Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1993 Agústa Þorkels- dóttir - Minning í dag verður jarðsungin frá Borgarneskirkju Inga Ágústa Þor- kelsdóttir, húsfreyja á Helgugötu 1 í Borgarnesi. Hún var ævinlega kölluð Gústa og fyrra nafnið var fáum tamt. Gústa var fædd 25. ágúst 1917 að Ytri-Hraundal í Álftaneshreppi og hafði því náð sjötíu og fimm ára aldri þegar hún lést hinn 22. febrúar sl. á sjúkra- húsinu á Akranesi. Hún var dóttir hjónanna Þorkels Þorvaldssonar og Ingveldar Guðmundsdóttur, sem bjuggu í Borgamesi. Gústa var lágvaxin kona, fríð sýnum og glettin í viðmóti við þá sem hún þekkti vel. Hún var ekki þeirrar gerðar að flíka sér og var raunar feimin að eðlisfari og vann öll sín verk í kyrrþey. Starfsvett- vangur hennar var lengst af heim- ili þeirra hjóna í Borgamesi, en hún var gift Bimi Hirti Guðmunds- syni frá Feijubakka í Borgar- hreppi, sem lifir konu sína. Þeim varð tveggja bama auðið. Sonur- inn Birgir er fæddur 1941, ókvæntur en á tvö böm, og dóttir- in Alda, fædd 1942, en hún lést langt fyrir aldur fram árið 1991. Hún var gift Einari Kristjánssyni, sjómanni, og eignuðust þau fimm böm. Gústa og Bjössi voru sam- heldin hjón sem lýsir sér best í því að ævinlega hefur verið talað um þau í einu og sama orðinu. Eins og áður sagði helgaði Gústa alla krafta sína heimili þeirra Bjössa og augljóst er öllum, sem þar ber að garði, hvílík natni og álúð hefur veirð lög í hvert handtak og viðvik þar. Umgengni fádæma góð utan húss sem innan og það svo að endingartími allra hluta er margfaldur á við það sem gerist í neysluþjóðfélagi nútímans. Gústa var snilldarkokkur og bar allan mat fram sem veislukost. Þá eyddi hún dijúgum tíma við handavinnu og saumaskap. Garð- urinn við húsið og blómaskálinn bera húsráðendum fagurt vitni og augljóst að útsjónarsemi hefur verð viðhöfð í öllum búrekstri. Þess sér og stað í nýjasta fram- taki þeirra hjóna, sem vakið hefur mikila athygli, en það er „Bjössa- róló“, leikvöllurinn sem húsbónd- inn hefur komið upp í næsta ná- grenni við húsið. Þangað leggur unga kynslóðin leið sína og grun hef ég um að ýmsir hafi vanið komið sínar inn í blómaskálann til að heilsa upp á húsfreyju og jafn- vel að þiggja mola. Samgangur og órofa vinskapur hefur ætíð verið á milli þeirra Bjössa og Gústu og æskuheimilis míns á Beigalda. Varla var svo farið í kaupstaðaferð áður fyrr að ekki væri komið við í kaffisopa hjá Gústu. Þá voru þó þægindi með allt öðrum róm en nú þar sem einkabílisminn hafði ekki enn haf- ið innreið sína og ferðast var um með áætlunar- og mjólkurbílum. Þá var samt ekki síður tími til að rækta vináttubönd heldur en nú-á tímum. Gestrisni þeirra hjóna var við- bruðið og hennar hafa margir not- ið. Það var ekki aðeins einn og einn kaffísopi sem boðið var upp á. Nei, heimilinu var tvívegis breytt í fæðingarstofnun þegar barnsvon var á Beigalda. í fyrra skiptið var það þegar undirrituð bjó sig til innrásar í þennan heim og hið síðara þegar litli bróðir fæddist árið 1958. Slíkt þótti svo sem ekkert tiltökumál því að það var hreint ekki talin ástæða að leggjast á sjúkrahús til þess að fæða börn. En til bóta þótti horfa að aðbúnaður væri sem bestur í sængurlegunni. Hann var vís á þessum stað og með samstilltu átaki gerðu þau hjón og Jóhanna ----- --------33 ljósmóðir heimilið