Morgunblaðið - 13.01.1993, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
Bergur Ambjam
arson — Minning
Fæddur 17. ágúst 1901.
Dáinn 5. janúar 1993.
I dag verður til moldar borinn
föðurbróðir minn, Bergur Ambjam-
arson. Mér verður hugsað til fyrstu
kynna minna af honum. Ég, þá sjö
ára gutti, að fara í sveit í fyrsta
sinn norður í land ásamt bróður
mínum, Þorsteini. Pabbi fór með
okkur upp á Skaga með Akraborg-
inni. Þar tók Bergur á móti okkur,
stór og myndarlegur maður í uni-
formi á flottum bíl (drossíu). Það
var ekki lítil upphefð í þá daga að
setjast upp í síkan bíl. Má segja
að sú virðing sem ég fékk fyrir
honum frænda mínum þama hafi
haldist óbreytt alla tíð. Én af þess-
ari fyrstu ferð man ég í dag fátt
fleirá nema komuna til Akraness.
Þar tók Sara á móti okkur bræðmm
með sínu rólega og indæla yfir-
bragði. Kærleikurinn virtist ljóma
milli þeirra hjóna alveg frá því ég
sá þau fyrst og þar til ég heimsótti
þau síðast á DAS í hjónaíbúðina
þeirra. Sara var þá orðin sjúklingur
og annaðist Bergur hana af ein-
stakri ástúð og umhyggju.
Þau hjón hafa alltaf verið mér
ofarlega í huga og þegar ég fékk
að ráða nafni á fmmburði okkar
hjóna var dóttir mín látin heita
Sara.
Það var ávallt gaman að heim-
sækja hann frænda. Engin logn-
molla ríkti í kringum hann því allt-
af var eitthvað að gerast eða í bí-
gerð. Ég man sem dæmi atvik eftir
að hann var kominn á DAS og átti
6 „cylindra" bfl. Hann sagðist þurfa
að skipta á honum og öðmm spræk-
ari. Bfllinn yrði að vera 8 „cylindra"
því hann sjálfur væri orðinn svo
svifaseinn í umferðinni að bíllinn
yrði að bæta það upp. Eftir að Sara
dó kom tómarúm í líf Bergs og flutti
hann aftur upp á Akranes í þjón-
ustuíbúð aldraðra. Þar þekkti hann
fleiri og var innan um gamla fé-
laga. í því umhverfí hitti ég hann
síðast, hressan að vanda.
Vegna sjómennsku minnar hefur
minni tími verið til heimsókna og
landlegur oftast of stuttar til að
áorka að rækta öll þau tengsl við
vini og vandamenn sem gjaman
þyrfti. Svo þegar frændur falla frá
minnist maður þess með eftirsjá að
hafa nú ekki varið meira tíma til
að heimsækja fólk. Allt í einu er
það orðið of seint og úr íjarlægð
kveð ég frænda minn í dag. Hann
er síðasti ættliður aldamótakynslóð-
arinnar sem hverfur af sjónarsvið-
inu. Ég kveð hann með söknuði en
jafhframt með þakklæti í huga fyr-
ir allt það sem hann var hér í lífí.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Arnbjörn Gunnarsson,
Grindavík.
í dag kveðjum við höfðingja og
syrgjum hann með lotningu og
þakklæti fyrir góð kynni.
Bergur átti fáa sína líka, hugur-
inn mikill og atorkan sem fylgdi
honum fram í háa elli var einstök.
En síðustu árin voru honum ekki
þau gleðiár sem árin þegar hann
var ungur — eða réttara sagt lítið
eitt yngri — og var á sífelldum
þeytingi, hvort sem var í starfi eða
leik.
Ég varð þess láns aðnjótandi að
eiga samleið með Bergi síðastliðin
28 ár, eða allt frá þeim tíma er ég
kynntist og gekk síðan að eiga son-
ardóttur hans. Og er ég hugsa til
þess þegar hann bauð mér í lax-
veiði í fyrstu „alvöru laxána“ sem
ég vætti færi í, en það var í Víði-
dalsá 1967, ég aðeins 23ja ára og
hann 66 ára, geri ég mér fyrst grein
fyrir hvflíkur hugur og kraftur var
í Bergi. Hann var á fótum kl. 6 að
morgni þrátt fyrir að setið hefði
verið uppi til klukkan tvö um nótt-
ina í góðra vina hópi. Og hvflíkur
hópur, veiðifélagar og sameignarfé-
lagar að Litlu-Borgar-Iandi í Víði-
dalnum til margra ára. Sagðar voru
laxveiðisögur, stjómmál rædd og
farið með gamanmál. Ég mun aldr-
ei gleyma þessari ferð og þeirri lífs-
reynslu sem ég öðlaðist. Eitt er þó
víst, að minnimáttarkennd mín var
mikil og verður mikil þegar ég ber
saman burði okkar Bergs.
Ég vona að margir hafí notið
eins vel og ég samneytisins við
þennan höfðingja. Og einu má bæta
við: Mikið væri þessi heimur nú
miklu betri ef við ættum marga
slíka menn — og að margir fengju
tækifæri til að kynnast og eiga
samleið með þeim.
Góði vinur. Ég veit að þú varst
hvfldinni feginn. Ég veit að hugur
þinn hefur mörg hin síðustu ár ver-
ið hjá Söru þinni, handan móðunnar
miklu. Vonandi hafa hugir ykkar
nú _mæst á ný.
Ég og afkomendur þínir úr
Eyktarásnum þökkum samfylgdina.
