Morgunblaðið - 27.01.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1993
Þóra Helga Magnús-
dóttir — Minning
Fædd 27. janúar 1925
Dáin 15. nóvember 1992
Þóra Helga Magnúsdóttir, Dídí,
var kvödd hinstu kveðju 26. nóvem-
ber 1992. Dídí fæddist að Leynimýri
í Reykjavík dóttir hjónanna Þórunnar
Einarsdóttur húsfreyju og Magnúsar
Jónssonar bifreiðastjóra. Hún var
yngst af fimm systkinum. Systir
hennar Guðlfn Helga dó í bemsku,
en hin systkinin Einar, Stefán Oddur
og Agnes eru öll búsett í Reykjavík.
Dídí ólst upp á menningarheimili.
Foreldrar hennar voru víðsýn og
góðum gáfum gædd. Þar var gott
að koma og oft glatt á hjalla.
Móðir mín var systir Magnúsar
föður Dídíar. Hún var tíður gestur á
heimili foreldra hennar meðan hún
bjó í Reykjavík. Hún tók ástfóstri
við þessa litlu glaðlegu telpu. Þegar
Dídí var sex ára veiktist móðir henn-
ar alvarlega. Foreldrar mínir voru
þá nýgift og bjuggu í Skorradal. Það
varð þá að ráði að Dídí dveldi hjá
þeim sumarlangt. En dvölin varð
lengri en áætlað var í byijun eða
eitt og hálft ár og síðan fimm sum-
ur. Á þessum árum var á heimilinu
amma okkar Dídíar, Agnes Gísla-
dóttir. Það var afar kært með þeim.
Dídí var öllu heimilisfólkinu mikill
gleðigjafi.
Mínar fyrstu bemskuminningar
em tengdar Dídí frænku, yfir þeim
hvílir bjartur ljómi. Við Guðmundur
bróðir minn litum á hana eins og
stóm systur. Tilhlökkun okkar var
mikil þegar von var á henni í sveitina
á vorin. Við töldum dagana. Það var
létt og bjart yfir henni í leik og starfí.
Dídí varð gagnfræðingur frá Ingi-
marsskólanum í Reykjavík. Hún var
söngelsk og á yngri áram var hún
félagi í Sólskinskómum, sem naut
mikilla vinsælda á þeim tíma. Einnig
æfði. hún fimleika með góðum
árangri.
Dídí giftist eftirlifandi eiginmanni
sínum, Friðbirni Ingvari Björnssyni,
árið 1943. Þau eignuðust tvö efnileg
börn, Agnesi, sem búsett er í Dan-
mörku, gift Eiríki Má Péturssyni, og
Björn, sem kvæntur er Erlu Mar-
gréti Sverrisdóttur. Bamabömin eru
flögur og bamabamabömin þijú.
Dídí var í mörg ár verkstjóri í
Fiskvinnslu Tryggva Ófeigssonar.
Þá starfaði hún í nokkur ár við fisk-
mat sem hún hafði aflað sér réttinda
til. í starfi sínu sem verkstjóri komu
hennar góðu kostir í ljós. Hvetjum
starfsmanni var sýnd virðing og
hjartahlýja.
Hún var mikilhæf móðir og hús-
móðir. Viðmót hennar var þannig að
Sveinjón IngvarEagn-
arsson — Minning
Fæddur 1. febrúar 1944
Dáinn 8. janúar 1993
Einlægni, heiðarleiki, þjónustu-
lund og eðlislæg hlýja. Allir þessir
þættir ásamt mörgum öðmm já-
kvæðum eðlisþáttum tengjast minn-
ingu þinni, elsku Denni minn.
Það er sárt að þurfa að kveðja þig
núna — en ég er forsjóninni þakklát-
ur fyrir að leiðir okkar skyldu liggja
saman fyrir 30 ámm. Að við skyldum
tengjast tryggðar- og vináttuböndum
sem dauðinn einn fékk bundið enda á.
Vináttan er dýrmæt og brothætt.
Vináttuna þarf að rækta og styrkja
til þess að hún dafni og verði einlæg
og hrein eins og þú.
Ég þakka þér fýrir: Að vera trygg-
ur og einlægur vinur. Fyrir að vera
hreinskiptinn og heiðarlegur. Fyrir
að vera alltaf glaðlyndur og jákvæð-
ur. Fyrir að sjá einungis björtu hlið-
ar lífsins. Fyrir að vera okkur öllum
stoð og stytta. Fyrir að vera okkur
öllum fyrirmynd. Fyrir að varðveita
strákinn í sjálfum þér.
