Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1993 29 Arshátíðarmót Harðar Keppnisvettvang- ur áhugamannsins ________Hestar_____________ Valdimar Kristinsson Harðarmenn héldu á laugar- dag sitt fyrsta mót á árinu sem þeir kölluðu Arshátíðarmót enda árshátiðin haldin þá um kvöldið. Keppt var í töld i fjórum flokk- um, tveimur flokkum fullorðinna og barna- og unglingaflokkum. Þá var keppt i 150 metra skeiði. Nú í annað sinn bjóða Harðar- menn upp á tvo styrkleikaflokka fyrir fullorðna á mótí hjá félag- inu þar sem menn veija sér flokkinn sjálfir. Hefur þetta fall- ið í góðan jarðveg og mun verða framhald á. Harðarmenn hafa gert nokkuð í því að örva hinn almenna hesta- mann til þátttöku í keppni á vegum félagsins og er þessi háttur einmitt viðhafður í því augnamiði. Þá hefur á íþróttamótum félagsins verið veittur svokallaður Jómfrúrbikar en hann hlýtur sá keppandi sem keppir í fyrsta sinn í íþróttamóti og hlýtur flest samanlögð stig af þeim sem eru að spreyta sig í fyrsta sinn. Á aðalfundi félagsins nýlega færði Hákon Jóhannsson, sem oft hefur verið kenndur við verslunina Sport, félaginu að gjöf tvo bikara til minningar um tvo hesta í hans eigu, Hálegg og Blakk. Verða bik- aramir veittir þeim áhugamönnum sem bestum árangri ná í A- og B-flokki gæðinga á móti félagsins í vor. í skipulagsskrá fyrir bikarana segir að þeir kallist áhugamenn sem ekki temji hross fyrir aðra gegn gjaldi og hafi ekki gert síðast- liðin þijú ár. Einnig segir að með- limir í Félagi tamningamanna séu ekki gjaldgengir í keppni um bikar- ana. Umræðan um minnkandi áhuga fyrir hestamótum beinist orðið í þá átt að skapa þurfí sem flestum réttan vettvang til þátttöku í keppni og er það ein ástæðan fyrir því að Harðarmenn buðu upp Hákon í Sport færði Herði að gjöf tvo bikara sem veittir verða þeim áhugamönnum sem bestum árangri ná í gæðingakeppni fé- lagsins. Það er formaður Harðar, Rúnar Sigurpálsson, og ritar- inn, Björk Magnúsdóttir, sem veittu gjöfunum viðtöku. Á aðalfundi Harðar voru veittar viðurkenningar þeim efnilegustu og bestu. Frá vinstri talið: Magnea Rós, sem valin var efnilegasta stúlkan, Rúnar formaður, þá Gunnar Þorsteinsson, sem valinn var efnilegastí pilturinn, og Guðmar Þór Pétursson, sem valinn var íþróttamaður Harðar 1992, en hann varð annar í vali á íþróttamanni Mosfeilsbæjar. á tvo styrkleikaflokka. Aðeins einn dómari dæmdi á mótinu nú en þar var að verki sá kunni hestamaður Ragnar Hinriks- son, en hann naut aðstoðar eigin- konunnar, Helgu Classen, og dætr- anna. Ekki voru gefnar einkunnir heldur viðhaft útsláttarfyrirkomu- lag svipað og í firmakeppni. En úrslit mótsins urðu sem hér segir: Hlutskörpust í B-flokki, sem er ætlaður áhugamönnum, urðu, frá vinstri taiið: Þórarinn Jónsson, Bára Elíasdóttir, Guðlaugur Páls- son, Brynhildur Þorkelsdóttir og sigurvegarinn, Guðmundur Jó- hannsson, sem kepptí á Byl frá Kúfhóli. 3. Barbara Mayer á Gauta. 4. Valdimar Kristinsson á Geysi frá Hala. 5. Berglind Ámadóttir á Betsy frá Varmadal. Tölt, B-flokkur: 1. Guðmundur Jóhannsson á Byl frá Kúfhóli. 