Morgunblaðið - 13.01.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
11
Kenningar Jean
Piagets um vits-
munaþroskann
Nýlistasafnið, Vatnsstíg
Sýning 1 tilefni 15 ára
afmælis safnsins
I Nýlistasafninu stendur yfir sýning á verkum eftir Elvu Jónsdóttur,
Elsu D. Gísladóttur, Pétur Órn Friðriksson, Ólöfu Nordal, Ingileif
Thorlacius og Rögnu Hermannsdóttur.
__________Bækur______________
Sigrún Aðalbjarnardóttir
Formgerðir vitsmunalífsins.
Kenningar Jean Piagets um vits-
munaþroskann. Höfundur: Sig-
urjón Björnsson. Útgefandi: Hið
íslenska bókmenntafélag. 2. út-
gáfa, 1992. Tilraunaútgáfa á
vegum Háskólaútgáfunnar,
1989.
Á undanfömum árum hefur Sig-
urjón Bjömsson prófessor ráðist í
að færa kenningar frömuða á sviði
sálarfræði í íslenskan búning. Er
skemmst að minnast frábærrar
þýðingar hans á verki Sigmundar
Freuds, „Undir oki siðmenningar",
sem Hið íslenska bókmenntafélag
gaf út árið 1990.
í þetta sinn getur að líta saman-
tekt Sigurjóns á kenningu hins
þekkta svissneska þekkingarfræð-
ings Jean Piagets um vitsmuna-
þroskann. í aðfaraorðum bókarinn-
ar getur Siguijón þess að „skortur
á inngangsriti um kenningar þessa
merka fræðajöfurs" (bls. 7) hafi
gert vart við sig hér á landi við
kennslu og ætlun hans sé að gera
tilraun til að bæta úr þeirri vönt-
un. Sannarlega er kominn tími til
að kenningu Piagets sé gerð ítarleg
og greinagóð skil á íslensku. í raun
er það merkilegt að í slíkt hafi
ekki verið ráðist fyrr að neinu ráði.
Til gamans má geta þess að þegar
árið 1935 ritaði hinn merki skóla-
maður Sigurður Thorlacius, skóla-
stjóri Austurbæjarskólans, grein í
Menntamál um kenningar Piagets
um siðgæðisþroska sem Piaget
hafði birt á bók aðeins tveimur til
þremur árum áður. Tugir ára liðu
áður en Piagets var getið að nýju
í íslenskum ritum. Hér skal þó tek-
ið undir með Siguijóni hve erfítt
og vandmeðfarið það er að setja
slíkt efni fram þar sem umfang
viðfangsefna og rannsókna Piagets
var svo vítt (heimspeki, stærð-
fræði, líffræði og sálarfræði). En
Siguijóni tekst hér vel til enda
þekkir trúlega enginn fslendingur
verk Piagets eins vel og hann. Auk
þess á Siguijón einkar létt með
að skrifa lipran og læsilegan texta.
Á aðgengilegan hátt er lesand-
anum gerð grein fyrir við hveiju
hann megi búast í þessu riti. Hér
verði ijallað um kenningu Piagets
um vitsmunaþroskann og þær
rannsóknir sem henni fylgja. Aðra
umflöllun eins og (1) um uppeldis-
og kennslufræðilegt gildi kenning-
arinnar og (2) um rannsóknir sem
fylgt hafa í kjölfar rannsókna
Piagets til að kanna tilgátur hans
og niðurstöður sem skipta nú þús-
undum og koma inn á hin margvís-
legustu þroskasvið (s.s. félags-
þroska, siðgæðisþroska, tilfínn-
ingaþroska auk vitsmunaþroska)
segist Sigurjón ekki taka fyrir. Af
hógværð og lítillæti fræðimannsins
segist hann ekki telja sig „færan
að gera því öllu viðhlítandi skil“
(bls. 8).
Ritið skiptist í tvo hluta. í fyrri
hlutanum fær lesandinn að kynn-
ast æviferli og störfum Piagets.
Við fáum innsýn í það menninga-
rumhverfí sem Piaget hrærðist í
og mótaði áhugasvið hans svo
mjög. Á þann hátt erum við færð
nær heimi hans og viðfangsefni
hans verða okkur merkingarbærari
en ella. í þessum hluta er einnig
flallað um grundvallaratriði kenn-
ingar hans, rannsóknaraðferðir og
hugtök. Hér er um að ræða afar
mikilvægan kafla því að erfitt er
að ná valdi á kenningu Piagets án
þess gera sér grein fyrir þeim
grundvallarsjónarmiðum sem hann
setur fram um samspil líffræði-
legra þátta og umhverfisins þegar
fólk öðlast þekkingu. Hugtök hans
eru flókin en Siguijóni tekst að
setja þau fram á einkar skýran og
aðgengilegan hátt með fjölda
dæma. Víst er að Siguijón hefur
á liðnum árum í kennslu sinni orð-
ið að finna ný og gild íslensk heiti
yfir þau mörgu framandi sálfræði-
hugtök sem fram koma í verkum
Piagets og hefur hann sannarlega
ekki verið öfundsverður af því hlut-
verki. En Siguijón er sérstaklega
næmur fyrir íslensku máli og kem-
ur það sér vel hér. Einnig er kost-
ur að hann setur ensku hugtökin
í sviga til að lesandinn geti tengt
íslenska og enska texta um efnið.
