Morgunblaðið - 13.01.1993, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
17
eftir Ingibjörgu
Björnsdóttur
Nú er Norrænu gigtarári lokið. í
tilefni gigtarársins gaf Gigtarfélag
íslands út sérútgáfu á tímaritinu
Gigtin, þar sem ýmsir sérfræðingar
lýsa gigt, meðferð hennar og bata-
horfum. Ein af greinum tímaritsins
fjallaði um Mataræði og gigt, og
virðist greinarhöfundur ekki hafa
mikla trú á því að mataræði ráði
miklu um þróun gigtar né lækningu
og vitnar í nokkrar rannsóknir, sem
gerðar hafa verið á sambandi matar-
æðis og gigtar, og heldur því fram
að þær hafí ekki skilað árangri sem
erfiði.
Niðurstöður þessara rannsókna,
sem vitnað var til í greininni, stang-
ast mjög á við fjölmargar.rannsókn-
ir, sem gerðar hafa verið, og sem
staðfest hafa samband gigtar og
næringar. Finnst mér því rétt að
benda áhugamönnum um gigt á tvær
frábærar bækur, sem svipta af gigt-
inni því vonleysi, sem jafnan fylgir
þessu „stjúpbarni læknisfræðinnar".
Höfundar þessara bóka halda því
fram að barnaleikur sé að lækna
gigt og að gigtarsjúklingar geti sem
hægast gert það upp á eigin spýtur.
Aðferðin er ótrúlega einföld, en stað-
festa sjúklingsins þeim mun mikil-
vægari.
Önnur bókin er eftir Pawo 0.
Airola, sem heitir Gigt er læknanleg
(There is a Cure for Arthritis), gefín
út í New York 1968. Hin er eftir
T.C. Fry, Dr. Herbert M. Shelton
o.fl. Nefnist hún Snúið á gigtina
(Reversing Arthritis), gefn út í Man-
chaca, Texas 1992. Fer hér á eftir
endursagður boðskapur þessara
bóka, sem er samhljóða um það að
gigt sé auðvelt að lækna með heil-
næmum lifnaðarháttum en ekki lyfj-
um.
ig gæti sú orka sem sparast erlend-
is farið á almennan markað þar,
við fengið atvinnustarfsemi inn í
landið og kostnaður við sæstreng
sparast. Þetta ætti allt að vera auð-
veldara eftir að EES-samningarnir
hafa verið samþykktir.
Tæknilegar forsendur
Þar sem um mjög miklar fjárfest-
ingar er að ræða og framkvæmda-
tími er langur (um 10 ár) er fjár-
magnskostnaður hár. Allar tafir á
verkinu t.d. vegna ófyrirséðra
tæknilegra örðugleika verða því
mjög dýrar. Eins og áður sagði er
sæstrengurinn mjög langur og ligg-
ur djúpt, lengri og liggur dýpra en
nokkur annar. Fyrir utan spurning-
ar varðandi framkvæmd lagningar-
innar og viðhald strengsins vekur
þetta spurningar um raffræðilega
eiginleika kerfísins (sjá Svana He-
len Björnsdóttir Mbl. 5.11.92). Því
lengri sem strengurinn er því meiri
verður rýmd hans og stærri skamm-
hlaupsstraumar. Þetta hefur síðan
afleiðingar fyrir af- og áriðilsstöðv-
amar. Meiri dýpt gerir meiri kröfur
um efnið í kápu strengsins og tak-
markar spennuna og þar með flutn-
ingsgetu hans. Þessi atriði gera alla
áætlanagerð óörugga.
Niðurlag
Fleiri atriði komu fram á ráð-
stefnunni í nóvember sem ekki
verða nefnd hér. Hinsvegar bent á
fund sem haldinn verður á vegum
RVFÍ kl. 19 í kvöld, miðvikudag,
sérstaklega um tæknilegar forsend-
ur sæstrengsins. Fengin hefur verið
sérfræðingur erlendis frá til að hafa
framsögu á fundinum. Fundurinn
verður haldinn í húsi Verkfræðinga-
félags íslands á Engjateigi 9 og er
öllum opinn.
Höfundur er
rafmagnsverkfræðingur og situr
í stjórn
Rafmagnsverkfræðideildar
Verkfræðingafélags ísland
er læknanleg
Hverjar eru orsakir gigtar?
Eins og fram kom í greinum ís-
lensku gigtarlæknanna viðurkennir
hefðbundin læknisfræði almenna
vangetu sína til að lækna gigt fyrst
og fremst vegna þess að orsakir
sjúkdómsins séu óþekktar. Síðast-
liðna þijá áratugi hafa gigtarlæknar
þó verið bjartsýnir á að lausn gigtar-
gátunnar sé á næsta leiti, og að
næsti áratugur leiði hið sanna í ljós.
