Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1993 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR. 3 MARZ 1993 23 flirrgminlíWII* Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. ( lausasölu 110 kr. eintakið. Þáttaskil í landbúnaði Ræða Halldórs Blöndals landbúnaðarráðherra á Búnaðarþingi í fyrradag mark- ar ákveðin þáttaskil í afstöðu stjórnvalda og ekki síður Sjálf- stæðisflokksins til landbúnað- armála. í áratugi hefur sömu stefnu verið fylgt í landbúnað- armálum í meginefnum og Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur fylgt þeirri stefnu fram, eftir því hvor flokkurinn hefur haft stjórn landbúnaðarráðuneytis á hendi. Nú kveður við nýjan tón. í ræðu sinni sagði Halldór Blöndal m.a.: „... héðan af höfum við ekki leyfi til að meta stöðu íslenzks landbúnað- ar og framtíðarhorfur nema í ljósi vaxandi heimsviðskipta með búvörur, sem hefur í för með sér opnun markaða.“ í þessum orðum felst yfirlýsing landbúnaðarráðherra Sjálf- stæðisflokks um að landbúnað- urinn verði að búa sig undir vaxandi samkeppni á næstu árum frá innfluttum landbún- aðarvörum. Landbúnaðarráðherra vék að viðskiptum bænda og af- urðastöðva og sagði að bændur hlytu að íhuga „hvort ekki sé tími til kominn að þeir taki afurðastöðvarnar í sínar hend- ur, beri ábyrgð á rekstrinum og sýni fram á að unnt sé að koma framleiðslunni á markað ódýrar en gert hefur verið. Það er gott og raunar nauðsynlegt fyrsta skref til að mæta þeirri erlendu samkeppni, sem óum-' flýjanleg er á næstu árum, því að eftir að hún er komin getur innlenda framleiðslan ekki reitt sig á fákeppni". Með þessum orðum er Halldór Blöndal í raun að hvetja bændur til þess að fækka milliliðum á milli þeirra sjálfra sem framleið- enda, og neytenda. í því sam- bandi er ástæða til að minna á orð talsmanns kúabænda hér í blaðinu fyrir skömmu, þar sem svo var komizt að orði að kúabændur hefðu ekki efni á að halda uppi hinum mörgu mjólkurstöðvum í landinu. Verulega athygli vekja vam- aðarorð landbúnaðarráðherra vegna „ótta manna við [að] fákeppni í verzlun með matvör- ur fari vaxandi“. Og Halldór Blöndal sagði ennfremur: „Slíka þróun er ekki hægt að leiða hjá sér. Vegna fámennis okkar og dreifðrar byggðar er það kannski í Reykjavík einni, sem við getum búizt við að lögmál markaðarins hafí nægi- legt svigrúm til að geta breitt úr sér, en því aðeins að fleiri en einn og fleiri en tveir eigist þar við.“ Með þessum orðum vekur landbúnaðarráðherra máls á því, sem fleiri en hann hafa vaxandi áhyggjur af, að einn aðili sé að verða of ráð- andi í matvöruverzlun á höfuð- borgarsvæðinu. í framhaldi af þessum um- mælum sagði Halldór Blöndal: „íslenzkir bændur hafa ekki lengur ráð á því að láta sig þennan feril engu skipta. Þeir hljóta að íhuga hvort ekki sé tími til kominn að þeir taki afurðastöðvamar í sínar hend- ur, beri ábyrgð á rekstrinum og sýni fram á að unnt sé að koma framleiðslunni á markað ódýrar en gert hefur verið. Það er gott og raunar nauðsynlegt fyrsta skref til að mæta þeirri erlendu samkeppni, sem óum- flýjanleg er á næstu árum, því að eftir að hún er komin, getur innlenda framleiðslan ekki reitt sig á fákeppni.