Morgunblaðið - 25.02.1993, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993
Greiðsla
fvrir lösf-
bundin #
verkefni
- segir formaður
Búnaðarfélagsins
JÓN Helgason, formaður
stjórnar Búnaðarfélags Is-
lands, segir að ríkissjóður
greiði kostnað við ákveðin
verkefni sem félaginu hafi
verið falin með lögum og
dugi fjárveiting ríkisins
varla til þess. Hins vegar
greiði bændur sjálfir félags-
lega þáttinn, meðal annars
kostnað við Búnaðarþing.
Fram kom hjá fjármálaráð-
herra á Alþingi í síðustu viku
að ríkissjóður greiddi 75%
af kostnaði við rekstur Bún-
aðarfélagsins.
Jón sagði að helstu verkefni Bún-
aðarfélagsins væru við leiðbeininga-
þjónustu samkvæmt jarðræktar- og '
búfjárræktarlögum. Framlag ríkis-
ins dygði varla til að standa undir
þessum lögbundnu verkefnum.
Samkeppnisstaðan skekkist
Aðspurður um rökin fyrir því að
ríkið greiddi þennan kostnað en ekki
atvinnugreinin sjálf sagði Jón að
svona væri þetta búið að vera í heila
öld. Löggjafanum hafi ávallt þótt
þetta eðlilegt. Hann benti á að
áherslurnar nú, meðal annars vegna
GATT-samninga, væru þannig að
ríkið ætti fremur að greiða fyrir
þjónustu við landbúnaðinn en fyrir
framleiðslu. Jón sagði einnig að
ákveðið samræmi þyrfti að vera í
stuðningi við landbúnaðinn hér og í
nágrannalöndunum. í flestum ríkj-
um greiddi ríkisvaldið fyrir leiðbein-
ingaþjónustuna og ef því yrði hætt
hér stæðu bændur hér verr að vígi
í samkeppninni við erlenda starfs-
bræður.
-----»"»-4---
*
A sögn-
legan að-
draganda
- segir formaður
Fiskifélags ís-
lands um ríkis-
greitt Fiskiþing
„ÞAÐ á sér fyrst og fremst
sögulegan aðdraganda að
þessi kostnaður skuli vera
greiddur af ríkinu en ég
þekki ekki þá sögu,“ sagði
Jónas Haraldsson, formaður
stjórnar Fiskifélags íslands,
þegar hann var spurður um
rökin fyrir því að ríkissjóður
greiddi kostnað við Fiskiþing
Fiskifélags íslands.
Á síðasta ári nam kostnaður við
Fiskiþing 3,3 milljónum kr. og í fjár-
lögum þessa árs er gert ráð fyrir 2
milljóna kr. fjárveitingu til þing-
haldsins. Jónas sagði að núverandi
stjóm Fiskifélagsins ynni að því að
stytta Fiskiþing og minnka kostnað
við það en það tæki sinn tíma.
Hann sagði að alltaf mætti deila
um það hvort ríkið ætti að greiða
þennan kostnað. Jónas benti á að
Fiskifélagið væri hálfopinber stjóm-
sýslustofnun sem hefði meðal annars
það hlutverk að safna saman upplýs-
ingum um sjávarútveginn og gefa
út. Fiskiþing væri hluti af því. Þar
kæmu saman fulltrúar hinna ýmsu
hópa innan sjávarútvegsins meðal
annars til að móta tillögur um stjóm-
un fískveiða.
*
Islandsmeistarakeppni í 8 og 10 dönsum með frjálsri aðferð
Morgunblaðið/Jón Svavareson
Prúðbúnir keppendur
KEPPENDUR í flokki 16-18 ára stilla sér upp prúðbúnir við verðlaunaafhendinguna í íþróttahúsi Hauka við Strandgötu í Hafnarfirði.
Mjög lítill mimur á kepp-
endum í hveijum flokki
___________Pans_____________
Dröfn Guðmundsdóttir
SUNNUDAGINN 21. febrúar
fór fram íslandsmeistara-
keppni í samkvæmisdönsum
með fijálsri aðferð. Keppnin
fór fram í íþróttahúsi Hauka
við Strandgötu í Hafnarfirði.