Mannkynið muni um síðir losna við
þennan hvimleiða fylgikvilla sið-
menningarinnar, þegar erfðarann-
sóknir skili þeim árangri sem nú sé
stefnt að.
Bókahöfundar eru miklu bjart-
sýnni í baráttunni við gigtina enda
þótt ekki hafi tekist að sýna fram á
hið sanna eðli sjúkdómsins í öllum
smáatriðum gigtarafbrigðanna. Já-
kvæður árangur aðferða þeirra hefur
staðfest þá tilgátu, að gigt orsakist
af meltingartruflunum, sem koma
fram við heilsuspillandi lífshætti.
Sjúkrasaga gigtarsjúklinga ber yfír-
leitt með sér lýsingu á almennu
heilsuleysi og truflun í starfsemi
mikilvægustu líffæra líkamans, sem
birtist í lélegri meltingu og heftri
upptöku næringarefna, uppsöfnun
niðurbrotsefna í líkamanum vegna
heftrar hreinsunar úrgangsefna,
veikluðu taugakerfi og truflunum í
blóðrás.
Þessi veikleiki í meltingar- og
hreinsistarfsemi líkamans hefur síð-
an áhrif á líf fruma í hinum ýmsu
vefjum líkamans. Þetta hefur áhrif
á möguleika þeirra til að nærast og
losa sig við úrgangsefni. Einn af
frumkvöðlum náttúrulækninga i
Bandaríkjunum, Dr. R.P. Watterson,
nefnir þessar kerfístruflanir „efna-
skiptabælingu“ (Arthritis: Bioc-
hemical Suffocation", Southwestern
Medicine Vol. 42 No. 4. April, 1961).
Eitt athyglisverðasta einkenni
hinna sjúklegu breytinga, sem birt-
ast með liðagigt eru hrörnunarbreyt-
ingar í uppistöðueggjahvítu húðar,
sina, beina, bijósks og stoðvefs sem
nefnist á fagmáli collagen. Slíkar
breytingar, koma fram vegna heftra
efnaskipta, sem orsakast af melting-
artruflunum eða næringarskorti. í
kjölfarið myndast trefjakenndur
bandvefur í liðum. Uppsöfnun eitr-
aðra úrgangsefna og steinefna er
lokastig þeirrar þróunar, sem leiðir
til gigtar.
Astæðan fyrir þessari sjúklegu
hrörnun í vefjum, sem síðan leiðir
til gigtarbæklunar, má rekja til
umhverfis mannsins. Þar má nefna
ofnæmisviðbrögð, streitu, áverka á
liðamótin og aðliggjandi vefí, marg-
víslegar sýkingar o.fl. Engu að síður
er helsti orsakavaldur gigtar almenn
heilsuhnignun og minnkuð mótstaða
líkamans eða bækiað ónæmiskerfi,
sem rekja má til rangs fæðuvals,
ofáts, næringarskorts vegna dauðrar
fæðu, skorts á vítamínum og stein-
efnum, og slakrar hormónastarf-
semi. Að auki er ýmislegt í um-
hverfi mannsins sem leiðir til minnk-
aðrar lífsorku og almenns heilsuleys-
is. Kyrrsetulíf, súrefnisskortur, slöpp
blóðrás og hægt fiæði sogæðavök-
vans ásamt lélegri hreinsun þess,
hægðatregða, reykingar, áfengis-
drykkja, mengað vatn og heilsuspil-
landi drykkjarvörur, aukaefni í mat,
rokgjörn uppleysiefni í ýmsum gervi-
efnum í kringurn okkur eins og rúm-
fötum, innréttingum, húsmunum,
gólfklæðningum, málningu o.s.frv.,
tilfinningaleg og líkamleg streita,
ónóg hvíld, allt stuðlar þetta að
bælingu varnarkerfis líkamans og
hrörnun.
Hvers vegna bregðast
hefðbundnar lækningar?
í báðum bókunum eru raktar
ýmsar aðferðir við lækningu á gigt
í tímans rás, sem sýnir hvað gigtar-
sjúklingar hafa mátt reyna í leit að
lækningu. Læknisráð hins hefð-
bundna gigtarlæknis ganga út á að
meðhöndla afmörkuð einkenni sjúk-
dómsins. Hann meðhöndlar sjúkan
liðinn með sprautum, röntgengeisl-
um og lyfjum líkt og bólga liðarins
sé algjörlega staðbundið og einangr-
Ingibjörg Björnsdóttir
„ Jákvæður árangur að-
ferða þeirra hefur stað-
fest þá tilgátu, að gigt
orsakist af meltingar-
truflunum, sem koma
fram við heilsuspillandi
lífshætti.“
að fyrirbæri. Ráð hans ganga út á
að minnka einkennin án þess að tek-
ið sé á orsökunum. Hann skrifar upp
á verkjalyf, sem draga tímabundið
úr verkjum, en vegna óæskilegra
aukaverkana lyfjanna á efnaskipti
líkamans valda þau auknum skaða,
séu þau notuð til lengdar, og líðan
sjúklingsins versnar í stað þess að
batna.
