Morgunblaðið - 13.01.1993, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
ÓfeigurJ. Ófeigs-
son læknir - Minning
Kveðja frá Mayo Alummi á
íslandi
í dag kveðjum við Ófeig J.
Ófeigsson lækni í hinzta sinn. Vafa-
laust munu aðrir greina betur frá
ýmsum þáttum í æviferli hans, en
við í stjórn Mayo Alummi á íslandi
vildum minnast hans sérstaklega.
Mönnum til glöggvunar skal þess
getið, að orðið alummus þýðir fyrr-
um nemi, einkum gildir það við
bandaríska skóla. Mayo Graduate
School of Medicine í Bandaríkjunum
sæmir alla lækna, sem þar hafa
stundað sémám í eitt ár eða leng-
ur, nafnbótinni Mayo Alummis.
Ófeigur var fyrsti íslenzki læknir-
inn, sem stundaði framhaldsnám
við þessa heimsfrægu stofnun, sem
kölluð hefur verið Mekka læknis-
fræðinnar, og það ekki að ástæðu-
lausu, svo einstök er hún. Sem
dæmi má nefna að sl. 2 ár var hún
talin bezt í veröldjnni, að öllum
öðrum ólöstuðum. Ófeigur eða Ofi
eins og sumir nefndu hann, hóf
framhaldsnám í lyflækningum og
tengdum greinum við Mayo í janúar
®«Í936 fram til marz 1937. Hann
hlaut því fyrstur íslenzkra lækna
nafnbótina Mayo alummis en alls
erum við um 15 íslenzkir læknar
sem erum í þeim hópi. Okkur telzt
til, að flestir erlendir alummi frá
Mayo séu hlutfallslega frá íslandi,
sem er heimsmet, sem við erum
stoltir af.
Hinn 19. febrúar 1976 taldi hóp-
urinn að gaman væri að stofna fé-
lagssamtök okkar, sem við nefndum
Mayo Alummi á íslandi, Ófeigur
.^var einróma kjörinn fyrsti formað-
ur. Tilgangur og markmið okkar
var að viðhalda og efla tengsl við
Mayo Clinic eftir föngum, enda
þótt slíkt sé oft erfítt vegna fjar-
lægða, kostnaðar og ólíkra lifnaðar-
hátta.
Á langri starfsævi kom Ófeigur
víða við, bæði í starfí og utan þess.
Mörgum kann að þykja að hann
hafí verið furðulegur í fasi og tali
en í raun var hann skarpskyggn
og athugull, framsýnn og mjög fær
læknir. Auk þessa var hann ljúfling-
ur hinn mesti, ávallt léttur og prúð-
ur gagnvart vinum sínum. Veit ég
samt að hann gat reiðst og fýndist
honum gert á hlut sinn var slíkt
ekki gleymt en frekar geymt, en
hann flíkaði slíku ekki að jöfnu.
Auk fæmi í lænisstarfí var Ófeigur
mjög listrænn og var t.d. vel tiltæk-
ur frístundamálari. M.a. sýndi hann
málverk eftir sig á samsýningu
lækna í Rochester.
Að loknu námí í Kanada og
Bandaríkjunum kom Ófeigur til
starfa á Islandi. Dvölin vestra hafði
djúp áhrif á hann, einkum heillaði
hann hópstarf lækna við Mayo
Clinic sem margir hafa reynt að
líkja eftir en ekki öllum tekizt.
Ennfremur heillaði hann hið geysi-
góða læknisfræðibókasafn við
Mayo. Slík söfn voru óþekkt hér-
lendis. Læknar keyptu tímarit og
visar að söfnum voru til en vel
skipulögð söfn voru engin.