Á Hótel Holti áttir þú einkar far-
sæla starfsævi, sem hófst á því að
þar laukst þú námi þínu í fram-
reiðslu. Og síðustu árin gegndir þú
starfí aðstoðarhótelstjóra. Þú varst
hvers manns hugljúfí, jafnt við-
skiptavina og samstarfsmanna, og
hafðir meiri þroska til að bera en
margir aðrir til að skynja að líf okk-
ar flestra er þjónusta einhverskonar.
Starfsgleðin var einstök og þú naust
þess að fullu að gera öðmm til hæf-
is og að gera aðra glaða. Þar varstu
ódrepandi og gekkst alltaf skrefínu
lengra en við hin.
Ungu fólki sem kom til náms hjá
okkur varstu sönn fyrirmynd, bæði
sem fagmaður og yfirmaður. Þú
varst nærgætinn, sívakandi og sífellt
að laða fram það jákvæða hjá hveij-
um og einum. Prúðmennska, snyrti-
mennska og agi vom þér í blóð borin.
Hjá þér vom vandræðin til þess
að leysa þau og erfiðleikamir til að
yfirstíga. Frá þér geislaði gleði og
kraftur sem hafði mannbætandi áhrif
á alla í návist þinni.
Elsku Denni minn, ég bið góðan
Guð að styrkja og styðja alla þína
ástvini.
Hvíl í friði.
Skúli Þorvaldsson.
öll börn löðuðust að henni. Á seinni
árum vora bamabömin og barna-
bamabömin sólargeislar í lífi henn-
ar. Dídí og Ingvar höfðu mikinn
áhuga á ræktun. Þau byggðu sér
sumarbústað í nágrenni Reykjavíkur
og þar áttu þau margar góðar stund-
ir og breyttu gróðurlausum mel í
unaðsreit.
Dídí barðist við erfíðan sjúkdóm í
mörg ár. Hún gafst aldrei upp. Trú-
in gerði hana sterka. Fjölskylda
hennar sýndi henni mikla umhyggju.
Á haustdögum heimsótti ég þau
hjónin Ingvar og Dídí á heimili þeirra
í Nóatúni 30. Með mér var lítill
frændi okkar Dídíar. Þrátt fyrir veik-
indi tók hún á móti okkur með hlýju
og glaðværð. Þessi síðasta heimsókn
til Dídíar verður mér ógleymanleg.
Kijúptu að fótum friðarboðans
og fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa guðs um geim.
(Jónas Hallgrímsson)
Við systkinin frá Bjargi og móðir
okkar minnumst Dídíar með hlýju
og þakklæti fyrir samfylgdina á lífs-
Ieiðinni. Við óskum henni fararheilla
til æðri heima og vottum eiginmanni
hennar, börnum og öðmm ástvinum
einlæga samúð.
Kristín Eggertsdóttir.
Minning
Sverrir Jónsson
Fæddur 14. apríl 1942
Dáinn 17. janúar 1993
Þetta er lífið. Þú áttar þig ekki á því rétt
á meðan, álítur alltaf að það sé rétt í vænd-
um, handan við homið, innan seilingar.
Fyrir bragðið gefurðu ekki gaum að augna-
blikinu nema eins og annars hugar sam-
tali á næsta borði. En það er lífið sjálft.
(Pétur Gunnarsson.)
Hversu oft hugsum við ekki eitt-
hvað þessu líkt þegar við stöndum
frammi fyrir því að ekki er lengur
tími til að segja eða gera það sem
við vildum, en gerðum ekki.
Þannig líður mér nú þegar ég
kveð Sverri mág minn og þakka
honum allt það góða eftir um 20
ára samfylgd.
Sverrir og Sigga ætluðu að dvelja
jól og áramót í faðmi fjölskyldu
sinnar í Stavanger í Noregi. Menn-
irnir álykta en guð ræður. Áður en
jólin voru liðin var Sverrir lagður
fárveikur inn á sjúkrahús þar í bæ.
í þijár vikur naut hann og fjöl-
skylda hans einstakrar umönnunar
og umhyggju alls starfsfólks gjör-
gæsludeildar Sentra-sjúkrahússins
í Rogalandi. Þar lést hann sunnu-
daginn 17. janúar sl. Elsku Sigga
systir, Bogga og fjölskylda. Hugur
minn dvelur hjá ykkur. Huggunar-
orð mín til ykkar em fengin úr
Spámanninum, sem segir m.a.:
Þegar þú er sorgmæddur, skoðaðu þá huga
þinn, og þú munt q'á, að þú grætur vegna
þess sem var gleði þín.
