Morgunblaðið - 13.01.1993, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
31
fangsefni, sem fylgdu í kjölfarið,
færðu honum alþjóðlega viðurkenn-
ingu víða um lönd á þessu sviði.
Honum var oft boðið að halda fyrir-
lestra og stýra ráðstefnum erlendis,
en vísindaferill hans náði hápunkti,
þegar hann var útnefndur heiðurs-
doktor frá Háskóla íslands. Því
miður gafst honum ekki tími til að
ljúka umfangsmikilli ritgerð með
samantekt á öllum rannsóknaniður-
stöðum sínum, vegna heilablæðing-
ar, sem skerti hið mikla andlega
atgervi hans árið 1982.
Ófeigur var mikill vinur vina
sinna, eins og stór og tryggur vina-
hópur bar vitni um. En hann var
reiðubúinn að taka þátt í umræðum
um deilumál, ef honum fannst þró-
un þeirra taka ranga stefnu eða
hann var ósammála yfirlýstum
skoðunum. í slíkum skoðanaskipt-
um var hann bæði ákveðinn og
þraptseigur.
Ófeigur var bæði listunnandi og
listþekkjandi og hafði mikla list-
hæfíleika. Málaralistin var hans
mesta áhugamál og á því sviði var
hann mjög starfsamur. Áhugi hans
og þekking á húsagerðarlist, listiðn
og húsgögnum auk ljóðlistar er al-
kunna. Eins og margir íslendingar
hafði hann lifandi áhuga á móður-
málinu og þróun þess. Hann tók
jafnframt virkan þátt í umræðunni
um íslenska tungu.
Bömum okkar Önnu, þeim Unnu,
Ugga og Bjarka, var hann fyrir-
myndarafi. Þau elskuðu hann og
hann þau. Jólin voru alltaf sérstök
hátíð, þegar amma og afi komu í
heimsókn og sumarfríanna heima
hjá þeim var alltaf beðið með eftir-
væntingu. Það var Ófeigi mikið
kappsmál, að þau lærðu móðurmál
sitt og framfarir þeirra í íslensku
glöddu hann mikið.
í hjónabandinu með Unni átti
hann tryggan og handgenginn lífs-
förunaut. Síðustu tíu æviárin mót-
uðust af afleiðingum heilablæðing-
arinnar en einnig af aðdáunarverð-
um vilja til að vinna bug á fötlun
sinni. Velferð hans og vellíðan var
ætíð efst í huga Unnar og hér naut
hún tryggðar og stuðnings fjöl-
skyldu og góðra vina.
Önnu og mér var hann góður
faðir og tengdafaðir.
Allt líf Ófeigs var auðugt og ein-
kenndist af mikilli lífsgleði hans.
Við munum öll sakna hans.
Blessuð sé minning hans.
Viggo H. Balle.
Ófeigur J. Ófeigsson, tengdafaðir
minn, lést á Droplaugarstöðum hinn
2. janúar sl. Ófeigur var fæddur
12. maí 1904 á Brunnastöðum á
yatnsleysuströnd, sonur hjónanna
Ófeigs Ófeigssonar frá Fjalli á
Skeiðum og Jóhönnu Frímannsdótt-
ur frá Hvammi í Langadal. Ófeigur
átti sjö systkini sem komust til full-
orðinsára, bræðuma Tryggva, Ólaf,
Björn og Guðmund og systumar
Jóhönnu, Þórdísi og Önnu.
Ófeigur ólst upp í Leirunni við
kröpp kjör með foreldrum sínum
og systkinum. í hörku lífsbarátt-
unnar suður með sjó öðlaðist hann
þá ótrúlegu seiglu er einkenndi
hann alla tíð. Strax sem barn ein-
setti Ófeigur sér að verða læknir
og dagdraumar hans á yngri árum
snerust um það hvemig hann skyldi
lækna sérhvert mannanna mein. I
Leirunni lærði hann líka að vinna
fyrir sér og var kominn á sjó fjórt-
án ára gamall. Ófeigur braust til
náms þrátt fyrir fátæktina og
margt væri honum andstætt.
Berklaveiki á menntaskólaárunum
stöðvaði hann ekki og hann lauk
stúdentsprófi úr Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1927. Læknaprófi
frá Háskóla íslands lauk hann árið
1933. En þá var róðurinn farinn
að léttast hjá Ófeigi og hann fékk
styrk frá Kanadasjóði til framhalds-
náms í Winnipeg á áranum 1933-
1935 og þaðan hélt hann fyrstur
íslendinga til frekara náms á hinn
frægu Mayo Clinic í Minnesota í
Bandaríkjunum fram á sumarið
1937.