Öfeigur hafði kynnst vel yfir-
bókaverði Mayo Clinic, hr. Thomas
E. Keys, og með aðstoð hans gaf
Mayo Clinic íslendingum feikna
mikið af bókum og tímaritum, sem
skyldu seinna mynda kjarna í stóru
samræmdu bókasafni. Því miður fór
svo að draumur Ófeigs og bókagjöf-
in lenti í mörg ár í kössum í geymsl-
um engum að gagni. Ekki virtist
unnt að finna húsnæði né fyrir-
greiðslu til að heija starfsemi og
skipulagningu alvörusafns. Enn
fremur virtist áhugi ótrúlega lítill
eftir því sem bezt er vitað, eða
hafí áhugi verið, hafi hann verið
kæfður.
Bókasafnsmál þetta svaf því
þymirósarsvefni í mörg ár og held
ég að margir hafi borið býsna mik-
inn kinnroða fyrir og langað til að
ganga með hauspoka gagnvart gef-
endunum. Sem betur fer rofaði til
í þessum málum hægt og hægt.
Menn sáu í hvert óefni var komið,
en það tekur langan tíma að byggja
upp. Margar góðar hendur hafa
komið við og skal þar öllum þakk-
að. Nú er vandfundinn a.m.k. spít-
ali sem á ekki bókasafn en stórsafn
er enn ekki til.
Rétt er að geta þess að Mayo
Clinic vildi gera enn betur við Is-
lendinga og bauð t.d. Landakots-
spítala afrit af öllum tímaritum,
sem þeir gætu séð af, ef Landakot
gæti tekið við. Þessi gjöf var því
miður of stór fyrir húsnæði og
umfang og var því augljóslega of-
viða stofnuninni.
Eftir að Mayo Alummi á íslandi
stofnuðu samtök sín viðraði Ófeigur
þá hugmynd sína, að íslendingar
þökkuðu hina rausnarlegu gjöf á
einhvem hátt. Það var því sam-
þykkt að bjóða hr. Thomas E. Keys
og konu hans Betty til íslands.
Yfírvöld sýndu þessu máli skilning
Macíntosh fyrir byrjendur
Grunnatriði Macintosh, WorLs-ritvinnsla, gagnasöfnun, teikning, töflureiknir
og stýrikerfi á 15 klst námskeiði fyrir byijendur.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16 • stofnuð 1. mars 1986 ©
hk-92101
Leikfimi og nudd
Leikfiminámskeið í KvennaGalleríinu,
Smiðsbúð 9, Garðabæ, eru að byrja.
Innritun þessa viku kl. 13-16, s. 45399.
Mætum hressar og frískar.
Hanna Ó. Forrest og Sigriður Skúladóttir,
iþróttakennarar.
Eygió Sigurðardóttir, nuddarí.
KmnoSahi
SMIÐSBÚÐ 9, GARÐABÆ, SÍMI45399
-•
Utsalcm hafin
10-70% afsláttur af Anni Blatt,
Schachenmayr, Zareska o.fl.
Sendum í póstkröfu
Garn galleri,
Skólavörðustíg 3, sími 13530.
og greiddu fyrir slíku boði. Komu
þau hjón til Islands í maí 1977 og
var sýndur sómi og þakklæti.
Rétt er að taka fram að ýmsar
fleiri hendur hafa komið nálægt
bókasafnsuppbyggingu hérlendis
eftir hin erfíðu sokkabandsár. Ungt
fólk gerir sér enga grein fyrir þeim
erfíðleikum, sem vom til staðar
áður fyrr, en nú dag má fá með
aðstoð tölva, símmyndatækja og
ljósrita gögn sem áður vom óað-
gengileg. Samt er sem langt í land
að við séu samstíga erlendum stór-
söfnum, þannig að þótt birt hafi
til, má ekki gleyma sér í stundar-
framför, heldur stefna áfram.
Auk áhuga síns á bókasafnsmál-
um þeim sem þegar hafa verið
nefnd, hafði Ófeigur mikinn áhuga
á hópvinnu lækna, eins og stunduð
var við Mayo og er enn. Slík starf-
semi krefst mjög samstillts starfs-
fólks og mikillar skipulagningar.
