Morgunblaðið - 27.01.1993, Blaðsíða 44
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SJOVAHoALMENNAR
EININGABRÉF 2
Eignarskattsfrjáls
Raunávöxtun pjfl
sl. 12 mánuði jffej
8%
KAUPPING HF
IJfggi/t vrrdbrfafyrirurti
MORGUNBLADIÐ, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMl 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Morgunblaðið/Þorkell
Steypt meðan veður leyfir
Talsvert er pantað af steypu hjá steypustöðvunum þessa dagana eftir litla
eftirspurn síðustu vikna. Hjá BM-Vallá fengust þær upplýsingar að mikið
yrði steypt fram yfir helgi enda er spáð ágætu veðri til steypuvinnu.
Verkefni hafa safnast fyrir vegna frosta undanfarið og menn hyggjast
^-hamra jámið meðan það er heitt. Hér eru menn við steypuvinnu í Breiðholti.
Flugfarseðlakaup hins opinbera valda deilum
Ríkíð sparar 35-40
milljómr með útboði
Asakanir um óheimilan afslátt ferðaskrifstofa
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur beðið önnur ráðuneyti að velja
á milli fjögurra ferðaskrifstofa um kaup á farseðlum til út-
landa. Leitað var tilboða frá ferðaskrifstofunum í flugfarseðla
fyrir ríkisstarfsmenn og var gert að skilyrði að flogið yrði með
Flugleiðum. Með þessu er áætlað að kostnaður ríkisins vegna
ferðalaga erlendis lækki um 35-40 milljónir kr. á ári. Samvinnu-
ferðir-Landsýn er ekki í þessum hópi og gagnrýnir forstjóri
fyrirtækisins samninga ríkisins við ferðaskrifstofurnar.
Ferðaskrifstofurnar sem eiga kost
á viðskiptum við ríkið eru Úrval-
Útsýn, Ferðaskrifstofa íslands,
Ferðaskrifstofa stúdenta og Sölu-
deild Flugleiða. Farseðlakaup ríkisins
á ári eru áætluð 330 millj. kr. Flug-
leiðir veittu ríkinu aðgang að svoköll-
uðum vildarkortum sem hægt verður
að millifæra milli ríkisstarfsmanna,
og er það metið sem 10% afsláttur.
Fjármálaráðuneytið upplýsti að þeir
fjórir aðilar sem valdir hefðu verið
hefðu veitt afslátt vegna heildarvið-
skipta af fargjöldum. Helgi Jóhanns-
son, forstjóri Samvinnuferða-Land-
sýnar, segir að sé það rétt hjá ráðu-
neytinu að veittur hafi verið afsláttur
þá komi hann ekki annars staðar frá
en af sölulaunum til þessara aðila,
en slíkt sé óheimilt samkvæmt sam-
þykkt Alþjóðasamtaka flugfélaga,
IATA.
Afsláttur af sölulaunum
Helgi sagði að þetta hefði valdið
Samvinnuferðum miklum vonbrigð-
um. „Við teljum að við hefðum brot-
ið viðskiptasamning milli okkar og
Flugleiða með því að nota sölulaunin
sem samkeppnistæki og það væri
óheimilt gagnvart keppinautum okk-
ar líka. Með því værum við hugsan-
lega að fyrirgera rétti okkar til að
selja farseðla með Flugleiðum. Komi
hins vegar í Ijós, og það viljum við
fá staðfest í yfírlýsingu frá Flugleið-
um, að þessi skilningur okkar er
rangur, þá munum við að sjálfsögðu
endurskoða okkar mál,“ sagði Helgi.
Sigurður Skagfjörð hjá Söludeild
Flugleiða kvaðst hafa heyrt að veitt-
ur hefði verið afsláttur af sölulaun-
um, en það ætti ekki við um sölu-
deildina.
Skarphéðinn Steinarsson, við-
skiptafræðingur í fjármálaráðuneyt-
inu, sagði að reglur um umboðsþókn-
un sem ferðaskrifstofurnar kynnu
að falla undir væru ráðuneytinu al-
gjörlega óviðkomandi. „Það sem fyr-
ir okkur vakir er að iágmarka ferða-
kostnað ríkisins. Ef okkur býðst af-
sláttur af heildarviðskiptum hjá
ferðaskrifstofu þá þiggjum við hann
auðvitað," sagði hann.
Vestmannaey selur búra í Frakklandi
Aldrei hærra verð
fyrir ferskan fisk
FRYSTITOGARINN Vestmannaey VE fékk í síðustu viku milli 40 og
50 tonn af búra og heilfrysti um tíu tonn um borð en aflanum var
að öðru leyti landað í þrjá gáma sem voru sendir til Frakklands til sölu
á markaði í Boulogne. Fyrsti gámurinn var seldur í gær, alls 13 tonn
af búra. Fengust fyrir hann samtals 3,6 milljónir og var meðalverðið
273 kr. Vilhjálmur Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar,
segist ekki minnast þess að fengist hafi hærra verð erlendis fyrir
ferskfisk í gámi frá Islandi.
í gærmorgun voru seld tæp níu
tonn úr öðrum gámi fyrir 2,3 millj-
ónir króna og var meðalverðið 255
krónur en vegna deyfðar á markað-
inum tókst ekki að selja allan afl-
ann úr gámnum, að sögn Magnúsar
Kristinssonar, útgerðarmanns
Vestmannaeyjarinnar. Hann vonast
til að þrír gámar af búra skili tæp-
lega tíu milljónum í heildarsölu.
