Morgunblaðið - 27.01.1993, Page 3

Morgunblaðið - 27.01.1993, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1993 Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. Umtalsverður samdráttur hefur orðið í rekstrinum NIÐURSKURÐUR fjárveitinga til rannsókna á vegum Landsvirkjunar hefur komið hart niður á starfsemi verk- fræðistofa sem Landsvirkjun hefur keypt af ráðgjöf. Þann- ig minnkaði vinna Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. fyrir Landsvirkjun um helming milli áranna 1991 og 1992, og að sögn Viðars Ólafssonar forstjóra verkfræðistof- unnar minnkar vinnan verulega milli áranna 1992 og 1993, en á þessu stigi er ekki ljóst hve mikill sá samdráttur verður. Auka snjóþak á bílnum ÞAÐ getur verið talsverð vinna að skafa snjó af bílum eftir ofan- komu eða skafrenning. Þegar þessi mynd var tekin fyrir skömmu átti Sævar Þótjónsson í Ólafsvík talvert verk fyrir höndum við að hreinsa snjóinn af bíl sínum því snjóþakið á hon- um var nærri mannhæðarhátt. Verulegur snjór er í Ólafsvík eins og víðar á landinu og háir skaflar. Verkfræðistofa Sigurðar Thor- oddsen hf. hefur sérhæft sig í virkja- namálum og er hún langstærsta verkfræðistofan sem verið hefur í vinnu fyrir Landsvirkjun. Viðar Ólafsson sagði að vitað hefði verið að samdráttur væri framundan, og hefði fyrirtækið búið sig undir hann um nokkurt skeið. Árið 1991 vann verkfræðistofan fyrir Landsvirkjun bæði við Blöndu- og Fljótsdalsvirkj- un, sem þá var á undirbúningsstigi, en í lok ársins kom svo ákvörðunin um að á byggingu fyrirhugaðs ál- vers yrði frestað, og þar með var hætt við Fljótsdalsvirkjun. Viðar sagði að niðurskurðurinn hjá Landsvirkjun hefði nú þegar haft í för með sér talsverðan sam- drátt í rekstri verkfræðistofunnar. Þar væru nú starfandi 65 manns, og hefði verið gert ráð fyrir að draga svolítið úr mannahaldinu. „Þá hefur hluti af starfsfólkinu farið í 80% vinnu og öll yfirvinna hefur verið skorin niður. Óvissan framundan er talsvert mikil því að samdráttur er á markaðnum að öðru leyti. Það er samdráttur í húsbygg- ingum og samdráttur hjá sveitarfé- lögum, þannig að samdrátturinn frá því „normalástandi" sem var er nú á bilinu 18-20%.°Svona hlutir taka verulega á í rekstrinum," sagði Við- Arnarfjörður Sjö ær bom- ar á Ósi Bíldudal. SJÖ ær eru bornar á bænum Ósi í Arnarfirði. Fyrsta ærin, Ljós- brá, bar tveimur lömbum 25. desember sl. Sex ær hafa borið siðan og eru tvær til viðbótar komnar að burði. Alls eru þrett- án lömb komin en verða jafnvel fimmtán eða sautján næstu daga. í samtali við Þorbjörn Pétursson, bónda á Ósi, sagði hann að þetta væri orðin venja og árviss viðburð- ur. Á sama tíma í fyrra voru 23 ær bornar en urðu 31 í allt. „Það stefnir í að um 18-20 ær beri fram í apríl. Hér er mikill snjór og erfitt að komast í fjárhúsin fyrir okkur. Lömbin spjara sig ágætlega og éta þau þurrhey," sagði Þorbjörn. R. Schmidt. -----♦------- Loðnan enn of dreifð ENGIN veiðanleg loðna hefur fundist úti fyrir Austurlandi þrátt fyrir víðtæka leit en illa hefur viðrað til leitar að undan- förnu. Að sögn Hjálmars Vil- hjálmssonar, leiðangurssljóra á Bjarna Sæmundssyni, er loðnan dreifð og varla von til að veiðar hefjist að gagni fyrr en hún gengur nær landinu. Hjálmar sagði að sæmilegt veður hefði verið á miðunum út af Austur- landi á þriðjudag og leitað hefði verið á stóru svæði án árangurs. Fiskiskipin Börkur og Hólmaborg gerðu tilraun með að kasta á loðnu á Reyðarfjarðardjúpi með litlum árangri. v Sprungiö hitaveitukerfi er ekki beinlínis efst á óskalista íbúbareigenda samt springur þab aftur og aftur. i...; Eina varanlega lausnin ab mati Rannsóknastofnunar byggingaribnabarins er varmaskipti - snjöll heildarlausn sem ALFA-LÁVAL hefur þróab í 30 ár. 0 Ráöfæröu þig viö okkur sérfræbingar munu leibbeina þér varbandi þá lausn sem þér hentar - svo ab þú komir ekki einn góban veburdag ab öllu á subupunkti. 7 ■ A Alfa Laval - varmaskipti, eina varanlega vörnin gegn gufusoöinni íbúb. I SINDRI | -sterkur í verki 1 BORGARTÚNI 31 • SÍMI 6272 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.