna fyrir góðan námsárangur.
Steinar Berg Sævarsson fékk við-
urkenningu fyrir góðan árangur
í rafvirkjun, Linda Björk Pálsdótt-
ir, Elísabet Böðvarsdóttir og Birna
Þorbergsdóttir fyrir viðskipta-
greinar og Lilja Brynja Skúladótt-
ir fyrir erlend mál. Þá fékk Val-
garður Jónsson viðurkenningu
Rotaryklúbbs Akraness fyrir gott
starf að félagsmálum nemenda í
skólanum.
Er skólameistari hafði afhent
burtfararskírteini flutti Valgarður
Jónsson nýstúdent þakkarávarp
fyrir hönd brautskráðra nemenda.
Skólameistari flutti brautskráðum
nemendum heilræði og heillaóskir.
Að athöfn lokinni var gestum
boðið til veislukaffis í skólanum.
Um 400 manns voru viðstaddir
brautskráningu að þessu sinni.
í annál um starf skólans kom
fram í máli skólameistara að í
september sl. voru 15 ár liðin frá
því skólinn var settur í fyrsta sinn
og þá hófu um 180 nemendur þar
nám. Var þessara tímamóta
minnst á fjölbreyttan hátt.
Um 740 nemendur voru skráðir
til náms við upphaf haustannar á
þrem stöðum á Vesturlandi í dag-
skóla og öldungadeild. Kennt var
á Akranesi, Hellissandi og Stykk-
ishólmi. Nokkrum tugum um-
sókna varð að hafna og við upp-
haf annarinnar hófu 634 nemend-
ur nám í dagskóla á Akranesi, en
um 60 nemendur voru á hinum
tveim stöðunum.
Það sem einkenndi stöðu skól-
ans í upphafi skólaárs var einkum
tvennt. í fyrsta lagi var mjög
þrengt að starfsemi skólans vegna
skertra fjárveitinga og hafa fjár-
veitingar á hvern nemanda lækk-
að um liðlega 14%. Hefur orðið
að fækka kennslustundum af
þeim sökum. I annan stað urðu
miklar breytingar þegar hin nýja
þjónustubygging var tekin í notk-
un 24. janúar sl. Við það batnaði
öll aðstaða til skólastarfsins til
muna þó enn vanti talsvert á að
fullbyggt sé yfir starfsemi skól-
ans.
Fjölbrautaskóli Vesturlands er
enn í mótun og uppbyggingu og
unnið að nýrri þjónustu fyrir íbúa
svæðisins. Starfsemi farskóla
Vesturlands er dæmi um nýja
þjónustu í vexti, en námskeiðum
af ýmsum toga á hans vegum fer
fjölgandi og ná til fleiri og fleiri
íbúa Vesturlands.
Útskriftarnemar ásamt skólameistara Þóri Ólafssyni.
Fjölbrautaskóli Vesturlands
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Barnavernd til fé-
lagsmálaráðuneytis
MEÐ gildistöku nýrra laga um vernd barna og ungmenna 1. janúar
sl. færðist yfirumsjón barnaverndarmála úr menntamálaráðuneyti í
félagsmálaráðuneyti. Þórhildur Líndal, lögfræðingur í félagsmála-
ráðuneytinu, segir að jafnframt hafi orðið sú breyting að fagleg
ráðgjöf og leiðbeiningar til barnaverndarnefnda og eftirlit með þeim
sé nú í höndum ráðuneytisins. Barnaverndarráð fer áfram með fulln-
aðarúrskurðarvald í barnaverndarmálum. Áður fór ráðið líka með
ráðgjöf og eftirlit með barnaverndarnefndum.
Greint er frá hlutverki ráðuneyt-
isins í nýju lögunum. Þar segir
meðal annars að ræki barnavemd-
amefnd ekki störf þau sem henni
séu falin í lögunum skuli ráðuneyt-
ið krefja hana um skýrslu og halda
henni til að rækja skyldu sína. „Ef
ráðuneytinu þykir ástæða til getur
það lagt fyrir barnaverndarnefnd
að gera sérstakar ráðstafanir í
máli hvort sem hún hefur fjallað
um það áður eða ekki. Nú verður
ráðuneytið þess áskynja að bama-
verndamefnd hefur kveðið upp úr-
skurð sem er andstæður lögum og
getur ráðuneytið þá skotið málinu
til endanlegs úrskurðar -bama-
vemdarráðs“, segir m.a. í lögunum.
Ennfremur segir að ráðuneytið
eigi að hlutast til um að komið verði
á fót stofnunum, s.s. vistheimili og
meðferðarheimili fyrir börn, og það
skuli hafa eftirlit og umsjón með
stofnunum þar sem böm séu vistuð
á vegum barnaverndarnefnda.
Ráðuneytinu er gert að annast
fræðslustarfsemi fyrir þá sem
starfa að barnaverndarmálum, m.a.
með útgáfustarfsemi og námskeið-
um.