Því að hvað er það að hætta að draga
andann annað en að frelsa hann frá frið-
Iausum öldum lífsins, svo að hann geti ris-
ið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað
á fund pðs síns?
Aðeins sá, sem drekkur af vatni þagnarinn-
ar, mun þekkja hinn volduga söng.
Og þegar þú hefur náð ævitindinum, þá
fyrst munt þú hefja Qallgönpna. Og þegar
jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í
fyrsta sinn.
(Kahlil Gibran.)
Föður, systkinum, börnum og
öðrum aðstandendum sendi ég sam-
úðarkveðjur.
Inga Baldursdóttir.
Sérfræðingar
i blóiiiaskroyiÍHgiiin
vió öll (a'kilirri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími19090
SJÁIFSTÆÐISFIOKKURINN
VIÐTALSTÍMAR ALÞINGISMANNA
í dag, miðvikudaginn 27. janúar kl. 17.00-
19.00, verða alþingismennirnir Björn Bjarnason
og Guðmundur Hallvarðsson til viðtals íValhöll,
Háaleitisbraut 1.
Reykvíkingar eru hvattir til að notfæra sér þessa
viðtalstíma og koma á framfæri viðhorfum sínum
og ábendingum við alþingismenn Sjálfstæðis
flokksins.
R AD AUGL YSINGAR
FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
ÝMISLEGT
Fræðslufundur í Kársnessókn
Kvennaguðfræðin og
sjálfsímyndin
1. fræðslufundur Kársnessóknar á þess-
um vetri verður í Borgum, Kastalagerði 7,
í kvöld, miðvikudagskvöldið 27. janúar
kl. 20.30.
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir talar um
kvennaguðfræðileg efni og þá sérstaklega
sjálfsmyndina.
Allir velkomnir.
Flórída - Orlando
Gisting: 2ja manna herbergi með
morgunmat 55 dollarar. Frábær
staðsetning. Sækjum á flugvöll
og veitum aðstoð.
Sími 901-407-239-2611.
KENNSLA
Sundhöll Reykjavíkur
Sundnámskeið hefjast 1. febúar
kl. 18.20. Innritun og upplýs-
ingar i afgreiðslu f síma 14059.
I.O.O.F. 7 = 1741277 = Þb.
Fræðslunefnd Kársnessóknar.
I.O.O.F. 9 = 1741278V2 = 9.I.
□ GLITNIR 5993012719 III 1.
□ HELGAFELL 5993012719
\MN 2
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur ( kvöld kl. 20.30.
Ræöumaður Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
SAMBAND ISLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60.
Almenn kristniboðssamkoma i
Kristniboðssalnum kvöld kl.
20.30. Ræðumaður: Ástriður
Haraldsdóttir.
Þú ert velkomin(n).
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
IOGT
St. Einingin nr. 14
Opinn fundur í Templarahöllinni
í kvöld kl. 20.30. Ræðum breytt-
ar baráttuaðferðir. Fjölmiðla- og
auglýsingafólki boðið á fundinn.
Félagar fjölmennið.
Æ.T.
v\ SÁLARRANNSÓKNAR-
FÉLAGIÐ
HAFNARFIRÐI
Sálarrannsóknafélagið i Hafnar-
firði heldur skyggnilýsingarfund
með Þórhalli Guðmundssyni
miðli á morgun, fimmtudaginn
28. jan. Fundurinn er i „Gúttó"
og hefst kl. 20.30.'
Aðgöngumiðar í bókabúð Óli-
vers Steins, sími 50045.
Stjórnin.
Námskeiðið
„Kristið líf og vitnisburður11
verður haldið í Neskirkju sem
hér segir:
1. í kvöld, miðvikudag,
kl. 20.00.
2. Laugardag 30. janúar
kl. 10.30.
3. Miðvikudag 3. febrúar
kl. 20.00.
4. Laugardag 6. febrúar
kl. 10.30.
5. Miðvikudag 10. febrúar
kl. 20.00.
Námskeiðiö er liður í undirbún-
ingi samkomuátaks Billy Gra-
ham 17.-21. mars nk. Öllum er
heimii þátttaka og þátttökugjald
er ekkert. Leiðbeinendur eru:
Andrés Jónsson, Ragnar Gunn-
arsson og Miríam Óskarsdóttir.