Morgunblaðið - 27.01.1993, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.01.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1993 9 ÓLAFSFIRÐINGAFÉLAGIÐ ÞORRABLÓT Nú eru síðustu forvöð að fá miða á þorrablót félagsins nk. föstudag. Engir miðar seldir við innganginn, hvorki á blót né ball. Pantanir í símum 30246,688796 og 41953. Nú er rétti tíminn til að hefja reglulegan sparnað með áskrift að spariskírteinum Hver er Christopher? Bandaríska tímaritið The New Republic fjallar í forystugrein í nýjasta hefti sínu um skipan Warrens Christophers í emb- ætti utanríkisráðherra. Telur blaðið þá embættisskipan ekki í samræmi við þá vinda ferskleika og nýjunga sem nú blási um Washington. Svikin vara I greininni segir: „Nú er ljóst að hinn raunsæi, hefðbundni, fijálslyndi, íhaldssami, hægfara miðjumaður, Warren Christopher, verður ut- anríkisráðherra. Við biðjum forláts, okkur finnst við hafa verið hafðir að fíflum. Svo virðist sem nýju demó- kratamir séu tiltölulega áþekkir gömlu demó- krötunum, a.m.k. hvað utanríkismál snertir. Ekki er hægt að segja með vissu að Christopher tákni einhvers konar upprisu Carterisma þar sem við vitum ekki hvað hann táknar yfirleitt. Hæfni hans er ekki dreg- in í efa. En hæfur maður án markmiða er litlu æskilegri en hæfileika- laus maður. Hvað sem öðru líður er Christopher hálfgerður Sfinx hvað varðar málefni Bosníu, Kina, Rússlands, út- breiðslu kjamorku- vopna, Mið-Austurlönd, Suður-Afríku, alþjóðlega vopnasölu, Haiti og hungursneyð í Afríku. Það, hversu varlega hann setur skoðanir sín- ar fram, missir algerlega marks. Slík varkámi á eflaust vel við í heimi lögfræðinnar. Og þar liggur hundurinn graf- inn. Skipan Christophers í embætti er óvænt viður- kenning pömpiltsins frá Little Rock á því gamla viðhorfi að utanrikis- þjónusta sé eithvað sem lögfræðingar snúi sér að þegar þeir hætta lög- fræðivafstri; utanríkis- ráðherrann eigi að vera í hlutverki sáttasenýara og stjórnanda. Verkefni utanríkisráðherrans er hins vegar, fyrst og fremst, að móta og þróa hlutverk Bandaríkjanna í heiminum og varpa ljósi á gildi og hagsmuni sem að baki liggja og síðast en ekki síst að koma þvi á framfæri af fullum krafti. Kalda stríðið var deila sem einkenndist af mikl- um stöðugleika og skipti stómm hluta heimsins upp í tiltölulega stöðugar blokkir. A þeim tima gat hlutverk stjórnandans hugsanlega dugað til. Það sem við þurfum nú á að halda er hugmynda- flug og nýjungagirni. Að kalda striðinu loknu ein- kennast alþjóðamál af eins konar alheims- óreiðu. Togstreita risa- veldanna setti hömlur á ýmsar fomar deilur víðs vegar um heiminn en þær hömlur em ekki lengur til staðar. Alls staðar em deilur að spretta upp og margar gefa ekki tilefni til skyn- samlegra, lögfræðilegra samningaviðræðna (likt og hinar árangurslausu sendiferðir Cyrus Vance, læriföður CÍn-istophers, til Bosníu hafa sýnt fram á). Það er undarlegt í þessu (jósi að hinn nýj- ungagjami Clinton skuli hafa tekið ákvörðun um að festa gömlu aðferðim- ar í sessi. Utanríkisþjón- usta hans hefði fallið vel í kramið hjá Michael Dukakis Skortur á fjöl- breytileika Leiðarahöfundur New Repubtíc segir Clinton hafa valið mjög breiðan hóp til að gegna forystu á sviði innanríkismála. I efnahagsmálum