2. Brynhildur Þorkeisdóttir á Nat- ani frá Hala. 3. Guðlaugur Pálsson á Jarli frá Álfhólum. 4. Bára Elíasdóttir á Dropa frá Helgadal. 5. Þórarinn Jónsson á Sleipni frá Stóra-Hofí. Tölt baraa: 1. Magnea Rós Axelsdóttir á Vafa frá Mosfellsbæ. 2. Brynja Brynjarsdóttir á Ljóma frá Seljatungu. 3. Eyþór Ámason á Víkingi. 4. Hrafnhildur Jóhannesdóttir. 5. Kristján Magnússon á Pæper frá Varmadal. 6. Fanney Dögg Ólafsdóttir á Hrefnu frá Möðruvöllum. Tölt unglinga: 1. Svanhildur Jónsdóttir á Fjölni frá Ámanesi. 2. Sölvi Sigurðarson á Nunnu. 3. Guðmar Þór Pétursson á Blæ frá Helgadal. 4. Jóna Björg Ólafsdóttir á Garpi frá Svanavatni. 5. Gunnar Þorsteinsson á Tító frá Ketilsstöðum. Magnea Rós sigraði í töltí barna og var valin efnilegastí knapinn og hestur hennar, Vafi frá Mosfellsbæ, valinn fegurstí gæðingurinn. Tölt, A-flokkur: 1. Þorvarður Friðbjömsson á Prins frá Keflavík, Skag. 2. Sigurður Sigurðarson á Ridd- ara. Ný frímerki 10. marz nk. ________Frímerki Jón Aðalsteinn Jónsson Hinn 10. marz nk. koma út fjög- ur ný íslenzk frímerki. Heyra þau til tveimur flokkum frímerkja, sem póststjórnin hóf að gefa út 1990 og 1992. Fyrst verða fyrir tvö íþróttafrí- merki. Eru þau íjórða útgáfan í þeim flokki. Að þessu sinni minna þau á handknattleik og hlaup. í til- kynningu póststjómarinnar nr. 1/1993 segir m.a., að handknatt- leikur hafí lengi verið ein vinsæl- asta íþróttagrein hér á landi. Barst hann hingað til lands frá Danmörku fyrir sjötíu árum. Bent er á, að karlalandsliðið í þessari grein sé nú meðal fremstu landsliða heimsins. Um hlaup segir, að þau séu í mörg- um tilfellum liður í síaukinni þátt- töku almennings í hlaupaíþróttum sem almennri líkamsrækt. Þessi íþróttafrímerki eru með sama svipmóti og fyrri merki í sama flokki, enda teiknarar eða hönnuðir hinir sömu og áður, þeir Ástþór Jóhannsson og Finnur Malmquist. Áður hefur verið minnzt á það í þessum þáttum, að mörgum hefur fundizt þessi frímerki ekki alltaf hafa sýnt nægiiega skýrt eða smekklega þá íþróttagrein, sem verið er að kynna með merkinu. Ég játa, að ég er einn í þeim hópi. Þó verður að viðurkenna, að höf- undum tekst mjög misvel ætlunar- verk sitt. Sjálfum er mér ljóst, að þeir eru hér viljandi að fara inn á lítt troðnar slóðir og ætla skoðand- anum að gefa hugmyndaflugi sínu lausan taum í nákvæmri túlkun myndefnis hverju sinni. Því verður svo ekki neitað, að öll þessi íþrótta- frímerki hafa ákveðið sameiginlegt svipmót, þegar þau koma saman, og skera sig frá öðrum myndefnum íslenzkra frímerkja fram að þessu. Hér á ég ekki síður við litaval merkjanna, sem oft fer vel við sjálfa mynd þeirra. Eitt er það við hönnun þessara frímerkja, sem ég á erfítt með að fella mig við, en það er, hvemig heiti landsins er komið fyrir og eins nafni íþróttarinnar. Hvort tveggja blasir rétt við, þegar merkinu er snúið um 90%. Þetta verður til þess, að margir líma frímerkið öfugt á bréfíð, miðað við það, sem ætlazt er til með verðgildistölunni. Sann- leikurinn er sá, að menn gera ósjálf- rátt ráð fyrir því sem sjálfsögðum hlut, að nafn landsins blasi rétt við eftir myndefninu. Þetta geta les- endur borið saman við þau tvö önn- ur frímerki, sem koma út þennan sama dag. Skýring mín er sú, að þetta gerist ekki sízt með íþrótta- merkin, þar sem myndefni þeirra er á stundum fremur torráðið og mörgum þá ekki alveg ljóst, hvem- ig það eigi að snúa. Þennan dag koma út tvö ný frí- merki í þeim flokki, sem hófst í frímerkjasögu okkar 9.