Eins og áður var það Dansráð
íslands sem stóð fyrir keppn-
inni. Um 170 pör frá 7 dans-
skólum tóku þátt í keppninni
að þessu sinni. Keppendur
12-13 ára og 14-15 ára
kepptu í 8 dönsum þ.e. Cha-
cha, sömbu, rúmbu, jive og
quickstep, hægum foxtrot,
vals og tangó, en 16-18 ára,
19 ára og eldri og atvinnu-
menn kepptu einnig í paso
doble og vínarvalsi. Saman-
lagður árangur í öllum döns-
um réð úrslitum í keppninni.
Til þess að gefa fleirum tæki-
færi að taka þátt í keppninni að
þessu sinni fór einnig fram keppni
í einum dansi með grunnsporum.
Þar voru auk blandaðra riðla sér-
stakir dömuriðlar fyrir 10-11 ára
og 12-13 ára. Þrátt fyrir það að
strákar hafi ekki síður en stelpur
gott af því að læra dans þá er
meira af stelpum en strákum í þess-
um aldurshóp í dansskólunum.
Strákar 10-13 ára, það
vantar fleiri herra í dansinn!
Því er það vel til fundið hjá
Dansráðinu að hafa sérstaka
dömuriðla og man ég ekki til að
það hafi áður verið gert í keppni
sem þessari. En Dansráðið ætlar
að gera meira til þess að sem flest-
ir geti tekið þátt í danskeppnum.
Að sögn Hermanns Ragnarssonar
formanns Dansráðs íslands, hefur
verið ákveðið að breyta keppnis-
reglum þannig, að í upphafi hvers
dansárs ákveði nemendur dans-
skólanna hvort þeir ætli að taka
þátt í íslandsmeistarakeppnum
með fijálsri aðferð eða grunnspor-
um það skólaár. Með því verður
fjöldi þátttakenda í fjölmennustu
keppnunum viðráðanlegri og fleiri
taka þátt. Miðað við að keppendur
í grunnsporum fengu sinn dans í
þessari frjálsu keppni má ætla að
þeir sem nota fijálsa aðferð fái
einnig dans í keppninni með grunn-
sporum sem haldin verður í maí.
Dómararnir í keppninni voru
fímm og komu frá Danmörku,
Noregi, Englandi og íslandi.
n Wskao
Efnilegir dansarar
MARGIR mjög efnilegir dansarar eru í yngri aldursflokkunum í dansi. Hér hefur hópur 14-15 ára
dansara stillt sér upp við verðlaunaafhendinguna.
Frú Vigdís heiðursgestur
Heiðursgestur keppninnar var
forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir. Keppendur og áhorf-
endur kunnu vel að meta áhuga
frú Vigdísar og fögnuðu henni inni-
lega.
Meðal áhorfenda voru Evrópu-
meistaramir í 10 dönsum með
fijálsri aðferð, Martin og Alison
Lamb frá Englandi en þau voru
hér á landi á vegum Nýja Dansskól-
ans. Aðspurð sögðust þau hafa
haft mjög gaman af því að horfa
á keppnina. Hún hafí verið mjög
jöfn og spennandi og allir reynt
að gera sitt besta. Þeim fannst
geta þátttakendanna mikil og
„dansstandardinn" hár sem undir-
strikaði hæfileika íslenskra dans-
ara.
Eins og fyrr í vetur var keppnin
mjög spennandi og hörð, því ótrú-
Iega lítill munur var á beztu kepp-
endunum í hverjum flokki. Hart
var barist og ekkert gefíð eftir.
í heildina fannst mér keppnin
takast vel og að sumu leyti betur
en keppnin í gömlu dönsunum sem
fram fór á sama stað fyrir nokkrum
vikum. Þá fannst mér umgjörðin
tæpast nægilega hlýleg en hvort
sem það voru meiri blómaskreyt-
ingar, betri lýsing eða nærvera
forseta íslands fannst rnér húsið
mun hlýlegra en áður. Ég saknaði
þess að fá ekki ítarlega dagskrá
eins og á fyrri keppnum vetrarins.
