Morgunblaðið - 13.01.1993, Síða 44
EININGABRÉF 2
Eignarskattsfrjáls
Raunávöxtun
sl. 12 mánuði
8%
O KAUPPING HF
Lðgp/f vtrðbrtfafyrirtaki
MORGVNBLAÐIÐ, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SlMI 631100, SÍMBRÉF 631181, PÓSTHÓLF 1655 / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði hlýtur staðfestingu Alþingis
Atkvæði með samn-
ingnum 33
SAMNINGURINN um Evrópskt efnahags-
svæði var staðfestur í atkvæðagreiðslu á Al-
þingi í gær. Þijátíu og þrír þingmenn greiddu
atkvæði með samningnum, sjö sátu hjá og
tuttugu og þrír af alls 63 þingmönnum lýstu
sig andvíga samningnum. Stefnt er að því af
hálfu EFTA-ríkjanna og Evrópubandalagsins
,að samningurinn taki gildi 1. júlí næstkom-
andi. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
var rætt um að halda ríkisráðsfund í gær, þar
sem forseti íslands myndi staðfesta samþykkt
Alþingis, en af honum varð ekki.
Frávísun felld
Á þingfundinum í gær voru fyrst greidd
atkvæði um tillögu stjórnarandstöðunnar um
- 23 á móti
að vísa staðfestingarfrumvarpinu um EES frá
Alþingi og aftur til ríkisstjórnarinnar. Af 36
þingmönnum stjórnarflokkanna greiddu 33
atkvæði á móti frávísuninni, en þrír þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, þeir Eyjólfur Konráð
Jónsson, Ingi Björn Albertsson og Eggert
Haukdal, studdu stjórnarandstöðuna. Tillagan
var því felld með 33 atkvæðum gegn 30.
Flokkslínur riðlast
Er atkvæði voru greidd um sjálft staðfesting-
arfrumvarpið greiddu enn 33 þingmenn stjórn-
arinnar atkvæði með aðild Islands að EES-
samningnum. Sömu sjálfstæðismennirnir þrír
gengu aftur í lið með stjómarandstöðunni og
greiddu atkvæði á móti. Sex af þrettán þing-
mönnum Framsóknarflokksins sátu hjá við
atkvæðagreiðsluna, þau Halldór Ásgrímsson,
Ingibjörg Pálmadóttir, Valgerður Sverrisdóttir,
Jón Kristjánsson, Jóhannes Geir Sigurgeirsson
og Finnur Ingólfsson. Aðrir þingmenn Fram-
sóknarflokksins greiddu atkvæði á móti. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir sat hjá, ein Kvennalis-
takvenna. Aðrar greiddu atkvæði gegn samn-
ingnum. Allur þingflokkur Alþýðubandalagsins
var andvígur EES-samningnum.
Stjómarandstaðan leggur áherzlu á að EES-
málinu sé ekki lokið og hvetja talsmenn henn-
ar til þess að teknar verði upp viðræður við
Evrópubandalagið um tvíhliða viðskiptasamn-
ing.
Sjá miðopnu.
Stuðningnr
hefur vaxið
og efa eytt
ODDVITAR stjómarflokkanna,
Davíð Oddsson og Jón Baldvin
Hannibalsson, lýstu yfir ánægju
með lyktir mála í gær.
„Þessi atkvæðagreiðsla sýnir
að stuðningur við þetta mál hef-
ur vaxið eftir því sem umræðan
hefur þróazt,“ sagði Davíð. „í
sumar vissum við ekki annað en
aðeins stjómarsinnarnir, að
tveimur undanskildum, væru
hlynntir málinu. Síðan hefur það
gerzt að sjö þingmenn hafa látið
af andstöðunni." Jón Baldvin
sagði að með þessum úrslitum á
Alþingi væri öllum efasemdum
um vilja íslendinga til þátttöku
í EES eytt. „Það mátti ekki
tæpara standa, því að framund-
an er að ná samkomulagi um
efni og form viðbótarbókun-
arinnar, þar sem samningurinn
er aðlagaður þeirri staðreynd að
Sviss er ekki lengur með.“
I athugun að
hætta með
svæðisnúmer
HJÁ Pósti og síma er í athugun
að fella niður svæðisnúmer fram-
an við símanúmer innanlands og
taka þess upp 7 stafa símanúmer.
