Morgunblaðið - 27.01.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
í:i.‘íU MA'JHAl. .V
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1993
Li il'Jl'AG'UliVGHf UKIA
tt
Hjúkrunarfræðingar
Lausnin
vandfundin
- segir heilbrigð-
isráðherra
„Hjúkrunarfræðingar hafa sett
fram kröfur um almennar launa-
hækkanir, sem samsvara um 40
þúsund króna launahækkun á
mánuði að meðaitali. Þetta sem
þeir nefna launaleiðréttingu kall-
ar auðvitað á endurskoðun kjara-
samninga. Aðaivandinn við lausn
á deilunni er sá, að 420 einstaki-
ingar í hjúkrunarfræðingastétt
eru ekki réttur samningsaðiii,
heldur ber að semja um endur-
skoðun kjarasamninga við stéttar-
félög þeirra," sagði Sighvatur
Björgvinsson, heilbrigðisráð-
herra, í samtali við Morgunblaðið.
Ekki náðist í talsmann hjúkrunar-
fræðinga í gærkvöldi, en samn-
ingafundur stóð þá enn.
I gær hélt stjórnarnefnd Ríkisspít-
alanna fund með fulltrúum hjúkrun-
arfræðinga og Ijósmæðra á Landspít-
ala, að sögn Sighvats, en hann sagði
erfitt að finna lausn á málinu til að
koma í veg fyrir að þessir hópar
hætti störfum 1. febrúar. Hjúkrunar-
fræðingar færu fram á 3-5 launa-
flokka hækkun og viðbótarhækkun
fyrir fasta yfirvinnu. „Launaflokka-
hækkunin samsvarar 9-15 þúsund
króna hækkun mánaðarlauna og um
30 tímar í fastri yfirvinnu samsvara
um 30 þúsund krónum. Slíkar kröfur
falla undir endurskoðun kjarasamn-
inga.“
Sighvatur sagði að hjúkrunar-
fræðingar vísuðu til þess, að breyt-
ingar hefðu verið gerðar á Borgar-
spítalanum. „Þar voru málavextir
þeir, að 52 hjúkrunarfræðingar voru
í hálfu starfi og fengu yfirvinnu
greidda fyrir það sem vantaði upp á
heilt starf. Þannig voru laun þeirra
samsvarandi launum fyrir 125%
starf. Það var samið við þá um að
þeir yrðu ráðnir í fullt starf, gegn
því að hækká um 3-5 launaflokka.
Kostnaðaraukinn var því enginn fyr-
ir sjúkrahúsið. Hjúkrunarfræðingar
á Landspítala vilja hins vegar al-
mennar launahækkanir til allra,
hvort sem um fullt starf er að ræða
eða ekki, auk fastrar yfirvinnu. í
þessu máli vantar því bæði peninga
hjá Ríkisspítulunum ti! að ganga að
kröfunum og viðsemjanda fyrir ríkið.
Þá felst auðvitað sú hætta í þessu
að við förum í vítahring almennra
launahækkana."
verdens k‘ent «om |
Se tegene £dl 's™™- 6r dod, HM-
i 00613 vevet i hler* 1rT'isbruk I
te holdt mILA 1n skui- /
---- * ™ ’nhan/
The world’s
strongest ____________
HggHHffi ” noiot SO' inskul-
man, 32, oN' a. "JS
Birna Helgadot ^
REYKJAVIK §uu
lSSs^r0nges‘™^-
javik, Iceland. yk
[ Sigmarsson, four times win-
ner 0f the World’s Strongést 1'"^,
S » WaS awardedgthe
T?‘e °.f Sjrongest Man of All
I I ?e in, ,i987 after defeating
other strongmen such a?
Britain s Geoff Capes in feahs
f aint caLcafrying, truck-drag-
! gtrig and caber-tossing. *
^^^jo^ouncer, Sigmars.
Nokkrar greinanna
Meðal þeirra fjölmörgu erlendu blaða sem undanfarið hafa fjallað
um Jón Pál Sigmarsson og fráfall hans eru Aftenposten í Noregi,
breska blaðið The Times og einnig The European.