Frosinn búri selst ekki
Það heyrir til undantekninga að
frystitogari landi ferskum fiski en
útgerðarmaðurinn kveðst hafa
ákveðið að gera það þar sem léleg-
ir markaðir séu fyrir frosinn búra
og hann seljist tæplega.
Góð tilfinning að
hætta eftir 32 ár
BANKARAÐ Seðlabanka Islands tilkynnti síðdegis í gær að dr. Jóhannes
Nordal myndi að eigin ósk láta af starfi seðlabankastjóra um mitt ár 1993.
„Jóhannes hefur verið bankastjóri Seðlabankans frá stofnun hans árið 1961,
þar af formaður bankastjórnar frá árinu 1964,“ segir orðrétt í fréttatilkynn-
ingu frá bankaráði Seðlabankans. „Ég verð búinn að vera 32 ár í þessu starfi,
þegar ég læt af störfum á miðju árinu, og því finnst mér það alls ekki snemmt
að taka þessa ákvörðun," sagði Jóhannes í samtali við Morgunblaðið í gær.
Jóhannes verður nýorðinn 69 ára þegar hann mun láta af störfum og gæti
því gegnt starfinu einu ári lengur.
Jóhannes sagðist oft hafa hugleitt það að
undanfömu að hætta fyrr sem seðlabanka-
stjóri, en ekki hefði orðið af því fyrr en nú, af
ýmsum ástæðum. „Nú fannst mér vera orðin
síðustu forvöð að taka þetta skref,“ sagði Jó-
hannes.
Aðspurður hvað hann hygðist taka sér fyrir
hendur þegar hann hefur látið af störfum seðla-
bankastjóra sagði Jóhannes: „Ég ætla nú ekki
að fara að gefa mönnum ioforð um einhver
stórafrek, en ég hef náttúrlega ýmislegt annað
á minni könnu, sem ég get þá sinnt dálítið
betur en ég hef gert og þá vonandi í auknum
mæli. Ég á nú alveg eins von á því að ég
muni íhuga ýmisiegt sem tengist hagþróun á
íslandi."
Hlakka til breytingarinnar
— Hvernig tilfinning er það að standa upp
úr stól seðlabankastjóra og hverfa þar með frá
þeim áhrifum sem slíku starfí fylgja og völdum,
nú eftir rúma þijá áratugi sem seðlabanka-
stjóri og tæpa þijá áratugi sem formaður banka-
stjórnar Seðlabanka Islands?
„Eiginlega er þetta mjög góð tilfinning og
ég hlakka dálítið til þessarar breytingar. Þegar
maður er í starfí sem þessu, þá er maður ákaf-
lega bundinn við það að fylgjast í raun og veru
sífellt með því sem er að gerast. Ég er viss um
að það verður léttir þegar því lýkur og maður
getur meira um fijálst höfuð strokið. Ég man
það þegar ég tók mér nokkurra mánaða frí
Jóhannes hættir
Dr. Jóhannes Nordal. segist hlakka til að
geta nú um frjálst höfuð strokið eftir lið-
lega þriggja áratuga starf í einhverri
valdamestu stöðu íslensks fjármálalífs.
fyrir rúmum tíu árum, að mér fannst það í
raun og veru dálítið merkilegt að ég hafði aldr-
ei áður verið í fríi hér í Reykjavík og gekk
bara um götur borgarinnar og naut þess. Það
var ný og skemmtileg upplifun, sem ég hlakka
til að endurtaka.
Svona eftir á að hyggja finnst mér nú að
vafalaust sé skynsamlegt fyrir menn að vera
ekki alveg svona lengi í starfi. Þetta segi ég
alveg án þess að ég sé að kvarta yfir mínu lífi,
síður en svo,“ sagði dr. Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóri að lokum.
18 ára fær
tveg-gja ára
fangelsi
ÁTJÁN ára piltur hefur verið
dæmdur í tveggja ára fangelsi
fyrir að hafa þegar hann var 16
og 17 ára í 91 skipti gerst sekur
um lögbrot, oftast tékkafals, en
einnig rúman tug innbrota og
þjófnaða. Afbrotin framdi hann
ýmist einn eða í félagi við aðra.
Sex menn á aldrinum 18-31 árs
voru ákærðir fyrir að hafa verið í
vitorði með piltinum í ýmsum mál-
anna og fengu þeir styttri dóma.
Hlaut fjóra fangelsis-
dóma í fyrra
Pilturinn hlaut fjóra skilorðs-
bundna fangelsisdóma fyrir þjófnað
á slðasta ári. Undanfarið eitt og
hálft ár hefur hann hlotið sex dóma
og tvívegis gengist undir sættir
vegna þjófnaðar, áfengislaga- og
fíkniefnabrota.
I málinu sem hér um ræðir var
pilturinn í fyrsta skipti dæmdur í
óskilorðsbundið fangelsi. í málinu
var dæmdur upp 10 mánaða skil-
orðsbundinn dómur sem hann hlaut
í fyrra. Ingibjörg Benediktsdóttir
héraðsdómari kvað. upp dóminn.