-okt. sl. og nefna má brúarfrímerki. Að þessu sinni er mynd af brúnni yfir Hvítá hjá Feijukoti á 90 kr. frímerki. Þessi brú var smíðuð árið 1928 og var geysimikil samgöngubót á leið- inni frá Reykjavík og norður og vestur um land. Jafnframt var hún mikilsvirði fyrir Borgfírðinga sjálfa og alla innansveitarumferð. Hvítár- brúin er steinsteypt bogabrú í tveimur höfum og þótti og þykir enn hið fegursta mannvirki. Þar sem einungis ein akrein var á brúnni, hlaut að koma að því, að hún annaði ekki þeirri umferð, sem jókst stöðugt milli landshluta. Þá varð það, að Borgarfjarðarbrúin leysti Hvítárbrúna af hólmi 1980-81. — Á 150 króna frímerki er mynd af brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum, ekki Iangt frá Grímsstöð- um. Brúin var smíðuð á árunum 1946-47. Jökulsárbrúin er hengi- brú með steyptum turnum, stál- strengjum og stálbitum. Er hafið 104 m milli tuma. Hönnuður þessara brúarfrí- merkja er hinn sami og áður, Helgi Hafliðason. Hins vegar eru nýju frímerkin prentuð í Englandi hjá prentsmiðju, sem íslenzka póst- stjómin hefur ekki áður skipt við, svo að ég muni. Heitir hún Walsall Security Printers Ltd, Walsall. Fyrri frímerkin voru offsetprentuð í Hol- landi hjá prentsmiðju, sem ísl. póst- stjómin hefur oft skipt áður við. Að venju eru sérstakir fyrsta- dagsstimplar, sem minna á mynd- efnið. Þannig fá mótífsafnarar við- bótarefni í söfn sín. Um brúarmerk- in er það að segja, að nú er í stimpl- inum mynd af brúnni yfír Hvítá hjá Bamafossi, sem smíðuð var 1891. Fer vel á því að velja við hveija slíka útgáfu ákveðna gamla og þekkta brú sem myndefni stimpils- ins. Kílóvara póststj órnarinnar 1992 Með tilkynningu í janúar aug- lýsti ísl. póststjómin eftir tilboðum í kílóvöra sína. Er hér um að ræða notuð frímerki og að sögn einkum frá árínu 1987. Póststjómin er óvenju snemma á ferðinni með kíló- vörana, en tilboðstíminn rennur út 1. marz nk. Því miður er ábending mín allt of seint á ferðinni. Engu að síður vil ég benda söfnuram á þetta, ef þeir skyldu hafa huga á að bjóða í þessa vöru. Því miður er hún oft misjöfn að gæðum. Fyr- ir tveimur áram var hún óvenjulé- leg, en ég held menn hafí verið nokkuð ánægðir með kílóvörana í fyrra, þ.e. fyrir árið 1991. Til leiðbeiningar þeim, sem senda vilja tilboð, er tekið fram í tilkynn- ingu póststjómarinnar, að lægsta tilboð við síðustu úthlutun, sem tek- ið var, hafi verið 5.325 krónur fyr- ir 250 gramma pakka. Að auki bætist svo við hinn rangláti virðis- aukaskattur á tilboð innlendra að- ila. Þá sakar ekki að geta þess, að hver maður má bjóða í allt að 12 pakka eða 3 kg af þessari vöra'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.