Morgunblaðið - 13.01.1993, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
Grammy-verðlaunin veitt á morgnn
Eric Clapton oft-
ast tilnefndur
GÍTARISTINN Eric Clapton hefur verið tilnefndur til níu Grammy-
verðlauna, árlegra óskarsverðlauna tónlistarmanna í Bandaríkjun-
um. Á morgun, fimmtudag, kemur í ljós hvort hann stendur und-
ir nafni sem Grammy-kóngur en enginn kemst með tærnar þar
sem hann hefur hælana hvað varðar fjölda tilnefninga.
Alls er 80 flokkar Grammy-
verðlauna en meira þykir til 35
þeirra koma en annarra. Clapton
er tilnefndur í níu þeirra. Nýjasta
plata hans, „Unplugged" eða
ótengdur, er margsinnis tilnefnd
og einnig lagið „Tears In Heaven“
sem hann samdi í minningu ungs
sonar síns, Conor, sem beið bana
er hann féll út um glugga á skýja-
kljúf á Manhattan.
Næst Clapton að tilnefningum í
heldri flokknum er sveitasöngvar-
inn Billy Ray Cyrus og soul-drottn-
ingin Celine Dion með fjórar til-
nefningar.
Michael Jackson er tilnefndur
til þrennra Grammy-verðlauna og
svo er einnig um Peter Gabriel og
Vanessu Williams en Annie
Lennox, U2 og Bruce Springsteen
verða að gera sér tvennar tilnefn-
ingar að góðu.
Reuter
Braer orðið að braki
Hlutar af yfirbyggingu olíuskipsins Braer sjást hér á reki við Hjalt-
land, hvor í sína áttina, en skipið brotnaði í sundur í óveðrinu sem
þama geisaði enn í gær. Að sögn björgunarmanna er mjög lítið
eftir af olíu í tönkum skipsins en farmurinn var um 85.000 tonn.
Veðurfarið kemur að mestu í veg fyrir að hægt sé að hreinsa olíuna
úr §ömrn eyjaklasans.
Mikil óánægja með fjárlagastefnu sænsku ríkisstjórnarinnar
Hætta á allslierj arverk-
falli í fyrsta sinn í áratugi
Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunbladsins.
Í FYRSTA skipti eftir stríð er nú hætta á að allsherjarverkfall
skelli á í Svíþjóð. Hafa verkalýðsfélögin hvatt hinar tvær milljónir
sænskra verkamanna til að leggja niður vinnu í mótmælaskyni við
efnahagsstefnu ríkisstjómarinnar og atvinnumáiastefnuna.
Dropinn sem endanlega fyllti
mælinn, í augum verkalýðsfélag-
anna, var íjárlagafrumvarp ríkis-
stjómarinnar sem Anne Wibble
Danir og Maastricht
Nýttþjóð-
aratkvæði
í lok apríl
Kaupmannahöfn. Reuter.
POUli Schliiter forsætisráð-
herra Danmerkur lagði í
gær til að nýtt þjóðarat-
kvæði um Maastricht-sam-
komulagið færí hugsanlega
fram 27. apríl næstkomandi.
Danska þingið verður að
samþykkja kosningadaginn og
liggur ekki fyrir hvort nokkrir
stjómarandstöðuflokkar, sem
styðja samkomulag sem stjóm
Schliiters hefur náð um sér-
staka viðauka fyrir Dani við
Maastricht-sáttmálann, geti
fallist á að þjóðaratkvæðið fari
fram svo snemma. Flokkamir
sjö sem lýst hafa stuðningi við
viðaukana, er losa Dani undan
vissum ákvæðum Maastricht-
samkomulagsins á sviði vam-
ar- og gjaldeyrismála, komu í
gær saman til þess að semja
lagafrumvörp sem varða sam-
komulag Dana við EB.
Það gæti haft áhrif á fram-
gang málsins og hugsaniegt
þjóðaratkvæði að væntanlega
verður birt á morgun, fímmtu-
dag, skýrsla um niðurstöður
rannsóknar á Tamílamálinu
svokallaða en ráðherrar eru
sakaðir um að hafa brotið rétt
á tamflskum flóttamönnum.
