Morgunblaðið - 13.01.1993, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
41
Atvinnuskapandi aðgerðir
Frá Reyni Hugasyni
Um áramót voru samþykkt ný lög
á Alþingi (mál 226) sem heimila
sveitarstjómum að veita fé til at-
vinnuskapandi aðgerða í gegnum
atvinnuleysistryggingasjóð í stað
þess að greiða atvinnuleysisbætur.
Þetta eru heilar 500 milljónir króna
samtals á árinu og munar því all-
nokkuð um þær. Reglur hafa þó
ekki enn verið settar um það hvað
teljist atvinnuskapandi aðgerðir af
hálfu atvinnuleysistryggingasjóðs.
Það er vert að benda hér á leiðir
sem reyndar hafa verið erlendis, t.d.
á Norðurlöndum, til þess að tengja
betur saman hagsmuni atvinnurek-
enda og launþega og minnka um
leið atvinnuleysið í raun.
Atvinnuskapandi aðgerir innfela
að ný störf eru búin til í nýjum fyrir-
tækjum eða í starfandi fyrirtækjum.
Til þess að örva tilurð nýrra atvinnu-
tækifæra gættt sveitarfélög boðist til
þess að greiða með hveiju nýju starfi
sem verður til í sveitarfélaginu jafn-
virði atvinnuleysisbóta, enda verði
atvinnulaus maður ráðinn í hið nýja
starf. Greiðslan gæti verið tímabund-
in, t.d. þannig að 1. árið yrði greitt
sem svaraði fullum bótum með starf-
inu. Næsta ár yrðu svo greiddar t.d.
hálfar bætur.
Á sama hátt ætti að bjóða fyrir-
tækjum og stofnunum í sveitarfélag-
inu að auka menntun starfsmanna
sinna til nýrra starfa eða til sömu
starfa með meiri arðsemi með því
að bjóða stuðning sem nemur at-
vinnuleysisbótum til þess að nýr
maður verði ráðinn a.m.k. tímabund-
ið í stað þess sem færi í frekara
nám. þetta er kölluð skiptivinna.
Maður er ráðinn í stað annars sem
fer í burtu til náms, t.d. í eitt ár.
Sá sem fer til náms getur síðan,
þegar hann kemur til baka frá nám-
inu, ýmist tekið við gömlu vinnunni
sinni aftur, eða það sem æskilegra
er, sinnt vandasamari verkefnum í
öðru og vonandi nýju starfi.
Ef ekki er búið að hrasða líftóruna
úr mönnum með athafnaþrá með
svartagallsrausi og bölmóði í þjóðfé-
laginu þá ættu atvinnurekendur að
geta séð sér hag í því að setja á fót
ný fyrirtæki eða stofnað til nýrra
starfa til þess að nýta sér þessi hag-
stæðu tilboð. Þetta myndi virka sem
meðgjöf með rekstri fyrirtækisins og
væri bein innspýting á fjármagni í
reksturinn og hver vill það ekki.
Ýmsar framkvæmdir sem áður virt-
ust á mörkum þess að vera arðbærar
yrðu nú greinilega hagkvæmar í að
minnsta kosti í 1-2 ár og það gæti
riðið baggamuninn að farið væri út
í þær. Það besta við báðar ofan-
greindar leiðir er að þær virka fljótt
og unnt væri að stýra því að þetta
yrðu lausnir til frambúðar.
Rétt þykir að nefna hér eina leið
enn til þess að auka atvinnu án þess
að auka fjárútlát hins opinbera, en
hún felst í því að borga mönnum
atvinnuleysisbætur við að vinna að
undirbúningi að stofnun eigin fyrir-
tækis. Þessi leið er líka bæði fær og
uppbyggileg, fljótvirkandi og líkleg
til að bera í sér frambúðarlausn.
Það er í raun allt betra en að greiða
mönnum atvinnuleysisbætur fyrir að
sitja heima og naga neglumar. Það
verður að grípa fljótt til aðgerða tíl
þess að draga úr atvinnuleysinu ann-
ars skemmist fólkið sem fyrir því
verður og kemur aldrei út á vinnu-
markaðinn aftur. Reynsla erlendis
frá sýnir þetta. Stjórnvöld ættu að
umreikna þessa staðreynd í krónur.
Atvinnuleysið fer nú dagvaxandi og
er orðið 10-15% sums staðar. Það
viljum við ekki áfram, er það?
REYNIR HUGASON,
Hrauntungu 59,
Kópavogi.
LEIÐRÉTTINGAR
Prentvillur í
minningargrein
Prentvillur slæddust inn í minning-
argrein Höllu Eysteinsdóttur um
Fanneyju Haraldsdóttur. Hér á
eftir fer sá hluti greinarinnar, sem
verst varð úti:
Því bið ég þig, drottinn, að taka
á móti kærleiksgeislum mínum og
endurvarpa þeim margfalt til baka
til allra þeirra sem þekktu Fanneyju
mína, umvefja þá ljósi og veita þeim
styrk og bjarta von í framtíðinni.
Bænina sendir „litla systir".
Iffið er flæði ljðss og skugga,
lífsneistinn er tengdur því
að virða, vona, elska og hugga,
vilja drottins fylgdu því.