að fyrsta flokks fæðingarstofnun. Þess verður ávallt minnst með þakklæti. Þegar sú sem þetta ritar óx úr grasi og þurfti að sækja landspróf í Borgarnes kom enn til kasta velgjörðarfólksins á Helgugötu 1. Þar var fundinn griðastaður í frí- mínútum og hádegismáltíða notið í ríkum mæli. Svei mér ef báðir aðilar höfðu ekki nokkurt gaman af fyrir utan gagnið sem ístöðu- góðir málsverðir urðu skólastúlk- unni. Fyrir fáum árum veiktist Gústa af krabbameini. Þeirri staðreynd tók hún af æðruleysi. Tiltrú henn- ar til lækna og lækningaaðferða gerði það að verkum að henni tókst að takast á við sjúkleika sinn af fádæma hispursleysi og hetjuskap. Það hefur áreiðanlega létt henni róðurinn. Að lokum náði sjúkleik- inn þó yfírhöndinni. Samt var það aðeins fáum dögum fyrir andlátið að hún spilað við félaga sína á sjúkrahúsinu. Gott er til þess að vita þar sem hún hafði ánægju af því að taka í spil. Með þessum orðum fylgja inni- legar samúðarkveðjur á Helgu- götu 1 frá okkur öllum á og frá Beigalda. Lilja Ámadóttir. Minning Hjalti Bjömsson bifreiðarsijóri Fæddur 13. maí 1907 Dáinn 23. febrúar 1993 Hann afí okkar, Hjalti Björns- son, er dáinn og í dag fer fram útför hans. Okkur langar til að minnast hans nokkrum orðum. Afí fæddist að Hlíð í Hjaltadal í Hólahreppi 13. maí 1907, og var því 85 ára þegar hann lést. Árs- gamall fluttist hann að Unastöðum í Kolbeinsstaðadal og ólst þar upp hjá foreldrum sínum meðal margra systkina. Þau eru nú í dag öll dáin nema tvær systur hans, þær Jóhanna sem nú er á Hrafnistu og Guðrún sem býr á Dalvík. Afí fór fljótt að vinna öll venjuleg störf til sveita, lengst sem vinnumaður að Ási í Hegranesi, en síðar hjá Thor Jensen á Korpúlfsstaðabúinu sem mjólkurbílstjóri. Þar kynntist hann henni ömmu og giftu þau sig árið 1933. Það sama ár fædd- ist mamma okkar. Ömmu og afa þótti vænt hvoru um annað og bjuggu saman síðan, eða í 60 ár, lengst af í Mávahlíð 3, en það hús byggði afi ásamt vinum sínum, árið 1945-1947. Afí var leigubílstjóri í Reykja- vík, en vann lengst við að aka strætó í borginni. Hann ók vagnin- um sem fór frá Lækjartorgi inn að Kleppi og síðar leið 12 í Breið- holtið. Það var sagt um hann afa að hann hefði passað svo vel að vera á réttum tíma á biðstöðvun- um að fólk hefði getað stillt kluk- umar sínar eftir vagninum hans. Stundum þegar mikið var að gera sagðist hann því miður ekki geta selt fólkinu farmiðakort því að hann þyrfti að vera á réttum tíma á hverri biðstöð. Oft sagði afí okkur frá því hve vænt honum þótti um Skagafjörð- inn og þegar við nafnamir fórum sumarið 1989 í ferðalag norður í land á æskuslóðir hans var það mjög gaman er hann sagði frá ýmsu sem hann upplifði og vinnu- brögðum gamla tímans. Þá kom- um við meðal annars að Hólum í Hjaltadal og þegar húsráðendur heyrðu að tveir Hjaltar óskuðu eftir næturgistingu var það fús- lega veitt þó að almennt væri gist- ing ekki veitt. Margar glaðar og góðar stundir áttum við hjá afa og ömmu í Mávahlíðinni þegar við gistum þar þegar við vorum yngri og þá breiddi afí ábreiðu yfír sængina okkar og bað guð að geyma okk- ur. Ennig hafði hann lag á því að læða sælgæti í lítinn munn eða litla hönd þegar það átti við. Nú á kveðjustund rifjast upp margar fagrar minningar um afa okkar sem gaf okkur margt. Þess- ar minningar munum við geyma og