Morgunblaðið - 27.01.1993, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR
27. JANUAR 1993
KORFUBOLTI
Charles Barkley
Phoenix
enná
toppnum
Phoenix Suns heldur sínu striki
í NBA-deildinni. Á mánudag-
inn sigraði liðið í 28. leiknum í
vetur, gegn Detroit Pistons,
121:119. Ekkert annað lið í deild-
inni getur státað af slíkum
árangri. Þetta var sjötti tapleikur
Detroit í röð eða síðan Dennis
Rodman meiddist fyrr í þessum
mánuði. Kevin Johnson og Charles
Barkley voru stighæstir í liði Suns
með 24 stig hvor. Joe Dumars var
atkvæðamestur í liði Detroit með
36 stig.
Dominique Wilkins gerði 38 stig
og Kevin Willis 30 fyrir Atlanta
Hawks í 117:106 sigri yfir Sacra-
mento Kings. Lionel Simmons
gerði 26 stig fyrir Kings og Mitch
Richmond 20. Atlanta hefur nú
unnið sjö af síðustu 10 leikjum
sínum, en Kings hefur tapað sex
af síðustu átta.
Denver Nuggets vann þriðja
leikinn í röð á mánudaginn gegn
Minnesota Timberwolves, 102:97.
Chris Jackson gerði 24 stig og
Reggie Williams 22 fyrir Denver.
Chuck Person gerði 20 af 29 stig-
um sínum í fyrri hálfleik fyrir
Minnesota, sem tapaði níunda leik
sínum af síðustu tíu.
URSLIT
Tennis
Opna ástralska
meistaramótið
8-manna úrslit í einliðaleik kvenna:
2- Steffi Graf (Þýskalandi) vann 7-Jennifer
Capriati (Bandar.) 7-5 6-2.
4- Arantxa Sanchez Vicario (Spáni) vann
5- Mary Joe Femandez (Bandar.) 7-5 6-4.
1-Monica Seles (Júgósl.) vann Juiie Halard
(Frakklandi) 6-2 6-7 6-0
3- Gabriela Sabatini (Argentínu) vann Mary
Pierce (Frakklandi)........4-6 7-6 6-0.
Körfuknattleikur
1. deild karla:
ÍS-ReynirS.......................72:70
ÍR-ÍA............................65:81
NBA-deildin:
Mánudagur:
Detroit — Phoenix Suns.........119:121
Atlanta — Sacramento...........117:106
_Denver — Minnesota.............102: 97
FELAGSLIF
Aðalfundur Leiknis
Aðalfundur Leiknis verður þriðjudaginn 2.
febrúar kl. 20.30 í Gerðubergi.
HANDKNATTLEIKUR
Tíu landsliðsmenn eiga
við meiðsli að stríða
TÍU landsliðsmenn sem léku
með landsliðinu í B-keppninni
í Austurríki og á Ólympíuleik-
unum í Barcelona á síðasta ári
eiga nú við meiðsli að stríða
og er Ijóst að fimm þeirra verða
ekki tilbúnir í slaginn í heims-
meistarakeppninni í Svíþjóð,
sem hefst 9. mars.
Hér er um að ræða landsliðs-
menn sem eiga samtals 1.137
landsleiki að baki, eða að meðaltali
113,7 landsleiki á mann. Þtjár
skyttur: Kristján Arason, Júlíus
Jónasson og Héðinn Gilsson. Tveir
leikstjórnendur: Gunnar Gunnars-
son og Gunnar Andrésson. Þrír
hornamenn: Jakob Sigurðsson,
Bjarki Sigurðsson og Valdimar
Grímsson. Línumaðurinn Birgir
Sigurðsson og markvörðurinn Sig-
mar Þröstur Óskarsson.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um að meiðsli leikmanna
hafa verið mikil blóðtaka fyrir
landsliðið og þá sérstaklega þar sem
leikmennirnir sem eru meiddir hafa
verið lykilmenn landsliðsins undan-
farin ár.
Á sjúkralistanum
10 landsliðsmenn í handknattleik eru á sjúkralistanum. Þar á meðal er hornamaðurinn Jakob Sigurðsson á myndinni
til vinstri, leikstjórnandinn Gunnar Gunnarsson á miðmyndinni og skyttan Kristján Arason til hægri.
Meiðsli tíu landsliðsmanna
í handbolta
B-keppnin Ól. leikar HM í
Meiddist: í Austurríki í Barcelona Svíþjóð 1993 Meiðsli
Kristján Arason, FH 1991 já meiddur nei öxl
Bjarki Sigurðsson, Víkingi 1992 já meiddur nei hné
Gunnar Andrésson, Fram 1992 já já nei bak
Jakob Sigurðsson, Val 1992 meiddur já nei hné
Birgir Sigurðsson, Vfkingi 1992 já já nei hné
Júlíus Jónasson, Paris SG 1993 já já ? iæri
Gunnar Gunnarsson, Víkingi 1993 já já ? káifi
Héðinn Giisson, Dússeldorf 1993 já já ? hné
Valdimar Grímsson, Val 1993 já já ? nári
Sigmar Þ. Óskarssson, ÍBV 1993 já já ? bak
Engin einhlít skýring
- segir Björn Zoéga, læknir landsliðsins í Noregsferðinni,
um tíð meiðsli handknattleiksmanna
MIKIÐ hefur verið um meiðsli hjá landsliðsmönnunum í hand-
knattleik að undanförnu og nú síðast var það Valdimar Gríms-
son sem meiddist í nára og verður frá í viku til tíu daga að
minnsta kosti. BjÖrn Zoéga, læknir landsliðsins í Noregsferð-
inni, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær ekki hafa neina
einhlíta skýringu á þessum miklu meiðslum er hann var innt-
ur eftir því.