Lyíjainntökur og sprautur geta
deyft sársauka og slegið á sjúkdóms-
einkennin, en þessi lyf hafa engin
áhrif á orsakir sjúkdómsins og leið-
rétta í engu þá truflun á líkamsstarf-
seminni, sem veldur hinni sjúklegu
hrörnun. Það versta við þessar að-
ferðir er, að þær eru í eðli sínu
bælandi og hafa eiturverkanir í för
með sér, sem trufla eðlileg efna-
skipti líkamans og hreinsun, og
hindra í raun og veru möguleika lík-
amans til að byggja upp og end-
urnýja skaddaða vefi. Þegar á heild-
ina er litið, gera lyfin meiri skaða
en gagn og leiða til örkumlunar um
síðir. Lögð er áhersla á, að lyf hafa
engan lækningamátt. Það er líkam-
inn sjálfur, sem býr yfir þeim mætti
að endumýjast og bæta það, sem
aflaga fer. Það besta sem skynsam-
ur læknir getur gert, er að styrkja
þann lækningamátt, sem líkaminn
býr yfir. Hin hefðbundnu lyf gegn
gigt eins og magnyl, cortisone,
ACTH, phenylbutazone og gull-
sprautur og öll önnur lyf sem reynd
hafa verið við gigt, bæla sjúkdóms-
einkennin. Þau styrkja ekki lækn-
ingamátt líkamans og veita engan
langvarandi bata. Þetta viðurkenna
gigtarlæknar opinberlega.
Boðskapur bókanna beggja er sá,
að gigt sé röskun á líkamsstarfsem-
inni allri. Því sé aðeins hægt að
framkalla varanlega bætt ástand
með því að beina meðferðinni að
þeim orsökum sem tmfla líkams-
starfsemina með þessum afleiðing-
um. Sá árangur næst því aðeins, að
beitt sé aðferð, sem beinist að því
að leiðrétta efnaskiptin og melting-
arstarfsemina, og byggja upp eðli-
lega starfsemi helstu líffæra og
kirtla. Þetta er ástæðan fyrir því
hvers vegna hefðbundar lækninga-
aðferðir hafa ekki náð árangri í bar-
áttunni við gigtina.
Samantekt
Til þess að skilja eðli og orsakir
þeirrar þróunar, sem um síðir leiðir
til gigtar verðum við að hafa þessi
grundvaliaratriði í huga:
1. Gigt er ekki staðbundinn sjúk-
dómur í tilteknum liðamótum. Gigtin
í allri sinni mynd er sjúkdómur í
grundvallarstarfsemi líkamans, sem
truflar starfsemi líkamans alls.
2. Gigt má rekja til meltingarsjúk-
dóms og truflunar líkamsstarfsem-
innar, sem ieiðir til sjúklegra efna-
skipta í öllum veijum líkamans, og
þar má sérstaklega nefna eggja-
hvítuvinnslu frumanna í húð, sinum,
beinum, bijóski og stoðvef.
3. Bæld efnaskipti valda bólgum
og hrömunarbreytingum í starfsemi
liða og aðliggjandi vefjum.
4. Orsakirnar að baki þessari
röskun á heilbrigðri starfsemi lið-
anna og þeirra sjúklegu breytinga,
sem taka að þróast, má rekja til
langvarandi illrar meðferðar á lík-
amanum með röngu fæðuvali, ofáti,
næringarskorti, kyrrsetum, tilfinn-
ingalegri og líkamlegri streitu. Þess-
ir óheilnæmu lifnaðarhættir leiða
smám saman til skertrar lífsorku og
mótstöðuleysis gagnvart sjúkdóm-
um, slappleika meltingarfæranna,
sjálfeitrunar og lélegrar hreinsunar
úrgangsefna.
5. Meðferð náttúrulækninga-
manna við gigt gengur út á að
umbreyta því heilsuspillandi ástandi,
sem ríkir í líkama þeirra, sem líða
af gigt, með hreinsun og breyttu
fæði, og hvetja viðkomandi til
ábyrgðar á eigin heilsu með fræðslu
um heilnæma lifnaðarhætti.
6. Náttúrulækningin beinist að
því að koma meltingunni og efna-
skiptum líkamans í eðlilegt horf,
örva starfsemi sogæðakerfis og
innkirtla og byggja byggja upp
hreysti og þrek sjúklingsins.
