Morgunblaðið - 13.01.1993, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANUAR 1993
21
British Airways viðurkennir
að hafa starfað óheiðarlega
Branson og Virg-
in-flugfélagið fá
háar skaðabætur
London. Daily Telegraph.
BRESKA flugfélagið British Airways (BA) beið hnekki á mánudag
er það neyddist til að biðja Richard Branson forstjóra og eigandi
Virgin-flugfélagsins afsökunar opinberlega og lýsa yfir því að óheiðar-
lega hefði verið staðið að áróðursstríði á hendur honum og félagi hans.
EFNAVOPN I HEIMINUM
Undirritun Efnavopnasáttmálans, sem kveöur á um bann viö framleiösiu, geymslu og notkun efnavopna hefst í París t dag.
Oll ríki heims, aö arabarikjunum undanskildum, undirrita þetta tfmamótasamkomulag á vegum Sameinuðu þóöanna sem
er fyrsta afvopnunarsamkomulagiö um algjöra útrýmingu ákveöinnar tegundar gjöreyöingarvopna.
Norður-
Kórea
Dómssátt náðist í skaðabótamáli
sem Branson höfðaði á hendur Brit-
ish Airways. Samkvæmt henni
féllst British Airways á að biðja
hann skilyrðislaust afsökunar opin-
berlega. Varð BA jafnframt að
greiða Branson 500.000 pund, eða
50 milljónir ÍSK, og Virgin 110.000
pund í bætur. Jafnframt varð Brit-
ish Airways að borga málskostnað
beggja, um þijár milljónir punda
eða 300 milljónir ÍSK.
Með dómssáttinni sleppur British
Airways við margra mánaða réttar-
höld sem hefðu getað skaðað félag-
ið og fráfarandi forstjóra þess King
lávarð enn meira vegna uppljóstr-
ana sem því hefðu fylgt.
Branson stefndi félaginu fyrir
lævísan og lágkúrulegan áróður.
Steininn tók úr er grein birtist í
tímariti sem liggur frammi um borð
í þotum BA þar sem því var haldið
fram að Branson hefði tryggt sér
fjölmiðlaumfjöllun um félag sitt
með röngum ásökunum um að Brit-
ish Airways reyndi að klekkja á
sér. í ritinu birtist og sérstakt ávarp
í þessa veru frá King lávarði.
Öllum brögðum beitt til að
losna við samkeppni
í ljós hefur komið að British
Airways fékk með ólögmætum
hætti aðgang að tölvukerfi Virgin,
félagið dreifði villandi sögum um
keppinautinn til fjölmiðla og reyndi
að tæla farþega Virgin til sín með
því að láta starfsmenn sína gefa
sig á tal við þá á flugvöllum eða
hringja heim í þá með gylliboðum
gegn því að skipta um flugfélag.
Ennfremur kom í ljós við rannsókn
málsins að British Airways hafði
Iátið eyða ýmsum skjölum um sam-
keppnina við Virgin í þeirri von að
hylma yfir sannleikann.
Richard Branson brosti út að
eyrum er hann gekk út úr dóms-
salnum. Hvatti hann stjómvöld til
þess að láta málið til sín taka, það
gæfi góða vísbendingu um hversu
langt British Airways virtist tilbúið
að ganga til þess að losa sig við
samkeppni.
Suður-
Kórea
Bandaríkin: 31.400 tonn
Rússland: Um 40.000 tonn
irak: Sameinuöu þjóöirnar
vinna aö eyöingu allra
efnavopna rikisins
\ Suður- A IXI
| éuk 1 Afrika Mósambík | AA
Búrma
Sögulegt samkomulag um eyðingn efnavopna undirritað í París
Arabar neita aö undirrita
vegna kjarnavopna Israela
Hörðustu eftirlitsákvæði í sögu afvopnunar
París. Reuter.
FULLTRÚAR að minnsta kosti 115 ríkja koma saman í París í dag
til að undirrita samkomulag á vegum Sameinuðu þjóðanna um
bann við framleiðslu, geymslu og notkun á efnavopnum. Þetta er
fyrsti samningurinn sem kveður á um algjöra útrýmingu á tiltek-
inni tegund gjöreyðingarvopna. Undirritunarathöfnin mun standa
í þrjá daga. Það eina sem varpar skugga á þessa stund er að leið-
togar arabaríkjanna hafa lýst því yfir að þeir hyggist ekki undir-
rita samninginn. Telja arabar óréttlátt að samningurinn nái einung-
is til efnavopna á meðan ljóst þykir að ísraelar ráði yfir kjarnorku-
vopnum.
Það er einnig nýmæli í samn-
ingnum að í fyrsta skipti er í af-
vopnunarsáttmála ákvæði um að
eftirlitsmenn megi kanna hvort
samningnum sé framfylgt hvar
sem er, hvenær sem er án þess
að viðkomandi ríki eigi nokkum
rétt á að bera upp mótbárur.
