Morgunblaðið - 08.01.1993, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 08.01.1993, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1993 Ágúst Lárusson frá Kötluholti Fæddur 27. ágúst 1902 Dáinn 2. janúar 1992 Þeim fækkar mínum gömlu og góðu vinum sem aldrei brugðust og alltaf var hægt að treysta í blíðu sem stríðu. Nú hefír einn þeirra, Ágúst Lárusson, kvatt eftir mikið og far- sælt starf. Hann var dugnaðarforkur að hveiju sem hann gekk og var ekki alltaf að líta á klukkuna. Það var honum aðalatriði að geta unnið húsbændum sínum vel og að hvert það starf sem hann gekk að þyldi alla gagnrýni. Það er erfitt að gera starfsvangi hans skil í fáum orðum. Hann var jafnvígur á penna og pál. Hann var ekki gamall þegar hann fór gangandi með skrínuna á baki til sjóróðra í Grindavík. Þar komst hann í skiprúm sem honum var bæði skóli og ábati. Var svo heppinn að komast í skipsrúm til hins merka sjósóknara Árna frá Teigi. Þau ár sem hann var þar entust í minning- unni alla ævi. Ámi er látinn fyrir skömmu. Ég man glampann í augum hans er ég skilaði kveðju frá Gústa. „Já, hann Gústi, hann Gústi. Hann átti ekki sinn líka“, og svo komu fram minningamar. „Blessaður veri hann Gústi." Það var ekki einungis að Ágúst stæði sig vel í erfíði dags- ins. Hann mátti ekki vamm sitt vita, og eitt loforð hans þurfti ekki að skjalfesta. Þau stóðu, jafnvel þau sem erfitt var að glíma við. En það er önnur saga. Hvemig Agúst tók bæði sigrum og ósigmm, gleði og sorg, var alveg sérstakt og væri góð hugvekja fyrir eftirkomendur. Hann varð fyrir mörgum áföllum og sorgin gleymdi karlmannslund og yfírvegaðri ró. Og hvert áfall dró hann nær Drottni, það get ég með gleði vitnað. Og traust hans og tilbéiðsla til Jesú Krists brást ekki. Drottinn leggur ekki meira á mann en maður getur borið. Þá kom þrekið fram. Hann var fæddur í Stykkishólmi, móðir hans var þar vinnukona. Óx upp hjá afa sínum Lárusi Þorgeirssyni í Hrísum hér fyrir ofan bæinn. Og kenndi sig við hann. Fimmtán ára réðist hann í vinnumennsku og skömmu síðar til sjós. Hann kvæntist traustri konu, Ástrósu Halldórsdóttur frá Kot- hrauni, og eignuðust þau fjögur börn. Guðrúnu dóttur sína missti hann snemma frá fjórum ungum börnum og eins á efri árum Hjálmtý son sinn af hræðilegu slysi í Ólafsvík, frá mörgum börnum og konuna fýrir nokkrum árum, mikið áfall. Þau höfðu búið saman bæði að Búlands- höfða og Kötluholti í Fróðárhreppi, en voru þá flutt inn í Hólm. Þá var Ágúst svo lánsamur að til hans réðst indæl kona, Ingibjörg Bjamadóttir, sem varð honum bæði gleðigjafi og stoð og stytta, en því miður stóð þessi sæla ekki lengi, þvl hún lést eftir skamma samveru þeirra. Og í þeirri sorg dáðist ég að styrk hans. Ágúst var hraustmenni og dugn- aðarforkur að öllu sem hann gekk. Seinnihluta ævinnar gekk hann ekki heill til skógar en söm var lundin og áhuginn. Hann fór í aðgerð. Missti fótinn, en það lét hann ekki aftra sér að heimsækja vini og kunningja, göngugrindin og hjólastólinn komu sér vel. Hann