Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 44
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SJÓVÁI
ÍALMENNAR
MORGVNBLADW, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Rafmagnslaust í
Kópavogi
Vandræða-
ástand hjá
lögreglu
RAFMAGNSLAUST varð í hluta
Kópavogs í 20 mínútur á tiunda
tímanum í gærkvöldi vegna bilun-
ar i háspennustreng. Samkvæmt
upplýsingum Kópavogslögregl-
unnar veidur rafmagnsleysi veru-
legum vandræðum við löggæsluna
þar sem allt tölvukerfi lögregl-
unnar fellur út og fjarskipti lam-
ast að hluta til. Lögreglan í Kópa-
vogi hefur ekki neyðarrafstöð.
Að sögn Sæmundar Guðmunds-
sonar varðstjóra hjá lögreglunni
-_skapast vandræðaástand þegar raf-
magn fer af. Sagði hann að nýlega
hefði þó fengist vararafgeymir vegna
neyðartalstöðva en til að ná í bílana
þyífti að grípa til handvirkra tal-
stöðva. Fjarskipti væru að öðru leyti
óvirk. Lögreglumenn sætu í myrkri
sem gæti skapað vandamál við yfir-
heyrslur og mikið væri hringt í lög-
reglu þegar rafmagn fer af en þá
slokknuðu öll ljós á símum sem gefa
til kynna hvaða línur hringdu.
-----------------
Nonni til
Akureyrar
MENNTAMÁLARÁÐ hefur gefíð
Akureyrarbæ styttuna af Jóni
Sveinssyni rithöfundi, Nonna.
Styttan hvarf í tíu ár, en fannst í
nóvember á hlöðulofti Korpúlfs-
staða.
Frá upphafí var gert ráð fyrir að
stytta Nínu Sæmundsson af Nonna
yrði á Akureyri. Nú hefur mennta-
málaráð ákveðið að gefa Akur-
ejTarbæ styttuna.
Sjá bls. 26: „Akureyri fær...“
» ♦ ♦
Undirbúa
kanp á þriðj-
ung’i af stál-
bræðslunni
HAFNARFJARÐARBÆR og
verkalýðsfélög í Hafnarfírði hafa
átt í viðræðum við Iðnþróunarsjóð
um hugsanleg kaup á hlut sjóðsins
„JL-Stálbræðslunni í Hafnarfirði en
sjóðurinn á um þriðjung í verk-
smiðjunni á móti Búnaðarbankan-
um og er hann metinn á um 90
milljónir króna.
Guðmundur Árni Stefánsson, bæj-
arstjóri í Hafnarfirði, sagði að Hafn-
aríjarðarbær og verkalýðshreyfíng-
inn hefðu áhuga á að kaupa hlut
Iðnþróunarsjóðs undir kostnaðar-
verði, til að efla atvinnulíf.
Endurselja Furu hf. hlut
Benti hann á að tekist hefði sam-
komulag á milli Haraldar Þórs Óla-
$þnar í Furu hf. og eigenda verk-
smiðjunnar um gerð arðsemisút-
reikninga fyrir verksmiðjuna ásamt
vilyrði um sölu hennar á kostnaðar-
verði. Sagði hann að ef hlutur Iðnþró-
unarsjóðs yrði keyptur væri um það
rætt að í framhaídi af því yrði gert
samkomulag um að Fura hf. keypti
aftur hlut þessara aðila í verksmiðj-
, unni á tilteknum tíma.
# Morgunblaðið/Pálmi Guðmundsson
Vetur við Myvatn
ÞAÐ er fallegt við Mývatn þegar sólin hellir geislum
sínum yfír vatn og land. Sólin hækkar nú ört á lofti
og I gær var sólarlag í Reykjavík kl. 18.50 eða rúm-
um þremur klukkustundum síðar en í byijun ársins.
Og eftir tæpan hálfan mánuð verður jafndægur á
vori.
Eldur á Bræðra-
borgarstíg
Sú svart-
klædda er
grunuðum
íkveikju
SANNAÐ þykir að kveikt hafi
verið í rusli í anddyri stigahúss
á Bræðraborgarstíg 7 í fyrrinótt,
en tíu íbúum í húsinu var bjargað
af slökkviliðsmönnum. Rann-
sóknarlögreglan hafði í gær í
haldi konu sem sást á ferli við
húsið skömmu áður en eldurinn
kom upp og er hún grunuð um
að vera völd að eldsvoðanum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er hér um að ræða svart-
klæddu konuna sem uppvís varð
að málverkaþjófnaði í Hallgríms-
kirkju í síðustu viku.