Björn Zoéga sagði um meiðsli
Valdimars, að ljóst væri að
hann yrði að hvfla í viku til tíu
daga. „Líkiegast hefur hann
tognað illa í nára. Tíminn verður
að leiða það í ijós hvað þetta er
alvarlegt en ég hugsa að hann
eigi að ná sér nokkuð hratt og
reikna með að þetta taki svona
viku til tíu daga,“ sagði Bjöm.
Vaidimar fann fyrir eymslum í
nára á æfingunni fyrir leikinn
gegn Rússum en hélt að það
væri ekki neitt til að hafa áhyggj-
ur af, en verkurinn ágerðist í
leiknum með þeim afleiðingum
að hann varð að fara af leikvelli
rétt fyrir leikhlé.
En hefur Bjöm einhveija skýr-
ingu á þessum tíðu meiðslum
leikmanna? „Það er erfitt að gefa
einhlíta skýringu á þessum
meiðslum, sem em mjög mismun-
andi. Eitthvað er nú vegna of
mikils álags eins og til dæmis
hjá Héðni [Gilssyni] og jafnvel
fleirum. Mér sýnist á liðinu sem
er hér í Noregi að það sé vel
teygt og í nokkuð góðu formi
þannig séð.“
Eru einhveijir aðrir í landsliðs-
hópnum í Noregi sem eiga við
meiðsli að stríða? „Það eru smá
pústrar og eymsli hér og þar en
ekkert alvarlegt. Alfreð og Sig-
urður Sveinsson hafa báðir verið
slærnir í baki en það er ekkert
nýtt fyrir þá. Þeir hafa fengið
sérstaka hljóðbylgju meðferð fyr-
ir hvern Ieik.“
Fyrirtæki og félagahópor
Stóra fyrirtækja- og félagahópakeppni knatt-
spyrnudeildar Leiknis fer fram 7.-14. febrúar.
Leikið verður í íþróttahúsinu við Austurberg. 5
leikmenn inná með hverju liði, enginn 1. deildar
leikmaður gjaldgengur í mótið. Glæsileg verð-
laun. Þátttökugjald er kr. 10.000. Skráning er
hafin í síma 78050 (Líney), fax 78025.
Knattspyrnudeild Leiknis.
KNATTSPYRNA / HM
11 þjóðirhællar
keppni í Afríku
Tanzanía hefur hætt þátttöku í heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu
og er 11. þjóðin í Afríku, sem dregur sig í hlé. Tanzanía bar við
ljárhagslegum vandræðum, en landslið þjóðarinnar hafði leikið fjóra leiki
og átti ekki möguleika á að komast áfram.
TENNIS
Opna ástralska:
Sigrar Seles
þriðja sinni?
MONICA Seles, Arantxa Sanc-
hez Vicario, Steffi Graf og
Gabriela Sabatini leika í undan-
úrslitum á Opna ástralska
meistaramótinu ítennis.
Seles tapaði einu setti fyrir Juliu
Halard frá Frakklandi í 8-
manna úrslitum í gær. Fyrsta sett-
ið vann Seles 6-2 en tapaði öðru
6-7 en sýndi og sannaði í þriðja
settinu hvers
vegna hún er
númer eitt á
heimslistanum
og vann örugg-
lega 6-0. Seles,
sem mætir Sa-
batini í undanúr-
slitum, tapaði
aðeins einu setti
á leið sinni til
sigur á mótinu í
fyrra. „Eftir að
ég vann annað
settið gerði ég
mér smá vonir _ _
um sigur. En nú ö©l©S
skil ég vel hvers Monica Seles hef-
vegna hún er ur leikið mjög vel
númer eitt,“ í Ástralíu.
sagði Halard.
Steffi Graf frá Þýskalandi, Gabri-
ela Sabatini frá Argentínu og Ar-
antxa Sanchez Vicario, Spáni,
tryggðu sér einnig sæti í undanúr-
slitum keppninnar í gær og mætast
þar. Graf vann unglinginn banda-
ríska, Jennifer Capriati, 7-5 og 6-2
í einum besta leik sem Graf hefur
spilað I marga mánuði. Vicario vann
Mary Joe Fernadez 7-5 og 6-4 og
sagðist Vicario tileinka föður sín-
um, Emilio, sigurinn en hann átti
afmæli á mánudaginn. Sabatini
byijaði illa gegn Mary Pierce frá
Frakklandi og tapaði 4-6 í fyrsta
setti en náði að meija sigur í öðru
setti 7-6 en í þriðja setti voru yfir-
burðir hennar miklir, 6-0.
í dag verður einnig leikið í 8-
manna úrslitum karla, en þar mæt-
ast eftirtaldir:
Stich (Þýskal.) — Forget (Frakkl.)
Bergstrom (Svíþjóð) - Edberg (Svlþjóð)
Courier (Bandar.) - Korda (Tékkn. lýðv.)
Steven (N-Sjálandi) - Sampras (Bandar.)