Þá hefur verið ákveðið að leggja
niður 002, handvirka farsímakerf-
ið, frá næstu áramótum.
Bergþór Halldórsson, forstöðu-
maður tæknisviðs, sagði að hug-
myndin hefði komið upp í viðræðum
um hvernig ætti að bregðast við þeg-
ar ríki Evrópubandalagsins væntan-
lega breyttu sínu kerfí árið 1995.
„Það eru ákveðnir kostir við að fella
niður svæðisnúmer, meðal annars
þegar hringt er frá útlöndum," sagði
Bergþór.
Um næstu áramót verður lögð
niður þjónusta við 002, handvirka
farsímakerfíð. Að sögn Bergþórs eru
um 400 til 500 notendur skráðir að
kerfínu .
Málshöfðun
vegna svipt-
ingar at-
vinnuleyfa
TÆPLEGA 50 leigubílstjórar,
70 ára og eldri, komu saman
til fundar í gær og samþykktu
að höfða prófmál á hendur
ríkinu vegna nýrra laga sem
tekið hafa gildi um atvinnu-
leyfi.
Þar er gert ráð fyrir að leigu-
bílstjórar verði sviptir atvinnu-
leyfí þegar þeir verða sjötugir
og hafa nokkrir þegar misst at-
vinnuleyfið vegna þessara laga.
Á næstu tveimur árum munu
lögin ná til á annað hundrað
leigubílstjóra, að sögn Stefáns
Ó. Magnússonar leigubílstjóra.
Stefán sagði, að málið væri
meðal annars höfðað á þeirri
forsendu, að lögin nái eingöngu
til leigubflstjóra en ekki til sendi-
bílstjóra eða vörubílstjóra.
Morgunblaðið/Sverrir
Úrslitin tilkynnt
Salome Þorkelsdóttir, forseti Alþingis, gerir grein fyrir úrslitum atkvæðagreiðslunnar um Evrópska efnahagssvæðið síðdegis í gær.
Lækkun á áburðarverði
Leiðir til lægra mjólkurverðs í vor og kindakjöts í haust
ÁBURÐARVERÐ lækkar um 5,2% að meðaltali, samkvæmt ákvörðun
stjórnar Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi. Haukur Halldórsson, for-
maður Stéttarsambands bænda, fagnar þessari ákvörðun og segir að
hún leiði til lækkunar á búvöruverði.
Undanfarin sex ár hefur verið
unnið að hagræðingu í Áburðarverk-
smiðjunni og hefur það leitt til þess
að áburðarverð hefur hækkað
35-40% minna en almennt verðlag á
þessum tíma, að sögn Hákonar
Björnssonar framkvæmdastjóra
Áburðarverksmiðjunnar. Verð
áburðar hefur þó ekki fyrr lækkað í
krónutölu. Hagræðingin hefur meðal
annars leitt til þess að starfsfólki
hefur fækkað um 85 á þessum árum,
þar af fækkaði um 15 síðastliðið
haust.
Áburðarverksmiðjan hefur verið
að greiða niður skuldir og er nú
nánast skuldlaus og á það sinn þátt
í ákvörðun um verðlækkun ásamt
lækkun kostnaðar og lækkun inn-
flutningsverðs á hráefni.
Stór kostnaðarliður
Haukur Halldórsson, formaður
Stéttarsambands bænda, kvaðst
fagna ákvörðun stjórnar Áburðar-
verksmiðjunnar um að lækka verð á
áburði. Sagði hann að sér hafí virst
að stjómendur fyrirtækisins væru
að taka á ýmsum málum í verksmiðj-
unni og það væri vonandi að skila sér.
Sagði Haukur að áburðurinn væri
stór kostnaðarliður hjá bændum, sér-
staklega sauðfjárbændum þar sem
hann væri stærsti kostnaðarliðurinn
fyrir utan laun bænda. Sagði hann
að lækkun áburðarverðsins myndi
leiða til lækkunar á verði mjólkur í
vor og kindakjöts í haust.
Sjá frétt á bls. 19.