Vísir að slíku samstarfi er kominn
á íslandi en á enn langt í land á
þroskabrautinni. Því hefur verið
spáð, að hópstarf sé lausn framtíð-
arinnar og verði alls ráðandi á 21.
öldinni og ein bezta leið sem til sé,
til að halda niðri vaxandi kostnaði
en samt halda þeim vinnugæðum
sem sjúklingar, læknar og annað
starfsfólk í heilbrigðisstéttinni vill
hafa. Útfærsla slíks er flókið mál,
sem hugsa þarf til þrautar og þolir
engar skyndiuppákomur né stund-
arlausnir og sízt af öllu afskipti
aðila, sem hafa takmarkaða yfirsýn
og skilning.
Vísindi heilluðu Ófeig alla tíð.
Sem ungur maður tók hann eftir
því að kæling við bruna hafði ótrú-
lega jákvæð áhrif. Hann kannaði
vantskælingu sem fyrstu hjálp við
brunameiðslum, hélt mörg erindi
um aðferð þessa hérlendis og er-
lendis og reit margar greinar um
efnið. Honum var víða sýndur mik-
ill sómi fyrir bragðið og trúlegast
hefur hann orðið eini íslenzki lækn-
irinn sem hefur verið skrifað sér-
staklega um í hinu þekkta tímariti
Time Magazine einmitt vegna
brunameðferðar sinnar. Menn
sýndu í fyrstu lítinn áhuga á þess-
ari aðferð en í dag þykir hún sjálf-
sögð þar sem við á.
Fyrir allmörgum árum varð
Ófeigur fyrir því óláni að fá heila-
blæðingu. Hann lá óvita í marga
mánuði en dag einn vaknaði hann
úr dáinu og sagði vGóðan dag, ég
heiti Ófeigur^ J. Ofeigsson." Því
miður hafði Ófeigur laskast veru-
lega og varanlega af áfalli þessu.
Hann var áður stálminnigur en nú
hafði það brugðizt. Lífíð eftir það
var honum og Unni konu hans erf-
itt en reynt var að þrauka meðan
kraftar entust.
Nú er Ófeigur allur. Við Mayo
Alummi og makar okkar vottum
honum virðingu okkar og kveðjum
góðan dreng. Unni Sigurðardóttur,
eiginkonu hans, sem alltaf hefur
sýnt pkkur mikla hlýju, sendum við
innilegustu samúðarkveðjur. Eins
sendum við öllum ættingjum og
tengslafólki samúðarkveðjur okkar.
Páll B. Helgason, yfirlæknir.
Látinn er í Reykjavík Ófeigur J.
Ófeigsson læknir eftir langvarandi
veikindi. Ófeigur var fæddur á
Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd.
Foreldrar hans voru Ófeigur Ófeigs-
Endurklœbum húsgögn.
Gott úrval áklceba.
Fagmenn vinna verkib.
BólstnmÁsgríms,
Bergstaðastræti 2,
sími 16807.
son bóndi þar og Jóhanna Guðrún
Frímannsdóttir, ættuð úr Langadal.
Ófeigur var settur til mennta og
útskrifaðist stúdent 1927. Hann
settisfyþví næst í læknadeild Há-
skóla íslands og lauk prófí þaðan
1933. Að því loknu hóf hann fram-
haldsnám í læknisfræði við virt
háskólasjúkrahús í Kanada og
Bandaríkjunum, lengst af við
Winnipeq General Hospital og Mayo
Clinic. Lagði hann einkum stund á
almenna lyflæknisfræði, klíniska
meinafræði og sýklafræði.