“ Fjölmörg fleiri atriði mætti nefna úr ræðu Halldórs Blön- dals landbúnaðarráðherra á Búnaðarþingi, sem eru til marks um að ný viðhorf og gjörbreytt sjónarmið eru að ryðja sér til rúms í landbúnað- arráðuneytinu. Það er tími til kominn. Bændur hafa vissu- lega sýnt vaxandi skilning á nauðsyn þess að taka upp breytta starfshætti á undan- fömum ámm. Samt sem áður hefur hin opinbera stefna í landbúnaðarmálum verið eins og farg á þjóðinni og oft hefur virtzt sem litlu væri hægt að hnika í þeim efnum. Ræða Halldórs Blöndals er vísbending um að landbúnað- arráðherra sé reiðubúinn til að taka forystu fyrir nýrri og raunsærri stefnumörkun í landbúnaðarmálum, þar sem tillit er tekið til hagsmuna bænda en ekki síður til hags- muna neytenda og skattgreið- enda. Nú verður þess vænzt að ráðherrann fylgi eftir þeirri stefnumörkun, sem felst í ræðu hans á Búnaðarþingi. Búast má við að jarðvegur til þess að koma slíkum breytingum fram sé betri en nokkm sinni fyrr. Bændur og talsmenn þeirra era opnir fyrir nýjum viðhorfum og nýjum vinnu- brögðum. Þess vegná á nú að grípa það tækifæri til breyt- inga í landbúnaðarpólitíkinni, sem fyrir hendi er. 42. ÞING NORÐURLANDARAÐS I OSLO Davíð Oddsson EB-aðild Norður- landa hef- ur áhrif á stöðuokkar DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra ítrekaði í ræðu sinni á Norðurlandaráðsþinginu í Osló í gær þá afstöðu íslendinga að sækja ekki um aðild að Evrópu- bandalaginu. Hins vegar myndi væntanleg aðild annarra Norður- Ianda „að sjálfsögðu hafa áhrif á stöðu íslands" og endurskoða þyrfti Norðurlandasamstarfið þegar að því kæmi að löndin gengju inn i EB. „Saga íslands, menning og hefðir hafa í för með sér að spumingar um fullveldisframsal myndu setja mikinn svip á hugsanlega umræðu um aðild íslands að EB,“ sagði for- sætisráðherra í ræðu sinni. Hann sagði að annar lykiiþáttur í slíkum umræðum yrði yfirráð fiskimiðanna. Óformlegt samstarf eflt „ísiendingum er mikið í mun að bæta samskipti sín við Evrópu, ekki sízt í samstarfí við vini okkar á hin- um Norðurlöndunum," sagði Davíð. „Þegar ljóst verður, hversu mörg þeirra fá aðild að EB verða menn að meta norrænt samstarf á ný og sjá til þess að það uppfylli þarfir allra Norðurlandanna. í þessu sam- bandi er afar þýðingarmikið að auk- ið óformlegt samráð og samstarf, sem nú er verið að leggja grunninn að, verði eflt.“ í þingsal Davíð Oddsson hlustar á umræður á þingi Norðurlandaráðs í Osló. HEFÐBUNDIN togstreita þingmanna og ríkisstjórna í Norðurlanda- samstarfinu kemur skýrt fram í umræðum á Norðurlandaráðsþingi um breytingartillögur þær, sem norræna ráðherranefndin hefur lagt fram um breytingar á Helsinki-sáttmálanum vegna endurskipulagning- ar norræns samstarfs. Margir þingmenn segjast óánægðir með tillögur ráðherranna um fjárlagavald Norðurlandaráðs. Norðurlandaráð hefur aldrei haft neitt formlegt lagasetningarvald, heldur getur það aðeins beint til- mælum til ríkisstjóma Norðurland- anna. Sú grein í Helsinki-sáttmál- anum, sem fjallar um fjárlög, gerir ráð fyrir að ráðið fái að tjá sig um fjárlagatillögur ráðherranefndar- innar, en formleg áhrif ráðsins eru engin. Tillöguréttur