(Halla Eysteins)
Halla Eysteins.
Röng dagskrá
Þau mistök urðu í vinnslu blaðsins
í gær að í stað útvarps- og sjónvarps-
dagskrár þriðjudagsins 12. janúar
birtist dagskrá mánudagsins 11. jan-
úar. Morgunblaðið biður lesendur
sína velvirðingar á þessum óþægi-
legu mistökum.
Yfirlýsingin féll
niður
Við birtingu bréfs Magnúsar
Oddssonar, rafveitustjóra á Akra-
nesi, í gær féll niður eftirfarandi
yfírlýsing: “Rafveita Akraness. Hr.
Magnús Oddsson rafveitustjóri. Efni:
Rafmagn til útgerðar á Akranesi.
Haraldur Böðvarsson hf. nýtir land-
tengingu á rafmagni í Akraneshöfn
í öll skip sín. Við teljum okkur hafa
hag af þeim viðskiptum. Fyrir hönd
Haraldar Böðvarssonar hf. Sturlaug-
ur Sturlaugsson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri."
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
mistökunum.
VELVAKANDI
ARMBAND
Silfurhúðað armband með
ígröfnu blómamynstri tapaðist á
Gauk á Stöng á nýárskvöld. Arm-
bandið hefur mikið tilfinninga-
gildi fyrir eigandann. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hringja í sima 21762.
TÝNDTÍK
Pfla er lítil sex ára gömul tík,
brún með hvíta bringu, dökk í
kringum munninn með uppspert
eyru og lafandi skott. Pfla á
heima norður í Eyjafjarðarsveit.
Hún var í heimsókn í Garðabæ
23. ágúst en slapp þá út og hef-
ur síðan verið á flakki. Hún er
blíðlynd og gegnir nafninu Pfla.
Best væri ef ykkur tækist að
handsama hana í rólegheitum og
láta vita í síma 668366 hjá Ninnu
á hundahótelinu að Leirum. Eins
er hægt að hafa samband við
Eirík í heimasíma 656004 eða
vinnusíma 627222, Ingimar í
heimasíma 37375 eða vinnusíma
685833, Ástu í síma 51031 eða
fara með hana í Dýrasítalann.
PENINGAUM-
SLAG
Menntaskólastúlka tapaði um-
slagi með desemberkaupinu sínu
á leið frá Lækjartorgi í Tryggva-
götu á þriðjudag. 1 umslaginu,
sem var merkt fyrirtæki, vöru
tæplega 19 þúsund krónur í seðl-
um. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 616342.
REIÐHJÓL
Tvö karlmannsreiðhjól eru í
óskilum, annað tvflitt en hitt
svart. Hjólin fundust í grennd
við Miðbæinn. Upplýsingar í síma
697302, Olga.
Windows 3.1 • PC grunnur
Nauðsynlegur undirbúningur fyrir alla sem þurfa að nota PC tölvur.
Vandað námskeið sem skilar þér vel á leið. (
hk-9281
Tölvu- og verkfræðiþjónustart
Vertcfræðistofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi16«stofnuð1.mars 1986
<Ð
é>
1/pJA
'GA
§0*
•LEIKLIST
Leikræn tjáning, spuni, textameðferð
7-8,10-12 OG 13-15 ÁRA
Markmio námskeiðsins er að þroska
persónuleika, samstarfshæfileika og öryggi.
Kennarar: Harpa Arnardóttir
og Þórey Sigþórsdóttir leikarar
•DANS-LEIKIR-SPUNI
4-5 OG 6-7 ÁRA
Unnið út frá æfintýrum og
hugmyndaheimi barnsins.
Leikræn tjáning er undirstaða
kennslunnar.
Kennari: Harpa Helgadóttir leikari
•DANS-SPUNI
6-7 ÁRA
Leikrænir danstímar
Kennari: Katrín Káradóttir
danskennarí
•TONMENNT
Tónlist,spuni,söngur,dans
4-6 OG 6-7 ÁRA
Námskeiðið byggir á Carl Orff kennsluaðferðum.
Kennari: Elfa Gísladóttiz
tónmenntakennarí
•AFRO / HIP-HOPP
Fyrir unglinga
Kennari: Otvule Pennant
frá Jamica
•DJASS
8-10 OG 10-12 ÁRA
Leikrænir danstímar
Kennari: Katrín Káradóttir
danskennarí
W5I&
Upplýsingar og innritun
ísíma 15103 og 17860
Kynningarfundur
Fimmtudagskvöld
kl.20.30
að Sogavegi 69
* EYKUR hæfni og árangur einstaklingsins
BYGGIR upp leiðtogahæfnina
* BÆTIR minni þitt og einbeitingarkraftinn
* SKAPAR sjálfstraust og þor
* ÁRANGURSRÍKARI tjáning
* BEISLAR streitu og óþarfa áhyggjur
* EYKUR eldmóðinn og gerir þig hæfari í
daglegu lífi
Fjárfesting í menntun
skilar þér arði ævilangt
Innritun og upplýsingar í síma: 812411
O
STJÓRINIUIMARSKÓLIIMIM
Konrað Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Camegie namskeiðin"