Blöðin, sem dreift var, voru tæpast
fullnægjandi. Vel gerð og ítarleg
dagskrá er ekki aðeins auglýsing
fyrír keppnina heldur dansinn í
heild. Meðal þess er ætti að vera
í prentaðri dagskrá eru upplýsingar
Úrslit urðu eftirfarandi
12 og 13 ára, 8 dansar
Sigursteinn Stefánsson - Elísabet Haraldsdóttir
Brynjar Ö. Þorleifsson - Sesselja Sigurðardóttir
Daníel Traustason - Hrefna R. Jóhannsdóttir
14 og 15 ára, 8 dansar
Ólafur M. Sigurðsson - Hilda Stefánsdóttir
Birgir Ö. Einarsson - Erla S. Eyþórsdóttir
Einar G. Ingvarsson - Lóa Ingvarsdóttir
16 til 18 ára, 10 dansar
jtai Þ. Eyþórsson - Anna M. Ragnarsdóttir
Ólafur M. Guðnason - íris A. Steinarsdóttir
Gunnar M. Sverrisson - Eygló K. Benediktsdóttir
19 ára og eldri, 10 dansar
Víðir Stefánsson - Petrea Guðmundsdóttir
Bjami Þ. Bjamason og Jóhanna Jónsdóttir
Atvinnumenn
Jón P. Úlfljótsson - Kara Amgrimsdóttir
Haukur Ragnarsson - Esther I. Níelsdóttir
Hinrik N. Valsson - Kristín Vilhjálmsdóttir
Úrslit í einum dansi
10 og 11 ára, enskur vals
Benedikt Einarsson - Berglind Ingvarsdóttir
Andri Stefánsson - Ásta L Jónsdóttir
Ragnar Guðmundsson - Eva Hermannsdóttir
10 og 11 ára e. vals dömuriðill
Elísabet Jónsdóttir - íris D. Lámsdðttir
Eva S. Jðnsdóttir - Sigrún H. Sveinsdóttir
Unda S. Bragadóttir - Sigrún Ó. Ingólfsdóttir
12 og 13 ára samba
Hjörtur Hjartarson og Laufey L Sigurðardóttir
Baldur Gunnbjömsson - Halldóra Jónsdóttir
Bjartmar Þórðarson - Ingunn A. Sigmundsdóttir
12 og 13 ára samba dömuriðill
Guðrún L. Gísladóttir - Karen L. Ólafsdóttir
Lilja Gunnarsdóttir - Aðalheiður Sigurðardóttir
Katrín í. Kortsdóttir og Magney Ó. Bragadóttir
14 og 15 ára tangó
Hjalti Pálsson - Elínborg • Magnadóttir
um dómarana, feril þeirra og
reynslu.
Einnig fannst mér að keppnin
hefði mátt vera betur auglýst og
kynnt. Dansráð íslands hefur unnið
mjög gott starf við skipulagningu
og framkvæmd íslandsmeistara-
keppnanna í vetur en ég vil benda
á tvö atriði til athugunar. Það er
erfitt og krefjandi að taka þátt í
harðri danskeppni. Þess vegna er
betra að hafa keppnina á laugar-
degi með frídag að morgni.
Það er um nóg að hugsa á sjálf-
an keppnisdaginn, sérstaklega fyrir
aðstandendur yngri keppendanna,
þótt ekki bætist við að standa í
biðröð og það oft lengi til að fá
miða á borð eða jafnvel í stæði.
Er ekki hægt að selja aðgöngumiða
í forsölu eða jafnvel láta dansskól-
ana sem taka þátt í keppninni um
málið?
Ásgeir J. Einaisson - Hrafnhiidur Benediktsdóttir
Snæbjöm Sigurðsson - Friða R. Valdimarsdóttir
16 tii 18 ára rúmba
Baldur R. Gylfason - Hildur Stefánsdóttir
Friðrik I. Karelsson - Sigríður Sigmarsdóttir
Guðlaugur Ottesen - Nanna Gísladóttir Wium
19 til 24 ára quickstep
Jón B. Baldursson - Anna L. Reynisdóttir
Einar P. Guðlaugsson - Auður E. Guðlaugsdóttir
25 til 34 ára jive
Hrafn Friðbjömsson - Ágústa Johnson
Guðm. Æ. Guðmundss. - Aðalheiður Jóhannsd.
Hafliði Jónsson - Adda M. Jóhannsdóttir
35 ára og eldri c. vals
Jón S. Hilmarsson - Berglind Freymóðsdóttir
Ragnar Hauksson - Eygló Alexandersdóttir
Bjöm Sveinsson - Bergþóra M. Bergþórsdóttir