innan fjárlagaramma Ráðherranefndin leggur nú til að ráðið fái að gera tillögur um áherzl- ur innan þess ramma, sem ráðherr- arnir setja. Nema mikilvægar ástæður mæli á móti því, eigi ráð- herrarnir að fara eftir tilmælum ráðsins í þessu efni. Ráðherrarnir em hins vegar ekki tilbúnir að af- henda ráðinu endanlegt ákvörðunar- vald innan fjárlagarammans. Við þessar tillögur vildu þingmenn illa sætta sig. Laganefnd Norðurlanda- ráðs lagði til að ráðið fengi endan- legt ákvörðunarvald, en ljóst er að ráðherranefndin mun ekki fara eftir tillögum hennar. Geir H. Haarde, þingflokksfor- maður Sjálfstæðisflokksins, vék að tillögum ráðherranefndarinnar í ræðu sinni á þinginu í gær og sagði að fagna bæri þeim áfanga, sem næðist með tillögurétti Norð- urlandaráðs. Þess vegna bæri að styðja tillögur ráðherranefndarinn- ar, annars væri hætta á að þing- menn næðu alls engum árangri í baráttu sinni fyrir að hafa áhrif á fjárlög Norðurlandaráðs. Þau nema nú um sjö milljörðum króna. ■ NORSKI hægrimaðurinn Jan Per Sys e var í gær kjörinn nýr forseti Norður- landaráðs. Syse, sem var forsætis- ráðherra Noregs árið 1989, er einn þekktasti talsmað- ur norræns sam- Jan Per Syse starfs í Noregi og jafnframt ákafur Evrópusinni. ■ FULLTRÚAR íslands í forsætis- nefnd Norður- landaráðs verða áfram þeir Geir H. Haarde, þing- # f flokksformaður Reynt að gera minna ur komu Khasbulatovs vegna harðra viðbragða Sjáifstæðisfiokks ins, og Halldór Geir H. Ha- arde Spennan í Rússlandi er stórlega ýkt í fjölmiðlum — sagði rússneski þingforsetinn er hann ávarpaði Norðurlandaráðsþing Ásgrímsson, varaformaður Framsóknar- flokksins. Rann- veig Guðmunds- dóttir, þingmaður Alþýðuflokksins, var einnig endur- kjörin formaður menningarmála- nefndar ráðsins. Halldór Ás- Hún er eini íslend- grímsson ingurinn sem fer með formennsku í nefndum Norður- landaráðs. Deilt um fjár- lagavald Norð- urlandaráðs Osló. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaðamanni Morgunblaðsins. RÆÐU Rúslans Khasbúlatovs, forseta rússneska þings- ins, var tekið með litlum fögnuði á 42. þingi Norðurlanda- ráðs í Osló í gær, þrátt fyrir að ekkert yrði úr því að hann notaði ræðutíma sinn til að ráðast á Borís Jeltsín Rússlandsforseta, eins og margir höfðu óttazt. Ræða Khasbúlatovs var fremur innihaldslítil að mati við- staddra og snerist einkum um samskipti þingmannaráðs Samveldisríkjanna og Norðurlandaráðs, en Khasbúlatov var boðinn á Norðurlandaráðsþingið sem formaður þing- mannaráðsins. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins brást forsætisnefnd þingsins við gagnrýni á komu Khasb- úlatovs með því að gefa ræðu hans mun minna vægi á þinginu en áður hafði verið ráðgert. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins deildu norrænu forsæt- isráðherramir á ákvörðun forsæt- isnefndarinnar, að bjóða Khasbúl- atov, á fundi með nefndinni á mánudag, og átöldu að ekki hefði verið haft samráð við ríkisstjómir Norðurlandanna. Niðurstaða fund- arins varð meðal annars sú, að reynt var að draga úr mikilvægi ræðu Khasbúlatovs með því að leyfa öðrum erlendum gesti, sir Michael Marshall, forseta Alþjóða- sambands þingmanna, að ávarpa þingmenn strax á eftir ræðu rúss- neska þingforsetans. Aðeins Gro vildi hitta Khasbúlatov að máli Enginn forsætisráðherranna fimm vildi hitta rússneska þingfor- setann að máli nema Gro Harlem Bmndtland. í samtölum við þing- menn kom líka fram að margir eru afar óánægðir með að Khasb- úlatov skuli hafa verið boðið og telja að Ilkka Suominen, fyrrver- andi forseti Norðurlandaráðs, hafi tekið þá ákvörðun nánast upp á sitt eindæmi. Mörgum þingmönn- um þykir það skjóta skökku við að á sama tíma og norrænir stjórn- málamenn lýsa því yfir að þeir Þingforsetinn Khasbúlatov þingforseti Rúss- lands á blaðamannafundi eftir að hann ávarpaði þing Norður- landaráðs í Osló í gær. vilji styðja við bakið á lýðræðisöfl- unum í Rússlandi, fái einn af leið- togum harðlínumanna að ávarpa Norðurlandaráðsþing. Spennan í Rússlandi millibilsástand Khasbúlatov lagði í ræðu sinni áherzlu á að þingmannaráð Sam- veldisríkjanna gæti margt lært af Norðurlandaráði. Hann sagði marga telja að Norðurlöndin gætu stutt lýðræðisþróunina í Rúss- landi. Hann mælti með samvinnu og samráði Samveldislandanna og Norðurlanda í gegnum Barents- ráðið og Eystrasaltsráðið og sagð- ist horfa með bjartsýni til ráð- stefnu þjóða á heimskautaslóðum, sem haldin verður í Reykjavík í ágústmánuði næstkomandi. Þingforsetinn sagði að rúss- neska þingið væri nú að breytast í venjulegt þing, með löggjafar- og eftirlitshlutverk. „En í æðstu stöðum eru ekki allir ánægðir með þessa þróun. Þingið á í höggi við embættismenn, sem ekki eru vanir því að neinn hafi eftirlit með störf- um þeirra,“ sagði Khasbúlatov. „Þetta er orsök spennunnar í Rúss- landi. Þessi spenna er að sjálf- sögðu ýkt stórlega í fjölmiðlum. Við lítum á þetta sem millibils- ástand. Við þurfum heiðarlegt og gagnkvæmt samstarf allra stjórn- málaflokka um að hrinda lýðræðis- umbótum í framkvæmd." ■ JÓN Sigurðsson, iðnaðarráð- herra, lagði til í ræðu sinni á Norð- urlandaráðsþinginu í gær, að Nor- ræni fjárfestingarbankinn (NIB) yrði í auknum mæli að beina kröft- um að eflingu nýrra framleiðslu- greina og markaða. Þannig þyrfti að leggja nýjan og sveigjanlegri skilning í skilgreiningu bankans á „norrænum hagsmunum". Jón sagði í samtali við Morgunblaðið að sú skilgreining ætti við um það þegar tvö eða fleiri Norðurlandanna ættu hagsmuna að gæta, en ástæða gæti verið til að bankinn lánaði til fjárfestinga aðeins eins norræns fyrirtækis, sem væri að hasla sér völl á Evrópumarkaði. ■ DAVÍÐ Oddsson forsætisráð- herra tók upp beiðni íslendinga um aðild að Eystrasaltsráðinu á fundi sínum með hinum forsætisráðherr- um Norðurlanda á mánudag. Þing- mannaráð Eystrasaltsríkjanna og öll Norðurlöndin nema Danir hafa stutt aðild íslendinga að ráðinu, að sögn Davíðs. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að hinir forsætis- ráðherramir hefðu tekið undir mál sitt og Poul Nyrup Rasmussen, hinn nýi forsætisráðherra Dana, hefði sagzt myndu kanna máiið. „Ég hef góðar vonir um að þessi afstaða breytist,11 sagði Davíð. Kristján Jóhannsson semur um fleiri sýningar á Metropolitan Syngur á frumsýningn nýrrar uppfærslu á Valdi örlaganna eftir Verdi KRISTJÁN Jóhannsson hefur gert samning við Metropolitan-óperuna í New York um syngja á fjölmörgum sýningum þar í tveimur óperum á næstu árum, þar á meðal á frumsýningu og öðrum fyrirhuguðum sýningum á óperu Verdis, La Forza del Destino, eða Vald örlaganna, sýningarárið 1995-1996. Kristján er nú á heimili sínu á Ítalíu eftir að hafa sungið i II Trovatore í Metropolitan en þangað heldur hann að nýju næstkomandi mánudag til að syngja í Cavallleria Rusticana. „Eg er heima að skipta um gír og slappa svolítið af og búa mig undir að skipta um stíl þvi nú þarf ég að fara syngja i Cavalleria Rusticana sem er allt annar hlutur en II Trovatore,“ sagði Kristján við Morgun- blaðið. Áður en Kristján tók sér frí milli verkefna í Metropolitan gekk hann frá samningi um að syngja í Aidu eftir Verdi á a.m.k. sex sýningum í febrúar og mars á næsta ári og tíu sýningar á Cavalleria Rusticana í nóvember 1994. Hann sagði að enn væri ekki full- ljóst hve margar sýningamar á Aidu yrðu þar sem þær kynnu að ein- hveiju leyti að stangast á við þátt- töku sína í sýningum á Grímudans- leik Verdis í Covent Garden í Lund- únum. Fólki skipt út eins og strætisvagnabílstjórum „Hins vegar er það sem mér fínnst mest spennandi og ánægjulegast að mér stendur til boða að syngja í nýrri uppfærslu á óperu Verdis, La Forza del Destino, Valdi örlaganna. Þar sem um nýja uppfærslu er að ræða er í boði fullur æfíngatími og að sömu listamenn taki þátt í a.m.k. 6-8 fyrstu sýningunum en ég kann því miklu betur en því að sífellt sé verið að skipta út fólki eins og stræt- isvagnabílstjórum. Auk þess fær þetta meiri umfjöllun og athygli þar sem um nýja uppfærslu er að ræða,“ sagði Kristján. Kristján Jóhannsson kemur í fyrsta skipti fram í Cavalleria Rustic- ana á Metropolitan laugardaginn 13. mars og fer til æfinga fyrir þá sýn- ingu á mánudag. Cavalleria Rustic- ana er einþáttungur og sýnd á Metro- Kristján Jóhannsson. politan ásamt I Pagliacci eftir Leoncavallo. Kristján syngur aðalte- nórhlutverkið í Cavalleria en fyrst um sinn syngur rússneski tenórinn Vladímír Atlantoff í I Pagliacci. Hinn 17. mars leysir Plaeido Domingo Atlantoff af hólmi. Haukur Halldórsson formaður Stéttarsambands bænda Nauðsynlegt að lög nái yfír fákeppni í matvöruverslun HAUKUR Halldórsson formaður Stéttarsambands bænda segir nauðsynlegt að samkeppnislög nái yfir fákeppni í verslun með matvörur, en hér á landi sé komið langt út fyrir þá markaðs- hlutdeild sem eðlilegt geti talist að einstaka aðilar hafi. í ávarpi við setningu Búnaðarþings gat Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra þess að ófcti manna við fákeppni í verslun með matvörur hefði farið vaxandi, og sagði hann að slíka þróun væri ekki hægt að leiða hjá sér. í samtali við Morgunblaðið sagð- ist Haukur sammála þessum um- mælum landbúnaðarráðherra. „Það er hvergi nokkursstaðar sem ég þekki til í nágrannalöndum okkar sem einstaka verslanahringar hafa orðið eins stóra markaðshlutdeild og geta nánast skammtað sér af- slætti og greiðsluskilmála. Þetta er hættulegt," segir Haukur. Við setningu Búnaðarþings sagði Halldór Blöndal að íslenskir bændur hefðu ekki lengur ráð á því að láta sig engu