Sett verður á laggimar sérstök
eftirlitsstofnun, með aðsetur í
Haag, og geta eftirlitsmenn á
hennar vegum krafíst þess að
skoða allar þær efnaverksmiðjur
eða aðra staði þar sem granur leik-
ur á að efnavopn séu framleidd eða
geymd. „Eftirlit með þessum
samningi verður það víðtækasta
og strangasta sem nokkum tímann
hefur verið samþykkt í sögu af-
vopnunar," sagði Ronald Lehman,
forstjóri bandarísku afvopnunar-
stofnunarinnar.
Einungis fulltrúar þeirra ríkja,
sem hyggjast undirrita samning-
inn, mega taka til máls á fundin-
um. Líbýumenn og Kúveitbúar era
einu arabaríkin sem senda fulltrúa
en þeim er einungis ætlað að hlýða
á umræður. Stjómarerindrekar
segja ljóst að íranir, sem granaðir
era um að hafa framleitt efna-
vopn, ætli að undirrita samninginn.
Einungis þijú ríki, Bandaríkin,
Rússland og Irak, viðurkenna opin-
berlega að efnavopn sé að finna í
vopnabúram þeirra. Vestrænir
vopnasérfræðingar telja hins vegar
að minnst tuttugu ríki hafí efna-
vopn undir höndum eða séu með
áætlanir um framleiðslu þeirra.
Ekkert ríki sem undirritar samn-
inginn verður skyldugt til að gefa
upp hvort það eigi efnavopn en
þegar samningurinn byijar að taka
gildi árið 1995 verða þau að hefj-
ast handa við að eyða þeim.
Ég þakka öllum vinum og vandamönnum
hlýhug og vináttu á áttrceÖis afmœlisdegi mínum.
Níels Bjarnason,
Markholti 20, Mosfellsbæ.
Utanríkisráðheúraefni Clintons í vanda
Laug Christopher að
bandaríska þinginu?
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
GRUNSEMDIR um að Warren Christopher, utanríkisráðherraefni
Bills Clintons, verðandi Bandaríkjaforseta, hafi logið að þingnefnd
fyrir 13 árum er spurt var hvort hann hefði vitað af njósnum Banda-
ríkjahers um andstæðinga Víetnam-stríðsins á sjöunda áratugnum
munu verða ofarlega á baugi þegar utanríkismálanefnd öldungadeild-
ar Bandaríkjaþings hefur yfirheyrslur yfir honum i dag, miðviku-
dag. Yfirheyrslumar eru til að ákvarða embættishæfni Christophers
en þetta mál gæti stráð þymum á leið hans í utanríkisráðuneytið.
Öruggt má á hinn bóginn telja að þetta mál muni ekki koma í veg
fyrir að hann hijóti embættið.
Christopher var aðstoðardóms-
málaráðherra í forsetatíð Lyndons
B. Johnsons. Jimmy Carter skipaði
Christopher aðstoðaratanríkisráð-
herra eftir að hann var kjörinn for-
seti 1976 ogvarþað staðfest á þingi
eftir að hann hafði borið vitni fyrir
þingnefnd í janúar 1977. Kvaðst
Christopher þá hvorki hafa fyrir-
skipað né vitað af leynilegu eftirliti
hersins með fólki sem barðist fyrir
auknum mannréttindum og gegn
stríðinu í Víetnam.
AP-fréttastofan hefur nú hins
vegar birt skjal frá árinu 1968 þar
sem fjallað er um líkur á mótmælum
í Washington og þvi bætt við að
njósnasveit hersins „reiði sig á lög-
reglusveitir á staðnum um upplýs-
ingar en hafi einnig menn á sínum
snæram á svæðinu." Á skjalinu era
upphafsstafir Christophers með
hans rithönd. Þykir ósennilegt að
hann hafi kvittað án þess að lesa
skjalið. Utanríkismálanefndin sendi
þetta skjal ásamt nokkram öðrum
til herbúða Clintons með ósk um
að Christopher skilaði skriflegri
greinargerð fyrir daginn í dag.
William C. Triplett, helsti ráð-
gjafi nefndarinnar úr röðum repú-
blíkana, sagði í viðtali við AP að
stóra „spurningin [væri] hvort þessi
maður hefði logið að þinginu," og
bætti við að það hefði einnig verið
mergurinn málsins í Íran-Contra
hneykslinu.
George Stephanopoulos, tals-
maður Clintons, sagði á mánudag
að Warren Christopher hefði engu
við vitnisburð sinn frá árinu 1977
að bæta.
Ekki er talið að þetta mál sé
nógu alvarlegt til að koma í veg
fyrir að Bandaríkjaþing staðfesti
Christopher í embætti. Christopher
hefur hins vegar orð á sér fyrir að
vera maður grandvar þótt hann sé
sagður þurr á manninn og stífur
og var þess vænst að yfirheyrslurn-
ar yfir honum yrðu eins og vina-
fundur og staðfestingin formsatriði
um leið og sönnur fengjust á að
dómgreind Clinton í mannavali
væri óskeikul. Nú getur Christopher
vænst óþægilegra spurninga.