Þess er beðið með mikilli eftir-
væntingu hvort Schliiter verð-
ur hreinsaður af ásökunum um
að hafa logið að þinginu um
eðli Tamflamálsins. Hugsan-
legt er talið að birting skýrsl-
unnar gæti leitt til stjóm-
arkreppu og jafnvel falls
stjómar Schluters.
fjármálaráðherra lagði fram í
sænska þinginu á mánudag. í
frumvarpinu er gert ráð fyrir að
hallinn á yfirstandandi fjárlagaári
verði um 200 milljarðar sænskra
króna en nær 170 milljarðar á því
næsta, sem hefst í júlí.
Á fundi í Timrá fyrir utan Sund-
svall hvatti Leif Blomberg, formað-
ur hins volduga sambands málm-
iðnaðarmanna í Svíþjóð, félög sín
til að undirbúa allsheijarverkfall.
Enn hefur ekki verið ákveðið
hversu langt verkfallið verður né
heldur hvenær það muni hefjast.
Að öllum líkindum verðu vinna lögð
niður í einn dag eða þá i 6-8
klukkustundir einhvem tímann í
lok janúar eða byijun febrúar þeg-
ar fjárlaganefnd þingsins tekur
fjárlagafrumvarpið og önnur fmm-
vörp um efnahagsmál og atvinnu-
mál sem þá liggja fyrir til meðferð-
ar.
Dagblöð vora í gær mjög nei-
kvæð í garð fjárlagastefnu ríkis-
stjómarinnar og gagnrýndu hana
fyrir að gera of lítið til að skapa
ný atvinnutækifæri. Atvinnuleysi í
Svíþjóð er nú um 7% sem þýðir
að um 400 þúsund Svíar era án
atvinnu. Við þá tölu bætast þeir
sem era í starfsþjálfun eða hafa
farið fyrr á ellilaun en venja er.
Alls era þvi um 700 þúsund manns
óvirkir á vinnumarkaðinum eða um
18% vinnufærra Svía en það er
hæsta hlutfall síðan byijað var að
skrá tölfræðilegar upplýsingar af
þessu tagi á fjórða áratugnum.
Ríkisstjómin tjáði sig ekki um
hótanir Blombergs í gær en
undir þær var tekið af stóram
verkalýðsfélögum m.a. hjá fyrir-
tækjum á borð við SKF, Volvo,
Saab, Ericsson og Stora.
Komið hefur fram tillaga um
að halda innan viku neyðarfund
ríkisstjómarinnar og aðila vinnu-
markaðarins og búist er við að
Carl Bildt forsætisráðherra taki
afstöðu til þess í dag eða á morgun
hvort af þeim fundi verði.
Skuldir sænska ríkisins nema
nú um 900 milljörðum sænskra
króna (yfír 8.000 milljörðum ÍSK)
og era árlegar vaxtagreiðslur um
95 milljarðar króna. Þetta er
stærsti einstaki útgjaldaliður ríkis-
ins og samsvarar þessi upphæð því
að hver tveggja bama fjölskylda
greiði ríkinu 400 þúsund sænskar
krónur árlega tii að brúa bilið.
Búist er við að skuldimar verði
orðnar meira en milljarður sæn-
skra króna næsta sumar.
Fjölmiðlar um Karl Bretaprins og Díönu prinsessu
Nýttu sér blöðín til að
knésetja hvort annað
Lundúnum. Reuter.
KARL Bretaprins og Díana
prínsessa voru í gær sökuð um
að hafa sjálf notfært sér breska
fjölmiðla til að koma höggi
hvort á annað og veitt þeim
upplýsingar um hjónabandserf-
iðleika þeirra. Breskir ritstjórar
og fréttaskýrendur sögðu að
þessar ásakanir drægju úr lík-
unum á því að tillögur sljórn-
skipaðrar nefndar um hömlur á
prentfrelsi næðu fram að ganga.
Ein af forsendum tillagnanna
var að vernda þyrfti einkalíf
háttsettra embættismanna og
konungsfjölskyldunnar.
McGregor Iávarður, formaður
siðanefndar sem fjallar um Ijöl-
miðla, sagði að Díana prinsessa
hefði veitt nokkrum dagblöðum,
einkum æsifréttablaðinu Sun, upp-
lýsingar um hjónabandserfiðleik-
ana áður en skilnaður hennar og
prinsins að borði og sæng var
kunngerður í desember. McGregor
gaf í sumar sem leið út harðorða
Karl
Díana
yfírlýsingu þar sem hann for-
dæmdi umfjöllun breskra æsi-
fréttablaða um ríkisarfahjónin en
sagði í viðtaii við breska útvarpið
BBC i fyrrakvöld að Díana hefði
sjálf kynt undir fréttaflutningnum.
