Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1993 UMRÆÐUMENNING OG FÆREYJAMÁL eftir Ingvar Gíslason Efnahagsástandið í Færyejum er án alls efa mjög alvarlegt. Ekki hefur á skort að fréttir bærust af því til íslands, að málið væri rætt allmikið í fjölmiðlum og manna á meðal, auk þess sem það hefur verið gert að eins konar bitbeini í stjórnmálakarpi pólitíkusa. Verð- ur nánar að því vikið síðar. Sem að líkum lætur eru efna- hagsþrengingar Færeyinga ekki síður til umræðu í Danmörku. Vegna stjómskipulegra tengsla Dana og Færeyinga eru Færeyja- mál augljóst skylduviðfangsefni danskra stjórnvalda. Færeyjar eru „et selvstyrende folkesamfund í det danske rige“, „eitt sjálfstýr- andi fólkasamfelag í danska ríkin- um“, heimastjómarland Færey- inga innan danska ríkisins. Þótt heimastjórnin sé allrúm að formi og í framkvæmd eru Færeyjar eftir sem áður hluti Danaveldis. Færeyjar eru kjördæmi í Dan- mörku. Færeyingar kjósa fulltrúa til setu á danska þjóðþinginu. Þeir eru að þessu leyti og af fleiri ástæðum gildir danskir þegnar. Svo náin sem stjórnskipuleg tengsl Dana og Færeyinga eru, að þeir em saman í einu ríki, þarf varla að efa að færeyskt efnahagslíf sé nátengt dönsku hagkerfí, í raun hluti þess. Verslunar- og við- skiptatengslin eru a.m.k. afar- sterk, víðtæk og náin. Tengsl Færeyja við Danmörku að fomu og nýju eru snúin efnahagslegum þáttum af ýmsu tagi. Það er því ekki óyggjandi uppgjör að reikna Dönum sambandið við Færeyjar til eintómra útgjalda. Danir hafa sinn ávinning af sambandinu. Dönskum stjómvöldum em þessi pólitísku og efnahagslegu tengsl auðvitað fullljós. Þau þekkja skyldur sínar í því efni. Engin rök em fýrir því að Danir láti vandkvæði Færeyinga sem vind um eym þjóta. í ljósi þessara staðreynda þarf enga undmn að vekja, þótt Færeyingar snúi sér til danskra stjómvalda og fjár- málastofnana í vanda sínum né heldur þarf neinn að furða að danskir ráðamenn láta sig efna- hagsneyð Færeyinga miklu skipta og sjá í því skyldu sína. Ætla má að Dönum renni þeim mun fremur blóðið til skyldunnar, að skilnaðar- stefnan virðist ekki fyrirferðar- mikil í færeyskum stjómmálum um þessar mundir. Ekki sýnist annað líklegra en að Færeyingar almennt vilji viðhalda sambandinu við Dani á gmndvelli gildandi heimastjórnarlaga og þeirrar sér- stöðu sem þeir hafa gagnvart Evrópubandalaginu. Samanburðarfræði En hvaða gagn er íslendingum að þessum fróðleik? Ekki sist það að fara varlega í samlíkingum og ályktunum. Þegar alls er gætt um stjómmálasamband Færeyinga og Dana og eðli þess er ekki hið minnsta tilefni til þess að leggja þannig út af því að _það sé einhver sönnun fyrir því að Islendingar séu í þörf fyrir að eiga sér „bakhjarl“ í stjórnskipunartengslum við stærri ríkisheild og þá gengið út frá því (eða hvað?) að íslendingar séu eins settir efnahagslega og þjóðfélagslega og Færeyingar, of- urseldir sömu efnahagsvá fyrir ein- hæfni atvinnulífsins og almennt ótrausta undirstöðu hagkerfisins, eins og hún hefur verið lögð eða er í eðli sínu. En svona tala margir. Ekki skal úr því dregið að margt sé líkt með undirstöðu atvinnu- og efnahagslífs þessara frændþjóða og nágranna í Norður-Atlantshafí. Þær hafa það sameiginlegt að verða að reiða sig á auðlindir hafs- ins sem megingrundvöll hagkerfís- ins. Þrátt fyrir það er mikill munur á auðlegð hafsvæða Færeyja og íslands, a.m.k. hinna lífrænu auð- linda. Þar kemur til stærðar- og magnmunur íslandi mjög í hag, eins og á við um löndin sjálf, því svo miklu munar á landstærðinni, að þess gætir eðlilega í stærð land- grunnsins. Þótt lífsbjargarmögu- leikar, búnaðarhættir og alþýðu- menning hafi í aldanna rás verið með ótrúlegu líku sniði, að svo miklu leyti sem landshættir