Morgunblaðið - 27.01.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR 1993
Byggðastofnun og Ames sættu gagnrýni á atvinnumálafimdi á Stokkseyri
Taprekstur frystíhúss setur
sveitarsjóð í mikinn vanda
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Heitur fundur á þorra
Frá fundinum í Gimli á Stokkseyri. Ragnar Arnalds alþingismaður og stjórnarmaður í Byggðastofnun er í ræðustól.
Pláss fyrir mig?
Á sjötta hundrað leikskólapláss
bæta væntanlega úr brýnni þörf
margra fjölskyldna.
Fimmnýir
leikskólar
áþessuári
LEIKSKÓLAPLÁSSUM í
Reykjavík mun fjölga um að
minnsta kosti 576 á þessu ári
samkvæmt upplýsingum sem
fram komu í ræðu Markúsar
Arnar Antonssonar borgar-
stjóra, við síðari umræðu um
fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar fyrir árið 1993. Ráð-
gert er að opna fimm nýja
leikskóla á árinu. Þeir verða
í Rimahverfi, Borgarholti II,
Selási, Háskólahverfi og við
Starhaga. Þá verður bætt við
húsnæði leikskóla á Njálsgötu
og í neðra Breiðholti og pláss-
um fjölgað.
Borgarstjóri gat þess að samn-
ingaviðræður stæðu yfir við fóstr-
ur um aukna hagræðingu í rekstri
með það fyrir augum að fjölga
plássum á leikskólum, sem fyrir
væru. Hann sagði að fóstrur hefðu
sýnt góðan vilja til samstarfs við
Reykjavíkurborg um þetta verk-
efni, sem leitt hefði til þess að
plássum fjölgaði um 150 á nýliðnu
ári á leikskólum, sem þegar voru
í rekstri. Borgarstjóri sagðist hafa
vonir um að álíka fjölgun yrði í
næsta áfanga og gætu þá um 730
leikskólarými eða fleiri bæst við í
Reykjavík á árinu 1993. Það yrði
meiri fjölgun en nokkurn tíma á
einu ári og meiri en meðaltalsfjölg-
un á heilu fjögurra ára kjörtíma-
bili þegar litið væri til þriggja kjör-
tímabila frá 1978 til 1990.
Selfossi.
STJÓRN Árness hf. og
starfsmenn Byggðastofnun-
ar fengu harða gagnrýni á
almennum fundi um atvinnu-
mál sem haldinn var á
Stokkseyri á mánudags-
kvöld. Grétar Zophoníasson
sveitarstjóri sagði að 60 störf
í fiskvinnslu hefðu verið flutt
frá staðnum. Stokkseyrar-
hreppur hefur tapað 29,8
milljónum króna með niður-
fellingu á skuldum og áfölln-
um ábyrgðum vegna Hrað-
frystihúss Stokkseyrar.
Framreiknuð til núvirðis
nemur þessi upphæð 43,5
milljónum króna. 32 milljónir
af þessari upphæð eru vegna
lána sem hreppurinn tók og
gekk í ábyrgðir fyrir voru
til hlutafjárkaupa í fyrirtæk-
inu árið 1991.
Frummælendur á fundinum
voru Grétar Zophoníasson, Jón
Gunnar Ottósson, Ragnar Arnalds
stjómarmaður í Byggðastofnun,
Eggert Haukdal alþingismaður og
varamaður í stjórn Byggðastofn-
unar, Guðni Ágústsson alþingis-
maður og Margrét Frímannsdóttir
alþingismaður. Gagnrýni frum-
mælenda^ beindist að ákvörðun
stjórnar Ámess að fiytja alla fisk-
vinnslu fyrirtækisins til Þorláks-
hafnar. Einnig voru starfsmenn
Byggðastofnunar gagnrýndir
harðlega, forstjóri hennar og full-
trúi stofnunarinnar við samein-
ingu Hraðfrystihúss Stokkseyrar
og Glettings.
Fjöldi starfa á burt
Grétar Zophoníasson sveitar-
stjóri sagði flutning fiskvinnslunn-
ar jafnast á við það að 440 störf
flyttust frá Selfossi. Hann sagði
að sveitarsjóður Stokkseyrar-
hrepps þyrfti á fyrirgreiðslu að
halda til þess að standast þau áföll
sem fylgdu því að rekstur Hrað-
frystihússins hætti.
Jón Gunnar Ottósson sem var
einn fulltrúa Stokkseyringa á hlut-
hafafundi Árness hf., sagði að til-
laga hefði verið lögð fram á hlut-
hafafundinum um að fresta flutn-
ingi vinnslunnar frá Stokkseyri og
hlutlausir aðilar fengnir til að fara
yfír málið. Þessi tillaga hefði ekki
fengist rædd en aftur verið sam-
þykkt traustsyfírlýsing á stjórn og
framkvæmdastjóra á fundinum.
Hættulegt fordæmi
Ragnar Arnalds stjómarmaður
Byggðastofnunar sagði það sitt
mat að það samkomulag hluthafa
sem gért var við stofnun Ámess
ætti að standa og að ákvarðanir
um hagræðingu gætu ekki fellt
það. Hann sagði það geta verið
hættulegt fordæmi að rifta sam-
komulaginu vegna þess að ekki
væri ólíklegt að svipuð staða kæmi
upp annarstaðar á landinu. „Við
munum í framtíðinni hvetja fyrir-
tæki til sameiningar en þá verðum
við að geta treyst því að gert sam-
komulag standi,“ sagði Ragnar.
