Morgunblaðið - 13.01.1993, Side 1
56 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
9. tbl. 81.árg.
MIÐVIKUDAGUR 13. JANUAR 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sænsku fjárlögin
Stéttarfé-
lög hóta
verkfalli
Stokkhólmi. Rcuter.
LEIÐTOGAR sænskra stéttarfé-
laga sögðu í gær að hugsanlega
yrði boðað til allsheijarverkfalls
síðar í mánuðinum til að mót-
mæla fjárlagafrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar, sem lagt var fram
á mánudag í þinginu. Yrði það
fyrsta allsheijarverkfallið i Sví-
þjóð eftir stríð.
Leif Blomberg, leiðtogi sam-
bands málmiðnaðarmanna, sagði
stéttarfélög hafa óskað eftir fundi
með ríkisstjórninni. „Ef ekki verður
hlustað á okkur eigum við ekki
annars úrkosti en að boða til alls-
heijarverkfalls,“ sagði Blomberg.
„Stjórnin valdi stríð“
Stig Malm, forseti sænska al-
þýðusambandsins, sagði í gær að
verkamenn væru æfir vegna áforma
stjórnarinnar um að skera niður
atvinnuleysisbætur. „Það er mark-
mið ríkisstjórnarinnar að bijóta nið-
ur velferðarríkið. Þeir hafa kosið
stríð við verkalýðshreyfinguna,"
sagði Malm. Hann bætti við að
hann væri andvígur pólitískum
verkföllum sem slíkum en þrýsting-
urinn gæti orðið svo mikill að til
slíkra verkfalla yrði samt sem áður
að grípa.
Sjá „Hætta á allsheijarverk-
falli...“ á bls. 20.
Reuter
*
Irakar mótmæla SÞ
Efnt hefur verið til mótmæla í Bagdad vegna
ýmissa refsiaðgerða Sameinuðu þjóðanna gegn
stjóm Saddams Husseins forseta, einkum banni
við flugi íraskra herflugvéla yfir nyrstu og syðstu
héruðum landsins. í gærmorgun ruddist hópur
íraka enn yfir landamærin til Kúveits og klófestu
ýmsan búnað í Umm Qasr-flotastöðinni sem SÞ
afhentu Kúveitum að hluta eftir Persaflóastríðið.
John Shalikashvili, yfirmaður herafla Atlantshafs-
bandalagsins í Evrópu, sagði að íraski herinn
hefði undanfarna daga komið eldflaugum fyrir í
skotstöðu í norðurhluta landsins og væri þetta
nýtt dæmi um ögranir Saddams. Bandaríkjamenn
og Bretar segja að ekki sé þörf á fleiri viðvörun-
um ef ákveðið verði að ráðast gegn Irak á ný.
Viðræðunum í Genf um frið í Bosníu bjargað á síðustu stundu
Leiðtogi Bosníu-Serba
knúinn til að gefa eftir
Framkvæmda-
stjórn EB
EFTA-rík-
in greiði
ekki fram-
lag Sviss
Brussel. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJ ÓRN Evr-
ópubandalagsins (EB) mótaði í
gær stefnu bandalagsins varð-
andi samninginn við Fríversl-
unarbandalag Evrópu (EFTA)
um Evrópska efnahagssvæðið
(EES) þar sem tekið er tillit til
úrslita þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar í Sviss í desember en þar
var aðild Svisslendinga að EES
hafnað. I tillögum EB er gert
ráð fyrir því að breytingar verði
gerðar á samþykktum um sér-
stakan þróunarsjóð sem felast í
því að EFTA-ríkin þurfi ekki að
taka á sig skuldbindingar Sviss-
lendinga. Ætlunin var að þeir
greiddu 28% af framlagi EFTA-
ríkjanna í sjóðinn.
EES verði að veruleika 1. júlí
Utanríkisráðherrar EB þurfa að
leggja blessun sína yfir samnings-
umboðið sem framkvæmdastjórnin
samþykkti á fundi sínum í gær. A
grundvelli skjalsins verður reynt
að koma EES í höfn. Verða Sviss-
lendingar skildir eftir og ekki hafð-
ir með í frekari viðræðum.
Embættismenn hjá EB sögðu í
gær að vonast væri til þess að sam-
eiginleg ráðstefna EB og EFTA
um að ljúka EES-málinu gæti farið
fram í febrúar. Gengi allt að óskum
yrði Evrópska efnahagssvæðið að
veruleika 1. júlí, hálfu ári á eftir
upphaflegri áætlun.
Samkvæmt tillögum EB gengur
ráðstefnan frá viðbótarbókun við
upphaflegan samning um EES þar
sem tekið verður tillit til útgöngu
Svisslendinga. Að svo búnu verða
EB, EFTA-ríkin að Sviss undan-
skildu og Evrópuþingið að stað-
festa samkomulagið.