biðjum guð að gæta að ömmu okkar á þessum erfíða tíma. Megi afí hvíla í friði og blessuð sé minn- ing hans. Hjalti Magnússon, Anna Sigríður Magnúsdóttir. Hann afí er dáinn, á 86. aldurs- ári sínu, og því búinn að lifa tímana tvenna, þar á meðal tíma sem eru okkur fjarlægir í dag - þegar algengt var að heimili flo- snuðu upp vegna fátæktar og böm voru send í fóstur og til að vinna fyrir sér. Það var ekki alltaf spum- ing um kærleika, heldur það að komast af. En Skagafjörðurinn og Hjalta- dalurinn voru honum alltaf kærir. Öllu oftar nefndi hann vinnu- mennsku sína hjá Thor Jensen. Þaðan átti hann minningar sem yljuðu. Árin á Lágafelli og vinina sem hann eignaðist þar, þau Hall- dóm og Kristin á Mosfelli, Korp- úlfsstaðina þar sem hann lærði að slá og sá um að aka mjólkinni til Reykjavíkur. Búskapurinn og sveitin vom honum alltaf hugleik- in, þótt hann flyttist til Reykjavík- ur og væri bílstjóri hjá Strætis- vögnum Reykjavíkur í 30 ár. Það voru yndislegar stundir þegar afi kom til okkar í Miðdal og oft til að vera dag og dag. Hann vildi fylgjast með búskapn- um og, meðan heilsa entist, gera gagn. Stundirnar sem hann átti með langafabömunum verða þeim ógleymanlegar, sérstaklega nafna hans, Hjalta Frey, sem saknar langafa nú sárt. Elsku afí. Það var gott að leita til þín. Þú hafðir alltaf tíma og gafst svo mikið af þér. Það er erfítt að kveðjast, en minningarnar lifa. Sofðu rótt. Svana. Birting af- mælis og minningar- greina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík, og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar em birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. t Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÞÓRUNN SVEINBJARNARDÓTTIR, Kvisthaga 2, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, Reykjavík, föstudaginn 5. mars kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Blindrabókasafn (slands. Hafliði Halldórsson, Sveinbjörn Hafliðason, Anna Lárusdóttir, Ólöf Klemensdóttir, Þórunn Halldórsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir, Eydís Sveinbjarnardóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Anna Sveinbjarnardóttir, og barnabarnabörn. t Faðir okkar, BJÖRN JÓNSSON, Hvassaleiti 56, fæddur 8. maí 1925, lést 21. febrúar 1993. Bálför hans er af staðin. Þökkum hlýhug og vinarþel. Þórunn Björnsdóttir, Jón Björnsson, Grfmur Björnsson, Þórhildur Björnsdóttir, Finnur Björnsson, makar þeirra og börn. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, JÓNS TRYGGVA SVEINBJÖRNSSONAR, Háaleitisbraut 24. Ingunn Sigurðardóttir, Guðrún Tryggvadóttir, Sturla Friðriksson, Gautur Sturluson, Tryggvi Steinn Sturluson. + Innilegar þakkir færum viö öllum þeim, sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og minningu eiginmanns míns, föð- ur, tengdaföður, afa og langafa, EINARS OLGEIRSSONAR fyrrv. alþingismanns. Sérstakar þakkir eru færðar forráðamönnum, starfsfólki og vist- mönnum á Hrafnistu í Hafnarfirði. Sigríður Þorvarðardóttir, Sólveig Kristín Einarsdóttir, Lindsay O’Brien, Einar Baldvin Þorsteinsson, Edda Þorsteinsdóttir, Halldór Guðmundsson, Svandís Halldórsdóttir, Halla Halldórsdóttir, Þorsteinn Halldórsson, Jóhanna Axelsdóttir, Magnús Jón Árnason, Gísli Rafn Ólafsson, Þorvaröur Tjörvi Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.