Morgunblaðið - 13.01.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
27
Mikið að gera á Akureyrarflugvelli þegar loks var hægt að fljúga norður
Þrír Fokkerar
lentu á liálftíma
ÞRJÁR Fokkerflugvélar sem komu frá Reykjavík lentu á Akur-
eyrarflugvelli á hálftíma í gær, en vegna veðurs hafði ekki verið
flogið milli þessara áfangastaða Flugleiða frá þvi á sunnudags-
kvöld. Fyrsta vélin lenti kl. 15 í gærdag, önnur kom flmmtán
mínútum siðar og sú þriðja strax í kjölfarið, eða kl. 15.30. Um
125 farþegar komu með vélunum þremur til Akureyrar en farþeg-
ar suður voru um 150 talsins. Þá var von á fjórðu flugvélinni frá
Reykjavík í gærkvöld.
Vegna veðurs féll allt flug nið-
ur á mánudag og ekki hægt að
fljúga fyrr en um miðjan dag.
Síðast var flogið milli Akureyrar
og Reylq'avíkur á sunnudags-
kvöld.
Tvær vélar Flugfélags Norður-
lands flugu til Vopnaíjarðar í gær
og þá komst ein vél til Raufar-
hafnar. Reyna átti undir kvöld í
gær að fljúga vélinni með farþega
til Þórshafnar, en að sögn starfs-
manns á Akureyrarflugvelli var
útlit ekki gott, leiðindaveður var
á Þórshöfn og ekki víst að tækist
að Ienda þar. Flugi til Kópaskers,
ísafjarðar og Grímseyjar var af-
lýst, en óvíst hvort tækist að
fljúga til Egilsstaða síðdegis f
gær.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Tæplega 300 manns um flugvöllinn á hálftíma
Örtröð myndaðist á AkurejTarflugvelli í gærdag, en á tímabilinu frá
klukkan þrjú til hálf Qögur lentu þijár Fokkervélar þar og fóru tæp-
lega 300 manns um völlinn á þeim tíma. Handagangur var í öskjunni
er fyrsta vélin kom norður og byijað var að afferma vélina áður en
síðustu farþegamir voru komnir firá boiði. Á minni myndinni eru syst-
umar Katrín og Hildur broshýrar að leik við Ásveginn. Skólahald
hefur fallið niður í grunnskólunum á Akureyri vegna veðurs og ófærð-
ar tvo síðustu daga.
Nauðungarsölum fasteigna
fjölgaði um 25 á síðasta ári
Mjólkur- og
brauðlaust
í Grímsey
Grímsey.
VÖRUSKORTS er farið að gæta
í Grímsey, en vegna veðurs
komst Eyjafjarðarferjan Sæfari
ekki hingað i gær m.a. með ,
mjólkurvörur sem fluttar eru til
eyjarinnar á þriðjudögum.
Vonskuveður hefur verið hér síð-
ustu daga og skólahald hefur fallið
niður síðustu tvo daga. Mikill skaf-
renningur hefur verið og rennur
jafnóðum í slóðir, en reynt er að
halda vegarspottanum okkar öku-
færum.
Ekki flogið
og ekkert róið
Ekkert er róið í þessu veðri sem
gengið hefur yfir og allir bátar í
höfn. í norðan- og norðaustanátt,
sem ríkjandi hefur verið síðustu
daga, er höfnin í skjóli og var ekki
vitað til þess að neitt tjón hefði
orðið á bátum vegna óveðursins.
Ekki hefur verið flogið hingað
síðan á laugardag og þá komst feij-
an Sæfari ekki út í eyju í gær, en
á þriðjudögum er jafnan komið með
mjólkurvörur og fleira. Engin mjólk
var því til í kaupfélaginu í gær og
þá var einnig orðið brauðlaust.
HSH
....-----------
-•c't
Pólskur
fiðluleik-
ari heldur
tónleika
PÓLSKI fiðluleikarinn Krizyszt-
of Smietana heldur tónleika í
safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju annað kvöld, fimmtudags-
kvöldið 14. janúar, og hefjast
þeir kl. 20.30.