Bræðraborgarstígur 7 er fimm
hæða steinhús. Að sögn RLR hafði
greinilega verið lagður eldur í rusl
sem var í anddyrinu. Eldurinn varð
aldrei mikill en stigagangurinn
fylltist af reyk og hann lagði um
allt húsið. íbúarnir komust því ekki
út úr húsinu.
Talið er að íbúar hússins hafi
verið í töluverðri hættu hefði eldur-
inn náð að breiðast frekar út. Kon-
an sem sást á ferli við húsið er nú
í haldi lögreglunnar og stóð til að
yfírheyra hana í gær.
♦ ♦ ♦
Samkomulag
í flugvirkja-
deilunni
SAMKOMULAG tókst um hádegi
í gær á milli Flugleiða og flug-
virkja, sem annast skoðun véla
félagsins, um vinnufyrirkomulag
í nýja flugskýlinu á Keflavíkur-
flugvelli.
Mættu flugvirkjamir til vinnu í
flugskýlinu í gær og hófu vinnu
samkvæmt samningi sem gerður
var fyrir einu og hálfu ári. Sam-
komulagið sem gert var í gær snýst
um flutning flugvirkjanna til og frá
vinnustað, að sögn Einars Sigurðs-
sonar, blaðafulltrúa Flugleiða.
Héraðsdómur hefur dæmt í máli sem einn sakbominga í Hafskipsmálinu höfðaði
Ríkið sýknað af bótakröfu
vegna gæsluvarðhaldsins
RÍKISSJÓÐUR hefur verið sýknaður í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur af öllum kröfum
Helga Magnússonar, fyrrum endurskoðanda
Hafskips hf., sem krafðist fímm milljóna
króna skaðabóta vegna gæsluvarðhalds sem
hann var látinn sæta vegna rannsóknar
Hafskipsmálsins sumarið 1986.
Helgi, sem var með dómi Hæstaréttar í
Hafskipsmálinu dæmdur til að greiða 500 þús-
und króna sekt fýrir brot á lögum um löggilta
endurskoðendur, stefndi ríkissaksóknara og
fiármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og krafð-
ist bóta meðal annars vegna þess að óheimilt
hefði verið að hneppa hann í gæsluvarðhald
þar sem brot þau sem hann hefði gerst sekur
um hefðu aðeins reynst varða sektum auk þess
sem ekkert tilefni hefði verið til þess að svipta
hann frelsi vegna rannsóknarinnar.
Einnig hefði gæsluvarðhaldið algjörlega
kippt fótunum undan Heiga, sem hefði eftir
það og opinbera aftöku í fjölmiðlum, neyðst til
að hætta störfum sem löggiltur endurskoð-
andi. Allt hefði málið haft mikil áhrif á líf
stefnda og krefðist hann hóflegra bóta fyrir
andlegar þjáningar, hneisu og fyrir röskun á
stöðu og högum.
Af hálfu ríkissjóðs var krafíst sýknu af kröf-
um Helga og Hjördís Hákonardóttir héraðsdóm-
ari féllst á sjónarmið ríkissjóðs og sagði í niður-
stöðum sínum m.a. að við rannsókn opinberra
mála verði oft að beita aðgerðum sem gangi
nærri og séu meiðandi fyrir þá sem hlut eiga
að máli, m.a. vegna umíjöllunar fjölmiðla, en
slík umfjöllun geti þó ekki í sjálfu sér orðið
grundvöllur bóta af hálfu ríkisins.
Ekki hefði tekist að sanna að rannsóknarað-
ilar hefðu verið undir óeðlilegum áhrifum frá
fjölmiðlaumræðu og að gæsluvarðhaldskrafa
hefði stuðst við óréttmætar forsendur. Þá er
bent á að brot á því lagaákvæði sem Helgi var
sakfelldur fyrir að bijóta geti varðað fangelsi
allt að tveimur árum en það er það lágmark
sem lög setja til að hneppa megi mann í gæslu-
varðhald.