Morgunblaðið - 13.01.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANUAR 1993
13
Nýjar bækur
■ Minnisbók Bókrúnar 1993 er
komin út.
í kynningu útgefanda segir: Ný
efnisatriði eru við hvem dag, flest
varðandi konur, líf þeirra og störf
fyrr og nú. Heilsíðuljósmynd er
við upphaf hvers mánaðar. Sagt
er frá starfsemi Kvennaathvarfs-
ins og samtök kvenna kynnt að
venju, að þessu sinni DELTA
KAPPA GAMMA, félag kvenna í
fræðslustörfum. Ljóðstafír eru eft-
ir Ingibjörgu Haraldsdóttur, sem
er einnig pistlahöfundur, sem auk
hennar eru: Guðrún Ágústsdóttir,
varaborgarfulltrúi, Jóhanna Vig-
dís Hjaltadóttir, fjölmiðlafræðing-
ur, Jóhanna Kristjónsdóttir, blaða-
maður, og Ævar Kjartansson, út-
varpsmaður.
Utgefandi er útgáfufélagið
Bókrún. Elísabet Cochran hann-
ar bókina. Oddi annaðist prent-
un. Verð 780 krónur.
I Offíta og hreyfing nefnist
ný bók, sem Forvama- og
endurhæfingarstöðin Máttur
gefur út.
í kynningu útgefanda segir, að
bókin íjalli um áhrif mataræðis
og líkamsþjálfunar á þyngdar- og
fítutaþ. Einnig er í bókinni „Stiga-
kerfí Máttar“, þar sem flestar ís-
lenskar fæðutegundir í neytend-
aumbúðum eru flokkaðar eftir
kaloríumagni og kolvetnainni-
haldi. Útgefandi er Forvama-
og líkamsþjálfunarstöðin Mátt-
ur. Svansprent sá um prentun.
Verð 780 krónur.
■ Sigurðar saga þögla er
komin út á vegum Stofnunar
Áma Magnússonar. Þetta er
styttri gerð af bókinni í útgáfu
Matthew James Driscoll.
í kynningu útgefanda segir:
„Sagan er í hópi frumsaminna
riddarasagna, en þær voru vinsæl
bókmenntagrein á Islandi frá því
fyrir siðaskipti og fram á 19. öld.
Elstu handrit Sigurðar sögu eru
frá 15. öld, en alls eru kunn 60
handrit að henni."
í inn-
gangi gerir
útgefandi
grein fyrir
handritinu,
rithöndum
þess og
málfari.
Einnig er
fjallað bók-
menn-
talega um
söguna og
leidd rök
að því, að
í báðum gerðum hafí upphaflegum
texta verið breytt. Texti sögunnar
er prentaður stafrétt. Inngangur
er á ensku, en íslenskt efniságrip
fylgir.
Útgefandi er Stofnun Ama
Magnússonar. Prentstofa Guð-
mundar Benediktssonar sá um
prentun og bókband. Bókin er
230 blaðsíður. Verð 2.800 krón-
ur.
■ Tímaritið HUGUR, 5.
árg., 1992, er komið út. HUGUR
er timarit um heimspeki og er
ætlað að vera vettvangur fyrir
skrif um heimspeki á íslensku.
í kynningu útgefanda segir, að
HUGUR sé að þessu sinni helgað-
ur heimspekikennslu í grunn- og
framhaldsskólum. í heftinu eru
birtar greinar um þau efni eftir
Hrein Pálsson, Þorstein Hjartar-
son, Atla Harðarson og Kristján
Kristjánsson. Viðtal er við Matt-
hew Lipman, höfund bamaheim-
spekinnar, sem Ágúst Borgþór
Sverrisson tók. Ennfremur Sendi-
XJöfðar til
XI fólks í öllum
starfsgreinum!
bréf um frelsi eftir Kristján Kristj-
ánsson, viðtal við Karl Propper,
sem Gunnar Ragnarsson þýddi og
ritgerðin „Hvemig Descartes er
fomlegur" eftir Eyjólf Kjalar Em-
ilsson. Einnig ritdómur eftir Krist-
ínu Höllu Jónsdóttur og Skúla Sig-
urðsson. Og ritfregnir, sem greina
frá nýlegum bókum á íslensku um
heimspekileg efni.
Útgefandi er Félag áhuga-
manna um heimspeki. Skák-
prent annaðist prentun. HUG-
UR er 120 blaðsíður. Verð 875
krónur.
■ Árbók Verkfræðingafé-
lags íslands 1991/92 er komin
út.
I kynningu útgefanda segir:
„Tímarit VFI hóf göngu sína árið
1915 og hefur um langt tímabil
verið eitt helsta vísindarit hérlend-
is á sviði verkfræði og raunvís-
inda. í tímartinu eru birtar vís-
indagreinar fróðustu manna. Auk
þeirra er árlegur tækniannáll í
bókinni og kynning á íslenskum
fyrirtækjum á sviði verkfræði.
Árbókin lítur nú dagsins ljós í
ijórða sinn.
Útgefandi er Verkfræð-
ingafélag íslands. Viktor A.
Ingólfsson annaðist útlit og upp-
setningu. Steinholt hf. prentaði.
Verð 2.000 krónur.
VERKSMIÐJUÚTSALA!
VERKSMIÐJUÚTSALA!
VERKSMIÐJUÚTSALA!
Coral
Icewear
hefst í dag
Mikið úrval af vönduðum
bómullar- og ullarpeysum
fyrir börn, unglinga og fullorðna
Stórlækkað verð
Allar peysur á aðeins
1500-1750kr.
Opið frá kl. 12.00-18.00
Laugardag f rá kl. 10.00-16.00
Icewear,
Smiðsbúð 9,212 Garðabæ,
sími 641466.