Fréttir iim fráfall
Jóns Páls í blöð-
um víða erlendis
ERLEND blöð hafa birt fréttir um fráfall Jóns Páls Sigm-
arssonar. Vikublaðið The European birti til að mynda
frétt um andlát hans á forsíðu og breska blaðið Times
fjallaði um Jón Pál í gær. Þá rakti sjónvarpsstöðin Euro-
sport feril Jóns Páls um helgina.
í greinum blaðanna er stiklað óttist að steranotkun sé orsök
á stóru í ferli Jóns Páls sem afl-
raunamanns og sagt að hann
hafi verið kallaður „víkingurinn“
vegna litríks keppnisstíls. Hann
hafi unnið keppnina sterkasti
maður heims fjórum sinnum og
hlotið titilinn sterkasti maður
allra tíma árið 1987.
European segir. að í viðtali við
blaðið á síðasta ári hafi Jón Páll
þakkað árangur sinn og krafta
heilbrigðu líferni, því að hann
væri afkomandi víkinga og val-
kyija og að hann hefði alltaf hlýtt
móður sinni.
Getgátur um stera
I blaðafréttunum er bent á að
Jón Páll sé í hópi íþróttamanna
sem hafi dáið á besta aldri að
undanförnu, og sagt að læknar
se
sumra þessara dauðsfalla. í
norska blaðinu Aftenposten er
fullyrt að steranotkun hafi leitt
Jón Pál til dauða og vitnað er í
ónafngreindan lækni því til sönn-
unar. í frétt Times er sagt að
ekki sé búið að fá úr því skorið
hvað hafi orðið Jóni Páli að ald-
urtila en sagt að grunur leiki á
að steranotkun hafi komið við
sögu.
Sendiherra kom með
ábendingu
Heigi Ágústsson, sendiherra
Islands í London, hafði samband
við Times í gær og benti á að í
íslenskum fjölmiðlum hefði komið
fram að banamein Jóns Páls var
kransæðastífla og engin merki
hefðu fundist um lyfjanotkun.
Mótmæla háu verði á
númerum á vsk. bfla
MÓTMÆLABRÉF hafa borist bæði dómsmálaráðherra og
Ijármálaráðherra vegna kostnaðar við ný skráningarnúmer
á svokölluðum vsk. bílum sem notaðir eru í atvinnu-
rekstri. Það eru Vinnuveitendasamband íslands og Verslun-
arráð Islands sem gera athugasemdir við gjaldtöku vegna
fyrirskipaðra númerabreytinga. Þessi kostnaður á við þá
bíla sem voru skráðir áður en sérstök númeraspjöld voru
gerð skyld samkvæmt lögum 1. janúar sl.
Vogamenn
uppiskroppa
með teppi
Vogum.
HANNES Jóhannesson, for-
maður Björgunarsveitarinnar
Skyggnis í Vogum, segir sveit-
ina hafa orðið uppiskroppa
með teppi og sokka til að
hlynna að fólki sem var komið
í húsnæði sveitarinnar eftir
hrakninga á Strandarheiði
aðfaranótt sunnudags. Fólk
var flutt úr 40-50 bílum á
svæðinu frá Vogum að Kúa-
gerði með bílum frá Skyggni
og Hjálparsveit skáta í Njarð-
vík og fólksflutningabílum.
Skyggnismenn voru beðnir
um aðstoð kl. 4.30 aðfaranótt
sunnudagsins og voru að til kl.
3 síðdegis. Vegna þess hve
óvenjumikið hefur snjóað á Suð-
urnesjum hafa sveitinni borist
mörg útköll þar sem liðið er af
árinu.
- E.G.
Ari Edvald, áðstoðarmaður
dómsmálaráðherra, sagði við
Morgunblaðið að hann ætti ekki
von á því að kostnaður vegna
nýrra númera yrði lagður niður.
Það væru skattayfirvöld sem
tækju ákvarðanir um þessar
greiðslur.
