Morgunblaðið - 25.02.1993, Side 45
r
1
I
I
I
J
I
B
I
I
I
i
i
J
i
w
>
i'i •< * ;; i sft% * uiU/-.i;i/..jt)HOW. - *
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993 45
Persónu-
leikar De
Palmas
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Geðklofinn („Raising Cain“).
Sýnd í Laugarásbíói. Leikstjóri
og handritshöfundur: Brian De
Palma. Framleiðandi: Gale
Anna Hurd. Aðalhlutverk: John
Lithgow, Lolita Davidovich,
Steven Bauer, Francis Stern-
hagen.
Brian De Palma er mikilsvirtur
leikstjóri úr skóla Alfred Hitch-
cocks, sem tók sér frí frá litlu
skólamyndunum til þess að gera
tvær frábærar (Hinir vammlausu,
„Casualties of War“) og eina
vonda stórmynd (Bálköstur hégó-
mans). Þessi vonda mynd sneri
honum aftur á braut Hitchcocks-
stælinganna og útkoman er Geð-
klofinn eða „Raising Cain“, sem
býr yfír öllum brellum og brögðum
gömlu De Palma myndanna og
markar bæði ánægjulegt og
spennandi afturhvarf þessa spor-
göngumanns meistara spennu-
myndanna til sálfræðitryllanna.
í Geðklofanum er De Palma
reyndar farinn að stæla sjálfan sig
meira en átrúnaðargoðið. Áhorf-
endur hljóta að þekkja orðið hvítu
strigaskóna sem skaga út undan
skúmaskoti en enginn er í, kyn-
skiptingur með flugbeittan kuta
er fastur passi, barnavagn rúllar
á milli manna í spennuatriðum,
lyftur eru varasamasti staður ver-
aldar (þær hafa tekið við hlutverki
sturtuklefans), draumar og
draumar inní draumum magna
andstyggðar andrúmsloftið, klofn-
ir persónuleikar, framhjáhald,
losti, morð og meiðingar. Heila
klabbið. De Palma er greinilega
snúinn aftur í ríki sitt.
John Lithgow fer á kostum í
myndinni sem hinn truflaði Cart-
er, bamasálfræðingur sem tekið
hefur sér frí frá vinnu til að ala
upp og fylgjast með þroska dóttur
sinnar. Hann er klofinn í þrjár
aðrar persónur, ein er sjö ára
strákur, ein kvenmaður og ein bil-
aður morðingi, og Lithgow er
straufínn í hverri og einni auk
þess sem hann leikur líka aldraðan
föður Carters, vísindamann með
skuggalega fortíð. Lolita
Davidovich leikur eiginkonu hans,
sem heldur framhjá með Steven
Bauer, en það hefur slæmar afleið-
ingar í för með sér, og loks leikur
Francis Stemhagen vísindamann
sem þekkir vel til mála og sér
ógnarlegri kvenpersónu Carters
fyrir hárkollu.
Uppeldið á Kain er heiti
Tiutcutcv
Hcílsuvörur
nútímafólks
Stretsbuxur
kr. 2.900
Mikid úrval
af allskonar
buxum
myndarinnar á ensku og í því ligg-
ur lykillinn að persónuklofningi
Carters. En hið vísindalega húll-
umhæ er aukaatriði hjá De Palma
og jafnvel klaufalegt í sínum til-
búna hryllingi. Spennan er hins-
vegar raunvemleg og næstum vís-
indalega útfærð af De Palma.
Mjög hreyfanleg myndataka, kra-
namyndatökur og langar, óklippt-
ar tökur (í einni labbar Sternhagen
niður margar hæðir í fylgd lög-
reglumanna, inní lyftu og oní kjall-
ara, nokkuð sem De Palma var
búinn að æfa í Bálkestinum) tví-
skiþtur myndflötur fyrir djúpan
fókus og hægar tökur þjóna De
Palma mjög vel. Ef einhverjum
finnst hann hafa séð þetta allt
áður er hann ekki íjarri sannleik-
anum. En leikstjórinn hefur lag á
að gera það part af gamninu. Það
er orðinn langur tími síðan maður
sá upprunalegan De Palma.
Hann, hún
o g
hundurinn
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarson
Regnboginn:
Svikahrappurinn - Man Trouble
Leikstjóri Bob Rafelson. Aðalleik-
endur Jack Nicholson, Ellen Bark-
in, Harry Dean Stanton, Beverly
D’ Angelo. Bandarísk. Penta 1992.
Þótt ótrúlegt megi virðast þá er
Svikahrappurinn gerð af Bob Rafel-
son og Jack Nicholson, sömu aðilum
og stóðu að einni eftirminnilegustu
mynd áttunda áratugarins, Five Easy
Pieces. Nicholson reyndar búinn að
berjast fyrir því að fá tækifæri til
að vinna með leikstjóranum á ný
allar götur aftur til 1970, en þessi
afrakstur hefur skilað af sér með
ólíkindum lélegri og heimskulegri
mynd í alla staði. Hvergi stendur
steinn yfir steini, meira að segja er
Nicholson hvimleiður í þreytandi of-
leik hundatamningamanns og bragð-
arefs sem kynnist af tilviljun óperu-
söngkonunni (já, óperusöngkonu af
öllum manneskjum!) Ellen Barkin.
Er henni ógnað af ókunnum karl-
manni og fær hundatamningamann-
inn til að gefa sér góð ráð og lána
sér varðhundinn Duke. Verður
hundsleigan til að kveikja amorsbál
í bijóstum þeirra meðfram þvi sem
þau reyna að hafa uppá ógnvaldin-
um.
Það er furðulegt að einn virtasti
og hæstlaunaðasti leikari Hollywood-
borgar skuli taka að sér jafn nauðaó-
merkilegt hlutverk og þetta og ekki
síður undarlegt hvernig hann mat-
reiðir það ofaní áhorfendur, virðist
einfaldlega vera að gera grín að þeim
og sjálfum sér og lætur vaða á súð-
um, útkoman hörmung. Aðrir leikar-
ar lítið skárri enda sagan og samtöl-
in fyrir neðan allar hellur. Fyrir kurt-
eisis sakir er best að sleppa fang-
brögðum hinnar annars ágætu leik-
konu Barkin við hundatamninga-
manninn. Stanton, sem sjaldan fat-
ast flugið, bregður fyrir í álappalegu
hlutverki milljónera sem beitir öllum
brögðum til að komast yfir ævisögu-
legt handrit sem systir Barkin, rit-
höfundurinn D’Angelo, hefur í fórum
sínum og fer heldur illum orðum um
millann. Þessi hliðarsaga, líkt og
önnur um sneyptan vonbiðil Barkin,
eru hvorugar til þess fallnar að bæta
uppá sakinar. Rafelson hefur ekkert
markvert gert eftir Five Easy Piece-
sog ekki verður þetta samstarf við
stórstjömuna honum til framdráttar.
Hundurinn Duke er sá eini í hópnum
sem hvað helst sýnir leikgleði og
áhuga.
Fylgstu meb a fímmtudögum!
Vibskipti/atvinnulíf kemur út á fimmtudögum. Þar birtast nýjustu fréttir úr
viðskiptalífinu hér á landi og erlendis. Fylgst er meðal annars með verðbréfamörkuðum,
bílaviðskiptum, verslun, afkomu fyrirtækja og mannaráðningum.
Viðtöl eru tekin við athafnasama einstaklinga og framkvæmdafólk.
Einnig skrifa sérfróðir aðilar um málefni sem tengjast tölvum og viðskiptum.
^HSÍl/,
JHtogtmfrlnMfr
- kjarni málsins!