Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1993
HANDKNATTLEIKUR
Konráð Olavson
til liðs við Hauka
Rögnvald Stefðn
,4r....
Rögnvald
og Stefán
til Umeá
Rögnvald Erlingsson og Stefán
Amaldsson, milliríkjadómarar
í handknattleik, dæma í 1. riðli
heimsmeistarakeppninnar í Svíþjóð.
Leikimir í riðlinum fara fram í
Umeá og Luleá í N-Sviþjóð. Þjóðim-
ar sem leika þar em: Spánn, Tékkó-
slóvakía, Austurríki og Egyptaland.
Leikur með Haukum í úrslitakeppninni. Samningur hans við Dortmund að renna út
Með rútu frá Ósló
Landsliðið heldur til Svíþjóðar á
sunnudaginn. Liðið fer til Óslóar í
Noregi, en þaðan heldur það með lang-
ferðabifreið til Gautaborgar - um 300
km ökuferð. Fyrsti leikur Islands í heims-
meistarakeppninni verður gegn Svíþjóð
á þriðjudaginn kemur, en síðan verður
leikið gegn Ungveijalandi fímmtudag
11. mars og Bandaríkjunum laugardag-
inn 13. mars.
Héðinn
ífiórða
- yfir markahæstu
menn í Þýskalandi
Héðinn Gilsson, sem leikur með
Diisseldorf í þýsku úrvals-
deildinni, og Sigurður Bjamason,
sem leikur með Grosswallstadt, em
með markahæstu mönnum í þýsku
úrvalsdeildinni. Báðir em marka-
hæstir í liði sínu og og Héðinn er
í fjórða sæti á lista markahæstu
leikmanna deildarinnar.
Héðinn hefur gert 121 mark í
þeim 22 leikjum sem hann hefur
leikið með Dusseldorf. í öðm sæti
er Ratka með 116 mörk en leik-
menn liðsins hafa alls gert 425
mörk þannig að Héðinn og Ratka
hafa gert bróðurpartinn af mörkum
liðsins í vetur.
Það er Jochen Fraatz hjá Essen
sem er markahæstur í deildinni,
með 162 mörk. Annar er Svíinn
Magnús Andersson, sem leikur með
Schutterwald, en hann hefur gert
145 mörk. Anders Dörhöfer hjá
Gummersbach er í þriðja sæti með
133 mörk og síðan kemur Héðinn
með 121 mark. Ef mörk úr vítaköst-
um em dregin frá er Héðinn í öðra
sæti með 84 mörk, á eftir Fraatz
sem hefur gert 112 mörk auk
marka úr vítaköstum.
Sigurður Bjamason hjá Gross-
wallstadt er markahæstur í sínu liði
og í 16. sæti yfir markahæstu menn
úrvalsdeildarinnar. Sigurður hefur
gert 88 mörk og þar af 15 úr víta-
köstum. Sigurður hefur leikið ein-
um leik færra en Héðinn og gæti
því færst ofar í töflunni.
Grosswalllstadt er í tíunda sæti
með 21 stig. Héðinn og félagar hjá
Dusseldorf era hins vegar í 15.
sæti með 18 stig.
Morgunblaðið/Þorkell
Konráð Olavson í Haukapeysunni og Jóhann Ingi
Gunnarsson, þjálfari, saman á ný. Þeir voru saman hjá
KR fyrir nokkmm ámm.
Þeir hafa leikið mest
Konráð Olavson varð áttundi leikmaður íslenska
landsliðsins, sem leikur í HM-keppninni í Svíþjóð,
til að ná því að leika 100 a-landsleiki. Konráð lék sinn
100. landsleik gegn Dönum á Akureyri.
Geir Sveinsson hefur leikið flesta landsleiki, eða 245.
Sigurður Sveinsson hefur leikið 202 leiki, Guðmundur
Hrafnkelsson 187, Júlíus Jónasson 182, Valdimar Gríms-
son 159, Bjarki Sigurðsson 136 og Héðinn Gilsson 117
landsleiki.
Afall hjá Svíum
Sænska landsliðið varð fyrir áfalli í gær þegar leik-
stjómandinn Magnus Anderson, leikmaður með
þýska félaginu Schutterwald, meiddist á hendi - er
bátsbein á handarbaki brotnaði. Anderson er næst
markahæsti leikmaðurinn í Þýskalandi, með 145/82
mörk. Það er ljóst að þessi snjalli leikmaður mun ekki
leika með í HM
Konrað Olavson
með 100 landsleiki
1988
1989
1990
199 1
1992
1993
Konráð lék fyrsta landsleik
sinn gegn Bandaríkjunum,
26:20, ÍGeorgia 1987
Konráð lék sinn 100. landsleik
gegn Dönum á Akureyri
KONRÁÐ Olavson, landsliðs-
maður í handknattleik, ákvað í
gær að skipta úr þýska liðinu
Dortmund í 1. deildar lið Hauka
með það í huga að leika með
Hafnfirðingunum f úrslitakeppni
íslandsmótsins.
