Morgunblaðið - 25.02.1993, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 25.02.1993, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK SIMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Morgunblaðið/Júlíus Ljósastaur gekk inn í bíl FÓLKSBÍL var ekið utan í ljósastaur á Hafnarfjarðarvegi í gær. Við áreksturinn gekk staurinn langt inn í bílinn ökumannsmeginn og slasaðist ökumaðurinn töluvert en hann var einn í bílnum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Kópavogi eru tildrög slyssins ekki ljós en bifreiðinni var ekið suður Hafnarfjarðarveg og rétt norðan við Amarneshæðina missti ökumaður vald á henni með fyrrgreindum afleiðingum. Talið er að hálku geti verið um að kenna. Hæstiréttur í Ankara ógilti dóm undirréttar Dómara gert að endurskoða fyrri niðurstöðu sína HÆSTIRÉTTUR í Ankara hefur fellt úr gildi úrskurð undirréttar í forræðismáli Sophiu Hansen og Halims Al. Málið verður sent undirrétti á ný og breyti hann ekki úr- skurði sínum fer málið að nýju fyrir hæstarétt. Sophia Hansen sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki geta lýst gleði sinni með orðum. Hún sagði að óttast væri að mikill múgæsingur yrði í dag í Istanbúl þegar fjölmiðlar skýra frá úrskurði hæstaréttar. „Hæstiréttur ógildir fyrri úrskurð og það verður komið svar innan tveggja til þriggja daga af hvaða ástæðum þeir ógilda hann,“ sagði Sophia. Forræðismálið fer á ný til undir- réttar í Istanbúl og sami dómari tekur þar málið til endurskoðunar. Verði niðurstaða hans óbreytt fer málið aftur fyrir hæstarétt í Ankara og 15-25 dómarar munu þá dæma í málinu. Fimm dómarar felldu úr- skurðinn í gær. Farið fram á vernd „Hasip ftyrkneskur lögfræðingur Sophiu] sagðist eiga von á miklum viðbrögðum og að mikið yrði fjallað um þetta í fjölmiðlum. Við förum fram á vernd því við sem verðum hérna þá höfum ábyggilega aidrei verið í meiri hættu en þegar undir- réttur fjallar um málið á ný,“ sagði Sophia, sem er í Istanbúl ásamt systur sinni og manni úr stuðnings- hópi hennar. Dæturnar í Istanbul „Ég held að dætur mínar séu örugglega hér í Istanbúl hjá föður sínum. Það er fasta hjá þeim, sem hófst í gær, og ég held að fjölskyld- an sé öll samankomin þar. Ég hef reynt að hringja í þær en fæ ekki að tala við þær. Annaðhvort svarar hann eða eiginkona hans og það er lagt á,“ sagði Sophia. Domíno Pizzastil Islands SKÚLI Þorvaldsson í Hótel Holti, Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi í Hollywood og Hof hf., eignar- haidsfélag Hagkaupsmanna, hafa stofnað hlutafélagið Fut- ura hf.. Fyrirtækið hefur m.a. fengið umboð fyrir Domino Pizzas en undir því nafni eru reknir um 5.000 pizzastaðir víða um heim. Futura hf. mun fyrst um sinn einbeita sér að veitingarekstri hér á landi en jafnframt er í athugun að Futura fái umboðið fyrir Domino Pizzas á öllum Norðurlöndunum. Stefnt mun að því að fyrsti pizzastaðurinn af þessu tagi verði opnaður hér á landi síðar á þessu ári. Að sögn Birgis Bieltvedt, fram- kvæmdastjóra Futura hf., er reiknað með að raunhæft sé að reka þrjá slíka staði hér á landi. Sjá Viðskiptablað, Bl: „Viðskiptajöfrar ...“ Sjúkratryggingar rúman milljarð fram úr fjárlögum á síðasta ári Sparnaður í lyfjakostn- aði tókst ekki sem skyldi ÚTGJÖLD skattgreiðenda til sjúkratrygginga fóru 1.087 milljónir króna fram úr fjárlögum á síðasta ári, þrátt fyrir áform um sparnað. Þessi hækkun er að hluta til komin vegna þess að áform um 800 milljóna króna spamað í lyfjamálum tókust ekki sem skyldi, heldur fór lyfjakostnaður sjúkratryggðra 490 milljón- ir króna fram úr áætlun. Þetta kemur fram i "^rskýrslu fjármálaráðuneytis um ríkisfjármálin 1992, sem lögð var fram á Alþingi í gær. Fram kemur að meðal annarra orsaka hækkunar útgjalda til sjúkratrygginga sé að lækniskostnaður hafi farið 300 milljónir króna fram úr