Morgunblaðið - 27.01.1993, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.01.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANUAR 1993 I-UGM Íl/.U/Ai- .:!• I.IAI RlHIVUIÍA UÍU / . 111 /11, m M7: 5 -t Iðnó fær nýjar aðaldyr Endurbygging Iðnó kostar um 110 millj. Ákveðið að heQa endurreisn Iðnó Framkvæmt fyrir 40 milljónir á árinu BORGARRÁÐ Reykjavíkur samþykkti í gær áætlanir hús- stjórnar Iðnó um endurbyggingu hússins en til hennar er varið 40 millj. kr. í nýsamþykktri fjárhagsáætlun borgarinn- ar. Að sögn Haralds Blöndals, formanns hússtjórnarinnar, verður fljótlega hafist handa við framkvæmdir en frumhug- myndir um kostnað, án húsgagna, búnaðar og opinberra gjalda, hljóða upp á um 110 millj. Samkvæmt hugmyndum Ingimundar Sveinssonar arkitekts verður aðalinngangur Iðnó færður í upprunalegt horf og verður aðkoma að húsinu þá úr norðri, frá Vonarstræti. Jafnréttisráð um stöðuveitingu í Héraðsdómi Reykjavíkur Ekkí var brotið gegn jafnréttislöguniim KÆRUNEFND jafnréttismála hefur komist að þeirri niður- stöðu að ráðning Sigurðar Tómasar Magnússonar í stöðu skrifstofustjóra Héraðsdóms Reykjavíkur hafi ekki brotið gegn ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Fimm lögfræðingar sóttu upphaf- lega um stöðuna, þar á meðal Þór- hildur Líndal og Georg K. Lárusson. Georg var ráðinn en afþakkaði stöð- una er hann var skipaður sýslumaður í Vestmannaeyjum. Staðan var þá auglýst að nýju og sóttu sjö manns um hana, þar á meðal Þórhildur Líndal og Sigurður Tómas Magnússon, sem var ráðinn. Þórhildur vildi ekki una þessum málalokum og óskaði eftir því að kærunefnd jafnréttismála færi fram á það við settan dómstjóra í Reykja- vík, Friðgeir Björnsson, að hann upplýsti nefndina um hvaða mennt- un, starfsreynslu og aðra sérstaka hæfileika umfram kæranda þeir tveir umsækjendur hefðu sem ráðnir voru til starfans. Starfandi kærunefnd vanhæf Starfandi kærunefnd taldi sig van- hæfa og var sérstök kærunefnd skip- uð, en í henni áttu sæti þrír lögfræð- ingar; Guðríður Þorsteinsdóttir for- maður, Gylfi Knudsen og Jón Þor- steinsson. Þórhildur hafði gegnt störfum full- trúa yfirborgardómara í átta ár en störfum deildarstjóra í félagsmála- ráðuneyti í sjö ár, og taldist því hafa mun lengri starfsaldur en Georg og Sigurður Tómas. Dómstjóri taldi Georg standa kæranda framar að því leyti að hann hafði gegnt starfi aðalfulltrúa yfirborgardómara og þannig öðlast reynslu af skrifstofu- stjórn, og auk þess verið settur sýslu- maður og borgardómari. Auk starfa sem dómarafulitrúi hafi Sigurður Tómas Magnússon verið settur borgardómari, aðstoðar- maður liæstaréttardómara og fulltrúi lögmanns. Störfin hafí öll verið innan réttarkerfisins en engin stjórnunar- reynsla hafi verið til staðar. Dóm- stjóri taldi að jafnstaða hafí verið með Þórhildi og Sigurði Tómasi að því er varðar störf þeirra sem lög- lærðra fulltrúa yfirborgardómara. Að öðru leyti hafi val dómstjóra ver- ið huglægs eðlis. Hönnunarvinnu er ólokið en ákveðið hefur verið að Ingimundur Sveinsson arkitekt annist hana á grundvelli hugmynda sem hann hef- ur sett fram. Að sögn Haralds er byggt á því að notkun hússins verði tvíþætt; annars vegar aðstaða til menningarstarfsemi fyrir leikhópa og aðra tistamenn en hins vegar greiðasala. Hvor þátturinn verði óháður hinum. Verkalýðsfélögin Dagsbrún, Framsókn og Sjómannafélag Reykja- víkur leystu til sín Iðnó í vor frá Alþýðuhúsinu hf. og gerðu samning við Reykjavíkurborg um að borgin legði fram fé til viðgerða gegn allt að 55% eignarhlut. Pilturinn sem lést ISLENSKI skiptineminn sem lést í bílslysi í Virginíuríki í Bandaríkjunum 18. janúar síð- astliðinn hét Guðmundur Árna- son. Hann var 17 ára gamall, fæddur 21. september 1975, og var til heimilis í Spóarima 21 á Selfossi en hafði frá því í haust dvalist sem skiptinemi í Bandaríkjunum. Útfor Guðmundar Árnasonar verður gerð frá Selfosskirkju á laugardag. Glerskáli við Tjörnina Haraldur Blöndal sagði að hug- myndir Ingimundar Sveinssonar geri ráð fyrir að svið og áhorfendasalur verði fært til upprunalegs horfs, sem og kaffisalur á efri hæð. Viðbygging frá um 1930 verði rifin en byggður glerskáli við suðurhlið hússins. Skál- inn tengist greiðasölunni. Haraldur sagði að Iðnó væri í slæmu ásigkomulagi, t.a.m. væru allar lagnir ónýtar. Akvörðun borgar- stjórnar miðaðist við að húsið yrði tekið í notkun á næsta ári en Harald- ur Blöndal vildi ekki tjá sig um hvort af því gæti orðið enda margt óvíst um ástand hússins. Guðmundur Árnason | ÉA || Él I Rúmgóður fjölskyldubíll á verði smábíls - HUI *y 834.000,- kr! RR4BöNuSi ^umþessa^ Uð* \6»mvctrardcJcJc, ^UrT> l'n þorrannl HYunoni ...til framtíðar Bílarnir fást til afbendingar strax! Verið velkomin - Gerið verðsamanburð og reynsluakið HYUNDAI PONY árgerð '93. BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. ÁRMÚLA 13. SÍMI: 68 12 00 BEINN SÍMI: 3 12 36 <& <& <& &>

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.