verða bornir saman, í Færeyjum og á íslandi, hefur ætíð verið fólks- fjöldamunur á þessum löndum, enda landstærðarmunur slíkur að svo hlaut að verða. Til fróðleiks má geta þess að um aldamótin 1800 var íbúatala Færeyja rúmlega 5.000 manns. Þá voru á íslandi 47 þúsund íbúar. Nú búa í Færeyjum 47 þúsund manns, þegar íslendingar eru rúm- lega 260 þúsund. ísland er stórt land, 103 þúsund ferkílómetrar. Færeyjar eru örsmátt land, 1.400 fkm, á stærð við landminnstu sýsl- ur á íslandi, litlu stærri en Vestur- ísafjarðarsýsla. Færeyjar eru ekki langt frá því að vera að stærð sem svarar til Vestfjarða milli Bolung- arvíkur og Patreksfjarðar. Á þessu litla landsvæði færeysku þjóðar- innar búa 47 þúsund manns, en á því svæði Vestfjarðar, sem hér um ræðir, búa varla mikið yfír 5.000 manns. Það kemur m.ö.o. í ljós að Færeyjar eru með þéttbýlli löndum, a.m.k. ef horft er til Norðurlanda, en ísland er afar dreifbýlt í slíkum samanburði. Þessum samlíkingum væri hægt að halda áfram miklu lengur og láta þær ná til fleiri sviða, ekki síst auðlinda og land- kosta og reyna þá að gera sér grein fyrir framleiðslu- og atvinnu- möguleikum og hveiju kann að muna í því sambandi. En ef ástæða væri til að nefna eitthvað sem áberandi er, fínnst mér sú stað- reynd mikilvæg, hve landþröngt er í Færeyjum og byggilegir blett- ir þar litlir um sig, einir sér og samanlagt. Hitt er þó ekki minna um vert til umhugsunar um fær- eysk málefni, hve landgrunn eyj- anna er lítið samanborið við mik- ilvægi sjávaraflans fyrir þjóðar- búið. Færeyingar veiða ekki nema hluta heildarafla síns á heimamið- um. Annan afla verða þeir að sækja út fyrir eigin fiskveiðilögsögu og eiga í því efni í stöðugum fiskveiði- samningum við aðrar þjóðir. Er ástæða til að taka fram, að þær veiðiheimildir sem íslendingar láta Færeyingum í té er lítið brot af heildarveiði þeirra. Það sem Fær- eyingar þurfa að sækja út fyrir heimamið sín fara þeir nú á aðrar slóðir en íslandsmið þeirra erinda. Veiðiheimildimar era nánast eins og uppbót fyrir að Færeyingar urðu við tilmælum um að hætta að veiða lax á hafi úti. „Viyi er allt sem þarf“ En hvað sem öllum hlutföllum líður í þessari samanburðarfræði, má vafalaust sjá ýmis líkindi með sjávarútvegsstefnu þjóðanna. Það sem líkast er í því efni er þó „bjart- sýnin“, sem hefur verið töfraorð á vörum málsmetandi manna í stjórnmálum og athafnalífi um all- langt skeið (alla öldina, ef út í það er farið), þar sem unnið var í anda þess vígorðs, sem allir vildu þá Lilju kveðið hafa, að „vilji er allt sem þarf“. „Bjartsýnin“ og „at- hafnaviljinn“ var hafíð til skýjanna á kostnað forsjár og fyrirhyggju. Athafnamenn (í víðri merkingu) vora lengi ódeigir að veðja á „framtíðarmöguleikana“ í sjávar- útvegi. Ætli Færeyingar og ís- lendingar eigi þar ekki óskilið mál. Að sjálfsögðu voru þessir möguleikar fyrir hendi, bara ekki í þeim mæli sem bjartsýnismenn voru sífellt að telja sjálfum sér og öðrum trú um, ekki síst á áttunda árataugnum, áratug hörðustu bar- áttunnar í landhelgismálinu, þegar sigur vannst að lokum með viðun- andi hætti, þ.e. sá formlegi sigur sem felst í því að hafa fengið viður- kennda 200 sjómílna fiskveiðilög- sögu, og þar með yfirráð yfír nýt- anlegum auðlindum sjávarins. Að formi til nutu_ Færeyingar sama ávinnings og íslendingar í þessu efni. En rauverulegur ávinn- ingur gat ekki orðið hinn sami. Eftir sem áður urðu Færeyingar að sækja á fjarlæg mið, því að heimamiðin voru þeim ekki næg til þess að halda uppi þeirri útgerð sem þeir vildu og höfðu mannafla til. Þótt segja megi að íslendingar og Færeyingar hafi orðið reynsl- unni ríkari miðað við bjartsýnina fyrir 15-20 áram, er það samt í ólíkum mæli. Hvað sem segja má um