Morgunblaðið - 25.02.1993, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 25.02.1993, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRUAR 1993 37 KARFA Hinar ýmsu hliðar á harðjaxlinum Carles Barkley _ROCKY Fóðraðir leðurskór, hlýir og vatnsheldir Ein skærasta stjarna NBA- deildarinnar í Bandaríkjun- um er Charles Barkley, leikmaður með Phoenix Suns og stigahæsti leikmaður bandaríska „draumal- iðsins" í körfuknattleik sem vann alla leiki sína á Ólympíuleikunum í Barcelona með yfirburðum. For- ráðamenn Phoenix voru áfjáðir í að fá Barkley til liðs við sig þrátt fyrir heldur laklegt orð sem af honum fer. Phoenix er þekkt lið fyrir að vinna aldrei neitt, heldur hafna jafnan í öðru eða þriðja sæti í besta falli. Á því gæti orðið breyting nú, því liðið hefur aldrei leikið betur. Forráðamenn Phoenix létu þijá leikmenn úr byrjunarliði sínu fyrir Barkley og sjá ekki eft- ir því. Barkley er sagður fremur „uppákoma" í leik en „stjarna“. Eftir einn sigurleikinn hafði félagi hans í liðinu, Don Majerle, sett persónulegt met, hafði skorað átta þriggja stiga körfur. Eigi að síður hraðaði fréttamannaskarinn sér fram hjá Majerle í leikslok og sett- ist um Barkley sem hafði þó ekki staðið sig vonum framar í leikn- um. Hann tilkynnti þeim að þeir yrðu að nýta tímann vel, því hann hefði aðeins 15 mínútur upp á að hlaupa. Síðan romsaði upp úr sér hnyttnum og meinfýsnum tils- vörum um allt og alla í heila klukku- stund. Þrátt fyrir að Barkley þyki vera töframaður í körfuknattleik byijaði hann ekki að stunda íþróttina fyrr en 15 ára gamall. „Ég var á góðri leið að verða glæpamaður. Einu sinni vorum við nokkrir félagar á fullri ferð á flótta undan lögregl- unni og stefndum á skóglendi. Okkur var skipað að stöðva, sem við gerðum ekki, heldur köstuðum okkur niður á fjóra fætur og skrið- um inn í þykknið og komumst undan. En svo mikil var ferðin á mér, að ég skreið á fullri ferð á tré og fékk skurð á hausinn. Þá hugsaði ég með mér að réttast væri að ég legði eitthvað annað fyrir mig áður en í óefni væri komið,“ segir Barkley. Hann fann skjótt út að hann hefði hæfileika í körfuknattleik í ríkum mæli og hefur hann um árabil verið einn snjallasti körfu- knattleiksmaður Bandaríkjanna. Böm eru ær og kýr Barkleys. Hann á eina þriggja ára dóttur sem hann sér reyndar ekki eins oft og hann kysi vegná fráskilnað- ar við barnsmóðurina eftir fjög- urra ára hjónaband. En hann legg- ur öllum lið sem bera hag bama fyrir bijósti og eitt það skemmti- legasta sem hann gerir er að heim- sækja sjúk börn á spítölum og reyna að hressa þau við. „Ég leyfi þó aldrei sjónvarpsvélum að fýlgja mér í slíkar heimsóknir. Ég læt ekki Pétur og Pál úti í bæ sitja við tækin og segja hver við ann- an, „æðislega er nn fínn náungi iessi Charles Barkley". Það skal aldrei verða, nei. Ein skærasta stjarna NBA- deildarinnar í Bandaríkjunum er Charles Bar- kley og hann tek- ur hlutina engum vettlingatökum. AUSTURLAND Börnin fá skíðahjálma Börnin í skíðadeild Vals á Reyðarfirði og Austra á Eskifirði hafa fengið öryggishjálma til eignar. Vátryggingafélag íslands styrkti deildina til að kaupa hjálmana og Lionsklúbbur Eskifjarðar hefur ákveð- ið að styrkja Austra í sama skyni. Síðasta hraðlestrarnómskeiðið Síðasta námskeið vetrarins hefst fimmtudaginn 11. mars nk. Viljir þú margfalda lestrarhraðann, hvort heldur er til að bjarga næstu prófum með glæsibrag eða til að njóta þess að lesa meira af góðum bókum, ættir þú að skrá þig strax á næsta námskeið. Lestrarhraði nemenda fjórfaldast að jafnaði. Við ábyrgjumst að þú nærð árangri! Skráning alla daga í síma 641091. Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson H RAÐLESTRARSKOLIN N ...við ábyrgjumst að þú nærð árangri! LÍFSNAUÐSYNLEC STEINEFNI í RÉTTUM HLUTFÖLLUM FYRIR FÓLK Á ÖLLUM ALDRI. 1978-1992 1 Fssl m.a. (Hagkaup og Krlnglusporl. mmuTiuFmm GLÆSIBÆ • SÍMI 812922 -heldur ótrúlegir afsláttardagar! Fyrsta, annað og þriðja tilboð seldust upp. Tilboðsdagarnir halda áfram alla fimmtudaga, föstudaga og laugardaga út febrúar. bjóðum við móttökubúnað fyrir gervihnetti frá kr. 54.283.- ÓtlUS beint í vasann Óvæntur glaöningur fylgir hverjum þeim hlut sem keyptur er á fyrsta, ööru, þriöja eöa fjórða tilboöi Heimllistækja, svo sem vönduö vasatölva, úr eöa reiknivél. Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 69 15 00 ■ FAX 69 15 55 GRAFlSK HÓNNUN: MERKISUENN HF. AUGLÝSINGASTOFA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.