fékkst við fræðistörf og er mikið af óprentuðu efni sem hann skildi eftir og örðu kom hann í góða vörslu. Hann var fræðasjór og ótrúlega minnugur og fróður um ættir og atburði. Flest af þessu skráði hann. Sjómannasögur létu honum vel og viðburði hans sjósóknar skráði hann. Hann sannaði mér að til góðs vinar liggja gagnvegir og því kom ég til hans og varði mörgum stundum mér til fróðleiks og uppörvunar. Þar náðum við vel saman. Kynni okkar hófust fijótt eftir að ég kom í sýsl- una 1942. Þá var hann í ýmsum málum fyrir sveit sína og sýslu. Hann var hreppsnefndarmaður bæði í Eyrarsveit og Fróðárhreppi, sýslu- nefndarmaður og fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum gegndi hann. Hann rannsakaði og kynnti sér málin og því þurfti ekki að fara yfír það sem hann kom með til mín á sýsluskrif- stofuna. Mér er mikill söknuður að mínum góða vini og geta nú ekki gengið í forðabúrið sem ég aus svo miklu úr. Ég finn nú strax að mikils er að sakna. Það er tómlegra í hugarranni mínum eftir burtför góðs vinar. En í bili. Ágúst átti svo sterka og ein- læga trú á Drottin sinn og frelsara. Það brást honum ekki. Hann las mikið trúarleg rit og Biblíuna skildi hann aldrei við sig. Þessi bamslega trú var stoð hans í lífinu. Hann efað- ist aldrei um aðra tilveru þar sem ástvinir mætast og þótt hann hafði lifað langa og viðburðaríka ævi og margt hafí brugðist, tók heimurinn aldrei þessa trú frá honum. Þar var aðalsmerkið. Heimurinn kvaddur í sátt við Guð og menn eins og hann orðaði það. Ég er honum þakklátur fyrir samfylgdina, tel mig auðugri eftir að hafa fylgt honum langa ævi. Það sem hann gaf minu lífi fær hvorki mölur eða ryð grandað. Sólar- stundir lífs míns i dag, föstudag, verður minningarathöfn í Stykkis- hólmskirkju en á morgun fer fram útför frá Brimilsvallarkirkju, þar verður leg hans við hlið hans ágætu eiginkonu. Við Ingibjörg minnumst góðs vinar með þökk fyrir sérstaka samfylgd. Guð blessi hann og hans nánustu. Fari kær vinur í friði. Árni Helgason. En hvað þessi heimur er undarleg- ur verustaður. Hér getur allt virst svo hverfult. Þannig getur heimur mannsins orðið svo tómur en veran full af trega. Það fínnur maður svo glöggt þeg- ar genginn er einhver, sem stendur manni næst. Þær tilfinningar koma mér í bijóst, nú, þegar farinn er sá, sem áður var mér athvarf og skjól. Sá sem á bú- stað í hjarta mínu, er ekki lengur á meðal okkar, ekki lengur til að veita fyllingu í tómi timans. Hann afí minn sem var mér svo kær er dáinn. Ég geri ráð fyrir að allir hans nánustu verði varir við það skarð þar sem hann áður var. Svona vinnur tíminn í hverfulum heimi. Hinir dauðlegu menn fara ekki varhluta af þvi og verða þess stundum varir. Eitt sinn skal hver deyja og þeir sem eru orðn- ir lúnir á löngum og erfíðum reynslu- gangi lífsleiðarinnar, á þá sækir þreyta og þeir þrá hvíldina. Vissulega átti afi minn blessaður lífsgleði og mikinn viljastyrk og á erfiðum stund- um barðist hann eins og hetja. Mér fannst hann sérstakur persónuleiki