fjárlögum, þrátt fyrir aukna kostnaðarþátttöku sjúkratryggða. Astæður þess- arar hækkunar séu útgáfa fríkorta sem ávísunar á lækn- ishjálp og fleiri aðgerðir utan sjúkrahúsa í kjölfar sparn- aðar þar. Sextíu milljónir bætast við vegna hærra þaks ■ á greiðslur fyrir læknisþjónustu barna. Tannréttinga- og tannlæknakostnaður hafí farið um 300 milljónir fram úr áætlun Loks hafí daggjaldagreiðslur farið 200 milljón- ir fram úr heimildum, meðal annars vegna þess að ekki hafí orðið úr áformum um að Framkvæmdasjóður aldr- aðra legði fram 137 milljónir króna til hjúkrunarheimila. Landbúnaðargreiðslur fram úr fjárlögum Fleiri rekstrartilfærslur ríkissjóðs, sem oft eru nefnd- ar til sögunnar sem helzta rót sjálfvirkrar útþenslu ríkisútgjalda, fóru fram úr fjárlögum á síðasta ári. Atvinnuleysistryggingar fóru t.d. 481 milljón fram úr ijárlögum, meðal annars vegna aukins atvinnuleysis. Þá urðu niðurgreiðslur landbúnaðarafurða 285 milljón- um hærri en fárlög gerðu ráð fyrir og aðrar greiðslur vegna búvöruframleiðslu 473 milljónum hærri. LÍN innan fjárlagaheimilda Útgjöld til Lánasjóðs íslenzkra námsmanna voru hins vegar innan fjárlagaheimilda að þessu sinni vegna nýrra úthlutunarreglna. Slysatryggingar, uppbætur á lífeyri og fleiri millifærslur voru einnig innan heimilda. Sparnaðaráformin og niðurstaðan Lífeyristryggingar Fjárlög '92 14.757 Útkoman '92 15.110 Sjúkratryggingar milljónir kr. 9.083 10.170 Niðurgreiöslur búvöru Aðrar greiðslur v. búvðruframleiðslu l ----13.281 I IS-7S4 Lánasjóður Isl. námsmanna 2.220 1.996 Atvinnuleysistryggingasjóður r......11.280 ■Wi 1-761 Stöövun Herjólfs Fiskurinn fímmdaga gamall til kaupanda STÖÐVUN Heijólfs hefur víða haft áhrif í Vestmannaeyjum. Dæmi er um að fiskur hafi verið orðinn fimm daga gamall er hann komst í hendur kaupanda og far- ið að slá í hann. Þá voru annir hjá flugmönnum í gær og voru farnar margar ferðir með mjólk milli lands og Eyja. Þorsteinn Arnason fram- kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Vest- mannaeyja sagði að á síðasta ári hefðu 49% fisks frá Fiskmarkaðn- um farið til lands. Nánast allt var flutt með Herjólfi. „Kaupendur hafa getað gengið að því vísu að kaupa af okkur ftsk í dag og fengið hann á morgun í Þorlákshöfn. Nú er ekki á vísan að róa. Eins og veðrið hefur verið standast engar áætlanir, hvorki hjá Eimskipi né Samskipum. Við seldum físk hér á föstudegi og kaupendur fengu hann á miðviku- dagsmorgni upp á land. Það segir sig sjálft að hluti af honum var ónýtur og það er skaði sem við verðum að bera,“ sagði Þorsteinn. Fiskverð lækkar Þorsteinn sagði að strjálar ferðir til og frá Eyjum hefðu einnig haft áhrif til lækkunar á fískverði, auk þess sem fískur hefði almennt lækk- að í verði að undanförnu. „Mér fínnst ég skynja minni áhuga fyrir fískviðskiptum þegar menn geta ekki verið vissir um afhendingu," sagði Þorsteinn. Flogið með mjólk Valur Andersen sem rekur sam- nefnt leiguflug í Eyjum flaug átta ferðir til Bakka í Austur-Landeyjum og sótti þangað mjólk. Alls flutti hann um 2.200 lítra til Eyja fyrir tvær verslanir í eigu Kaupfélags Ámesinga. Þá flutti leiguflug ísleifs Ottesens aðra 2.000 lítra í tveimur ferðum til Eyja í gær, en mjólkur- þörfin í Vestmannaeyjum er um 2.500 lítrar á dag. Flugleiðir Viðhalds- stöð tek- inínotkun VIÐHALDSSTÖÐ Flugleiða á Keflavíkurflugvelli var formlega tekin í notkun í gær. Húsið er 12.500 fermetrar að stærð og byggingarkostnaður er áætlaður um einn milljarður kr. Öll starfsemi tæknisviðs Flug- leiða flyst í nýju viðhaldsstöðina en viðhald og stórskoðanir hafa farið fram í flugskýli á Reykjavíkurflug- velli og í leiguhúsnæði. Vinnurými flugvirkja í nýju stöðinni verður fjórum sinnum stærra og þar munu starfa um 160 manns. Sjá bls. 24-25: „Vinnustað- • ,x <>

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.