„Það er mjög erfitt að fíalla um
kvartanir frá fólki, sem heldur því
fram að veist hafí verið að einka-
lífí þess, þegar það ber sjálft
ábyrgð á athæfínu," sagði hann.
Fjölmiðlar komist fyrst á snoðir
um ásakanir McGregors þegar þeir
komust yfír bréf sem hann sendi
sir David Calcutt, sem stjómar
rannsókn á fréttaflutningnum um
ríkisarfahjónin. Bréfinu var lekið
til dagblaðsins The Guardian og
þar segir að Karl prins hafí einnig
notfært sér blöðin til að koma
höggi á prinsessuna.
I bréfinu kemur ennfremur fram
að John Major forsætisráðherra
fékk árið 1991 upplýsingar um
þátt ríkisarfahjónanna í frétta-
flutningnum. Talsmaður Elísabet-
ar Bretadrottningar vísaði því ít-
rekað á bug að hjónin ættu hlut
að máli. „Við sjáum nú að þeir,
sem sögðu ósatt og veittu jafovel
McGregor sjálfum rangar upplýs-
ingar, vora embættismenn Breta-
drottningar," sagði ritsljóri
Sunday Times.
Dagblöð og þingmenn sijómar-
andstöðunnar sögðu að upplýs-
ingar McGregors gætu dregið úr
samúð almennings með ríkisarfa-
hjónunum og kynt undir kröfum
um að konungdæmið yrði lagt nið-
ur.
Vinsældir
Havels
dvína
VINSÆLDIR Vaclavs Havels
hafa dvínað en hann nýtur þó
lang mests trausts til þess að
taka við starfí forseta Tékkn-
eska lýðveldisins, samkvæmt
skoðanakönnunum. Nýtur hann
stuðnings 45% þjóðarinnar mið-
að við 60% fylgi i júlí sl. Næst-
ir honum að vinsældum koma
Vaclav Klaus forsætisráðherra
með 3% og sama fylgi hefur
Milan Sladek, leiðtogi Lýðveld-
isflokksins, flokks hægrisinn-
aðra öfgamanna.
Hvenær er
frönsk mynd
ekki frönsk?
DEILA blossaði upp á meðal
kvikmyndaleikstjóra í Frakk-
landi á mánudag þegar kvik-
myndaakademían úrskurðaði
að ekki mætti tilnefna kvik-
myndir til Sesars-verðlaunanna
nema talið væri franska. Tveir
af þekktustu kvikmyndaleik-
stjórum landsins, Jean-Jacques
Annaud og Claud Berri, sögðu
sig úr akademíunni vegna þess-
arar ákvörðunar. í fyrra vora
nokkrar af helstu kvikmyndum
franskra leikstjóra, leikara eða
framleiðenda með ensku tali.
Umbótasinn-
aður sjón-
varpssljóri
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, hefur skipað Valeríj
Bragín, atkvæðamikinn þing-
mann úr röðum umbótasinna,
í embætti yfirmanns helstu
sjónvarpsstöðvar Samveldis
sjálfstæðra rfkja. Bragín er
einn af hörðustu andstæðingum
Rúslans Khasbúlatovs, forseta
rússneska þingsins og erki-
fjanda Jeltsíns.
Richard Mort-
ensen iátinn
DANSKI listmálarínn Richard
Mortensen lést í gær eftir lang-
varandi veikindi á heimili sínu
í Hróarskeldu á 83. aldursári.
Hann var einn af framkvöðlum
óhlutbundinnar málaralistar í
Danmörku.
Kvasov yfir
ráðuneytunum
VIKTOR Tsjemomyrdín, for-
sætisráðherra Rússlands, hefur
skipað gamlan samstarfsmann
sinn, Vladímír Kvasov, í emb-
ætti yfírráðuneytisstjóra
stjómarinnar, sem er mjög
áhrifamikið. , Kvasov starfaði
fyrir ríkisgasfyrirtækið Gaz-
prom sem Tsjemomyrdín
stjómaði 1985-92.
Fékk lifur úr
bavíana
LJFUR úr bavíana var sett í
62 ára sjúkling í Pittsburgh-
háskóla í Bandaríkjunum á
mánudag og er þetta í annað
sinn sem slík aðgerð er fram-
kvæmd. Hinn lifrarþeginn lést
af völdum hjartaáfalls í septem-
ber, rúmum tveimur mánuðum
eftir aðgerðina.