Hann sagði að Símon Kærnested
löggiltur endurskoðandi og Hönn-
un hf. hefðu verið fengin til að
vinna athugun og skýrslu um
ákvörðun stjórnar Árness hf. að
flytja vinnsluna frá Stokkseyri. í
máli hans kom fram að stjóm
stofnunarinnar hefði ákveðið _að
skipa nýjan fulltrúa í stjóm Ár-
ness hf.
Brást Byggðastofnun?
Eggert Haukdal alþingismaður
sagði að starfsmenn Byggðastofn-
unar hefðu brugðist í málinu og
sagðist vera óhress með vinnu-
brögð stjórnar fyrirtækisins, þau
væru ekki traustvekjandi. Hins
vegar sagði hann að finna þyrfti
lausn fyfir alla byggðina.
Margrét Frímannsdóttir gagn-
rýndi störf fulltrúa Byggða-
stofnunar við sameiningu fyrir-
tækjanna. „Við vorum ósátt við
Byggðastofnun og þá einkum for-
stjórann," sagði Margrét. Hún
sagði að það hefði verið margítrek-
að á öllum fundum að það væm
fullkomlega tryggt að jöfn vinna
yrði á báðum stöðum. Fulltrúar
Byggðastofnunar, Guðmundur
Malmquist forstjóri og Sigfús
Jónsson hefðu fullyrt að full trygg-
ing væri fyrir þessu. Hún sagði
að Stokkseyringar hefðu í einu og
öllu fylgt ráðum stofnunarinnar
og ábyrgð hennar væri þvl mikil
á því hvernig framtíðin yrði á
Stokkseyri. „Nú eru allar efasemd-
ir okkar komnar fram og okkur
hefur fundist vanta á að fylgst
væri með því að samkomulagið
væri haldið. Hún benti á að það
væri erfitt fyrir einstæðar mæður
og eldri konur að fara um langan
veg til vinnu eins og raunin væri
fyrir Stokkseyringa sem störfuðu
hjá Árnesi.
Guðni Ágústsson sagði vandann
stóran en ekki yrði snúið aftur úr
sameiningunni. Mikilvægt væri að
Byggðastofnun fengi niðurstöðu í
það hvaða áform væru uppi um
hraðfrystihúsið, húsnæði Árness
hf., á Stokkseyri, hvort það ætti
sér framtíð ef Þróunarsjóður
keypti það. Hann varaði við áhrif-
um deilna á Ámes hf. og sagði
að menn þyrftu að standa saman
um að endurreisa atvinnulífið.
Fundurinn á Stokkseyri var vel
sóttur og nokkrar umræður urðu
eftir framsöguræður. Þung um-
ræða var gagnvart Byggðastofnun
og stjórn Arness og veruleg gagn-
rýni á stjórnarmenn þar kom fram
í máli vel flestra. í lok fundarins
voru samþykktar tvær tillögur,
önnur um að beina því til Héraðs-
nefndar Ámessýslu að hún for-
dæmdi þær aðgerðir stjórnar Ár-
ness hf. að flytja alla fiskvinnslu
frá Stokkseyri. Hin tillagan var
um að beina því til þingmanna að
þeir útveguðu fjármagn til þess
að koma á fót iðnaðarfyritæki með
góða arðsemi og sem gæti veitt
30 manns atvinnu.
Sig. Jóns.
Kven- og safnaðarfélög Reykjavíkurprófastsdæma
Aðstoð við starfsemi
Sólheima í Grímsnesi
TUTTUGU fulltrúar frá kven- og
safnaðarfélögum Reykjavíkurpróf-
astsdæma, sem hafa tekið sig saman
til þess að aðstoða starfsemina á
Sólheimum í Grímsnesi, hittust í
morgunkaffi í biskupsbústaðnum
laugardaginn 23. janúar sl. Á síðasta
ári gáfu félögin styttu í lystigarð
sem þar er verið að setja upp.
Ebba G.B. Sigurðardóttir, eiginkona bisk-
ups, sagði að á þessum fundi hefði verið
skipst á skoðunum um áframhaldandi sam-
starf félaganna. En aðalmarkmið samstarfs-
ins væri að hlúa að starfsemi Sólheima. Hún
sagði að tilefni heimboðsins á laugardaginn
hefði einnig verið að sýna að hið mikla sjálf-
boðaliðastarf sem unnið væri í þessum félög-
um væri mikils metið.
Samstarfið hófst
fyrir tveimur árum
Að sögn Ebbu hófst þetta samstarf kven-
og safnaðarfélaganna fyrir tveimur árum.
Þá var ákveðið að aðstoða við að koma upp
Iystigarði á Sólheimum með því að gefa
styttuna Sáðmanninn eftir Ríkarð Jónsson.
Börnin hans gáfu höfundarréttinn en félög-
in sáu um annan kostnað.
Ebba sagði að styttan hefði verið afhjúp-
uð með viðhöfn í haust. Sjötíu fulltrúar frá
félögunum hefðu verið viðstaddir athöfnina
og hefði þeim verið mjög vel tekið.
Morgunblaðið/Þorkell
Vel heppnuðu samstarfi haldið áfram
Tuttugu konur frá kven- og safnaðarfélögum Reykjavíkurprófastsdæma komu saman í
biskupsbústaðnum nýverið til þess að ræða um áframhaldandi stuðning við starfsemina
á Sólheimum.