Morgunblaðið - 25.02.1993, Síða 17

Morgunblaðið - 25.02.1993, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993 17 Meðan Róm brennur ... Breytingar eru forsenda árangurs •• eftir Onnu Birnu Snæbjörnsdóttur Á síðastliðnu ári fengu íslenskir námsmenn harkalega að kenna á niðurskurðarexi núverandi ríkis- stjómar. Vissulega var það viðbúið að námsmenn þyrftu að taka á sig eitthvað af þeim samdráttaraðgerð- um, rétt eins og aðrir þegnar þessa lands. Hins vegar er það deginum ljósara að þessar niðurskurðarað- gerðir komu mun harðar niður á námsmönnum en flestum öðrum þjóðfélagshópum. Námsmenn fengu á sig þung högg á tveimur vígstöðv- um, stórfelldur niðurskurður til Háskólans og grundvallarbreyting- um á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Nú hafa komið fram tillögur um grundvallarbreytingar á skipulagi Stúdentaráðs Háskóla ís- lands. Tilgangurinn með tillögunum er sá að gera Stúdentaráð hæfara til að sinna brýnustu hagsmunamál- um stúdenta og koma í veg fyrir að stúdentar missi tökin á atburðar- rásinni eins og átti sér stað þegar nýju lögin um Lánasjóð íslenskra námsmanna voru samþykkt. Allt stefndi í voða - hvar voru stúdentar? Það var fyrirséð löngu áður en Lánasjóðsbreytingamar urðu loks að veruleika að stjórnvöld hygðust stokka sjóðinn upp. Fjármálin voru í ólestri og vitað var að reynt yrði að hagræða og draga verulega sam- an. Ljóst var að námsmenn þyrftu að taka höndum saman í tæka tíð til að geta haft áhrif á stefnumótun stjórnvalda svo úr yrðu raunhæfar breytingar fyrir stúdenta. En hvar voru fulltrúar okkar, allan þann tíma sem stjórnvöld unnu að undir- búningi aðgerðanna? Það var ekki fyrr en stjómvöld voru í raun búin að móta stefnu sína til fullnustu og ákvörðunin ein eftir sem kallaður var saman fjöldafundur með ráð- herrum og þingmönnum í Háskóla- bíó og fulltrúum stúdenta; að mínu mati of seint. 30 manna Stúdentaráð Stúdentaráði er ætlað að það hlutverk að vinna að hagsmunamál- um stúdenta og um það verður ekki deilt að lánamálin skilgreinist sem slík. Það olli því mörgum vonbrigð- um hversu vanmáttugt það reyndist í þeirri baráttu sem var háð til vám- ar Lánasjóðnum. Auðvitað eru margar ástæður til þessa. Auðvelt væri að kenna þeim um, sem fara með stjórnina í Stúdentaráði. En svo einfalt er það nú ekki. í Stúdenta- ráði sitja 30 fastir fulltrúar sem kosnir em úr tveimur fylkingum námsmanna, Vöku og Röskvu. Það þarf varla mörg lýsingarorð til að gera sér í hugarlund hvernig fundir slíkrar samkundu ganga fyr- ir sig og hvaða árangri starf hennar skilar námsmönnum. Raunveruleg stefnumörkun ðg framkvæmdir verða skiljanlega heldur torveldar í meðfömm við slíkt fýrirkomulag. Félagsmál eiga ekki heima innan SHI En fjöldinn sem í ráðinu situr er því miður ekki eini gallinn; fyrr- greint hlutverk þess varðandi með- ferð hagsmunamála er nefnilega ekki eini málaflokkurinn sem því er ætlað að sinna, heldur em fé- lags- og menningarmál einnig hluti af starfssviði þess. Því hefur þróun- in viljað verða sú að allt of miklum tíma er varið í ráðagerðir og umfjöll- un um þann málaflokk, enda hann oft tilvalinn til stundarvinsælda. Deildarfélögin em vegna nálægðar sinnar við nemendur miklu betur til þess fallin að sinna félags- og menn- ingarmálum. í framhaldi af því telj- um við eðlilegt að fækka um helm- ing í Stúdentaráði. Með þessum aðgerðum aukum við skilvirkni Stúdentaráðs, nemendum til hags- bóta. Endurskoðun vinnubragða Nú þegar komin' er eins árs reynsla á breytingarnar á Lána- sjóðnum er nauðsynlegt að við stúd- entar einbeitum okkur af öllum kröftum að því að ná fram þeim breytingum sem mögulegar eru í samvinnu við stjómvöld. Á þessu eiga stúdentar kröfu. Við í Vöku viljum breyta Stúdentaráði úr því bákni sem það er í dag t virkt fram- kvæmdaráð sem skilar árangri. Aldrei hefur verið meiri þörf á end- urskoðun á vinnubrögðum og upp- byggingu þess en einmitt núna. Látum ekki telja okkur trú um neitt annað. Höfundur er nemi í sijórnm&lafræði og skipar 2. sæti framboðslista Vöku til Stúdentaráðs. Anna Birna Snæbjörnsdóttir „Aldrei hefur verið meiri þörf á endurskoð- un á vinnubrögðum og uppbyggingu SHÍ en einmitt núna. Látum ekki telja okkur trú um neitt annað.“ asm . f ly tj um Við f lytjum! li 1*1 . Mánudagiun 1. mars n.k. flytur Fjárfestingarfélagið Skandia alla ’semi sína úr Hafnarstræti, í aðalstöðvar Skandia að augavegi 170. með sama tíma verður því árfsemi Váftryggingarfélagsins kandia, Líftryggingarfélagsins ia og Fjárfestingarfélagsins andia á sama stað að Lauga- 170. þ mnurn einnig á útibú okkar í Kringlunni og á Akureyri. w Skandia Tfl hagsbóta fyrir íslendinga \ FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA HF. 61 97 00: Fjárfestingarfélagið Skandia* Líftryggingarfélagið Skandia • Vátryggingarfélagið Skandia. S 68 97 00: Útibú í Kringlunni. S (96) 1 11 00: Útibú á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.