hagi íslenskra sjávarútvegs- greina er ástand þeirra ekki viðlíka og færeyskra. Þótt þjóðargjaldþrot sé munn- tamt þeim sem ræða efnahags- ástandið í Færeyjum, vofir slíkt ekki ^yfir íslendingum. Fyrr má nú segja meiningu sína um ástand- ið en bera sér slíkt í munn. íslend- ingar era auðug þjóð, og myndi nýtast auður sinn, ef þeir kynnu að fara með hann af hófsemi fjár- mála og stjómmála. Að hlýða boði samtímans En er ekki alveg ljóst, að fær- eyskir atvinnuvegir hafa verið reknir með vítaverðu fyrirhyggju- leysi, svo að þjóðarbúskapurinn allur? Ekki ætla ég að svara þeirri spumingu neitandi, en þó með þeim fyrirvara að líta fyrst til upphafsins og fyrri áratuga. Ég man þá tíð að hafa haft góð kynni af Færeyingum á uppvaxtarárum mínum fram á 5. áratuginn (og raunar lengur), að þeir voru þekkt- ir fyrir hófsemi í neysluháttum, aðhald í atvinnurekstri, frábærir sjómenn, heimakærir og þjóð- ræknir, þrátt fyrir eilífar útivistir á sjó eða langdvalir við önnur störf utan heimilis og í útlöndum. Nú er sagt að þeir hafi breytt háttum sínum. Þær sakir eru bornar á Færeyinga, forráðamenn atvinnul- ífsins, landstjórnarmenn, lög- þingsfulltrúa og allan almenning, að þeir hafi gerst fyrirhyggjulaus- ir, stofnað til óbotnandi skulda, lifað stórlega um efni fram. Ég treysti mér ekki til að neita þessu, en mér kemur ekki í hug önnur skýring á þessari kúvendingu í afstöðu til fjármuna en sú skyn- semismeinsemd sem yfirfellur heilu þjóðirnar, þegar bjartsýnin um framtíðina, allt það fútúríska snakk, er látin yfirganga eðlislæga hófsemi alþýðumannsins, bónd- ans, verkamannsins og smáborg- arans, þegar stjórnmálamenn ná ekki til fólks nema með yfirboðum og loftkastalasmíð. Venjan er sú að telja pólitíkusa upphafsmenn bjartsýnisstefnunnar í þessari merkingu. Um það má deila. Veik- leiki stjórnmálamanna er miklu fremur sá að falla fyrir orðum annarra, að þeim finnst þeim beri að „hlýða kalli samtímans“, en það er óljóst hugták, og á sér ekki alltaf velskilgreint upphaf. Það Ingvar Gíslason „Hitt þykist ég rneg-a og er ekki einn um slíkt, að fara fram á það við þá sem stjórna al- mannaumræðunni á ís- landi, að halda sér við efnið í þessu máli, láta af með víxlaðan saman- burð á færeyskum og íslenskum aðstæðum, hætta að gagnálykta á röngum forsendum eða fullnægja hvöt sinni til aulafyndni með því að hafa Færeyjamál í flimtingum. Frænd- þjóðin í Færeyjum á annað skilið af íslend- ingum.“ leiðir síðan af eðli starfs þeirra að þeim er kennt um allar ófarir, ef illa tekst til. Því er það svo, að þótt nú standi hagur færeyskra atvinnuvega illa og þjóðarbúsins í heild, þarf ekk- ert um það að efast að færeyska nýsköpunin var ákveðin að bestu manna yfirsýn. Það var ekki ráð- ist í atvinnuframkvæmdimar að óathugðu máli, síður en svo! Upp- byggingin í atvinnulífinu var talin eiga sér gildar forsendur. Á henni skyldi síðan reisa stórhuga stefnu í öðrum þjóðmálum, samgöngu- bætur, íbúðabyggingar og aðrar þjóðþrifaframkvæmdir. Allt byggðist þetta á dugnaði og fram- taki athafnamanna, spádómsgáfu vísindamanna, í þessu tilfelli sjáv- arlíffræðinga, þekkingu tækni- manna, verkkunnáttu og reikn- ingsgáfu tæknifræðinga af ýmsu tagi og rekstrarfræðinganna. í Færeyjum sem á íslandi sáu fram- sýnustu menn sem svo voru taldir fyrir sér aukið aflamagn og glæsta framtíð þjóðarabúskaparins, þar sem hver vinnandi hönd hefði nóg að gera og atvinnuleysi og brott- flutningur fólks í atvinnuleit er- lendis væri úr sögunni. Þetta var fögur framtíðarsýn. _ Þarf nokkurn íslending að undra þessa bjartsýni í Færeyjum fyrir 15-20 árum? Það þurfti ekki íslenskt fordæmi til að kveikja bjartsýni Færeyinga, þótt hjá þrasgjörnum pólitíkusum hér á landi, þ. á