Góðir dómar
Krizysztof Smietana er nú á tón-
leikaferð um landið og leiðbeinir
auk þess nemendum nokkurra tón-
listarskóla. Með honum í för er
Jerzy Tosik-Warszawiak, píanóleik-
ari, sem einnig er pólskur, en kenn-
ir nú við Tónlistarskólann í Borgar-
nesi.
Smietana fluttir til Englands árið
1980 og kennir nú við Guildhall
School of Music í London sem er í
hópi virtustu tónlistarháskóla. Hef-
ur hann fengið góða dóma fyrir
tónleika og hljómdiska í breskum v
blöðum og m.a. hefur hljómdiskur
sem hann hefur gefíð út verið val-
inn „hljómdiskur mánaðarins".
FLEIRI eignir voru seldar á nauðungaruppboði í fyrra en árið á
undan, en lokasala á lausafjármunum var svipuð bæði árin. Sam-
kvæmt upplýsingum Erlings Sigtryggssonar, fulltrúa sýslumanns,
var beðið um nauðungarsölur á 321 fasteign eða skipi á nýliðnu ári
og fóru lokasðlur fram á 65 eignum. Það er nokkru meira en var
árið 1991 þegar lokasölur fasteigna á nauðungaruppboði urðu 41
taisins.
Hvað varðar lausafjármuni komu
fram tæplega 300 beiðnir á liðnu
ári og endaði með sölu í 40 tilfell-
um, sem er svipað og var árið á
undan, að sögn Eyþórs Þorbergs-
sonar, fulltrúa sýslumanns.
3.500 lögreglumál
Að jafnaði eru tekin fyrir 3.300
til 3.500 lögreglumál hjá embætti
sýslumanns á ári, svo sem vegna
þjófnaðar, rúðubrota, hraðaksturs,
ölvunar og óspekta.
Á liðnu ári voru kveðnir upp hjá
sýslumanni 12 gjaldþrotaúrskurðir,
en skiptum var lokið í samtals 47
þrotabúum á árinu og þá voru 25
þrotabú framsend til héraðsdóms
Norðurlands eystra 1. júlí síðastlið-
inn þegar ný lög um gjaldþrota-
skipti tóku gildi.
Gefnar voru út 44 ákærur frá
1. júlí síðastliðnum og þá fól rikis-
saksóknari fulltrúa sýslumanns
flutning 20 sakamála sem til voru
komin fyrir þann tíma, auk þess
sem honum var falið að mæta í 10
eldri málum sem ekki var búið að
afgreiða áður en lögum var breytt.
Miklir samgöngnerfiðleikar víðast hvar norðanlands
Mokað að morgni — ófært síðdegis
UNNIÐ var að mokstri á Öxnadalsheiði um hádegisbil i gær
og var hún fær öllum bflum síðdegis. Landleiðin milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur var þó ekki fær, því þó mokað hefði
verið voru vegir á Holtavörðuheiði, í Langadal og yfir Vatns-
skarð aftur orðnir ófærir seinnipart dags.
Hjá vegaeftirlitinu á Akureyri
fengust þær upplýsingar að
vegna veðurs hefði mokstri verið
hætt á suðurleiðinni og mönnum
ráðlagt að vera ekki á ferðinni á
þessum slóðum.
Siðdegis var vegurinn frá
Akureyri til Dalvíkur opnaður, en
vonskuveður var og samkvæmt
upplýsingum vegaeftirlits var
búist við að hann yrði ófær að
nýju fljótlega aftur.
Víkurskarð væntan-
lega mokað í dag
Vegurinn inn í Eyjafjarðarsveit
var mokaður i gærmorgun og var
enn fært seinnipart dagsins þar
um og einnig var unnið að mokstri
frá Akureyri til Grenivíkur.
Stórhríð hefur verið á Víkur-
skarði í tvo daga og ekki vitað
hversu mikill snjór er þar, en
reiknað var með að snjóruðnings-
tæki yrðu send þangað í dag,
miðvikudag.