Jóhanna, móðir Ófeigs, var hon-
um afar kær. Hún veitti bömum
sínum sérlega gott vegamesti þrátt
fyrir bág skilyrði. Jóhanna kenndi
þeim ógrynni af þulum og Ófeigur
gaf margar þeirra síðar út í bók-
inni „Raula ég við rokkinn minn“
sem hann myndskreytti jafnframt.
Ófeigi kenndi hún einnig að meta
náttúruna og af henni lærði hann
nöfn jurta og hvemig skyldi hlúa
að gróðrinum. Ófeigur varð mikill
unnandi náttúrunnar og magnaður
skógræktarmaður. Um hann má
segja að hann hafi vart getað plant-
að tré án þess að það yxi upp. Víða
liggja eftir hann verkin í skógrækt-
inni og hann var forvígismaður að
stofnun Skógræktarfélags Suður-
nesja. Skógarlundurinn skammt frá
Keflavík ber vitni um hina miklu
bjartsýni og seiglu Ófeigs, en þar
sýndi hann að á Suðumesjum má
ræta upp trjágróður. Á lóð sumar-
bústaðarins sem Ófeigur byggði á
Þingvöllum má sjá afar fagurt
ræktunarstarf og dæmi um það
hvernig maðurinn getur farið hönd-
um um náttúrana og gert hana að
listaverki. Það má segja að Ófeigur
hafi fyrst barist við íslenska náttúra
á jafnréttisgrundvelli í skógrækt-
inni við sumarbústaðinn sem hann
byggði á Vallá á Kjalarnesi. Jafn-
vel þar sem aðeins kraftaverk getur
veitt nokkru tré lífsmöguleika má
sjá að honum hefur tekist að koma
upp skjólbelti.
Ófeigur var listrænn og hafði
yndi af því að skera út, teikna og
mála. Eftir hann liggja bæði
skemmtileg útskurðarverk og fal-
legar myndir. Ófeigur fékk heila-
blóðfall á útmánuðum 1982, þá
nálægt áttræðu. En með seiglunni
náði hann sér að hluta en fékk þó
aldrei mátt í hægri hendi. Það
stöðvaði hann ekki í málaralistinni
því hann þjálfaði vinstri höndina í
staðinn og málaði með henni mynd-
ir sem margar hveijar hafa að
geyma mjög skemmtilegar litasam-
setningar. Litaskyn Ófeigs batnaði
jafnvel á þessum áram frá því sem
áður var meðan hann var heill.
Ófeigi féll aldrei verk úr hendi
og læknisstörfin voru að sjálfsögðu
hans ævistarf þrátt fyrir einstök
afköst í frístundum sínum. Ófeigur
lærði það húsráð í Leiranni af móð-
ur sinni að á branasár væri best
að nota vatn og kæla þau þannig
niður. Það var síðan hans merka
framlag til vísindalegrar læknis-
fræði að hleypa fræðilegum stoðum
undir gagnsemi þessarar lækninga-
aðferðar. Fyrir það fékk hann mikla
viðurkenningu stéttarbræðra sinna
hérlendis sem erlendis. Á þeim tím-
um sem Ófeigur barðist við að sann-
færa fólk um að húsráð móður sinn-
ar dygði best á þessu sviði beitti
hin vísindalega læknisfræði jafnvel
aðferðum sem juku á kvalir sjúkl-
inganna og skildu eftir sig ör langt
umfram það sem nauðsyn bar til.
Læknadeild Háskóla íslands gerði
Ófeig að heiðursdoktor í læknis-
fræði í október 1986 og var hann
vel að þeirri virðingu kominn.
Margir Reykvíkingar minnast
læknisins Ófeigs. Sérgrein hans var
lyflækningar en hann starfaði jafn-
framt sem heimilislæknir um ára-
tuga skeið og kynntist því fjölda
fjölskyldna sem bjuggu við hinar
ólíkustu aðstæður. Ofeigur var því
einn af þekktari og vinsælli borgur-
um Reykjavíkur og gat sér orð fyr-
ir að vera útsjónarsamur læknir.