7. Þegar heilsuspillandi starfsskil-
yrði líkamans eru horfin og hann
tekur að hressast með heilnæmu
fæði, bættri meltingu, hvíld, þrek-
æfíngum og sjúkraþjálfun tekur hinn
meðfæddi lækningamáttur sjálfs lík-
amans til starfa við endurnýjun og
uppbyggingu.
Snúið á gigtina
Paavo 0. Airola bendir á að fjöldi
vísindarita og tímarita hafa birt
umfangsmiklar niðurstöður af rann-
sóknum, sem gerðar hafa verið á
sambandi næringar og gigtar, og
að tugir gigtarmeðferðarstöðva í
Evrópu beiti náttúrulækningaað-
ferðum undir stjórn lækna með
óvenju góðum árangri. í bók sinni
segir hann frá árangursríkum gigt-
arlækningum í Svíþjóð. Hann heim-
sótti þar rannsóknarstöðina Alfa
Clinic í Norður-Svíþjóð þar sem gigt
er læknuð með góðum árangri. Hann
skorar á læknastéttina að kynna sér
þessar aðferðir. Þetta er mjög fróð-
leg bók og aðgengileg fyrir almenn-
ing. Hún útlistar hversu auðvelt það
er að læknast af gigt svo fremi að
liðir og líffæri hafí ekki hlotið varan-
lega áverka og afmyndun.
T.C. Fry, Dr. Shelton og félagar
koma víða við. Þeir útskýra þá al-
mennu röskun á líkamsstarfseminni,
sem leiðir til gigtar og annarra
hrömunarsjúkdóma eða „menning-
arsjúkdóma". Rekja þeir ýmsar hug-
myndir og lækningaaðferðir sem
reynst hafa árangurslausar til lækn-
inga á gigt, en lýsa jafnframt auð-
veldum aðferðum til lækninga á gigt
sem þúsundir Bandaríkjamanna
hafa þegar reynt með góðum
árangri. Ahugamenn um þessar að-
ferðir hafa sett upp meðferðarstöðv-
ar víðsvegar um Bandaríkin, þar sem
fólk fær fræðslu og leiðbeiningar til
að taka upp nýjan lífsstíl og árangur-
inn er mjög góður. Höfundar leggja
áherslu á að eina ráðið við gigt sé
að losna við hana og aðferðin er
ótrúlega einföld, nánast barnaleikur.
Þetta ættu að vera góðar fréttir fyr-
ir heilbrigðisyfírvöld, sem nú glíma
við að fjármagna okkar dýra heil-
brigðiskerfi. Ef spara má útgjöld
vegna gigtarlyfja með jafngóðum
árangri og bókarhöfundar lýsa, er
fundinn möguleiki til spamaðar í
útgjöldum ríkisins.
Höfundur er skólastjóri
Heilsuskólans sf.
VASKHUGI
Nú er rétti tíminn til að bæta vinnuumhverfið þitt svo um mun-
ar. Með Vaskhuga uppfyllir þú ekki aðeins kröfur hins opinbera
um skattskil, heldur er staða rekstrarins alltaf á hreinu.
Vaskhugi er eitt forrit með öllum kerfum, sem venjulegur rekstur
þarfnast, þ.e. sölukerfi, fjárhagsbókhaldi, birgða-, viðskipta-
manna- og verkefnabókhaldi, hefti, ritvél og mörgu fleira. Tugir
gagnlegra skýrslna sýna sölusögu, útistandandi kröfur, skulda-
stöðu, virðisaukaskatt o.fl. o.fl.
Vaskhugi prentar sölureikninga, gíróseðla, póstkröfur, víxla, lím-
miða o.s.frv. Allt þetta fæst með einföldum skipunum.
Og það besta er að Vaskhugi kostar aðeins 48.000 kr. Prófaðu
Vaskhuga í 15 daga án skuldbindinga. Hringdu og fáðu sendar
upplýsingar um þetta frábæra forrit, eða komdu við og skoðaðu
möguleikana.
Vaskhugi hf.
Grensásvegi 13, sími 682680, fax 682679.
SKRIFSTOFUTÆKNI
Tölvuskóli Reykjavíkur hjálpar þér að auka þekk-
ingu þína og atvinnumöguleika, hvort heldur sem
er á lager, skrifstofu eða í banka. Þú lærir á vinsæl-
ustu Windowsforrit PC-tölvunnar og kynnist Mac-
intoshtölvunni. Þar að auki lærirðu almenna skrif-
stofutækni, bókfærslu, tölvubókhald, verslunar-
reikning og tollskýrslugerð.
Innritun fyrir vorönn stendur yfir.
Hringdu og fáðu sendan ókeypis bækling.
Flj Tölvuskóli Reykiavíhor
Lv.v.v.-.v.vi Bi Borgartúni 28, sími 91-687590