Morgunblaðið - 13.01.1993, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
Oskar Matthías-
son - Minning
Ég kynntist karlinum fyrst þegar
ég og Viðar Sigurjónsson, sonar-
sonur Óskars, fórum að kíkja í
heimsókn niður á Illó, eins og við
peyjamir kölluðum það, til að fá
kalda mjólk og heitar kökur og
fannst okkur frábært hvað karlinn
var alltaf skemmtilega grófur í tals-
máta og dró enga dul á skoðanir
sínar á mönnum eða málefnum.
Fyrir alvöru kynntist ég honum
þegar ég fór 13 ára gamall niður
á Illó að biðja h'ann um vinnu með
skólanum - í Nöf. Þar var hann
með saltfisk- og skreiðarverkun.
Mættu kl. eitt með gúmmígalla og
í stígvélum. Hvað maður var rogg-
inn með sjálfan sig er maður rölti
upp Illugagötuna kominn með vinnu
með skólanum. Það stóð nú ekki á
karlinum að borga okkur peyjunum
vel, við vorum á topp-kaupi, mun
hærra en tíðkaðist að borga í fisk-
vinnu og þegar kom að jólum mætti
hann heima hjá öllum er unnu hjá
honum og borgaði 20% bónus ofaná
alla vertíðarhýruna. Þegar maður
spurði af hveiju, stóð nú ekki á
svarinu: Ég seldi saltfiskinn svo vel
að það er lágmark að starfsfólkið
fái að njóta þess líka.
Já, svona var nú karlinn innrétt-
aður. Við peyjarnir sem unnum hjá
honum þurftum að fá frí til að
mæta í leikfími og sund og að sjálf-
sögðu fengum við frí, en hann var
nú ekki aldeilis ánægður með þessa
andsk... djöf... helv... kennara að
vera að skylda þessa peyja til að
mæta þama upp í íþróttahús til að
sprikla einhveija vitleysu, þegar öll
hús vom full af físki sem biði verk-
unar og að hans mati var það nú
aldeilis nóg leikfimi að salta niður
í stæður eða að pikka á bandið.
Oft var nú handagangur í öskj-
unni er húsið var fullt út úr dyrum
af fiski. Hvein þá stundum í karlin-
um ef honum fannst ekki allt ganga
nógu vel og bergmálaði þá htjúf
röddin um vinnslusalinn, en ef hann
var ánægður mætti hann kannski
seint að kveldi, öskraði stopp stopp
og bauð upp á kók og prins.
Hin seinni ár mundi hann alltaf
eftir peyjunum úr Nöfinni og ef
mann vantaði einhveija hjálp eða
greiða stóð nú ekki á honum að
aðstoða ef hann átti nokkurn mögu-
leika á því. Það er eftirsjá að mönn-
um eins og Óskari Matthíassyni því
karakterar eins og hann setja svo
sannarlega mark sitt á bæjarlífið í
bæ eins og Vestmannaeyjum.
Jóhann Freyr Ragnarsson.
ATVIN WMMMAUGL ÝSINGA R
Salaá
hjúkrunarvörum
Við viljum ráða nú þegar hjúkrunarfræðing í
hlutastarf við sölu á sérvöru til sjúkrastofnana.
★ Við sækjumst eftir aðila með menntun í
skurðstofuhjúkrun.
★ Æskilegur aldur er 25-40 ára.
Umsóknir sendist í pósthólf 5340, 125
Reykjavík, fyrir 20. janúar.
lyfja- og sérvörudeild.
Annan vélstjóra
vantar strax á 180 tonna línubát sem gerður
er út frá Patreksfirði.
Upplýsingar í símum 985-22323 og 94-1139.
LANDSPÍTALINN
Ríkisspítalar
Reyklaus vinnustaður
BARNASPITALI HRINGSINS
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR!
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á
barnadeild 1-lyflækningadeild frá 1. janúar
1993. Um er að ræða vaktavinnu. Einnig
vantar á fastar næturvaktir.
Hlutavinna kemur til greina.
Deildin er með 14 rúm og þjónar börnum
upp til 16 ára. Góður aðlögunartími með
reyndum hjúkrunarfræðingi, en fyrst og
fremst gott samstarfsfólk, sem lítur jákvætt
á starf sitt og finnst skemmtilegt í vinnunni.
Upplýsingar gefur Svana Pálsdóttir, hjúkrun-
ardeildarstjóri, sími 601020, eða Hertha W.
Jónsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri,
sími 601000/601033.
FÓSTRUR!
Staða fóstru er laus til umsóknar til 18. janú-
ar 1993. Staðan er afleysingastaða og veitist
í eitt ár.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt fyrir þá,
sem hafa áhuga á starfi með börnum á
ýmsum aldri.
Upplýsingar veitir Hertha W. Jónsdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri,
í síma 601000/601033.