skipta ferilinn frá framleiðanda til neytanda, og þeir hlytu að íhuga hvort ekki væri kom- inn tími til að þeir tækju afurða- stöðvamar í sínar hendur og bæru ábyrgð á rekstri þeirra. „Eg get út af fyrir sig tekið undir þessa skoðun ráðherra ef um einhvers konar umboðssölufyrirkomulag af- urðanna yrði að ræða, en ég tel að að það verði að fylgja því að bænd- ur ráði afurðastöðvunum. Ég get því í aðalatriðum tekið undir þetta verði horfið að umboðssölu, en það þýðir að bændur þurfa að koma meira að stjórn afurðastöðvanna en er í dag,“ sagði Haukur. Hvað varðar þau orð landbúnað- arráðherra að innlendir framleið- endur verði að gera ráð fyrir því að þurfa að keppa við innfluttar landbúnaðarafurðir í kjölfar þess að alþjóðleg viðskipti með búvörar verði frjálsari á næstu árum sagð- ist Haukur álíta að það yrði hvorki GATT samningurinn eða samning- urinn um Evrópska efnahagssvæðið sem myndi ráða örlögum íslensks landbúnaðar, heldur íslensk stjórn- völd miklu frekar. Bændur njóti skilnings „Það verður meiri samkeppni, en það ræðst mjög af hugarfari og skilningi stjórnvalda á hveijum tíma hvaða rekstrarskilyrði greinin Yfírskrift ráðstefnunnar er „Ný afstaða til aldraðra“ og gefur til kynna að meðal samtakanna sem standa að ráðstefnunni sé ætlunin að breyta um stefnu í málefnum aldr- aðra. Stefnubreytingin er ekki síst mikilvæg í ljósi þess að um aldamót- in er búist við að um tuttugu pró- sent Evrópubúa verði 65 ára og eldri. Við opnunina flutti Sigurður Guðmundsson ávarp og talaði fær. Á þetta hef ég oft bent. Þetta er því ekki einungis spumingin um að bændur hagræði sjálfír í rekstri sínum heldur einnig að þeir njóti skilnings á því hvað sé eðlileg sam- keppni. Það er enginn vandi að flytja til landsins vörar sem fá nið- urgreiðslur og útflutningsbætur og leggja engin jöfnunargjöld á þær og eyðileggja allt með því. Það e^r hægt að selja rafmagn hér dýrara, olíu og áburð og vera auk þess með dýrari gjöld, en menn mega ekki gleyma að skoða þessa hlið líka. Bændur eru að taka mjög á hjá sér eins og fram kom í ræðu landbúnað- arráðherra og auðvitað verður það einnig að eiga sér stað í vinnslunni." meðal annars um þau verðmæti, sem aldraðir byggju yfír og miðl- uðu þeim er yngri væra. Einnig voru flutt erindi um einsemd og einangrun aldraðra, aðbúnað aldraðra í Suður-Evrópu og um hlutfall aldraðra í hinum ýmsu Evrópulöndum. Margrét Dana- drottning er verndari ráðstefn- unnar en Ingiríður drottning móð- ir hennar, sem er rúmlega áttræð, situr ráðstefnuna. Ráðstefna EB um málefni aldraðra Ný viðhorf í öldr- unarmálum kynnt __ Kaupmannaliöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur fréttaritara Morgunbiaðsins. Á MORGUN lýkur í Kaupmannahöfn ráðstefnu um málefni aldraðra. Ráðstefnan er haldin af evrópsku ráðherranefndinni, sem hefur helg- að öldruðum árið í ár. Ráðstefnan er haldin i samstarfi við samtök aldraðra á Norðurlöndum, Alþjóða heilbrigðismálastofnunina og Evr- ópuráðið. Fimmtíu manns sækja ráðstefnuna af hálfu íslands. Meðal þeirra er Sigurður Guðmundsson, sem er formaður samtaka aldraðra á Norðurlöndum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.