í síðari hluta ritsins er kenning
Piagets um þróun vitsmunalífins
frá fyrstu æviárunum til fullorðins-
áranna rakin. Til aðgreiningar setti
Piaget fram nokkur stig eða
áfanga á vitsmunaþroskabraut-
inni. Undir hveiju stigi er nákvæm-
ari lýsing á þróunarferli og fram-
förum bamsins með auknum aldri
þess og þroska. Til skilningsauka
fyrir lesandann setur Siguijón
fram fjölda dæma úr rannsóknum
Piagets sem gefa góða mynd af
þroska bama á tilteknu þroska-
stigi. Öll slík dæmi létta lesturinn
og við fáum innsýn í hugarheim
bama. Sem dæmi má nefna
skemmtilega rökleiðslu bama á
foraðgerðastigi sem spurð eru: Af
hveiju kemur nótt? Sum böm svör-
uðu t.d.: „Til þess að við getum
sofnað." Hér ríkir sá skilningur að
hlutir hafi verið búnir til af mönn-
um og fyrir þá — nóttin er til þess
að við getum sofnað (sbr. bls. 56).
Smám saman verður hugsun
bamsins flóknari, sveigjanlegri og
óhlutbundari um fyrirbæri heims-
ins.
í hveijum kafla og undirkafla
gerir Siguijón grein fyrir þeim rit-
um Piagets sem fjalla um það efni
sem til umræðu er í það skiptið.
Slík greinargerð er þægileg og
hvetur lesandann til að leita sér
nánari upplýsinga um efnið. Ritinu
fylgir auk þess ítarleg ritaskrá
yfir verk Piagets og nokkur rit sem
tekin hafa verið saman um kenn-
ingar hans.
Siguijón nefnir að ritið sé ætlað
til kennslu og víst er um það að
það er sérstaklega aðgengilegt
nemum sem íjalla um þroskasál-
fræðileg efni. Rannsóknunum er
lýst af natni sem gæti orðið kveikja
að nýjum rannsóknum og dýpri og
frjórri umræðu hér á landi en nú
er um kenningar Piagets. Hér skal
jafnframt bent á að uppalendur,
mömmur og pabbar, ömmur og
afar, gætu ekki síður haft ánægju
af léstri þessa rits. Vitsmunaþro-
skaferli bamsins er lýst á svo lif-
andi og aðgengilegan hátt að ég
er þess fullviss að uppalendur
hefðu bæði gagn og gaman af að
skyggnast hér inn í heillandi hug-
arheim bama. Þegar ég hóf að
lesa verk Piagets fyrir allmörgum
ámm urðu þau mér strax merking-
arbær. Upp laukst nýr skilningur
á hugsun og hegðun bama. Með
tilkomu rits Siguijóns verður þessi
heimur mun aðgengilegri íslensk-
um uppalendum. Hér á öll umflöll-
un í ritinu við nema helst lýsingin
á rökhugsun sem einkum kemur
fram á unglingsámm. Sú umræða
höfðar trúlega meira til þeirra sém
hafa sérstakan áhuga á stærð-
fræðilegum þrautum og rannsókn-
um þeim tengdum en áhugamönn-
um. En dæmin í ritinu sem gefin
em um hugsun og athafnir bama
ættu að hvetja foreldra til þess að
fá böm sín til að velta fyrir sér
ýmsum fyrirbæmm heimsins.
Fróðlegt og skemmtilegt er að
Siguijón Bjömsson
skrá svör bamsins við sömu spum-
ingum frá ári til árs og bera sam-
an hugmyndir þess eftir aldri. í
ljósi þess sem hér hefur verið sagt
hafa foreldrar litlu ömmustelpunn-
ar minnar þetta rit undir höndum
nú og vænti ég þess að þeir sjái
þroskaundur telpunnar sinnar í
skýrara ljósi en ella.
Siguijón Bjömsson á þakkir
skildar fyrir framtak sitt með
þessu riti. Vonandi lætur hann
ekki hér við sitja heldur fylgir rit-
inu eftir með umijöllum um þá
þætti kenninga Piagets sem hann
segist ekki taka hér fyrir.
Sýningin er sett upp í tilefni 15
ára afmælis Nýlistasafnsins. í frétta-
tilkynningu segir að það hafi verið
stofnsett 5. janúar 1978, á þeim
þrengingartímum, þegar listasöfn
þjóðarinnar og einkasafnarar sváfu
Þymirósarsvefni og listgagnrýnend-
ur litu með söknuði til kreppu- og
eftirstríðslistar. Nýlistasafnið um-
bylti hlutunum, safnaði saman ungu
fólki og braust fram til sigurs í bar-
áttunni gegn viðhorfum sem voru
andstæð nýstárlegri tjáningu og
frumlegri hugsun.
Samsýningin í Nýlistasafninu er
opin daglega frá kl. 14-18. Henni
lýkur sunnudaginn 24. janúar.
mmm
Aramótaspilakvöld
Landsmálafélagsins Varðar verður hald-
ið í Súlnasal Hótels Sögu sunnudaginn
17. janúar 1993 og hefst kl. 20.30.
Glæsilegir spilavinningar:
Utanlandsferðir, matarkörf-
ur og fleiri glæsivinningar.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
Markús Orn Antonsson,
flytur ávarp.
Nefndin.