Orð fór af dugnaði og fæmi
Ófeigs í starfi við framangreindar
stofnanir og er ekki ofmælt að hann
hafi verið einn af gagnmenntuðustu
yngri læknum í sínu fagi á þessum
tíma. Ófeigur sneri heim til íslands
frá Bandaríkjunum 1937 og var um
skeið aðtoðarlæknir við lyflækn-
ingadeild Landspítalans. Ófeigur
vakti athygli á því löngu síðar hve
sjaldgæf bráð kransæðastífla hafði
verið á þessum tíma og fyrsta sjúk-
dómstilfellið á lyflækningadeildinni
hefði verið greint 1937. Ófeigur
varð sérfræðingur í lyflækningum
(lyflæknisfræði) 1940. ÞóttÓfeigur
hefði hlotið menntun sína í læknis-
fræði við hin fremstu sjúkrahús
átti ekki fyrir honum að liggja að
starfa á þeim vettvangi. Hann
stofnaði lækningastofu í Reykjavík
og vann þar sem sjálfstætt starf-
andi sérfræðingur og við heimilis-
lækningar. Þar nýttist kunnátta
hans og dugnaður sérlega vel. Hann
var afar vinsæll læknir enda stund-
aði hann sjúklinga sína af kost-
gæfni og stakri samviskusemi. Á
þessum tíma var mikill sjúkrarúm-
askortur á sjúkrahúsunum í Reykja-
vík og engar bráðamóttökur við
sjúkrahúsin svo sem nú er. Því var
mikið álag á heimilislækninn sem
oft vitjaði sjúklinga í heimahús,
jafnt að nóttu sem degi. Að vísu
var föst næturlæknavakt í Reykja-
vík, sem oft leysti bráðasta vand-
ann.
Sá sem þetta skrifar átti því láni
að fagna að starfa um árabil á
lækningastofu í sömu húsakynnum
og Ófeigur. Var gott fyrir yngri og
óreyndari lækni að geta leitað til
Ófeigs þegar í harðbakka sló. Ná-
býli okkar á þessum árum var í
alla staði hið ánægjulegasta.
Snemma hlóðust á Ofeig margs
konar trúnaðarstörf við ýmsar
stofnanir í borginni, s.s. sendiráð,
skólaækningar, kennslustörf við
heilbrigðisstofnanir o.fl. Má með
sanni segja að honum hafí aldrei
fallið verk úr hendi á þessum tíma.
Ekki er þó allt upp talið því að á
árinu 1954 hóf Ófeigur að stunda
vísindalegar rannsóknir. Voru þetta
rannsóknir á bruna og meðferð
hans með svokallaðri vatnskælingu.
Ófeigur hafði á yngri árum orðið
vitni að áhrifamikilli lækningu með
vatnskælingu á brenndu barni í
heimahúsi. Þetta atvik leið honum
ekki úr minni og var síðan hvatinn
að rannsóknarstörfum hans á þessu
sviði. Rannsóknirnar voru gerðar á
tilraunadýrum við rannsóknarstofn-
anir í Glasgow og London og stóðu
með hléum allt til ársins 1966.
Rannsóknir þessar vöktu mikla at-
hygli meðal lækna víða um lönd og
flutti Ófeigur fyrirlestra um niður-
stöður rannsókna sinna við ýmsa
erlenda háskóla. Háskóli íslands
sæmdi Ófeig heiðursdoktorsnafnbót
í viðurkenningarskyni fyrir vísinda-
störf. Ófeigi hlotnaðist margs konar
heiður heima og erlendis og var
hann m.a. heiðursfélagi Læknafé-
lags Reykjavíkur. Vísindastörf
Ófeigs munu halda minningu hans
lengi á lofti.
Undirritaður kynntist. Ófeigi
fyrst á fræðslufundum og við fé-
lagsstörf í Læknafélagi Reykjavík-
ur fyrir rúmum 40 árum, síðar nán-
ar við læknisstörf, svo sém áður
var að vikið. Vinátta okkar efldist
og góð kynni tókust með eiginkon-
um okkar enda störfuðu þær um
tíma með okkur á lækningastofun-
um.
