Morgunblaðið - 13.01.1993, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
Vegaeftirlitið fylgist með færð o g samræmir snjómokstur um allt land
Miklar annir við
snjómokstur eftir
óveðrið í vikunni
ÞEGAR snjóþyngsli og vetrarhörkur herja á landsmenn er oft
ekki auðvelt að komast á milli staða. Vindur og snjór sjá til
þess að þarfasti þjónn nútímasamfélagsins, bíllinn, situr fastur
í sköflum og kemst hvorki aftur á bak né áfram. Þegar slík
ófærð rfldr er það verkefni starfsmanna Vegaeftirlitsins hjá
Vegagerð ríkisins að fylgjast með ástandi vega og samræma
snjómokstur um allt land. I veðri eins og hefur gengið yfír
undanfarna daga hefur því verið mikið um að vera hjá vegaeft-
irlitsmönnum.
Morgunblaðið/Sverrir
Hjörleifur Ólafsson, Sigurður Hauksson og Karl Ásgrímsson hjá
Vegaeftirlitinu fylgjast með færðinni.
Þegar blaðamaður Morgun-
blaðsins heimsótti stjórnstöð
Vegæftirlitsins í Reykjavík var
nóg að gera. Snjómokstur í gangi
og starfsmenn stjómstöðvarinnar
þess vegna í stöðugu sambandi
við stjómstöðvar í öðram lands-
hlutum til þess að samræma að-
gerðir og safna upplýsingum um
ástand vega. Einnig höfðu þeir
nóg að gera við að svara fyrir-
spumum fólks um færð á vegum,
en hægt er að hringja í umdæma-
stöðvar um allt land til þess að
fá slíkar upplýsingar alla daga
vikunnar. Hefur Vegaeftirlitið í
Reykjavík græn númer sem hægt
er að hringja í til þess að fá upp-
lýsingar um færð.
Með veðurathugunarstöðvar
á Hellis- og Holtavörðuheiði
Að sögn Hjörleifs Ólafssonar,
forstöðumanns Vegaeftirlitsins,
er starfsemin stöðugt að verða
tæknivæddari. Vegaeftirlitið hef-
ur 21 sijómstöð um allt land sem
hafa samtengt tölvukerfi. Þetta
tölvukerfi gerir Hjörleifí kleift
að sjá nýjustu upplýsingar um
ástand vega í öllum landshlutum
á einfaldri slgámynd. í tölvunni
koma einnig fram upplýsingar
frá sjálfvirkum Þessar sjálfvirku
stöðvar safna bæði vitneskju um
veður og bflaumferð. Vegaeftir-
litið hefur nú tvær slíkar stöðv-
ar, eina á Hellisheiði og aðra á
Holtavörðuheiði, en stefnt er að
því að opna brátt þá þriðju á
Óxnadalsheiði. Hjörieifur sagði
að auk stöðvanna tveggja hefði
Vegaeftirlitið aðgang að sjálf-
virkri veðurathugunarstöð Veð-
urstofunnar á Breiðdalsheiði.
Að sögn Hjörleifs hefur Vega-
eftirlitið mikið samstarf við Qöl-
miðla, bæði útvarpsstöðvar og
dagblöð, til þess að koma upplýs-
ingum um færð á framfæri. Nú
er einnig hægt að fá slíkar upp-
lýsingar í textavarpi sjónvarps-
ins.
Hjúkrunar-
fræðingar
og ljósmæð-
ur hætta
Iljúkrunarfræðingar og ljós-
mæður á Landspítalanum hafa
ákveðið að leggja niður störf 1.
febrúar samkvæmt samnings-
bundnum þriggja mánaða upp-
sagnarfresti þó svo að heilbrigðis-
ráðherra hyggist beita ákvæði um
framlengingu uppsagnarfrests.
Starfsmennirnir hafa aflað sér
lögfræðilegs álits á því ef ákvæð-
inu verði beitt og samkvæmt því
á það aðeins við um skipaða emb-
ættismenn rfldsins.
Auður Guðjónsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur á Landspítalanum, sagði
að hjúkrunarfræðingar og ljósmæður
hefðu einróma samþykkt að ganga
út 1. febrúar samkvæmt samningi
um þriggja mánaða gagnkvæman
uppsagnarfrest á fjölmennum fundi
á spítalanum á mánudag.
Hún sagði að kröfur starfsmann-
anna væra af tvennum toga. Annars
vegar væri farið fram á endurmat á
niðurröðun í launaflokka og hins
vegar að greiðslur fengjust fyrir
verkefnavinnu og væri það sambæri-
legt við ýmsa aðra hópa innan Ríkis-
spítalanna.
Þess má geta að hjúkrunarfræð-
ingar og ljósmæður á Landspítalan-
um era 417 talsins.
------» -♦-----
Jökuldalur
Símasam-
band komið á
Vaðbrekku, Jökuldal.
VIÐGERÐARMENN Pósts og
síma á Egilsstöðum brutust á tor-
færujeppa í Hákonarstaði á Jök-
uldal í gær og tókst að gera við
bilunina í símstöðinni þar. Er nú
aftur komið á símasamband við
alla bæi á Efri-Jökuldal.
Allir vegir era ófærir nema fyrir
sérútbúna torfærajeppa. Enginn
skóli hefur verið á Skjöldólfsstöðum
þessa vikuna vegna ófærðarinnar.
Skólinn opnar þegar vegir verða
ruddir. Sig.Að.
Morgunblaöið/Ragnar Axelsson
Ófærð er oft mikfl á Hellisheiðinni eins og eigandi þessa bfls komst að raun um, en þó hefur heið-
in ekki lokast i heilan dag síðustu tvö árin.