Gcnf. The Daily Telcgraph.
SAMNINGAMÖNNUM í friðarviðræðunum í Bosníu tókst að koma
í veg fyrir að þær rynnu út í sandinn í gær þegar Radovan Karadzic,
leiðtogi Serba í Bosníu, samþykkti á síðustu stundu að falla frá
kröfu sinni um að Serbar fengju að stofna eigið ríki innan lands-
ins. Nokkrum klukkustundum áður höfðu milligöngumenn Samein-
uðu þjóðanna og Evrópubandalagsins, Cyrus Vance og Owen lá-
varður, lýst því yfir að friðarumleitanir þeirra hefðu farið út um
þúfur þar sem Karadzic hefði neitað að fallast á friðaráætlun
þeirra. Fulltrúar Bosníu-Serba dreifðu síðan tilkynningu þar sem
því var lýst yfir að Karadzic féllist á friðaráætlunina, með fyrir-
vara um að þing Serba í Bosníu samþykkti hana innan viku.
í yfirlýsingu Bosníu-Serbanna
sagði að Karadzic hefði fallist á
friðaráætlunina „að þrábeiðni“ for-
seta Serbíu, Júgóslavíu og Svart-
fjallalands. „Við höfum nú náð
mikilvægum áfanga í átt til frið-
ar,“ sagði Slobodan Milosevic, for-
seti Serbíu, eftir að sinnaskipti
Karadzics voru kunngerð. „Sú
staðreynd að allar sendinefndirnar
hafa samþykkt höfuðatriðin er
mikill sigur.“
Stjórnarerindrekar í Genf voru
óánægðir með að Karadzic skyldi
hafa fengið viku frest til að undir-
rita friðarsamkomulagið en sögð-
ust þó vongóðir um að hann myndi
gera það í næstu viku. Karadzic
kvaðst í gærkvöldi ætla að bjóðast
til að segja af sér ef þingið hafn-
aði samkomulaginu.
Talið er að að Milosevic hafi
knúið Karadzic til að skipta um
skoðun með því að hóta að hætta
stuðningi við hann ef Sameinuðu
þjóðimar beittu hervaldi í Bosníu.
„Ef þú vilt stríð við umheiminn
verður þú einn þíns liðs og færð
ekki vopn frá Serbíu," á hann að
hafa sagt við Karadzic.
Radovan Karadzic féllst á frið-
aráætlunina eftir smávægilegar
breytingar á textanum; tvær setn-
ingar voru sameinaðar og orðaröð
breytt lítils háttar. Þetta nægði þó
til að Karadzic gæti sagt þingi
Serba að hann hefði knúið fram
málamiðlun.
Stjómarerindrekar í Genf sögðu
að frekari viðræður milli Serba,
Króata og múslima gætu hafist
um leið og þing Bosníu-Serba legði
blessun sína yfir friðaráætlunina.
Eftir væri að semja um vopnahlé
í Bosníu og skiptingu landsins í tíu
sjálfstjórnarhéruð. I áætlun Vance
og Owens lávarðar er gert ráð
fýrir að Serbar haldi yfírráðum
yfír um 45% af Bosníu, en þeir
hafa nú 70% landsins á valdi sínu.
Fulltrúar Bosniustjórnar í friðar-
viðræðunum vom óánægðir með
hugmyndir milligöngumannanna
um skiptinguna og sögðu að verið
væri að umbuna Serbum fyrir árás-
ir þeirra á múslima. Fómarlömb
„þjóðernishreinsana" Serba gætu
ekki snúið aftur til heimkynna
sinna ef Serbar fengju 45% land-
svæðanna.
JReuter
Sigur fyrir Honecker
Erich Honecker vann sigur í gær
er sakadómur í Berlín ákvað að
hætta réttarhöldum yfir honum.
Réttarhöldum
hætt í máli
Honeckers
Berlín. Reuter.
SAKADÓMUR í Berlín ákvað í
gær að hætta réttarhöldum í
máli Erichs Honeckers, fyrr-
verandi leiðtoga Austur-Þýska-
lands, vegna slæmrar heilsu
hans.
Fyrr um daginn hafði stjórn-
lagadómstóll Berlínar komist að
þeirri niðurstöðu að Erich
Honecker væri of veikur til að
mæta fyrir rétti en hann þjáist
af krabbameini í lifur. Taldi dóm-
stóllinn það vera brot á mannrétt-
indum kommúnistaleiðtogans
fyrrverandi að halda honum
fóngnum áfram. Dómararnirneit-
uðu hins vegar að leysa Honecker
úr haldi þar sem það væri ekki á
valdsviði þeirra.