m. forsætisráðherranum sjálfum, teljist það til röksnilldar og smekklegs málflutnings að segja færeysku bjartsýnina inn- flutta frá íslandi og þá náttúrlega frá Steingrími Hermannssyni, sem kann sig raunar svo vel í þessum þrætum að svara ekki slíku funda- rugli, sem er svo einkennandi fyr- ir ræðusnilld þeirra sem tileinka sér mælskufræði Heimdallar, hvernig sem á því stendur! Fær- eyjamál á íslandi eru öll á þessu stigi umræðumenningar, hræsnis- full vandlætingin, blandin heima- alinni lágkúra íslenskrar stjórn- málaþrætu. Hitt er annað mál að Færeyingar létu bjartsýnina bera fyrirhyggjuna ofurliði. Þeir eru ekki einir um það, en höfðu síður efni á því en margur annar. Eftir á sjá allir, að ofgeyst var farið. En frumástæðu ófaranna vilja menn ekki sjá, hina óraunsæju bjartsýni um hraðan hagvöxt og nýsköpunaræði í því sambandi. Um öll Norðurlönd standa fjár- málabáknin völtum fótum vegna ógætilegrar fjárfestingar af ýmsu tagi. Hlutafélagabankar lifa upp á náð ríkisvaldsins og skattborgara nema þeir séu komnir á hausinn. Vonin blíð í stórum dráttum má segja að Færeyingar hafi á sinn hátt staðið í svipuðum sporum og íslendingar árið 1976 og árin þar á eftir. Þeir vora raunar þá og eru enn að mun háðari sjávarafla og sjómennsku um afkomu sína en íslendingar. Þeir höfðu mikla ástæðu til að fagna lokum þorskastríðanna. Færeyingar höfðu átt sígandi lukku að fagna fyrirfarandi ár, sem sést m.a. af því að heildarafla- magn færeyskra skipa óx ár frá ári. Árið 1960 bára færeysk fiski- skip 110 þúsund lestir að landi. Árið 1976 var aflinn orðinn 340 þúsund Iestir og hefur sjaldan orð- ið meiri heldur minnkandi þrátt fyrir mikla fjárfestingu í sjávarút- vegi. Hins vegar var það hin al- menna trú, að úr því að slík aukn- ing gat orðið við þær aðstæður sem ríktu í fiskveiðilögsögumálum fyrir lok þorskastríðanna, hlyti aflinn að vaxa í kjölfar útfærslu landhelginnar. Bjartsýni var kall tímans. En þessi bjartsýni var ógæfa Færeyinga. í stað þess að halda í hin gömlu gildi um hófsemi í lifnaðarháttum, aðgæslu í fjár- hagssökum og önnur búmannleg hyggindi sjóvarbóndans, útróðrar- mannsins og slúppfiskarans urðu þeir við „kalli tímans" um að gera út á bjartsýnina. í stað þess að flytja frumdyggðir alþýðlegrar hagstjórnar milli kynslóða og rót- festa þær í viðskipta- og atvinnu- lífi nýrrar þjóðfélagsgerðar, hlýddu þeir „kalli tímans“ um að veðja á hina blíðu von: láta vara- semina ekki hefta för til framtíð- ar. Færeyingar era nú að súpa seyðið af óvarkárni sinni í fjármál- um, fyrir að hafa látið á sig renna blindandi nýsköpunaræði í anda óraunsærrar trúar á framtíðina. Þrátt fyrir þessi orð hef ég síð- ur en svo löngun til að segja Fær- eyingum til syn'danna eða skipa þeim fyrir verkum. Til þess er ég ekki bær frekar en aðrir landar mínir. Það er ekki íslendinga að taka að sér slíkt hlutverk. Það er færeysku þjóðarinnar og forystu- manna hennar að meta stöðu sína og gera sér grein fyrir ferli óhapp- anna. Vafalaust er sú úttekt þegar hafín, jafnframt því sem óhjá- kvæmilegar neyðarráðstafanir hafa verið gerðar til þess að halda þjóðarskútunni nokkurn veginn á floti. Færeyingum er fulltreystandi til þess að leysa sín mál. Hitt þykist ég mega og er ekki einn um slíkt, að fara fram á það við þá sem stjórna almannaum- ræðunni á íslandi, að halda sér við efnið í þessu máli, láta af með víxlaðan samanburð á færeyskum og íslenskum aðstæðum, hætta að gagnálykta á röngum forsendum eða fullnægja hvöt sinni til aula- fyndni með því að hafa Færeyja- mál í flimtingum. Frændþjóðin í Færeyjum á annað skilið af Islend- ingum. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og ráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.