RÍKISSPÍTALAR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaöur á íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og meö,
og leggjum megináherslu á þekkingu, kærleik og virðingu fyrir einstaklingn-
um. Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
RAÐAUGi YSINGAR
wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
KENNSLA
Þýskunámskeið Germaníu
Námskeiðin fyrir byrjendur og lengra komna
á öllum stigum hefjast á ný mánudaginn
18. janúar. Innritað verður á kynningarfundi
í Lögbergi, Háskóla íslands, stofu 102,
fimmtudaginn 14. janúar kl. 20.30.
Nýir þátttakendur eru vitaskuld velkomnir í
alla hópa.
Upplýsingar eru veittar í síma 10705
kl. 11-12.30 eða kl. 17-19.
Geymið auglýsinguna.
Fullorðinsfræðsla
Grunnskóli/framhaldsdeild
Grunnnám: Samsvarar námi í 8. og 9. bekk
grunnskóla.
Fornám: Samsvarar námi í 10. bekk
grunnskóla.
Heilsugæslubraut: 2 vetra sjúkraliðanám.
Viðskiptabraut: 2 vetra nám, sem lýkur
með verslunarprófi.
Menntakjarni: 3 áfangar kjarnagreina:
íslenska, enska, danska, stærðfræði - auk
þess eðlisfræði, vistfræði, félagsfræði, saga,
tjáning, stærðfræði 112 og 122, þýska,
hollenska, ítalska og rússneska.
Aðstoðarkennsla í stærðfræði og stafsetn-
ingu.
Kennsla hefst 18. janúar nk.
Innritun daglega í Miðbæjarskóla, Fríkirkju-
vegi 1, símar 12992 og 14106.
Skokknámskeið
Á námskeiðinu verður boðið upp á eftirfarandi:
1. Fyrirlestrar.
2. Æfingaáætlanir.
3. Þrekmælingar.
4. Stöðvaþjálfun.
Upphitun fer fram í leikfimisal, hlaupið úti,
teygjuæfingar og þrekhringur í sal að lokum.
Kennsla fer fram á mánudögum og fimmtu-
dögum kl. 17:15-19:15 og 19:15-21:15.
Kennsla hefst 18. janúar nk.
Kennari: Jakob Bragi Hannesson.
Upplýsingar og skráning í Miðbæjarskóla,
Fríkirkjuvegi 1, og í símum 12992 og 14106.
Aldrei of seint að láta drauminn rætast!
Húsnæði óskast
Ríkissjóður leitar eftir leigu eða kaupum á
íbúðarhúsnæði í Borgarnesi og á Sauðár-
króki.
Um er að ræða einbýlishús, par- og/eða rað-
hús, u.þ.b. 160-200 fm að stærð að meðtal-
inni bílgeymslu.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, bygg-
ingarár- og efni, fasteigna- og brunabóta-
mat, verðhugmynd og áætlaðan afhending-
artíma, sendist eignadeild fjármálaráðu-
neytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir
26. janúar 1993.
Fjármálaráðuneytið,
11. janúar 1993.
Byggingameistarar
- vetrarútsala
Dagana 12.-22. janúar gefum við 30-50%
afslátt af vinnupöllum, stigum, loftastoðum
og vélum.
Pallar,
Dalvegi 24, Kópavogi, sími 641020.
O HELGAFELL 5993011319
IVN 2
I.O.O.F. 9 = 1741138’/2 =
□ GLITNIFt 5993011319 I H&V.
I.O.O.F. 7 = 1741138'/2 =R.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænavika: Bænastund i kvöld
kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
ÉSAMBAND ÍSLENZKRA
w' KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60.
Gleðilegt ár!
Almenn kristniboðssamkoma í
kvöld kl. 20.30. Ræðumaöur
verður Benedikt Arnkelsson.
Allir velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Ungt fólk
(SfíJ með hlutverk
^wííSI YWAM - ísland
Fjögurra kvölda nám-
skeið um kristna trú
Leitað verður svara við spurn-
ingum sem þessum:
Hvernig á að biðja til að fá
bænasvar?
Hvernig getur trú mín orðið
meira lifandi?
Er hægt að treysta áreiðanleika
Biblíunnar?
Hvað með kristna trú gagnvart
öðrum trúarbrögðum?
Námskeiðið verður í safnaðar-
heimili Breiðholtskirkju (í
Mjódd). Kennt verður fimmtu-
dagskvöldin 14. 21. og 28. janú-
ar og 4. febrúar, frá kl. 20 til
22 hvert kvöld.
Kennarar verða Friðrik Schram
og séra Magnús Björnsson
auk Eivinds Fröen, sem mun
kenna fyrsta kvöldið.
Skráning og upplýsingar i síma
27460 (símsvari ef enginn er
við).