Millilandaflug í samt lag
1.100 farþegar af-
greiddir á 1V2 stund
Einvígið Short—Timman
Afleíkjasúpa á Spání
Miklar annir voru við afgreiðslu
farþega á Keflavíkurflugvelli í gær
eftir erfíðleika vegna óveðurs á
mánudag. Um tvö þúsund og tvö
hundrað farþegar fóru í ellefu vél-
um til áætlunastaða í Evrópu og
Bandarikjunum. Á einum og hálf-
um tíma, frá klukkan 7.30 til 9,
vora um eitt þúsund farþegar af-
greiddir. Að sögn Einars Sigurðs-
sonar, blaðafulltrúa Flugleiða,
gekk flugið vel, enda gott flugveð-
ur. Tveggja klukkutíma seinkun
varð þó á Norður-Atlantshafsflugi
og eins tíma seinkun á flugi tii
London. Myndin var tekin þegar
bflastæðin við Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar vora radd í gær.
Skák______________
Margeir Pétursson
JAN Timman tók óvænt for-
ystuna í úrslitaeinvígi í áskor-
endakeppninni er hann vann
Nigel Short I annarri skákinni
í Escorial á Spáni í fyrrakvöld.
Fáheyrð þrautaganga Timmans
var þar með á enda, hann hafði
ekki unnið skák í nokkra mán-
uði, þar tfl hann vann Short í
gærkvöldi hafði hann tapað átta
af síðustu tólf skákum sínum og
gert fjögur jafntefli. Tafl-
mennskan í fyrstu tveimur skák-
unum hefur ekki verið burðug,
hefðu þeir Fischer og Spasskí
sýnt ámóta tilþrif í haust hefði
verið talað um aflóga öldunga
og útbrunnin skör.
Svo virðist sem Short sé í
sýnu lakara formi en Timman. !
fyrstu skákinni á sunnudaginn
fórnaði Engiendingurinn peði í vit-
ieysu, en Timman hélt illa á spöð-
unum, flækti taflið að óþörfu og
eftir afleiki á báða bóga í tíma-
hraki endaði skákin með jafntefli.
í 2. skákinni á mánudag hafði svo
Short hvítt og þræddi lengi vel
troðnar slóðir spánska leiksins,
e.t.v. gestgjöfunum til heiðurs. En
fljótiega eftir að út úr bókunum
var komið urðu honum á herfíleg
mistök, hann lék af sér manni og
mátti gefast upp. Sú skák varð því
hvorki fugi né fiskur.
Margir fóra mjög niðrandi orð-
um um taflmennsku þeirra Fisc-
hers og Spasskís í seinna einvígi
þeirra í haust, þ. á m. heimsmeist-
arinn, en annar eins viðvanings-
bragur á báða bóga sást þó aldrei
eins og í tveimur fyrstu skákunum
í Escorial. Þótt þeir Karpov og
Kasparov hafi teflt tæplega 150
skákir í heimsmeistaraeinvígjum
sínum hefur ekki ein einasta þeirra
verið svona léieg.
Hvítt: Jan Timman
Svart: Nigel Short
Drottningarbragð
I. d4 - d5 2. c4 - e6 3. Rc3 -
Rf6 4. Bg5 - Be7 5. e3 - 0-0
6. Rf3 — h6 7. Bh4 - b6 8. Be2
— Bb7 9. Bxf6 — Bxf6 10. cxd5
— exd5 11. b4 — c6
Tvívegis á síðasta ári lék Short
II. — c5 í þessari vel þekktu stöðu
úr Tartakover-afbrigðinu og tapaði
báðum skákunum. Það kemur ekki
óvart að Timman reyni að höggva
í sama knérann.
12. 0-0 - He8 13. Db3 - a5 14.
b5 — c5 15. dxc5 — bxc5 16.
Hacl — Bxc3 17. I)xc3 — Rd7
18. Hc2 - Db6 19. Hdl - He7
20. h3 - Hae8 21. Db2 - a4 22.
Kfl — Da5 23. Da3 - d4?!
Hvíta staðan er þægilegri, en
það var þó engin ástæða til örvænt-
ingar. Þessi peðsfóm sem stenst
engan veginn kemur því mjög á
óvart. Short hlýtur annaðhvort að
hafa yfirsést 25. leikur Timmans,
eða þá að hann hefur talið sig
geta fylgt peðsfóminni eftir á ann-
an hátt, en svo skipt um skoðun.
24. exd4 — Be4
Aðrar leiðir virðast ekki skárri:
24. - Hxe2 25. Hxe2 - Dxb5 26.
Dd3! - Dxd3 27. Hxd3 - Hxe2
28. Kxe2 - Ba6 29. Kd2! með
vinningsstöðu í endatafli, eða 24.
- Bxf3 25. Dxf3 - cxd4 26. Dd5!
og vinnur peð, en ekki 26. Hxd4?
- Dxb5!
25. Dc3! - Da8 26. Hcd2 - cxd4
27. Hxd4 - Rf6
Hvítur er sælu peði yfír í þess-
ari stöðu og svartur hefur ekkert
mótspil. Hvítur gæti þess vegna
leikið 28. Kgl!? og treyst stöðu
sína enn frekar.
28. Da3?! - Db7 29. Hd8
Það kom til greina að krækja
sér í annað peð með 29. Dxa4.
Svartur hefur þó mótspil, eftir 29.
- Bd5 er hægt að svara bæði 30.
H4d2 og 30. Hld2 með 30. -
Re4!, auk þess sem 29. — Rd5
kemur til álita.
29. - Rd5 30. Hxe8+ - Hxe8
31. Bc4?!
Það er furðulegt að hvítur skuli
reyna sókn í stöðunni, en svartur
er kominn með visst frumkvæði
vegna hótunarinnar 31. — Rf4. 31.
g3 virðist best.