Hann var eljusamur í starfi sínu
og einstaklega duglegur við húsvitj-
anir og reyndist fólki þá ráðagóður
á mörgum sviðum öðram en féllu
undir þrönga skilgreiningu læknis-
fræðinnar. Hann varð því víða fjöl-
skylduvinur. Sjúklingar sýndu hon-
um oft mikla tryggð en ekkert jafn-
ast á við þá feikna aðstoð og vin-
áttu sem hjónin Brynleifur Sigur-
jónsson og Alda Gísladóttir sýndu
honum í veikindum hans síðustu
árin.
Ófeigur var þrígiftur. Fyrsta
konan hans var Margrét Guð-
mundsdóttir úr Reykjavík, þau
skildu. Önnur kona hans var Ragn-
hildur Ingibjörg Ásgeirsdóttir frá
Hvammi í Dölum. Þau skildu eftir
18 ára hjónaband. Dóttir þeirra er
Ragnhildur Pála, gift Vilhjálmi
Egilssyni alþm. og framkvæmda-
stóra Verslunarráðs og eiga þau
fjögur böm. Fósturdóttir þeirra er
Salóme Ósk Eggertsdóttir, gift séra
Hjalta Guðmundssyni Dómkirkju-
presti og eiga þau tvær dætur.
Þriðja kona Öfeigs er Unnur Sig-
urðardóttir, en þau giftust árið
1963. Dóttir hennar og stjúpdóttir
Ófeigs er Anna Balle, gift Viggo
Balle lækni í Kaupmannahöfn. Þau
eiga þrjú börn. Unnur bjó Ófeigi
glæsilegt heimili á Laufásveginum
og annaðist Ófeig af frábæram
dugnaði, alúð og ræktarsemi í veik-
indum hans síðustu 11 árin.
Ófeigur J. Ófeigsson var minnis-
•stæður þeim sem honum kynntust.
Hann var einstaklega hæfíleikarík-
ur og stefnufastúr. Hann gat bæði
haft stórt hjarta og mikið skap.
Hann vildi miðla Ragnhildi Pálu
dóttur sinni af hinni miklu þekkingu
sinni og tók hana oft með sér í
ferðir út í náttúrana. Hann tók
hana líka iðulega með sér í húsvitj-
anir til þess að kenna henni um líf-
ið og tilverana. ófeigi var samband-
ið við dóttur sína mjög dýrmætt og
því tók hann tengdasyninum eðli-
lega með nokkram fyrirvara þegar
hann kom til sögunnar. En fljótlega
myndaðist líka góður skilningur þar
á milli og þegar Ófeigur tengdafað-
ir minn er allur stendur eftir sökn-
uður og virðing. Ófeigur skilur eft-
ir sig holla sögu þeim sem ísland
erfa.
Vilþjálmur Egilsson.
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekilr afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík, og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
EINBÝLISHÚS
EÐA STÓR ÍBÚÐ
ÓSKAST TIL LEIGU
Traust fyrirtæki óskar eftir að taka á leigu
einbýlishús, raðhús eða stóra íbúð á
Stór Reykjavíkursvæðinu (helst í Garðabæ)
til tveggja ára.
Þarfað vera laust fljótlega.
Upplýsingar veitir:
Helgi Jóhannesson hdl.
Lágmúla 7, Reykjavík
sími 812622 fax 686269
Hjörtur Krisijáns-
son — Minning
Fæddur 11. maí 1925
Dáinn 20. desember 1992
Kær vinur og frændi kvaddur.
Valmenni er horfið. Helfregn hittir
mann ætíð óviðbúinn. Ekki átti ég
von á að sjá dánarfregn um þennan
kæra vin og frænda fremur en aðrir.
Sláttumaðurinn mikli á ferðinni.
Að minnast Hjartar Kristjánsson-
ar er vandaverk, slíkur persónuleiki
var hann. Ætti að lýsa honum með
einu orði ætti sjentilmaður best við.
Þannig kom hann fram. Hann var
heiðursmaður í orðsins fyllstu merk-
ingu. Hve þetta líf er stutt er við
lítum til baka.
Nú með stuttu millibili hef ég séð
á bak tveim frændum mínum sem
báðir voru mér kærir. Hinn er Ólafur
Stefánsson frá Kalmanstungu, f.
17.7. ’31, d. 23.10. ’92. Þessirfrænd-
ur mínir kvöddu báðir eins og slökkt
væri á kerti. Hjörtur heilsaði af og
til upp á foreldra mína, það gerði
Ólafur líka.
Ólaf hitti ég síðast á góðviðrisdegi
í borginni, þetta kveld voru margir
að úskrifast, umferðin silaðist áfram.