Mér er minnisstætt er ég fór
fyrst að sækja fræðslufundi í
Læknafélagi Reykjavíkur að Ófeig-
ur tók oft til máls að loknum fram-
söguerindum um hin aðskiljanleg-
ustu efni læknisfræðinnar, talaði
skorinort og miðlaði óspart af sinni
miklu þekkingu. Á öðrum vettvangi
brá Ófeigur gjarnan á léttari
strengi, jafnvel gáska og glens, og
kom ókunnugum stundum í opna
skjöldu með sérkennilegu spaugi.
Ófeigur var glaðsinna að eðlisfari,
ræðinn, ávallt kurteis, enda gæddur
eðlislægri prúðmennsku, hann var
glæsimenni svo að af bar. Síðar
meir kynntist ég hinni miklu atorku
og dugnaði Ófeigs, en hann var
með þrekmestu mönnum og gæddur
óbilandi viljastyrk sem kom kannski
best fram við vísindastörfin og í
sjúkdómsbaráttunni sem hann háði
síðustu 11 árin.,
Eftirlifandi eiginkonu sinni, Unni
Sigurðardóttur, kvæntist Ófeigur
1963. Þau voru mjög samrýnd.
Heimili þeirra var skreytt fögrum
ljstaverkum eftir húsbóndann, en
Ófeigur var mjög listrænn, málaði
fagrar myndir, ekki síst blóma-
myndir og var einnig mjög hagur.
Þau byggðu sér lítinn sumarbústað
á Kjalarnesi og gróðursettu blóm
og plöntur, enda var Ófeigur mikill
áhugamaður um skógrækt. Þarna
var sannkallaður unaðsreitur og
dvöldu þau hjón þar öllum stundum
að sumarlagi þegar tóm gafst til
og heilsa Ófeigs leyfði. Aðdáunar-
verð var umhyggja Unnar fyrir
manni sínum í hinum erfíðu og lang-
varandi veikindum hans.
Með Ófeigi J. Ófeigssyni er fall-
inn frá einn af mikilhæfustu mönn-
um íslenskrar læknastéttar.
Við Karólína sendum Unni og
öðrum aðstandendum innilegar
samúðarkveðjur.
Snorri Páll Snorrason.
Fréttin um andlát Ófeigs barst
okkur til Saigon. Það er mikið áfall,
sem margir Islendingar þekkja, að
fá slíka fregn ljarri ástvinum og
ættjörð.
Lífíð hefur sinn gang, en við fyll-
umst söknuði yfír því að Ófeigur
er ekki lengur meðal vor og mikið
tómarúm hefur myndast í lífi Unn-
ar.
Ég kynntist Ófeigi fyrir þijátíu
og einu ári og hef verið tengdason-
ur hans í rúm tuttugu og fímm ár.
Hann var þá unglegur, kraftmikill
og óþolinmóður maður, sem átti
mjög annríkt við fjölmörg störf.
Sérstaklega tóku umfangsmikil
læknisstörf mikinn hluta af tíma
hans. Hann var læknir sjúklinga
sinna í víðtækasta og besta skiln-
ingi þess orðs, alltaf var hægt að
ná sambandi við hann og hann var
ætíð tilbúinn til þess að koma á
vettvang. Ófeigur vildi vera læknir
sjúklinga sinna og vissi hvað í því
fólst.
Ófeigur tók embættispróf í lækn-
isfræði frá Háskóla íslands. Eins
og meirihluti íslenskra lækna leitaði
hann til útlanda til þess að öðlast
sérfræðimenntun. Ófeigur var
fyrsti íslenski læknirinn, sem hlaut
menntun sína á Mayo Clinic í
Minnesota. Hann lagði stund á lyf-
lækningar og tíminn á Mayo átti
eftir að móta hann alla ævi. Síðar
bætti hann enn við þekkingu sína
með störfum í Kanada.
Kjarninn í vísindastörfum Ófeigs
fólst í meðferð brunasára með köldu
vatni, en á því sviði vann hann
brautryðjandastarf með tilraunum
við Royal Infírmary í Glasgow.
Þessar tilraunir og þau klínisku við-