Samningur Konráðs við Dort-
mund rennur út í vor. Hann fer
aftur til Þýskalands eftir heimsmeist-
arakeppnina í Svíþjóð og gengur þá
endanlega frá félagaskiptunum, en
hann gerir ráð fyrir að leika síðustu
umferðimar með Dortmund í þýsku
deildinni fyrir úrslitakeppnina hér
heima.
Þetta er annað ár Konráðs hjá
Dortmund, en hann sagði að tími
væri kominn til að breyta til. „Þegar
ég sá að möguleikinn á að koma
heim var fyrir hendi ákvað ég að slá
til,“ sagði landsliðsmaðurinn við
Morgunblaðið. „Deildin héma hefur
verið sterk og skemmtileg og mig
dauðlangar til að vera með. I öðm
lagi hef ég hug á að fara í háskóla-
nám í haust og þar sem ég stefni
að því að vera í landsliðinu 1995 er
gott að vera heima og sameina nám
og keppni. Hins vegar hef ég ekki
ákveðið neitt fram í tímann; ég verð
með í úrslitakeppninni og skoða
framhaldið í rólegheitum í sumar.“
Konráð sagði að fleiri lið en Hauk-
ar hefðu komið til greina, en ákvörð-
unin hefði ekki verið erfið. „Starfíð
hjá Haukum er öflugt og stemmning-
in í Hafnarfirði sérstök. Hér snýst
allt um handbolta og hlutimir em
gerðir með hjartanu. Eins hef ég
unnið mikið með Jóhanni Inga [þjálf-
ara Hauka] og þekki hann vel af
góðum vinnubrögðum."
Jóhann Ingi sagðist vera ánægður
með að fá Konráð í hópinn. „Ég tel
það gott fyrir deildina og sérstaklega
okkur, því ekki veitir af liðsstyrk
fyrir úrslitakeppnina."
í kvöld
Handknattleikur
1. deild kvenna:
Víkin: Víkingur - Ármann... kl. 20
Selfoss: Selfoss - Haukar kl. 20
Seltj.nes: Grótta-FH kl. 20
Austurberg: Fylkir - KR kl. 20
Hlíðarendi: Valur-ÍBV kl. 20
Garðabær: Stjaman - Fram. kl. 20
Úrslitakeppni 2. deildar:
Strandgata: ÍH-HKN kl. 20
Æfingaleikur
Landsliðið mætir úrvalsiiði Kristjáns
Arasonar í Kaplakrika kl. 20.30 í kvðld.
Húsið opnar kl. 19 og skömmu síðar
leika íþróttafréttamenn stuttan leik við
ýmsa skemmtikrafta.
Blak
1. deild karla:
Digranes: HK-ÞrótturR.... kl. 20
1. deild kvenna:
Digranes: HK-Víkingur •kl. 21.15
Ungvevjar í feluleik?
Ungveijar, sem verða mót-
heijar íslendinga í öðram
leiknum á HM - 11. mars, hafa
verið í hálfgerðum „feluleik" að
undanfömu og er greinilegt að
þeir ætla sér ekki að vera mikið
í sviðsljósinu fyrir HM. Ungverj-
ar áttu að leika í Hollandi á dög-
unum, en þeir hættu við það á
síðuðtu stundu. Einar Þorvarðar-
son átti þá að fara til Hollands
til að taka leiki Ungveija upp á
myndband. Þorbergur Aðal-
steinsson, landslíðsþjálfari, fær
því ekki að sjá Ungveija leika
fyrr en í HM - þegar þeir leika
gegn Bandaríkjamönnum. „Það
er slæmt að fá ekki að sjá Ung-
veija fyrr en á hólminn er kom-
ið,“ sagði Þorbergur við Morgun-
blaðið.
Ungveijar tefla fram nær
sörnu leikmönnum og léku gegn
íslandi á ÓL í Barcelona, en þá
unnu íslendingar. Síðan þá hafa
þeir fengið Janos Gyurka, sem
leikur með þýska félaginu Ha-
meln, til liðs við sig, en hann
hefur leikið yfír 200 landsleiki.
KNATTSPYRNA
Skagamenn töp-
uðu fyrir Bröndby
Akranes tapaði fyrir Bröndby
3:0 í öðram leik sínum á æf:
ingamótinu í Danmörku í gær. í
hálfleik var staðan 1:0 og höfðu
íslandsmeistaramir þá í fullu tré
við danska liðið. „Við náðum að
skapa okkur nokkur ágæt færi,
sérstaklega Þórður Guðjónsson en
náðum ekki að nýta þau,“ sagði
Luka Kostic, fyrirliði ÍA, í samtali
við Morgunblaðið.
Kostic sagði að í síðari hálfleik
hafi Skagamenn sótt stíft og verið
nálægt því að jafna er danska liðið
náði að skora annað mark um miðj-
an hálfleikinn. „Síðan var Sigurði
Jónssyni vikið af velli fyrir brot
þegar 15 mínútur voru eftir. Þá var
hálfgerð uppgjöf hjá okkur og þeir
bættu við öðra marki áður en leik-
tíminn rann út,“ sagði fyrirliðinn.
ÍA, sem mætir Örbro á föstudag,
vann Lyngby 3:0 í fyrsta leik móts-
ins á sunnudaginn.