komi samstarfsmenn hans meira að segja úr svo mörgum áttum að það jaðri við ósamræmi. í utanríkismálum sé hins vegar enga breidd að finna né heldur ferska vinda. I stað þess að velja mann við hlið Christoph- ers sem bæti hann upp í reynslu eða skoðunum hafi Clinton, í anda þeirr- ar stefnu stjórnarskipt- anna að sýna lit gagnvart minnihlutahópum, valið blökkumanninn Clifton Wharton sem næstæðsta mann utamikisþjón- ustunnar. Wharton, sem farið hefur með stjórn lífeyrissjóðs háskóla- kennara, sé vel metinn og hæfur. Hættan sé hins vegar að hann verði eins konar spegilmynd ■ Christophers. Þá sé helst orðaður við þriðja æðsta embættið Peter Tarnoff, fyrrum aðstoðarmaður Christophers og sé hans helst minnst fyrir mjög furðulega grein í Pollý- önnu-stíl, sem hann ritaði fyrir leiðarasiðu New York Times þegar Persa- fióastríðið var í algleym- ingi. Haukar ogdúfur Loks segir: „Persaflóa- stríðið, aðgerðimai’ í Só- malíu og umræðan um Bosníu hafa sýnt fram á að við erum á leið inn í tímabil þar sem valdbeit- ing, eða möguleikinn á valdbeitingu, mun vega þyngra í utanríkisstefnu okkar en flestir væntu. Því höfum við áliyggjur af þvi að tregða tÚ vald- beitingar, á borð við þá sem demókratar hafa sýnt í kjölfar Víetnam- stríðsins, festi sig í sessi á ný. Málið snýst ekki lengur um hauka og dúf- ur. Slíkar skilgreiningar eru úr sér gengnar; jafn- vel Jesse Jackson styður aðgerðimar i Sómaliu. Málið snýst um það hvort Bandaríkin, undir stjórn Bills Clintons, séu reiðu- búin að haga sér í sam- ræmi við það sem þau em, nefnilega eina risa- veldið í heimi. Þau eiga ekki að stjómast af duttl- ungum eða árásargimi en ekki heldur aðgerðar- leysi. Verið þess minnug að Clinton var á báðum áttum um Persaflóastríð- ið, hafði réttara sagt hvora skoðunina í kjölfar annarrar. Þessar emb- ættisskipanir vekja í bijósti okkar ótta um að hin raunverulega skoðun hans á málinL' hafi verið sú sem réð því að hann tók afstöðu með meiri- hluta demókrata á Bandaríkjaþingi gegn Persaflóastriðinu." ríkissjóðs. Notabu símann núna, hringdu 1 62 60 40, 69 96 00 eða 99 66 99 sem er grænt númer. RÍKISVERÐBRÉFA K E I Ð V í B Pjriut Árnnson, Jjnrmnlnfulllnii hjá fírnnda hf. Iiefursóll námskeii) í fjnrmálum einslaklinga hjá VIII „Markmiðum í húsnæðisr, lífeyris- og peningamálum eru gerð góð skil og hvernig á einfaldan hátt hægt er að ná þeim. Námskeiðið er góð leiðsögn og á erindi til allra.“ Fjármálanámskeiði VÍB er einkum ætlað að leiðbeina þátttakandanum við að nýta tekjur sínar sem best og byggja upp sparifé og eignir. Reynt hefur verið að gera námskeiðið þannig úr garöi að þátttakandinn geti sjálfur ráðið fram úr fjármálum sínum og skipulagt þau til'að ná sem bestum árangri. A námskeiðinu er m.a. lögð áhersla á markmið í fjármálum til langs og skamms tíma, þar sem reynt er að samræma drauma og veruleikann. Ráðgjafar VIB veita frekari upplýsingar um Fjármálanámskeið VIB og einnig er hægt að fá sendar upplýsingar í pósti. Kalkofnsvegi 1, Hverfisgötu 6, sími 91- 626040 sími 91- 699600 Kringlunni, sími 91- 689797 VÍB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Armula 13a, 155 Reykjavik. Sími 68 15 30. Myndsendir 68 15 26. Símsvari 68 16 25.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.