þar sem bæði gætti djúpra tilfínninga og mikillar festu. Nú hefír afí minn fengið hvíldina. Þökk fyrir allar ógleymanlegu stundir, umhyggju og önn, allt sem hann veitti mér af ástúð og tryggð af gæsku sinni. Hvíli hann nú í Drott- ins náð og friði. Guð blessi afa. Ágúst Gunnarsson. Löng þá sjúkdómsleiðin verður, lífið hvergi vægir þér, þrautir magnast, þijóta kraftar, þungt og sárt hvert sporið er, honum treystu, hjálpin kemur, hann af raunum sigur ber. Drottinn elskar, - Drottinn vakir. daga og nætur yfir þér. (S.Kr. Pétursson) Mér fínnst þessi orð eiga vel við þegar ég minnist Ágústar Lárusson- ar eða Ágústar afa eins og hann var alltaf kallaður á mínu heimili. Hvíldin var honum kærkomin eftir erfíða sjúkdómsbaráttu síðasta árið. Á milli komu góðir dagar og sat hann þá ekki auðum höndum, heldur skrifaði ýmsan fróðleik á blað eða miðlaði til annarra. Það er ekki ætlun mín að rekja ævi hans hér, heldur aðeins að minn- ast hans þau ár sem við þekktumst. Fyrir tólf árum kom ég fyrst inn á heimili hans á Skúlagötu 1 í Stykk- ishólmi með dóttursyni hans. Hann var mér ekki alveg ókunnugur, var búinn að búa í Stykkishólmi í nokkur ár og bjó í næsta húsi við ömmu sína og afa. Þá var hann búinn að missa eiginkonu sína Ástrósu Halldórsdótt- ur fyrir nokkrum árum. Ágúst var nokkuð hress en farinn að tapa heym. í júlí 1982 varð hann fyrir þvi að taka varð annan fótinn fyrir ofan hné vegna meinsemdar. En heim í Stykkishólm ætlaði hann sér aftur og það tókst honum í októ- ber sama ár. Hann varð fyrir þeirri gæfu að fá heim til sín einstaka hjálp þegar Ingi- björg Bjamadóttir flutti til hans og annaðist hann af mikilli alúð, þar til hún lést svo sviplega árið 1987. Það varð honum mikið áfall. Kom að því að hann gat ekki ver- ið lengur einn og flutti hann á Dval- arheimilið í Stykkishólmi vorið 1989. Þar undi hann sér við skriftir, föndur og lestur. Fróðari mann og minnugri held ég að erfítt sé að fínna. Nokkrum dögum áður en hann lést var hann fluttur á Sjúkrahúsið í Stykkishólmi. Var hann þá búinn að eiga við vanheilsu að stríða síð- ustu vikumar. Fyrir hönd aðstandenda vil ég þakka starfsfólki Dvalarheimilisins og Sjúkrahússins fyrir ágæta umönnun og velvild í hans garð. Einnig vil ég þakka góðum nágrönn- um fyrir alla hjálp og vináttu í gegn- um árin. Það fáum við seint fullþakk- að. Ég kveð Ágúst með innilegu þakk- læti fyrir allt sem hann var okkur Herði og dætmm okkar. Við geymum minninguna um allar stundimar með honum. Sigurborg Leifsdóttir. RADAUGÍ YSINGAR Óska eftir 4-5 herb. íbúð, raðhúsi eða einbýlishúsi. Leigutími 1-3 ár eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 44769 eða 43003. Stangaveiðimenn Nýtt flugukastnámskeið hefst nk. sunnudag kl. 10.20 árdegis í Laugar- dalshöllinni. Nýtið ykkur þessa ágætu kennslu. Við leggjum til stangirnar. Kennt verður 10., 24. og 31. janúar, 7. og 21. febrúar. K.K.R. og kastnefndirnar. Miðskólinn er grunnskóli fyrir börn á aldr- inum 9-12 ára. Miðskólinn er einsetinn, sam- felldur heilsdagsskóli, þar sem börn fá heita máltíð í hádeginu og Ijúka við allt heimanám undir leiðsögn kennara áður en skóladegi lýkur. í skólanum er einnig aðstaða fyrir nem- endur til að æfa sig á hljóðfæri. Miðskólinn er einkaskóli. Skólagjöld eru kr. 15.000 á mánuði. Hádegismatur kostar kr. 350 á dag. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans, Fríkirkjuvegi 1 (í gamla Miðbæjar- skólanum) eða í síma 62 92 22 milli kl. 10-12. Greta Kaldalóns, skólastjóri. Kennsla hefst 11. janúar. Eftirtalin námskeið eru í boði: Hugtakatengsl (5-7 ára), Tengsl manns og náttúru (8-9 ára), Mál og hugsun (9-10 ára), Ráðgátur og rökleikni (11-13 ára), Siðfræði (13-14 ára), Ráðgátur og rökleikni (16 ára og eldri). Upplýsingar og innritun í símum 628083 og 628283. Geymið auglýsinguna. /. . '•s. , „ s '■v s__ ^ FERÐAFÉLAG ® ÍSLANDS MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533 Sunnudagsferðir 10. janúar kl. 11 1. Saurbær - Músarnes, strandganga. Tilvalin fjölskyldu- ganga. 2. Skíðaganga á Hellisheiðl. Heimkoma kl. 15.30-16. Brott- för frá BSf, austanmegin (stans- að við Mörkina). Þorrablót og vættaferð að Leirubakka I Landsveit 6;-7. febrúar. Vetrarfagnaður að Flúðum 20.-21. mars. Byrjið nýja árið með Ferðafélaginu. Ferðafólag Islands, félag allra landsmanna. Frá Sálarrannsóknafélagi íslands Opið hús er fyrir félagsmenn á morgun, 9. janúar, frá kl. 14.00- 16.00 í Garðastræti 8. Flutt verður erindi, kynnt heilun og teiknuð ára meðan á heilun stendur. Kaffi á könnunni. Stjórnin. Toyota skíðagöngu- mótið 1993 fer fram á Miklatúni nk. laugar- dag, 9. janúar, kl. 14.00. Þátt- tökutilkynning á mótstað kl. 13.00. Gengnir verða 2 km I sex flokkum og allir ræstir í einu. Mótstjórn skipa Lilja, Pálmi og Einar. Ef veður verður óhag- stætt kemur tilkynning í Ríkisút- varpinu kl. 10.00 f.h. keppnis- daginn. Allar upplýsingar í síma 12371. Stjórn Skíðafélags Reykjavíkur. UTIVIST Hallvoigarstig 1 • simi 614330 Föstudaginn 8. janúar kl. 20.00: Tunglskinsganga. Gengið verður frá Maríuhelli inneftir Vífilstaða- hlíð og til baka um skógarstíga. Kveikt veröur bál að venju. Brott- för frá BSf bensínsölu. Verð kr. 500,-, frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Sunnudaginn 10. janúar. Kl. 10.30: Nýárs- og kirkjuferð í Skálholt og 1. áfangi skólagöngu. Kl. 10.30: Stóri-Bolli, gamall gíg- ur í Grindaskörðum. Útivist. Frá Guðspeki- fólaginu IngóHsatrætl 22. Aakrlftarafmi G«nnl*ra mr 39673. kvöld kl. 21 heldur Kristján Fr. Guðmundsson erindi, „Laun- helgar að fornu og nýju", í húsi fólagsins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag er opið hús frá kl. 15.00-17.00 með fræðslu og umræðu í umsjá Birgis Bjarna- sonar. Á sunnudag kl. 17.00- 18.00 er kyrrðarstund með tón- list. Allir eru velkomnir og að- gangur ókeypis. I.O.O.F. 12 = 174188V2 = I.O.O.F. 1 = 174188V2 = Á. St.St. 5993010916 I Rh. kl. 16.00. Einbýlis- eða raðhús óskast á leigu i Garðabæ Upplýsingar í síma 656167.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.