Megir þú hvfla í friði.
Haraldur Haraldsson.
Það eru svolítið blendnar tilfínn-
ingar sem ég upplifi nú þegar ég
kveð afa. Sársauki yfir að missa
hann og þakklæti fyrir að hann
fékk það sem hann þráði hvfldina.
Afí var mikill athafnamaður, það
gerðist svo margt í kringum hann.
I því sambandi urðu til margar
skondnar sögur sem hann sagði
brosandi að væru verulega ýktar.
Hann var mikill félagsmaður og oft
leiðtogi í þeim efnum. Enda maður
sem þorði að hafa skoðanir og fylgja
þeim eftir. Hann var tilfínninga-
maður og mátti ekkert aumt sjá
án þess að láta sig það varða. Hann
fylgdist alla tíð vel með hópnum
sínum og tók bæði þátt í gleði okk-
ar og sorgum.
Afi og amma áttu fallegt heimili
hér á Akranesi. Þar var alltaf gest-
kvæmt, enda þau bæði höfðingjar
heim að sækja. Vegna starfa sinna
sem bifreiðaeftirlitsmanns ferðaðist
afí mikið. En hann bjó alltaf svo
um hnútana að amma væri ekki
ein. Hún var mjög sjóndöpur í mörg
ár og hann sýndi hann henni alltaf
nærgætni og sérstaka virðingu. Þau
eignuðust fímm böm og eru fjögur
þeirra á h'fí. Amma lést fyrir rúmum
16 árum og var það afa mjög þung-
bært. Þau höfðu þá búið um tíma
í Reykjavík. Afí kom þá aftur til
Akraness og bjó á Dvalarheimilinu
Höfða.
Fyrir nokkrum vikum hrakaði afa
mjög mikið og fór hann þá á sjúkra-
húsið á Akranesi. Ég vil nota tæki-
færið og þakka öllum þeim sem
önnuðust hann, bæði á Höfða og
sjúkrahúsiriu. Ég vil þó sérstaklega
þakka Þorgerði, móður minni, allt
sem hún var honum.
Að leiðarlokum þakka ég elsku
afa mínum allt. Minningin lifir og
lýsir okkur sem eftir stöndum um
ókomin ár. Hvfli hann í friði.
Legg ég nú bæði líf og ðnd
ljúfi Jesús, í þína hðnd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(H.P.)
Ólöf Hannesdóttir.
Séifræðingar
i blóiiiaski’eytiiigiiin
við öll ta’kifæri
Skólavöi’ðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími19090
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð Megir
saliiogmjög
góð {ijónnsta.
llpplýsingar
ísíma22322
FLUGLEIDIR
HéTEL LOFTLEIIIR
t
Móðir mín, dóttir okkar, systir og mágkona,
INGER LAXDAL EINARSDÓTTIR,
lést í Landspítalanum sunnudaginn 10. janúar.
Einar Marteinsson,
Birgitte Laxdal, Einar Pálsson,
Þorsteinn Gunnar Einarsson,
Páll Einarsson, Steinunn Einarsdóttir.
t
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar og amma,
ÁSTA SVEINBJÖRNSDÓTTR,
Brekkugerði 22,
andaðist í Borgarspítalanum að kvöldi lO. janúar.
Guðmundur Gunnlaugsson,
Elinborg Stefánsdóttir,
Sonja Ingvadóttir,
Hraf nhildur Guðmundsdóttir,
Sigrún Guðmundsdóttir
og barnabörn.
t
Móðir mín,
MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 9. janúar.
JarðarförinferframfráÁskirkju mánudaginn 18.janúarkl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Jóhannesdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ANDRÉS GUÐMUNDUR JÓNSSON
rennismiður,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 14. janúar
kl. 13.30.
Svanhvrt Skúladóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
t
Útför ömmu minnar, tengdamóður og langömmu,
ELÍNAR PÁLSDÓTTUR,
Aflagranda 40,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. janúar kl. 15.00.
Elín Davíðsdóttir, Guðmundur Þór Guðmundsson,
Jón Jóhannesson
og barnabarnabörn.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
t
Kær vinkona, systir og frænka,
KRISTRÚN ÓLAFSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
er lést 8. janúar, verður jarðsungin frá Akraneskirkju fimmtudag-
inn 14. janúar kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Kristniboðssambandið,
sfmar 91 -678899 og 93-11745.
Sveinbjörg Arnmundsdóttir,
systkini og aðrir ættingjar.
t
Útför
ARA BJÖRNSSONAR,
Selási 6,
Egilsstöðum,
verðurgerðfrá Fossvogskirkju föstudaginn 15.janúarkl. 13.30.
Bjarghildur Sigurðardóttir,
Erla Aradóttir, Pétur Jónsson,
Gerður Aradóttir,
Sigurður Arason,
Björn Arason,
Bergljót Aradóttir,
Ingibjörg Aradóttir,
Einar Halldórsson,
Inga Fanney Egilsdóttir,
Margrét Sóimundsdóttir,
Karl F. Jóhannsson,
Guðni Pótursson,
Guðný Aradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður til heimilis á Brunnstíg 2,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 14. janúar
kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast henn-
ar, er bent á slysavarnadeildina Hraunprýði í Hafnarfirði.
Þórlaug Júliusdóttir,
Eyþór Júliússon, Bergljót Gunnarsdóttir,
Sigrfður Júlíusdóttir, Arnfinnur Arnfinnsson,
Þorkell Júlíusson, Erla Friðjónsdóttir,
Guðbjörg Júlfusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.