Verslunarráð og Vinnuveit-
endasamband mótmæla því að eig-
endur bíla, sem eru notaðir í at-
vinnurekstri, þurfi að borga fullt
gjald fyrir nýju skráningarnúmer-
in og að eigendur þurfi jafnframt
að færa bílana til sérstakrar skoð-
unar á eigin kostnað. I mótmæla-
bréfunum kemur m.a. fram að
ekki yrðu gerðar athugasemdir ef
bíleigendur þyrftu að greiða fram-
leiðslukostnað nýju skráningar-
númeranna en hvorki séu til laga-
leg né efnisleg rök fyrir öðrum
kostnaði við númerabreytinguna.
Einnig er bent á að sérstök skoðun
sé óþörf og hana sé hægt að fram-
kvæma samhliða aðalskoðun bíl-
anna.
Lagaheimild vantar
Jónas Fr. Jónsson hjá Verslun-
arráði íslands sagði að þessi núm-
eraskráning væri tekin upp í
hreinu upplýsingaskyni fyrir ríkið
og í lagaheimildum fyrir þessu
nýja skráningarkerfi væri hvergi
minnst á gjaldtöku. Þessi gjald-
taka væri langt yfir kostnaðar-
verði og hægt væri að leiða ýmis
rök að því að þetta væri skattur.
Jónas sagði að lokum að sam-
kvæmt umboðsmanni Alþingis
þurfi mjög ríka lagaheimild til
þess að leggja svona gjöld á.
Gjaldstofn fast-
eignaskattanna
hækkar um 4,9%
SAMKVÆMT fasteignaskrá 1. desember er álagningarstofn
fasteignaskatta sem innheimtir eru á þessu ári 915 milljarðar
króna og hefur hækkað úr 872 milljörðum frá fyrra ári.
Heildarhækkun álagningarstofns fasteignaskatta á landinu
öllu á þessu ári er því 4,9%. Þetta er talsvert umfram fram-
reikning á fasteignamati á milli ára og að sögn Magnúsar
Ólafssonar hjá Fasteignamati ríkisins er mestur hluti hækkun-
arinnar til kominn vegna endurmats og nýrra fasteigna sem
metnar hafa verið.
Samkvæmt þeim upplýsingum
um gjaldskrár sem borist hafa til
Sambands íslenskra sveitarfélaga
hefur ekkert sveitarfélag tilkynnt
hækkun á álagningarprósentunni á
þessu ári en Kópavogur hefur
ákveðið lækkun hlutfallsins úr
0,485 í 0,460 og í Hveragerði lækk-
ar úr 0,41% í 0,395%. í öðrum kaup-
stöðum er prósentan óbreytt.
Fasteignamat hækkar um 3,5%
og þar af meira
Fasteignamat íbúðarhúsa og lóða
hækkaði um 3,5% 1. desember sl.
nema á Höfn, Eyrarbakka, Stokks-
eyri og Hveragerði þar sem
hækkunin var 7% og á Kjaiarnesi,
Sauðárkróki, Akureyri, Egilsstöð-
um og Selfossi. Þar var hækkunin
12%. Atvinnuhúsnæði hækkaði um
1%.
lnnilegar þakkir til allra þeirra skyldmenna
og vina, sem glöddu mig á afmælisdegi mínum
20. janúar.
Guð blessi ykkur öll.
Laufey Þorvarðardóttir Kolbeins.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - simi 17800
Skrcming stendur yf ir
Skráning fyrir framan skrifstofu skólans í
síma 17800. Skrifstofan er opin mánud. -
fimmtud. frá kl. 14-16.
V
í
j'.
Ágæti rafmagnsnotandi. Þarft þú að láta gera við
raflögnina hjá þínu fyrirtæki eða heima hjá þér
Við erum tilbúnir til að aðstoða þig.
Endurnýjum gamlar raflagnir og bætum við nýjar
Skiptum um perur og yfirförum lampa
Lagfærum rafmagnstöfluna og setjum lekastraumsrofa
Gerum við dyrasímann eða setjum nýjan.
Leggjum símalagnir, loftnetslagnir og tölvulagnir.
Teiknum raflagnir og hönnum lýsingarkerfi
@ RAFMAGNSÞJÓNUSTAN
xKristján Sveinbjörnsson löggiltur rafvirkjameistari
Sími 654330 farsími 985 29120 Boðtæki 984 51415
EGIA
-röð ogregla
Margir litir margar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819