Hugmyndir um afsláttarkort í stað fríkorta
Skýlaust brot á yfirlýs-
ingu ríkissljómarinnar
- segir Gylfí Ambjömsson, hagfræðingur ASÍ
UM ÁRAMÓT voru felld úr gildi öll fríkort á læknisþjónustu og áform-
að er að afsláttarkort í einhveiju formi komi í þeirra stað, að sögn
Jóns Sæmundar Sigurjónssonar, deildarstjóra í heilbrigðisráðuneytinu
og formanns Tryggingaráðs. Þó hafi enn ekki verið auglýstar neinar
breytingar á fyrirkomulagi endurgreiðslna lækniskostnaðar barna
undir sex ára aldri af hálfu ráðuneytisins, og því hljóti þau áfram að
fá ókeypis Iæknisþjónustu. Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur Alþýðu-
sambands íslands, segir alla hækkun á læknisþjónustu skýlaust brot
á yfirlýsingum og loforðum ríkissljórnarinnar frá því í fyrra, um
hámarksgreiðslur vegna læknisþjónustu.
Landsbankinn
Sparnað-
aráætlun í
lokjanúar
Bankastjóri Landsbankans
segir að bankinn muni í lok jan-
úar leggja fyrir ríkisstjórn áætl-
un um sparnað í rekstri bankans.
„Það liggur fyrir að Landsbank-
inn mun fyrir lok þessa mánaðar
leggja áætlanir sínar um hagræð-
ingu og sparnað í rekstri fyrir ríkis-
sjóð. Við höfum verið með þessar
áætlanir í framkvæmd en munum
núna yfirfara og endurskoða þær
að breyttu breytanda," sagði Sverr-
ir Hermannsson bankastjóri.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði við Morgunblaðið á
fimmtudag, að ef stjórnendur
Landsbankans legðu fram fullnægj-
andi áætlun um hagræðingu og
sparnað í rekstri bankans muni rík-
issjóður tryggja stöðu hans.
Jón Sæmundur sagði að öll fríkort
á læknisþjónustu hefðu verið felld
úr gildi um áramótin. Hugmyndir
hefðu verið uppi um einhvers konar
afsláttarkerfí sem tæki við af fríkort-
unum, en hann hefði ekki séð nein
drög um hvers eðlis það yrði.
Jón Sæmundur sagði að enn væri
tími til að komast að niðurstöðu um
endanlegt kerfi, og hugsa mætti sér
annað kerfi sem ekki færi freklega
á svig við gerða samninga. Ráðgert
hefði verið að Ijúka gerð frumvarps
þess efnis fyrir vikulokin, en óvíst
sé að það takist,
' Samkvæmt upplýsingum Morg-
Unblaðsins er óljóst hvort hreyft
verður við hámarksupphæð læknis-
greiðslna frá því sem nú er í vænt-
anlegu frumvarpi, en talið líkiegt
að til komi hlutfallsgreiðsla eða föst
greiðsla fyrir hveija komu til læknis
þegar upphæðinni er náð. Ekki er
gert ráð fyrir að aðgerðirnar skili
stórvægilegum tekjum, en talið er
að möguleikar séu á að kerfið hafi
verið misnotað í fyrri mynd.
Gylfi Arnbjörnsson sagði að öll
hækkun á hámarksgreiðslu fyrir
lækniskostnaði væri afdráttarlaust
brot á 9. grein yfirlýsingar ríkis-
stjórnarinnar, sem gerð var við
kjarasamninga í fyrravor.
Þar hafi verið kveðið á um að eigi
yrði greitt meira en 6000 krónur á
ári vegna lækniskostnaðar barna í
sömu fjölskyldu, og ekki verði greitt
í farangursrými bílsins fundust
svokallaðar tívolíbombur, en notkun
þeirra er bönnuð. Mennirnir gátu í
fyrstu litlar skýringar gefið á
gambranum en vísuðu síðan á hús
við Rauðavatn þar sem um 250 lítr-
ar af gambra fundust. Tvímenning-
arnir höfðu verið á leið með 50 lítr-
fyrir börn yngri en 6 ára við komu
á heilsugæslustöð eða til heimilis-
læknis. Auk þess hafi þar verið kveð-
ið á um að þeir sem nytu umönnunn-
arbóta skyldu greiða það sama fyrir
læknisþjónustu og öryrkjar, eða
þriðjung venjulegra gjalda.
ana í hús á Njálsgötu þar sem þeir
ætluðu að eima gambrann. Þar voru
gerð upptæk eimingartæki, sjö lítr-
ar af landa og áhöld til fíkniefna-
neyslu.
Talið er að mennirnir hafi ekki
náð að selja landa, enda bruggstarf-
semin nýlega hafin.
Stöðvuðu bifreið og
fundu brugg í henni
LOGREGLAN lagði hald á 300 lítra af gambra og sjö lítra af landa
í fyrrinótt. Hluti gambrans fannst í bíl tveggja manna sem stöðvað-
ur var við Njálsgötu, en lögreglan hafði veitt bílnum eftirför vegna
varhugaverðs ökulags bílsljórans.