Þar sem ég var stopp í bílaþvögunni
kemur Ólafur til mín spyr hvort ekki
megi bjóða mér heim að sjá flygilinn
sem hann sé nýbúinn að fá sér. Ég
þáði það enda hafði hann aldrei boð-
ið mér heim fyrr. Ég má segja að
þetta hafí verið næstsíðasta skiptið
sem ég hitti Ólaf. Ég fékk jólakveðju
frá Jóhönnu systur hans frá Flórída
þar sem hún býr. Hún var svo fegin
að hafa komið sl. sumar og hitt hann
hressan og glaðan þar sem hún gat
ekki verið viðstödd útfórina.
Við Ólafur vorum systkinaböm í
móðurætt. Hjörtur Kristjánsson og
undirrituð vorum aftur bræðrabörn
í föðurætt. Hjörtur var sá eini af
sínum systkinum sem sýndi mér þann
sóma að heimsækja okkur í Borgar-
nes. Fyrra skiptið er við vorum ný-
flutt þangað. Við hittumst svo í sum-
ar í stórafmæli Kristínar systur hans.
Veðrið hefði ekki getað verið betra
þann dag. Kristín má vera stolt og
ánægð að hafa drifíð þennan stóra
hóp saman. Síðan hittumst við Hjört-
ur á hraðferð í Bankastræti. Minnt-
ist hann á að kíkja til okkar með
haustinu sem hann gerði með Hrafni
syni sínum. Voru þeir að koma af
Snæfellsnesinu frá dætrum Magnús-
ar bróður Hjartar. Hjörtur hvatti
mig til að koma til ísafjarðar, mér
væri velkomið að vera í sumarbú-
staðnum hvenær sem mér hentaði.
Komist ég einhvem tíman vestur
verður Hjörtur minn ekki þar.
Ég efast ekki um að hann fær
góðar viðtökur hinum megin. Far þú
í friði. Friður Guðs þig blessi.
Sonum hans, öllu hans skyldfólk'
og vinum, sendi ég mínar innilegustu
samúðarkeðjur.
ída Sigurðardóttir,
Borgarnesi.
ÖE/
°'NUN
/
i fyrrum Júgóslavíu
Hjálparstofnun kirkjunnar og Rauði kross íslands sjá um fata-
söfnun til bágstaddra í fyrrum Júgóslavíu fimmtudaginn
14. janúar nk. Söfnunarstöðvar verða á vegum Rauða kross
deilda um allt land. Vinsamlegast snúið ykkur til þeirra.
Á eftirtöldum stöðum verða söfnunarstöðvar sem hér segir:
Reykjavík, opið fimmtudag kl. 14-22:
Félagsmiðstöðin Frostaskjól, Frostaskjóli 2.
Félagsmiðstöðin Þróttheimar v/Holtaveg.
Félagsmiðstöðin Tónabær, Skaftahlíð 24.
Félagsmiðstöðin Fellahellir, Norðurfelli.
Félagsmiðstöðin Ársel, Rofabæ.
Félagsmiðstöðin Fjörgyn, Logafold 1.
Ölduselskóli, Ölduseli 17.
Langholtskirkja, Sólheimum 11-13.
Kópavogur, opið fimmtudag kl. 14-22:
Listasafn Kópavogs, nýbygging neðan Kópavogskirkju,
austurendi.
Hafnarfjörður, opið fimmtudag kl. 14-22:
Bæjarhraun 2, Hafnarfjarðardeild Rauða kross (slands.
Mosfellsbær, opið fimmtudag kl. 16-19:
Heilsugæslustöð, anddyri.
Akranes: Grundaskóli.
Hveragerði, opið miðvikudag kl. 13-15:30 og fimmtudag
kl. 14-21: Safnaðarheimili Hveragerðiskirkju.
Siglufjörður: Slysavarnadeildin, Þórmóðsbúð.
Akureyri, fimmtudag kl. 14-22: íþróttahöllin, anddyri.
Húsavík: Björgunarskýlið
Hvolsvöllur: Rauða kross deild Rangárvallasýslu
Vestmannaeyjar: Safnaðarheimilið.
Óskað er eftir hlýjum, heilum og hreinum fötum. Vinsamleg-
ast komið með fötin flokkuð í 4 flokka:
Karla, kvenna, y ngri barna 1 -4 ára og eldri barna 5-14 ára
Vinsamlegast komið ekki með skó.
+
Rauði kross íslands